Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Síða 12
12 DV. LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986. TIL SÖLU Range Rover árg. 1982 ekinn 35.000 km, útvarp + kassettutæki. Eins og nýr, skipti á ódýrari, skuldabréf. Opiðkl.10-19. BILASALAN BUK Skeifunni 8 Sími 68-64-77. Tilkynning frá Fiskveiðasjóði íslands Umsóknir um lán á árinu 1986 og endurnýjun eldri umsókna. Um lánveitingar úr Fiskveiðasjóði íslands á árinu 1986 hefur eftirfarandi verið ákveðið: 1. Vegna framkvæmda í fiskiðnaði. Engin lán verða veitt til byggingarframkvæmda nema hugsanleg viðbótarlán vegna bygginga, sem áður hafa verið veitt lánsloforð til, eða um sé að ræða sérstakar aðstæður að mati sjóðs- stjórnar. Eftir því sem fjármagn sjóðsins, þar með talið hagræðingarfé, hrekkur til verður lánað til véla, tækja og breytinga, setn hafa í för með sér bætt gæði og aukna framleiðni. Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð Fiskveiða- sjóðs liggur fyrir. 2. Vegna endurbóta á fiskiskipum. Eftir því sem fjármagn sjóðsins hrekkur til verður lánað til skipta á aflvél og til tækjakaupa og endurbóta, ef talið er nauðsynlegt og hagkvæmt. Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð Fiskveiðasjóðs liggur fyrir. 3. Vegna nýsmíði og innflutnings á fiskiskipum. Flugsanlega verða einhver lán veitt til nýsmíði og innflutnings á fiskiskipum, þó eingöngu ef skip með sambærilega afiamöguleika er úrelt, selt úr landi eða strikað út af skipaskrá af öðrum ástæðum. Gert er ráð fyrir, að lánshlutfall verði 65% vegna nýsmíði innanlands, en 60% vegna nýsmíði er- lendis eða innflutnings. Engin lán verða veitt vegna nýsmíði eða innflutnings opinna báta. Gert er ráð fyrir að ekki verði heimilaðar erlendar lántökur umfram lánveitingar Fiskveiðasjóðs. 4. Endurnýjun umsókna. Allar umsóknir vegna óafgreiddra lána þarf að endurnýja. Gera þarf nákvæma grein fyrir hvernig þær fram- kvæmdir standa sem lánsloforð hefur verið veitt til. 5. Umsóknarfrestur. Umsóknarfrestur er til 17. febrúar 1986. 6. Almennt. Umsóknum um lán skal skila á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt þeim gögnum og upplýsing- um, sem þar er getið, að öðrum kosti verður umsókn ekki tekin til greina (eyðublöð fást á skrifstofu Fiskveiðasjóðs (slands, Austurstræti 19, Reykjavík, svo og í ýmsum bönkum og spari- sjóðum utan Reykjavíkur). Umsóknir, er berast eftir tilskilinn umsóknarrrest, verða ekki teknar til greina við lánveitingar á árinu 1986 nema um sé að ræða ófyrirséð óhöpp. Reykjavík, 23. janúar 1986. Fiskveiðasjóður íslands „MÉR LÍÐUR EINS OG KONU...“ „Ég held að það sé rétt, ég var dálítið stressaður í þættinum enda í mörg hom að líta. Þetta er snúin áætlun og margt sem getur farið úrskeiðis en samt sef ég vel,“ sagði Ómar Ragnarsson í samtali viðDV. Þættir hans, Á líðandi. stundu, hafa nú verið sendir i loftið í tví- gang, fyrst úr sjónvarpssal og síð- astliðið miðvikudagskvöld úr kaffi- stofu verkamanna við Sundahöfn. „Ég hef kannski fullmiklar áhyggj- ur vegna þess að ég er elstur þeirra sem standa að þessu og finnst ég bera meiri ábyrgð á því að þetta gangi upp,“ sagði Ómar. Það er ómögulegt að segja hvar Ómar, Agnesi og Sigmund Emi ber næst niður því sviðsmynd þáttarins er hönnuð með það fyrir augum að hægt sé að flytja hana í heilu lagi hvert á land sem er. „Það eru 13 eða 25 þættir eftir, ég veit það ekki nákvæmlega, og mér líður eins og konu sem er búin að eiga tvö böm og á eftir að eiga öll hin,“ sagði Ómar. „En þetta er ögrandi verkefni að opna kassann svona með beinum sendingum, þetta er skemmtilegt.“ Agnes Bragadóttir mun halda áfram að aðstoða Ómar í Á líðandi stundu en óvíst með Sigmund Emi. „Hann stökk inn í þáttinn með nokkurra daga fyrirvara en hefur staðið sig vel,“ sagði Ómar Ragn- arsson. -EIR 0 Bubbi Morthens og Bjössi bolla (í dulargervi) bíöa eftir þvi að koma fram meðal verkamannanna í Sundahöfn. iásifaí’. Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins, sat meðal verkamannanna og tók ekki undir þegar allir kyrjuðu „Nall- ann“. Omar, Guðmundur J., Agnes og Sigmundur Ernir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.