Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Side 2
2
Hvað segja Samhandsmenn um ákærurnarí kaffibaunamálinu?
DV. LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986.
„Hvergi hægt að benda á
auðgunarbrot ákærðu”
—segir Erlendur Einarsson um ákæru
„Ég vil taka fram að ég álít að það
sé fyrir bestu, bæði okkur sem nú
sætum opinberri ákæru, svo og
samvinnuhreyfmgunni, að þetta mál
verði rekið fyrir dómstólum, svo
endanlega verði skorið úr sök eða
sýknu manna í málinu."
Á þessum orðum lýkur yfirlýsingu
Erlends Einarssonar, forstjóra Sam-
bandsins, sem hann sendi frá sér
síðdegis í gær vegna ákærunnar á
hendur honum í „kaffibaunamálinu"
svokallaða.
Erlendur segir að hann hafi ávallt
verið þeirrar skoðunar að þeir sem
ákærðir eru eigi að reka mál sitt fyrir
dómstólum en ekki í fjölmiðlum.
Hann hafi ekki skipt um skoðun
þótt mál sé höfðað á hendur honum
en þar sem hann sjálfur sé í forsvari
fyrir fjöldahreyfingu snúist málið um
meira en hann persónulega og því
þyki honum rétt að koma eftirfarandi
atriðum á framfæri.
í fyrsta lagi er dómsmál það sem
hér er til umfjöllunar vegna meintra
brota Sambandsins frá árunum 1979
til 1981, ekki þaðan í frá. Ákæran
er frá ríkissaksóknaraembættinu
sjálfu en engir aðrir - hvorki ein-
staklingar né fyrirtæki - gera neina
bóta- eða áfelliskröfu í málinu. Ekki
er ákært fyrir tolla- eða verðlagsbrot,
né brot á skattalögum, en verðlags-
yfirvöld hafa staðfest rétt neytenda-
verð á kaffi á umræddu tímabili.
í öðru lagi hafa öll bókhaldsskil
Sambandsins reynst í fyllsta lagi og
hvergi er hægt að benda á auðgunar-
brot þeirra sem nú sæta opinberri
ákæru né að fé hafi verið haft af
samfélaginu, heldur snýst málið um
það hvemig staðið var að tekju-
færslu milli Sambandsins og sam-
starfsfyrirtækis þess.
í þriðja lagi hafa umboðslaun
Samþandsins frá árinu 1982 numið
4% af innflutningsandvirði kaffi-
kaupanna en vom 8% árið áður.
í fjórða lagi varð Sambandið að
lúta reglum stjórnvalda Brasilíu um
hin svokölluðu tvíþættu reiknings-
skil á kaffíútflutningsviðskiptum en
þar sem þau fólu meðal annars í sér
útgáfu afsláttarstaðfestinga „Avis-
os ‘, sem giltu einungis gagnvart
„En þar sem ég er í forsvari fyrir
fjöldahreyfmgu snýst málið um
meira en mig persónulega.“ Er-
lendur Einarsson, forstjóri Sam-
bandsins.
Kaffibaunamáliö í rannsókn áþriðja ár:
Líkt í upphafi við
Olíufélagshneykslið
„Skattrannsóknarstjóri virðist
hafa sett Samband íslenskra sam-
vinnufélaga i verulega klípu. Við
umfangsmikla rannsókn hefur
uppgötvast að fimm milljónir
Bandaríkjadala hafa verið milli-
færðar frá Kaffibrennslu Akur-
eyrar hf., sem er eign SÍS og KEA,
til Sambandsins.
Háttsettur maður í fjármálalífi
landsins hefur í samtali við blaða-
mann DV líkt máli þessu við Olíu-
félagshneykslið fyrir aldarfjórð-
ungi.“
A þessum orðum hófst forsíðu-
frétt DV þann 3. janúar í fyrra.
Almenningur fékk þar fyrstu fréttir
afkaffibaunamálinu.
Rannsóknardeild ríkisskattstjóra
og gjaldeyriseftirlit Seðlabanka
höfðu þá unnið hljóðlega að rann-
sókninni í hálft annað ár, frá því
haustið 1983. Rannsóknin hafði
leitt þetta í ljós:
Kaffibrennsla Akureyrar, en frá
henni er Braga-kaffi, greiddi á
þriggja ára tímabili, frá 1979 til
1981, alls um 16 milljónir dollara
til Sambandsins fyrir kaffibaunir
frá Brasilíu.
Sambandið keypti kaffibaunimar
í gegnum norrænt samvinnufyrir-
tæki, NAF, og greiddi fyrir þær um
10,5 milljónir dollara.
Þama var því gífurlegur mis-
munur á því verði sem Sambandið
greiddi fyrir kaffibaunimar og því
verði sem Kaffíbrennslan var látin
greiða Sambandinu fyrir kaffi-
baunimar. Þama munaði um 5,5 i
milljónum dollara eða um 230 millj-
ónum króna á núvirði.
Þegar eðlileg umboðslaun og
þóknun hafa verið reiknuð Sam-
bandinu fyrir innflutninginn telur
ríkissaksóknari að eftir sitji 4,8
milljónir dollara, eða um 200 millj-
ónir króna.
Um þessi viðskipti sáu skrifstofa
Sambandsins í London og innflutn-
ingsdeildin í Reykjavík.
Skattrannsóknarstjóri lauk
rannsókn sinni í febrúar í fyrra.
Hann sendi málið til ríkissaksókn-
ara sem sendi það fljótlega í lög-
reglurannsókn, til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins.
Lögreglurannsókninni lauk átta
mánuðum síðar, í nóvemberbyrjun.
Ríkissaksóknari fékk kaffibaun-
irnar þá aftur til sín. Hann hefur
nú gefið út ákæru. -KMU
Kaffibaunirnar umdeildu voru brenndar og malaðar hjá Kaffi-
brennslu Akureyrar, dótturfyrirtæki SÍS og KEA.
Textí: Kristján Már Unnarsson
ríkissaksóknara
síðari vömafskipunum eða sending-
um, mun Sambandið í nokkrum til-
vikum hafa orðið að leita aðstoðar
erlendra aðila til að nýta þessa
„Avisos" vegna kaffikaupa þeirra,
ella hefðu afslættirnir tapast. Allt
var þetta ítarlega bókfært og gjald-
eyrisskil gerð enda mun enginn
ágreiningur um þau uppgjör.
í fimmta lagi ákvað Sambandið
árið 1981 að lækka umboðslaun sin
af kaffikaupum og var það mörgum
mánuðum fyrir bókhaldsrannsókn
skattrannsóknastjóra. En vorið
1984 var uppgjör af eldri viðskiptum
tekjufært Kaffibrennslu Akureyrar
með samþykki stjómar fyrirtækisins
en Kaffibrennslan er í eigu sam-
vinnuhreyfingarinnar.
I sjötta lagi var Kaffibrennsla
Akureyrar ekki viðmiðunaraðili
þegar hámarksverð á kaffi var
ákveðið af verðlagsyfirvöldum og
seldi því á verði sem þau ákváðu,
stundum neðan við hámarksverð.
Þá segir Erlendur: „Þar sem verið
er að birta mér hina opinberu ákæru
í dag, hefi ég ekki haft tíma til að
leita lögfræðilegs álits á ákæruatrið-
um, en ég fæ ekki betur séð en meðal
þeirra sé ávirðingaratriði um að hlíta
viðskiptakjörum Brasilíumanna á
alþjóðlegum kaffimarkaði, eins og
rakið er hér að framan."
Svo hljóðar yfirlýsing forstjóra
Sambandsins. -KÞ
„EG TEL EKKIUM
NEITT SAKNÆMT
ATRIDIAÐ RÆÐA”
—segir Hjalti Pálsson, framkvæmdastjóri
verslunardeildar Sambandsins
„Ég átti ekki von á ákæmnni. Hún
kemur mér mjög á óvart, einfaldlega
vegna þess að ég tel ekki um neitt
saknæmt atriði að ræða í þessu
máli,“ sagði Hjalti Pálsson, fram-
kvæmdastjóri verslunardeildar Sam-
bandsins, um ákæru ríkissaksóknara
ígær.
- Verða viðbrögð þín þau að þú
þurfir að segja af þér störfum hjá
Sambandinu?
„Ég held að það sé af og frá að
nokkur maður láti sér detta það í
hug. Ég er búinn að vinna i áratugi
hjá Sambandinu og það styttist í það
að ég hætti, en ekki út af þessu máli.
Þaðer afogfrá."
Hjalti, sem staddur var á Akureyri
í gær, sagðist ekki hafa séð ákæruna
og ekki vita nákvæmlega í hverju
hún væri fólgin. Hann vildi því ekki
tjá sig frekar um málið en vísaði til
fréttatilkynningar frá Sambandinu.
-KMU/JGH, Akureyri.
„Það er ekki
skemmtjlegt''
—sagði Amór Valgeirsson
„Þú ert að segja mér fréttir...ég
ákærður?" sagði Amór Valgeirsson,
einn hinna ákærðu í kaffibaunamál-
inu, í samtali við DV síðdegis í gær.
Það varð löng þögn í símanum.
Manninum hinum megin á línunni
var stórlega brugðið.
„Það er ekki skemmtilegt að vera
ákærður," sagði hann svo.
Arnór er deildarstjóri fóðurvöru-
deildar Sambandsins. Hann tók við
því starfi í ársbyrjun 1981, af Sigurði
Á. Sigurðssyni, sem einnig er ákærð-
ur í málinu.
„Mér hefur ekki verið birt nein
ákæra um þetta mál. Á meðan get
ég ekki tjáð mig um málið,“ sagði
AmórValgeirsson. . trj,
„Get ekkert sagt”
—sagði Sigurður A. Sigurðsson
„Ég hef haft spumir af þessu,“
sagði Sigurður Á. Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Sambandsskrifstof-
unnar í Lundúnum, þegar DV hafi
samband við hann þangað í gær.
Sigurður tók við framkvæmda-
stjórastarfinu þar í ársbyrjun 1981
af Gísla Theódórssyni sem einnig er
ákærður í kaffibaunamálinu. Áður
starfaði Sigurður sem deildarstjóri
fóðurvömdeildar.
Sigurður vildi lítið tala um þetta
mál. Það eina sem hann sagði var:
„Ég get ekki rætt þetta mál við þig.
Ég vísa á Sambandið heima.“
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náð-
ist ekki samband við Gísla Theódórs-
son. Hann hætti störfum hjá Sam-
bandinu í ársbyrjun 1981.
KÞ