Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1985, Side 8
8
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 26. NÓVEMBER1985.
Utlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Rottuplága
íLissabon
Borgarráð Lissabon hefur
skorið upp herör gegn rottu- og
músagangi í höfuðborginni. Tal- -
ið er að fjögur nagdýr séu á móti
bverju einu mannsbarni í þessari
tveggja milljón manna borg.
Næsta ár skal helgað því áð losa
borgarbúa við þessa plágu. Það
mun þó kosta skildinginn. Til að
byrja með eru ætlaðar 18 milljón-
ir króna til rottustríðsins.
SnekkjaGörings
seld
Ásgeir Eggertsson, fréttaritari
DV í Munchen:
Lúxussnekkja Gerds Heide-
manns, fyrrum blaðamanns
„Stem“, sjálf „Karin II“, var
boðin upp á nauðungaruppboði í
Hamborg í gær. Snekkjan er 27,5
metra löng og var eitt sinn í eigu
marskálksins Görings.
Heidemann var í júli í'sumar
dæmdur til fjögurra ára og átta
mánaða fangelsisvistar fyrir að
hafa unnið með Konrad Kujau
að fölsun dagbóka Hitlers. Heide-
mann keypti snekkjuna árið 1973
fyrir 160 þúsund mörk. I réttar-
höldunum var snekkjan mikil-
vægt sönnunargagn. Heidemann
hafði nefnilega steypt sér í skuld-
ir vegna endurnýjunar skipsins.
Meðal annars lét hann gullhúða
alla vatnskrana í skipinu.
Mobutu
mildardóma
Mobutu, forseti Zaire, náðaði
um helgina allmarga refsifanga
og veitti öðrum töluverða eftir-
gjöf í tilefni af því að 20 ár voru
liðin frá því að hann komst til
valda í byltingu hersins. Þeir sem
dæmdir höfðu verið í hámark 3ja
ára fangelsi voru náðaðir en
hinir sem lengri dómar hvíldu á
fengu þriggja ára styttingu refsi-
vistar. Þetta tók þó ekki til
flóttafanga, dæmdra morðingja,
ræningja eða þeirra sem stolið
höfðu úr sjóðum þess opinbera.
Mótmælanjósn-
umKínaíUSA
Bandaríkjastjórn hefur mót-
mælt formlega við Pekingstjórn-
ina njósnum Larry Wu-Tai Chin
sem á 30 ára starfsferli sínum hjá
bandarísku leyniþjónustunni lét
Kínverjum í té margháttuð
leyndarmál.
Njósnaferill hans hófst í Kór-
eustríðinu og hefur staðið allt
fram á þennan dag, þrem árum
eftir að hann fór á eftirlaun hjá
CIA. Hann er sá fyrsti sem upp-
víst er að hafi njósnað fyrir Kína
um Bandaríkjamenn.
StefnirHaigað
forsetaframboði
Alexander Haig, fyrrum hers-
höfðingi og utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, er sagður íhuga
möguleik- ann á framboði til
forsetakjörs 1988. Tímaritið
Newsweek greinir frá því að
Haig hafi látið hafa eftir sér að
ótímabært sé að velta vöngum
yfir því hvort hann gefi kost á
séT eða stefhi að framboði.
Hitt er þó vitað að hann átti
nýlega fund með þeim sem stýrði
kosningabaráttu Reagans í New
Hampshire 1976 og 1980. Blaðið
segir að Haig muni hitta í þessari'
viku leiðtoga samtaka sem kalla
sig „Project 88“. Þau leita sér að
íhaldsmanni sem gæti verið
framboðsefni í baráttunni um
útnefningu Repúblikanaflokks-
ins því að eftir tvö kjörtímabil
kemur Reagan ekki aftur til |
greina.
Flugræningjamir frá
PLO og tengdir Líbýu
— að sögn Egypta, sem njóta samúðar og stuðnings vegna blóðbaðsins á Möltu
Einn hinna fimm arabísku ræn-
ingja egypsku farþegavélarinnar var
á skurðarborðinu hjá læknum á
Möltu í gær. Hann var sá eini ræn-
ingjanna sem lifði af áhlaupið. - Af
97 manns um borð lifðu aðeins 37.
Viðbrögð víðast um heim hafa
verið á sömu lund. Menn hryllir við
blóðbaðinu en margir votta Egypta-
landi og Möltu samúð og stuðning.
- Flestir farþeganna féllu er ræningj-
arnir vörpuðu handsprengjum til
gísla sinna sem leiddi síðan til þess
að eldur gaus upp í flugvélinni. Tvo
höfðu ræningjamir drepið áður en
sló í bardagann.
Egyptar segja að flugræningjarnir
hafi heyrt til klofningssamtökum frá
PLO og hafa gefið í skyn að þeir
hafi verið tengdir Líbýu. Leiðtogar
PLO hafa fordæmt flugránið.
Egypsku víkingasveitinni, sem
yfirbugaði flugræningjana, var fagn-
að sem hetjum við komuna til Kaíró
í gær. Egyptar segja að dátamir hafi
aðeins skotið sjö skotum og hæft
flugræningja í þeim öllum. - Bretar
og Bandaríkjamenn hafa lokið lofs-
orði á Egypta fyrir að hafa ákveðið
áhlaupið.
FÁ EKKISKÓLAVIST NEMA
EFTIR ALNÆMISSKOÐUN
Níu frá Afríku hafa fundist á 3 mánuðum með alnæmi
Námsfólk frá þróunarlöndunum,
sem sækir skóla í Vestur-Þýskalandi,
verður að gangast undir læknisskoð-
un með tilliti til þess hvort það hafi
snert af alnæmissjúkdómnum. Yfir-
völd í Bonn upplýsa að þetta hafi
viðgengist í nokkra mánuði og að
af nokkur hundruð námsmönnum,
sem skoðaðir hafi verið, hafi níu
reynst vera með alnæmi, allir frá
Afríku.
Raunar hafa allir, sem koma frá
Afríku til náms í V-Þýskalandi, orðið
að gangast undir læknisskoðun
samkvæmt reglugerð sem tók gildi
1961. Þykir yfirvöldum eðlilegt að
skoðunin taki núna einnig til al-
næmisathugunar. - „í flestum tilfell-
um er sjúkdómurinn banvænn og
sýnist lítil skynsemi í því að kosta
dýrt háskólanám á þá sem ganga með
hann,“ sagði Manfred Oblander,
talsmaðurheilbrigðisráðuneytisins.
Vísindamenn í Finnlandi upplýstu
í gær að þeir hefðu fundið alnæmis-
veiru á augnlinsum alnæmissjúkl-
ings sem þeir höfðu til meðferðar.
Bandaríkjafloti hafði veitt Egypt-
unum aðstoð við að fylgjast með
rændu vélinni og við flug víkinga-
sveitarinnar til Möltu.
Grikklandsstjóm hefur gagnrýnt
Kaíróstjómina fyrir að gera henni
ekki viðvart um björgunaráætlun-
ina. Tólf Grikkir vom í hópi hinna
föllnu. - Meðal Möltubúa em einnig
uppi gagnrýnisraddir.
Einn farþeganna, sem ræningjamir
höfðu „tekið af lífi“ fyrir áhlaupið,
lifði tilræðið af en ræningjarnir
héldu hann dauðan. Lék hann sig
steindauðan og vörpuðu ræningj-
amir „líki“ hans út úr flugvélinni
og niður á flugbrautina. Þar lá hann
grafkyrr í rúmar fimm mínútur en
hljóp síðan undir flugvélarskrokkinn
þar sem ræningjamir gátu ekki séð
til hans.
Asahláka
íSíberíu
í Norðaustur-Síberíu eru nú
meiri hlýindi en komið hafa þar
í meira en hálfa öld. Segir Tass-
fréttastofan að hreindýrastofii-
inn sé í hættu.
í Pevek, sem á að heita á heim-
skautasvæðinu, fór hitinn á
skömmum tíma úr mínus 30 gráð-
um á Celsíus, sem er eðlilegt á
þessum árstíma, upp í 3 gráður.
Fjórum dögum síðar var hann
kominn upp í 7 gráður og tók að
rigna. Þessari asahláku fylgdi að
freðmýrin tók að þiðna á stórum
flákum.
Hirðingjum á þessum slóðum
finnst þetta verra en ills viti. Um
leið og hitastigið verður aftur
eðlilegt leggst klakabrynja á
gróðurinn sem er berskjaldaður
þegar snjórinn hvílir ekki lengur
yfir. Það verða alger jarðbönn
fyrir hreindýrahjarðir þeirra. -
Yfirvöld hafa byrjað leit að beit-
arhögum sem hlákan hefur ekki
náð til en veðrið hefur hamlað
leit úr lofti.
Á meðan SS-eldflaugar eru í
Eystrasaltsríkjunum þykir
ýmsum á Norðurlöndum lítt
raunhæft að lýsa Norðurlönd
kjarnavopnalaust svæði.
Noregur hafnar tillögu um
kjamavopnalaus Norðurlönd
Telja hana ekki raunhæfa við núgildandi aðstæður
Noregur hefur gert að litlu vonir
þeirra sem ætluðust til þess að Norð-
urlönd yrðu lýst kjamavopnalaust
svæði. { skýrslu norsku stjómarinn-
ar var þessari hugmynd hafnað í gær
„við núgildandi aðstæður“ og Káre
Willoch forsætisráðherra sagðist
ekki mundu mæta á fund leiðtoga
Norðurlandanna um þetta mál núna
í vikunni.
Tillagan um kjamavopnalaus
Norðurlönd fól í sér að Noregur,
Svíþjóð, Danmörk og Finnland af-
tækju með öllu að þar yrðu nokkum,
tíma kjamavopn. Danir og Norð-I
menn hefðu orðið að snúa baki við
þeirri stefnu NATO að slík vopn
skyldu tiltæk sem örþrifaráð ef ráðist
yrði á þessi lönd.
Svíþjóð og Finnland, sem bæði em
hlutlaus ríki, hafa lýst sig mjög
hlynnt hugmyndinni. 1 skýrslu
norsku stjómarinnar þykir hún því
aðeins fysileg að samkomulag næðist
um fækkun kjamavopna í Evrópu
og þá bæði austantjalds og vestan.
„Kjamavopnalaus Norðurlönd, jafht
á friðar- sem ófriðartímum, mundi
útiloka Noreg frá hinu mikilvæga
vamarbandalagi NATO,“ segir í
skýrslunni.
Willoch, sem átti að flytja ræðu á
Kaupmannahafnarfundinum núna í
vikunni, ásamt Olof Palme, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, segist ekki ætla
að sækja fundinn.
Sovétmenn hafa verið mjög fylgj-
andi tillögunni um kjamavopnalaus
Norðurlönd en hægrimenn á 'Norð-
urlöndum vilja að Sovétmenn fjar-
lægi kjamavopn sín frá Eystrasalts-
löndunum og jafnvel Kolaskaga,
áður en hugmyndin komi til raun-
hæfrar athugunar.
Káre Willoch, forsætisráðherra
Noregs, ætlar ekki aö sækja
fundinn í Kaupmannahöfn um
kjarnavopnalaus Norðurlönd.
Umsjón: Guömundur Pétursson