Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Qupperneq 9
DV. LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986. 9 Úr Sjálfstæðisflokknum í Seðlabankann Lokaatriðið í stólaskiptum sjálf- stæðismanna fór fram í gær. Geir stóð upp úr ráðherrasæti sínu og kvaddi þar með flokkinn, kónginn og prestinn. Seðlabankinn bíður hans í haust og þá á Geir Hall- grímsson ekki lengur afturkvæmt í pólitíkina. Seðlabankinn er nefni- lega athvarf fyrir pólitíska flótta- menn sem ekki eiga afturkvæmt á þing, nokkurs konar lávarðadeild fyrir heiðursmenn sem vilja ekki fara á elliheimili fyrir aldur fram. Ekki verður sagt að Geir sé sestur í helgan stein en sjálfsagt á honum eftir að finnast kyrrlátt í bankan- um, miðað við þann stormagný sem leikið hefur um hann á löngum stjórnmálaferli. Ekki kæmi mér á óvart þótt Geir kunni þeim veðra- breytingum vel. Á kontór borgarstjóra Nú eru rétt tæp tuttugu ár síðan ég gekk inn á borgarstjórakontór- inn hjá Geir Hallgrímssyni sem nýráðinn skrifstofustjóri borgar- verkfræðings. Tuttugu ár eru ekki nema tíundi parturinn af tvö hundruð ára sögu Reykjavíkur en samt er eins og eilífð hafi liðið frá þeim gömlu, góðu dögum. Og mikið vatn hefur runnið til sjávar. Við hittumst á kontórnum hjá Geir á morgnana; hann sjálfur, Gústaf E. Pálsson borgarverkfræð- ingur, Gunnlaugur Pétursson borgarritari, Páll Líndal borgar- lögmaður og Jón G. Tómasson, skrifstofustjóri borgarstjóra. Þetta voru skemmtilegir fundir, ekki vegna málanna, sem voru á dag- skrá, heldur mannanna sem mættu. Gústaf E. Pálsson var sérstæður persónuleiki og synd að enginn skuli hafa skrifað sögu hans. Gú- staf átti langan og merkilegan feril að baki áður en hann réðst til borgarinnar. Mest þótti honum sjálfum koma til afskipta sinna af uppbyggingunni á Keflavíkurflug- velli eftir stríðið. Því verki stjóm- aði Gústaf eins og herforingi og kunni af því margar sögur. Betri vom þó þjóðsögurnar sem aðrir kunnu af Gústaf og lifa enn manna á meðal. Gústaf var stór maður á velli og stórkarlalegur. Hann hló með öllum líkamanum, hallaði undir flatt og fór í einkennilegan en vígalegan vinkil ef mikið lá við. í viðskiptum sínum við fólk beitti hann lagni, meðan lagnin nægði. Annars beitti hann fortölum og ef þær hrifu ekki eyddi hann ekki fleiri orðum í viðmælendur sína. Það sem hann ákvað, það var gert. Það sem hann sagði, það stóð. Páll Líndal var menningarvitinn í hópnum. Hann sá um kúltúrinn og listirnar í víðtækri merkingu þess orðs - og þar fyrir utan fjörið og fróðleikinn. Ekki mátti minnast á hús eða fólk í bænum öðruvísi en Páll rekti ættir og erfðir og hann kunni að minnsta kosti eina gamansögu í hveiju andvarpi. Þeir lengdust stundum, fundirnir, þegar Páll komst í stuð, en á honum sannast máltækið að hláturinn lengir lífið. Pólitískt uppeldi Gunnlaugur Pétursson sá um peningana; hélt fast um þá eins og fjárgæslumanni sæmir og barði sér eins og búmaður. Hann hafði það hlutverk að halda aftur af okkur eyðsluseggjunum og dró þá hvergi af. Én Gunnlaugur hefur hjartað á réttum stað og mátti ekkert aumt sjá. Hann hafði líka frá mörgu að segja og þær voru stundum líflegar frásagnimar sem flugu yfir fundar- borðið hjá honum Geir, einkum áður en hann mætti. Hvort þær voru sannar eða lognar skiptir ekki máli, miðað við skemmtunina sem af því fékkst fyrir ungan nýgræðing að læra þennan gálgahúmor. Og til hliðar sat Jón G. Tómas- son, júridískur nákvæmnismaður með húmorinn og pappírana í lagi og rústaði skýjaborgirnar með ískaldri rökhyggju og raunsæi. í þá daga var enn verið að byggja borgina, leggja hitaveitu og mal- bika aurstrætin. Þá var verið að skipuleggja Fossvoginn og sam- þykkja aðalskipulag þar sem Breiðholtið var sveit og menn þurftu að skoða landakort til að vita hvar Grafarvogurinn var. Innan Elliðaáa voru ennþá tíu eða tuttugu lögbýli og við þurftum íjár- hirði til að reka féð úr görðum borgarbúa. Það var í þessum selskap sem ég fékk mitt uppeldi og það var á þessum fundum sem Geir Hall- grímsson lagði á ráðin og haslaði sér völl. Hann var pólitíkusinn sem bar ábyrgðina en þarna hafði hann hópinn sem gekk í verkin. Heiðarlegur í framan Það er oftast sagt um Geir Hall- grímsson að hann sé vandaður maður, orðvar og traustur. Ekki veit ég hvort Geir er alltaf á- nægður með þessa dóma en gallinn er sá að þetta er meira og minna rétt. Ekki man ég eftir einu einasta máli sem orkaði tvímælis út frá . siðferðislegu sjónarmiði sem af- greitt var á morgunfundunum á Ellert B. Schram skrifar: sjöunda áratugnum - og segði sos- um ekki frá því þótt ég myndi eftir því! Allt skyldi vera rétt og ráðsett og aldrei fengu andstæðingar Geirs á honum höggstað fyrir sukk eða svínarí í embættisfærslu. Hins vegar held ég það orðum aukið að Geir sé einfaldur eða saklaus í pólitískri refskák. Þar er hann sakaður um dyggð sem hann verðskuldar ekki. Geir Hallgríms- son hefur löngum vitað sínu viti og er ekki allur þar sem hann er séður. Það er einfeldni hjá and- stæðingum hans að halda hann ginnkeyptan. Ég nefni þetta vegna þess að þessi ljóður á ráði Geirs verður að teljast til tekna ef hann á að njóta sannmælis. Það segir nefnilega ekki allt þótt menn séu heiðarlegir í framan. En gallamir við Geir eru fleiri en ráðvendnin. Hann er seinþreytt- ur til reiði og alveg er ég viss um að Geir hefur aldrei lamið mann. Sennilega bölvar hann ekki heldur nema að yfirlögðu ráði þegar eng- inn heyrir til. Einhver kynni að halda að þessi dagfarsprýði sé geðleysi en svo er ekki. Það getur aftur á móti verið meðfædd hæverska, enda segja eldri Reykvíkingar að maðurinn líkist Hallgrími föður sínum æ meir og víst er að margt erfist annað en útlitið. Mér er til dæmis sagt að sjálfur hafi ég hreyfingarn- ar frá afa mínum og skapið hennar ömmu minnar. Geir hefur eflaust erft bæði hreyfingar og skap og einhvers staðar hlýtur nefið að eiga upptök sín! Erfðaprinsinn Meðan Geir Hallgrímsson var borgarstjóri var hann kóngur í ríki sínu og þar að auki erfðaprinsinn í Sjálfstæðisflokknum og enginn skyldi gleyma því að um það leyti sem sjálfstæðismenn fóru að skyggnast um eftir nýjum foringja var sjónvarpið að hefja göngu sína. Þá þótti sigursælast að hafa kennedyskt útlit og klæða sig í bláa skyrtu í útsendingum. Geir var okkar maður f þetta hlutverk. Eða svo héldu bláeygðir Heimdellingar sem sáu heims- myndina og framtíðina í völdum og höndum Sjálfstæðisflokksins. Atvikin höguðu því svo að for- mannsframinn barst upp í fangið á Geir fyrr en búist hafði verið við - og áður en hann var tilbúinn. Ég hef að minnsta kosti þá söguskoð- un að forsætisráðherrastóllinn, sem beið Geirs eftir stórsigurinn í kosningunum 1974, hafi reynst honum óþægur ljár í þúfu. Geir var búinn að hafa embættis- mannagengið á morgunfundum hjá sér í tíu ár. Það var honum viðráð- anlegri félagsskapur heldur en húmorslausir ráðherrar úr öðrum flokkum og eigin flokki. Hann hafði aldrei verið alinn upp við það í heimahúsum að brúka munn eða gjalda lausung með lygi. Það kemur sér stundum illa að vera vel upp alinn. Ríkisstjóm Geirs Hallgrímssonar gerði margt vel en annað illa - eða alls ekki. Mannkostir Geirs Hall- grímssonar nutu sín vel í þorska- stríðinu þegar honum tókst bæði að verja landhelgina og Atlants- hafsbandalagið með þrautseigju og þrákelkni sem á öðrum tímum reyndist honum fjötur um fót. Og kannski var þessi þrautseigja við að troða marvaðann ljárinn í þúfu ríkisstjórnar Geirs. Hann sat of lengi við sinn keip, missti af rétta augnablikinu til að láta til skarar skríða - tók ekki áhættuna. Þeir gambla ekki mikið í Zoegaættinni. Eina feimnismálið Ósigurinn sem á eftir fylgdi, átök- in milli Geirs og Gunnars Thor- oddsens og útreiðin, sem Geir Hallgrímsson fékk í síðasta próf- kjöri, eru óskemmtilegir bauta- steinar á ferðalagi Geirs í gegnum pólitíkina. Brotthvarf hans úr ráð- herrastólnum nú er enn eitt áfallið og sennilega hefur enginn stjórn- málamaður á íslandi uppgötvað jafnrækilega að laun heimsins eru vanþakklæti. Það er auðvitað alltof fljótt að skrifa eftirmæli um Geir Hall- grímsson. Samt segir mér svo hug- ur að Geir fái góða dóma í ljósi sögunnar sem farsæll og merkur stjómmálamaður. Það skal hins vegar játað að lítið gagn er að hólinu þegar skórnir eru komnir á hilluna. Líf stjórnmálamannsins er ekki alltaf dans á rósum. Víst hefur Geir Hallgrímsson notið vegsemd- ar og virðingar og valda. En hann hefur líka fengið sinn skammt af óþverranum og satt að segja hefur maður dáðst að þeim sterku bein- um hans sem hafa mátt þola aðsúg- inn. Það þarf fysik í slíka hildar- leiki, og þó hefur aldrei nokkur haft minnsta grun um að Geir Hallgrímsson stundi sport - ekki síðan hann gerði tilraun til að verja markið hjá Víkingi í fymdinni. En það er nú önnur saga og kannski eina feimnismálið hans Geirs! Mér dettur ekki í hug að rifja þá ill- kvittni upp en vona bara að markið í Seðlabankanum verði þrengra en markið í Sjálfstæðisflokknum. Ellert B Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.