Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1986, Side 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR14. JANUAR1986.
5
Vinnubrögð ráðherra:
L&m sig við starfsmenn
með boði um árslaun
Að ráðherrar bjóði rikisstarfs- þessráðsaðvíkjahonumúrstaríí. laun til að fá hann til að hætta vegna var gripið til þess að semja essen, segir að nokkur fordæmi séu
mönnum upp á árslaun til að losna I blaðaviðtali hefur forsætisráð- starfi. Málavextir voru þeir að við manninn. Lauk þeim samning- fyrir að starfsmönnum sé boðið upp
við þá úr starfi er ekki nýtt fyrir- herra skýrt frá því að fyrrverandi þessum starfsmanni var fyrst boðið ura með því að hann fékk greidd á árslaun til að fá þá til að hætta.
brigði. Eins og kunnugt ;er :balið . fjármálaráðherra hafi notað svip- upp á að færa sig yfir í annað starf. ein árslaun og sagði starfi sínu Hann vill ekki greina frá þvi
Sverrir Hermannsson mehnta- aðar aðferðir til að losna við starfs- Það vildi hann hins vegar ekki. 'lausu, hversu oft þetta hefur átt sér stað.
málaráðherra Sigurjpni Valdi- mennúrstarfi. Ráðherrá sætti sig hins vegar ekki . SvipaA dæmi átti sér stað með Hann bendir á að þetta séu sainn-
marssyni, framkværodastjóra LÍN, Samkvæmt upplýsingum DV frá við að þessi maður gegndi viðkom- «tarfsmann í ríkisendurskoðuninni ingar á milli aðila og ekkert ólög-
árslaun ef hann segði isjálfur upp tráðuneytisstjóra fjármálaráðu- andi starfi, Starfsmaðurinn hafði og átti fyrrverandi íjármálaráð- legt viðþaðaðslíkirsamningarséu
starfi sínu. Þetta þáði Sigurjón neytisins voru ákveðnum starfs- ekki brotið neitt af sér og því ill- herra þá einnig hlut að máli. gerðir.
ekki og greip þá ráðherrann til manni í ráðuneytinu greidd árs- mögulegtaðsegjahonumupp. Þess Ríkislögmaður, Gunnlaugur Cla- - APH
Nýtt fólk á Þjóðólf i og Suðurlandi
BHMR vararvið
fordæminu
Á fundi launamálaráðs ríkis-
starfsmanna í BHM sl. miðvikudag
var samþykkt að mótmæia harð-
lega brottvikningu íyrrverandi
framkvæmdastjóra Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna úr starfi.
BHMR telur að um ólögmæta
brottvikningu hafi verið að ræða
og vitnað er í lög nr. 38/1954 um
réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins. Auk þess telur ráðið að
efnisleg skilyrði til brottvikningar
séu ekki til staðar. í fréttatilkynn-
ingu frá BHMR er einnig greint frá
því að þessir aðilar áskilja sér allan
rétt til aðgerða í þessu máli. Mót-
mælt er „valdníðslu menntamála-
ráðherra í þessu máli“. Stjómvöld
eru vöruð við þessu fordæmi.
- ÞG
Stúdentarí
heimspeki
mótmæla
Stjórn og trúnaðarmenn Félags
stúdenta í heimspekideild lýsa sig
andvíg öllum hugmyndum um nið-
urskurð á námslánum og þar með
afnám þess jafnréttis sem Lána-
sjóður íslenskra námsmanna er
ætlað að stuðla að . Stjórnin krefst
þess að menntamálaráðherra
tryggi LÍN fé til að standa við
skuldbindingar gagnvart náms-
mönnum.
- ÞG
Mótmæli
Mímis
Stjórn Mímis, félags stúdenta í
íslenskum fræðum, mótmælir harð-
lega þeirri ákvörðun menntamála-
ráðherra að lækka námslán á vor-
misseri 1986. Ennfremur er mót-
mælt „siðlausum vinnubrögðum
ráðherra viðvíkjandi brottvísun
Sigurjóns Valdimarssonar, fram-
kvæmdastjóra LÍN“.
í þriðja lagi mótmælir stjórnin
harðlega veitingu lektors í íslensk-
um bókmenntum við heimspeki-
deild Háskóla íslands.
- ÞG
Flugleiðirfella
niðurferðir
Flugleiðir hafa fellt niður sunnu-
dagsflug til Lundúna frá og með 26.
janúar til og með 3. mars. Er ástæðan
litlar bókanir í þessar ferðir, að sögn
Sæmundar Guðvinssonar, blaðafull-
trúa Flugleiða.
Þá hefur ferðum til New York og
Chieago fækkað um eina á viku af
sömu ástæðum seinni hluta janúar
ogfebrúar. . KÞ
Frá Kristjáni Einarssyni, frétta-
ritara DV á Selfossi:
Hjá landsmálablöðunum hér á Suð-
urlandi, framsóknarblaðinu Þjóðólfi
og sjálfstæðisblaðinu Suðurlandi,
hafa átt sér stað miklar sviptingar.
Hjá framsóknarmönnum hefur Gísli
Sigurðsson kennari látið af störfum
og við tekið ung kona frá Eyrar-
bakka, fornleifafræðingurinn Inga
Lára Baldvinsdóttir. Framkvæmda-
stjóri, sem einnig var auglýsinga-
safnari Þjóðólfs, Inga Holdö, hefur
einnig látið af störfum. Við tók
Hlöðver Magnússon lögregluþjónn
frá Selfossi.
Á blaðinu Suðurlandi eru líka
umbrot. Sigurður Jónsson ritstjóri
og Hilmar Þ. Hafsteinsson auglýs-
ingastjóri hafa sagt upp. Ekki hefur
verið ráðið í þeirra störf.
E UIROVISI O N SONG CONTEST
í EVRÓPU 1986
Sjónvarpið minnir á samkeppni um gerð sönglags til þátttöku í
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Evrópu 1986. Vakin er athygli á að
skilafrestur hefur verið framlengdur til 25. janúar nk.
Lagið má hvorki hafa komið út áður né verið flutt í útvarpi eða sjón-
varpi. Það má ekki taka nema þrjár mínútur í flutningi. Frumsaminn
texti á íslensku skal fylgja.
Laginu skal skilað á nótum fyrir eitt hljóðfæri. Hljóðsnælda má fylgja.
Nótur, texti og snælda skulu aðeins merkt heiti lagsins. Nafn og
heimilisfang höfunda fylgi með í lokuðu umslagi merktu heiti lagsins.
Hver höfundur getur sent inn fleiri en eitt lag. Lögin skulu þá send
inn aðskilin og merkt eins og fyrr sagði. Sjónvarpið ábyrgist nafn-
leynd.
Undanúrslit fara fram í Reykjavík 15. mars í beinni sjónvarpsútsend-
ingu, en lokakeppnin fer fram í Bergen 3. maí 1986 og verður sjón-
varpað víða um heim.
Einungis er keppt um lag, ekki flutning eða flytjendur.
Sjónvarpið áskilur sér allan rétt til að ráða flutningi lagsins ef til kem-
ur þ.e. útsetningu, flytjendum, hljómsveit, stjórnanda og allri sviðs-
setningu.
Dómnefnd velur úr innsendum lögum til þátttöku í undanúrslitum.
Verðlaun verða 200 þúsund krónur fyrir verðlaunalagið og ferð fyrir
höfunda lags og texta til Bergen á úrslitakeppnina 3. maí 1986. Séu
höfundar tveir eða fleiri skiptast verðlaunin milli þeirra eins og
úthlutunarreglur STEFS segja til um.
Skilyrði fyrir þátttöku lags er að útgáfuréttur þess sé ekki bundinn
fyrirfram, heldur sé samningsatriði milli sjónvarpsins og höfunda,
enda er sjónvarpið eigandi þeirrar útsetningar og útfærslu sem gerð
er á vegum þess og keppir til úrslita.
Lög skulu hafa borist sjónvarpinu eða verið póstlögð fyrir 25. janúar
1986.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 84428.
utanáskrift: Ríkisútvarpið - Sjónvarp-Söngvakeppni
Laugavegi 176, 105 Reykjavík