Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1986, Qupperneq 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986.
Eldur logaði út um glugga herbergisins. Rúmið í herberginu fuðraði
upp eins og sjá má á myndinni. DV-mynd GVA
Eldurinn kom upp á deiiá 8 (sjá 1 á mynd). Vaktmaðurinn var við
störf á deild 7 (sjá 2 á mynd). Vistmaðurinn, sem bjó í herberginu
sem eldurinn kom upp í, mætti vaktmanninum í húsi sem tengir
deildirnar (sjá 3 á mynd).
Það kviknaði í út frá kertaljósi þegar kertið datt niður á gólf af þessari kommóðu. Þorsteinn Stein-
grímsson rannsóknarlögreglumaður sést hér við rannsóknarstörf í gærmorgun. DV-mynd GVA
Adeins einn vakt-
maður var á vakt
—ídeild7og8 þegareldurinnkomupp
Það var maður sem var að koma
frá Hafnarfirði sem tilkynnti um
að eldur væri laus í Kópavogshæli.
Hann sá eldtungur koma út um
glugga er hann var á ferð í bifreið
sinni yfir Arnarneshæðina. Vakt-
menn á hælinu urðu eldsins ekki
varir. Þeir vissu ekki að eldur væri
laus fyrr en lögregla og slökkvilið
var komið á vettvang.
Átta vaktmenn voru við vinnu á
Kópavogshælinu þegar eldurinn
varð laus. Eldurinn kom upp á
deild 8 sem er ein af fjórum deildum
í heimiliseiningum á svæðinu (sjá
mynd). Það eru aðeins tveir vakt-
menn sem sjá um næturvakt á
deildunum fjórum 60 vistmenn
dveljast á deildunum.
Þegar eldurinn kom upp á deild
8 var vaktmaðurinn við störf á
deild 7 sem er næsta svefnálma við.
Það vekur nokkra athygli að að-
eins tveir vaktmenn skuli sjá um
íjórar deildir sem eru í fjórum sér-
stæðum svefnálmum. Hvor vakt-
maður um sig hefur því umsjón með
þrjátiu vistmönnum.
- sos
„Reykskynjarar
eru falskt öryggi”
— segir Símon Steingrímsson, forstjóri
tæknideildar nkisspítalanna
Ekkert viövörunarkerfi eöa
reykskynjarar í Kópavogshæli
Það hefur varið mikla athygh i
sambandi við brunann í Kópavogs-
hælinu í gær að ekkert eldviðvö-
runarkerfi og enginn reykskynjari
er á hælinu. Einfaldir reykskynjar-
ar kosta ekki mikla peninga en
aftur á móti er þó nokkur kostnað-
ur við að koma upp fullkomnu
eldviðvörunarkerfi.
DV hefur frétt að það hafi verið
búið að teikna og skipuleggja við-
vörunarkerfi í Kópavogshælið 1980
og búið að leita tilboða í kerfið.
Þá hafi verið skorin niður fjárfest-
ing á kerfinu.
„Við höfum oft óskað eftir því að
viðvörunarkerfið væri sett upp hér
á hælinu. Síðast minntumst við á
það þegar fjárlagaáætlun var lögð
fram. Því miður höfum við fengið
þau svör að peningar væru ekki
fyrir hendi,“ sagði Björn Gestsson,
forstöðumaður Kópavogshælisins.
- sos
Símon Steingrímsson, forstöðu-
maður tæknideildar ríkisspítal-
anna. Símon sagði að spítalarnir
hefðu allir verið byggðir áður en
reglugerð um brunavarnir í sam-
bandi við nýbyggingar var sett.
„Bruninn í Kópavogshælinu
verður örugglega til þess að stórá-
tak verður gert í þrunavörnum,"
sagði Símon.
- Hefur starfsfólk á spítulum ekki
óskað eftir að reykskynjarar yrðu
settir upp á meðan ekki væru
komin fullkomin eldvarnakerfi?
„Bæði starfsmenn, læknar og
stjórnarmenn hafa óskað eftir
reykskynjurum. Tækninefndin hef-
ur talið það vera falskt öryggi að
hafa reykskynjara sem ekki væru
samtengdir. Það hefur sýnt sig að
reykskynjarar, sem ganga fyrir
rafhlöðum, hafa farið úr sambandi
og ótryggt hafi verið að þeir virk-
uðu. Við höfum ekki talið rétt að
setja upp hundruð reykskynjara
hér og þar.“ „Nei, tækninefndin er
ekki á móti reykskynjurum. Við
teljum þá aðeins ótrygga til fram-
búðar,“ sagði Símon.
Þess má geta að slökkviliðsmenn,
sem DV ræddi við í gær, voru ekki
á sama máli og tæknideild ríkissp-
ítalanna. Þeir töldu reykskynjara
bestu vörnina þar sem fullkomið
eldvarnakerfi væri ekki.
- sos
„Ástæðan fyrir því að fullkomin
eldvarnakerfi hafa ekki verið sett
upp í ríkisspítulunum er íjárskort-
ur. Spítalarnir eru með minni
búnað en við sjálfir viljum," sagði
Miklar skemmdir urðu af völd-
um reyks í herbergjum deildar
8 eins og sést hér á myndinni.
DV-mynd GVA,
KVIKNAÐI í UT
FRÁ KERTAUÓSI
Kertaljós varð til þess að það
kviknaði í einu herbergi á Kópa-
vogshælinu í gærmorgun. Kerti
féll ofan af kommóðu og niður á
gólf. Þar komst eldur í rúmfatn-
að. Glugginn í herberginu var
opinn. Þegar stúlka, sem var í
herberginu, oþnaði hurð her-
bergisins, til að ná í hjálp, varð
gegnumtrekkur í herberginu.
Þetta varð til þess að eldurinn
magnaðist og eldtungur læstu sig
i þakskegg hússins.
Gífurlegan reyk lagði um
ganga svefnálmunnar og urðu
miklar skemmdir af reyk og sóti.
„Ég reikna með að það taki sjö
til tíu daga að koma öllu í samt
lag,“ sagði Björn Gestsson, for-
stöðumaður Kópavogshælisins.
- sos