Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Síða 14
14
DV. LAUGAEDAGUR 25. JANÚAR1986.
Rokkspildan
Rokkspildan
Rokkspildan
Rokkspildan
Megas í sextán ár. í febrúar koma út níu plötur sem hafa að geyma gamalt og nýtt efni meistarans.
ég Rauðhóla-Ransý sem var byrjað ég að sé ekki í frásögur færandi ungur maður með milljón hug-
að sýna á dögunum. Annað held eins og er. Ég er hress og glaður myndir." - ÞJV
„Drýsill er hættur,“ sagði Eiríkur
Hauksson söngvari þegar DV innti
hann eftir högum sveitarinnar.
Eiríkur syngur um þessar mundir
með stórhljómsveit Gunnars Þórð-
arsonar og í framhaldi af þvi gengu
sögusagnir um að upplausn ríkti í
liði Drýsils. Svar hans staðfestir
það.
„Mórallinn innan bandsins var
breyttur. Menn voru orðnir áhuga-
lausir fyrir að vinna vel. Það sem
að mínu mati olli þessum breyting-
um var platan. Við þurftum að
standa vð fjárhagslegar skuldbind-
ingar vegna hennar og okkur var
nauðugur einn kostur að fara að
spila á dansleikjum. Það var ekki
markmiðið sem við höfðum sett
okkur. Við ætluðum í upphafí ein-
göngu að spila á tónleikum. En á
dansleikjunum þurftum við að
spila alls konar tónlist, jafnvel
gömlu dansana! Menn misstu ein-
faldlega áhugann."
Þau leiðu mistök áttu sér stað á
seinustu Rokkspildu að myndatextar
víxluðust. Undir mynd af hljómsveit-
inni The voice stóð að sveitin notaði
tvö hljómborð! Þetta var og er vita-
skuld alrangt enda var hér átt við
hljómsveitina No time sem kom fram
á sömu tónleikum.
Undir myndinni af þeim stóð hins
vegar að The voice væri ekki lengur
efnileg heldur góð hljómsveit. Þetta
er rétt staðhæfing en á röngum stað.
Er það hér með leiðrétt.
ÞJV
Æskuhjálpin
Ég sagði frá því á laugardaginn að
æskufólk hefði tekið sig saman og
hygðist halda tónleika til styrktar
bágstöddum í Afríku. Rétt var það.
Að gefiiu tilefni birti ég hér aftur
símanúmerið sem hljómsveitir geta
hringt í og látið skrá sig. Síminn er
671740. Skrásett er á þriðjudögum
og fimmtudögum milli kl. 17 og 18.30.
-ÞJV
Hef ekki sagt bless“
- Þú vinnur á Broadway um
Atvinnumennska
„Það er ekki útilokað að Drýsill
vakni til lífsins aftur. Það getur
allt skeð ef menn taka sig saman i
andlitinu. Það stóð alla vega til að
halda kveðjutónleika í febrúar. En
á þessari stundu get ég ekki sagt
hvort af þeim tónleikum verður."
- Nú syngur þú á tónlistarhátíð
Gunnars Þórðarsonar á Broadway,
hvemig kanntu við það?
„Þetta er gaman og ólíkt því sem
ég hef fengist við hingað til. At-
vinnumennskan er allsráðandi og
það er nokkuð sem ég hef ekki átt
að venj ast. Svo er alltaf fullt hús.“
- Syngur þú mörg lög?
„Ég syng lögin tvö af Borgar-
bragnum og Blóðrautt sólarlag úr
myndinni hans Hrafns. Auk þess
radda ég í hinum og þessum lög-
um.“
Drýsill er hættur. Verða kveðjutónleikar í febrúar eður ei?
helgar, hvað ertu annað að
bardúsa?
„Ég stefni að því að vinna sóló-
plötu sem hugsanlega gæti komið
út með vorinu."
- Áttu efni á hana?
„Nei, ekki ennþá. En núna fyrst
hef ég tíma til að setjast niður og
semja. Músíkin á þessari plötu
verður „mildari" frá því sem var
með Drýsil. Ljúfar melódíur gætu
jafhvel slæðst með.“
- Líður þungarokkið undir lok
þegar Drýsill er horfinn af sjónar-
sviðinu?
„Nei, það vona ég svo sannarlega
Umsjón:
Þorsteinn J.
Vilhjálmsson
ekki. Það verður hins vegar að játa
að áhuginn hefur farið minnkandi.
Það sést best á aðsókn á tónleika.
Ég hef heyrt í nokkrum af þessum
ungu hljómsveitum en mér hefur
ekki fundist þær nógu sterkar. En
það eru fleiri að æfa og ég vona
að þessar sveitir nái að spjara sig.
Hvað sjálfum mér viðvíkur, þá
er ég ekki búinn að kveðja þunga-
rokkið. Það er mér í blóð borið,“
sagði Eiríkur Hauksson.
- ÞJV
Níu plötur
með Megasi
- í einum stórum febrúarpakka
Endurútgáfa á plötum Megasar
hefur staðið fyrir dyrum um nokk-
urt skeið. Ráðgert var að plöturnar
kæmu út fyrir jólin en ekkert varð
úr því.
„Ég var ákaflega hamingjusamur
að þetta kom ekki út í jólaplötu-
flóðinu," sagði Megas sjálfur,
„pakkinn hefði bara týnst.“
- Pakkinn?
„Já, þetta er stór og mikill kassi
með þykkum spjöldum. Hann inni-
heldur sjö gamlar plötur og tvær
nýjar.“
Þær gömlu plötur sem hér um
ræðir eru: Megas (sú fyrsta) gefin
út 1972, Millilending og Fram og
aftur blindgötuna frá 1975, Á bleik-
um náttkjólum gefin út 1977,
bamaplatan Nú er ég klæddur og
kominn á ról frá 1978 og loks tvö-
föld Drög að sjálfsmorði, „live“
upptaka frá tónleikum í MH 1979.
- En nýju plötumar?
„Önnur er með völdum sálmum
af Passíutónleikunum sem ég hélt
í apríl. Hin hefur að geyma lög sem
ég tók upp með hljómsveitinni
íkarusi. Þau lög em af plötunum
tveim sem hljómsveitin gaf út, Boys
from Chicago og Rás 5-20. Svo í
kaupbæti er ein lítil plata og lag
sem var aðeins að finna á kasset-
tunni Á bleikum náttkjólum."
- Þetta er heljarinnar pakki.
„Já, það má nú segja. Ætli hann
sé bara ekki alltof stór fyrir flest
alþýðuheimili?
„Með milljón hugmyndir"
- Gefur þú pakkann út sjálfur?
„Nei, Hitt leikhúsið gefur hann
út. Ég átti „teipin" en ákvað að
láta þá sjá um útgáfuna. Ég hef
ekki tíma til að standa í svoleiðis
stússi.“
- Hvað ertu annars að gera núna,
fyrir utan að hafa umsjón með
sj ón varpsþáttum?
„Ég er um þessar mundir að þýða
fyrir Leikfélg Akureyrar. Svo þýddi
Líður þungarokkið undir lok?
Þegar Röddin
varð Tímalaus