Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Side 29
DV. LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986.
29
skákmenn berjast um efstu sætin á
mótinu. Margir þeirra hafa slitið
barnsskónum í unglingadeildinni í
Taflfélagi Reykjavíkur undir hand-
leiðslu Olafs H. Ólafssonar. Þar eru
æfingar fyrir unglinga á laugar-
dögum sem jafnan eru fjölmennar.
Hannes Hlífar er fastagestur og
hefur fengið þar mikla þjálfun en
fyrst lét hann þó að sér kveða á
helgarmótum tímaritsins Skákar.
„Hver er þessi Hannes Hlífar?" var
spurt er strákur var farinn að máta
sterkustu menn.
Lítum á sigurskák Hannesar úr
áttundu umferð Skákþingsins.
Dxa5 Rxa5 17. Bxe7 hefur svartur
tapað manni. Hann gæti hins vegar
reynt 14. -Re8 í þeirri von að hvítur
falli í gildruna 15. De4 g6 16. Dxc6?
Bb7 og drottningin er fönguð. En
hvítur leikur betur: 15. Bxe7 Rxe7
16. Bxh7 +! Kxh7 17. Dh4+ Kg8
18. Dxe7 með yfirburðastöðu.
15. Re4
Auðvitað ekki 15. exfB? bxc3 16.
fxe7 Hxb2+ 17. Kcl Hbl + ! 18.
Kxbl Db4 + og mát í næsta leik.
15. -Rd5
Nú gengur ekki 15. -Rxe4? 16.
Dxe4 g6 17. Dxc6 Bb7 18. Dc4 Bd5
19. Dxa6 og vinnur. Svartur lumar
nú sjálfur á hótun (16. -Rc3 +) sem
hvítur hindrar með næsta leik.
16. Red2 Bxg5?
Svartur gætir sín ekki á gamal-
kunnugu stefi.
17. Rb3 Db6
18. Bxh7+! Kxh719. Rxg5 + Kg8
Þvingað. Ef 19. -Kg6 20. Dh4 og
mátarfljótlega.
20. Dh4 dxe5
Svartur á einnig ákaflega erfiða
stöðu eftir 20. Rce7 21. Dh7 + Kf8
22. Dh8+ Rg8 23. Rh7+ Ke7 24.
Dxg7 og verður að horfa upp á
stórsókn hvíts. Sígilda biskups-
fómin á h7 lætur ekki að sér hæða!
21. Dh7 + Kf8 22. Dh8 + Ke7 23. Dxg7
Hf824.fxe5Rxe525.Rh7
Engu siðra er 25. Hxd5 exd5 26.
Hel! með vinnandi sókn. Hins
vegar ekki 25. Dxe5? vegna 25. -f6
með gaffli á drottningu og riddara.
25. -Rg6 26. Rxf8 Rxf8 27. Hhfl Rd7
28. Dxf7 + Kd8 29. Hfel
Hvítur bætir stöðuna í rólegheit-
um enda kemur svartur engum
vörnum við.
29. -Dd6 30. Rd4 Re5? 31. Hxe5 Bd7
Ef 31. -Dxe5 32. Rc6 + og vinnur.
32. Hxe6 Rc3+ 33. bxc3 bxc3+ 34.
Kal Da3 35. Rc6 + og svartur gaf.
Sævar tapar fallega
Alþjóðlegi skákmeistarinn Sævar
Bjarnason brá undir sig betri fæt-
inum um áramótin og tefldi á skák-
hátíð sænska tímaritsins Schack-
nytt í Malmö í Svíþjóð. Þátttak-
endur voru 48 á þessu sterka móti,
þar af fimm stórmeistarar og fjórt-
án alþjóðlegir meistarar. Efstir og
jafnir urðu tékkneski stórmeistar-
inn Karel Mokry, sem tefldi á al-
þjóðlega skákmótinu í Borgamesi
í fyrra, og Svíinn Harry Schússler
sem einnig er góðkunningi okkar
Islendinga og mun tefla á Reykja-
víkurskákmótinu í febrúar svo og
í landskeppninni við Bandaríkja-
menn á undan. Þeir hlutu 7 v. af 9
mögulegum og með þeim árangri
tryggði Schússler sér fyrsta áfanga
sinn að stórmeistaratitli. Ung-
verski stórmeistarinn Istvan Csom
varð þriðji með 61/2 v.
Sævari gekk ekki sem skyldi á
mótinu, hlaut 4 v. en nafn hans fer
þó eins og eldur í sinu um skák-
dálka dagblaða víða um heim.
Ástæðan er sú að hann varð fyrir
því óláni að tapa sérlega glæsilega
fyrir ungum Þjóðverja, Mathias
Wahls, sem er 17 ára gamall. Leik-
fléttan, sem Þjóðverjinn ungi hristi
fram úr erminni, er sérlega áhrifa-
mikil og smekkleg.
Sævar mun ekki hafa tekið tap-
inu illa og haft hef ég spurnir af
því að hann hafi sýnt skákina víða
um bæinn, þeim sem sjá vildu.
Honum til hughreystingar skal
fullyrt að af tvennu illu er skárra
að tapa svona og vera um leið aðili
að listaverki heldur en að láta
nudda af sér skákina í hundrað
leikjum. En sjón er sögu ríkari.
Hvítt: Mathias Wahls
Svart: Sævar Bjarnason
Spænskur leikur.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Bxc6 dxc6 5.0-0 Dd6
Uppskiptaafbrigðið í spænska
leiknum er þekkt fyrir jafnteflisleg-
ar stöður. Sævar reynir vitanlega
að rugla andstæðinginní ríminu og
velur leið sem núorðið er fremur
fáséð.
6. d3 f6 7. Be3 Bg4 8. Rbd2 (MLO 9.
Hbl Re7
Hér er 9. -c5 sterkara til þess að
sporna við peðaframrás hvíts á
drottningarvæng.
10. b4 Rg6 11. h3 Be6 12. a4 Dd7 13.
d4 Bd614. b5 axb515. axb5 exd4?
Óveðursskýin hrannast upp fyrir
framan svarta kónginn. Með 15.
-Bxh3 hefði svartur getað freistað
þess að ná gagnfærum og reyndar
kom fórnin einnig til greina strax
í13. leik.
16. Hal Kb817. Rxd4cxb5
Eftir 17. -c5 18. c4! nær hvítur
einnig vinnandi sókn. Framhaldið
gæti orðið: 18. -cxd4 19. Da4 c5 20.
Da8+ Kc7 21. b6+ Kc6 22. Da4 +
Kxb6 23. Hfbl+ Kc7 24. Hxb7 + !
og mátar í fáum leikjum.
Hvítur leikur og vinnur... Les-
andinn ætti að hylja leikina sem
hér koma á eftir og athuga hvort
hann sér glæsilega fléttu Þjóðverj-
ans.
18. Ha8+! Kxa8 19. dal+ Kb8 20.
da7+!!
Eftir þennan þrumuleik gafst
Sævar upp. Eftir 20. Kxa7 21. Rc6
(tvískák) Ka6 (eða Ka8) 22. Hal +
verður hann mát. Þess ber að geta
að ekki gekk 20. Rc6+ vegna 20.
-Dxc6 og kóngurinn sleppur út um
d7-reitinn. JLÁ.
Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson
Svart: Davíð Ólafsson
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 Rc6 7. Dd2 e6
8.<HH)be79.f40-0
Úr Najdorf-afbrigðinu af Sikil-
eyjarvöm hefur skákin snúist yfir
í Richter-Rauzer árás sem svo er
nefnd eftir austur-þýska skák-
meistaranum Kurt Richter og
Sovétmanninum Rauzer. Leikjaröð
svarts er einkennileg. Sennilega
hefur hann ætlað sér að svara 10.
BxfB með 10. -gxf6 sem er vinsæll
leikmáti eftir að Larsen mátaði
þann er þetta ritar á afmælismóti
Skáksambandsins í fyrra.
10. Rf3 Da5 11. Kbl Hd8 12. Bd3 b5
13. Del Hb8?
Einn hægfara leikur í Sikileyjar-
vörn og staðan gæti hrunið. Betra
er 13. -b4 með hvassri stöðu.
14. e5! b4
Eftir 14. -rRd5? 15. Rxd5 exd5 16.
Frá opna Flugleiðamótinu í sveitakeppni. Hér eigast við sveitir tveggja ferðaskrifstofa, Úrvals og Sam-
vinnuferða/Landsýnar. Það eru Jón Baldurssonog Sigurður Sverrisson semeru að spila við Ásmund Páls-
son (fyrir miðju) og Karl Sigurhjartarson.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Miðvangi 41, íbúð 408, Hafnarfirði, þingl.
eign Kristjáns Sigurðssonar, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 27.
janúar1986 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 105. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 og 10. og 13.
tölublaði þess 1985 á eigninni Helgalandi 10, Mosfellshreppi, þingl. eign
Hans Árnasonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Mosfellshreppi,
Arnar Höskuldssonar hdl. og Veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni
sjálfri mánudaginn 27. janúar 1986 kl. 15.15.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 105. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 og 10. og 13.
tölublaði þess 1985 á eigninni Gili (spilda úr Vallá), Kjalarneshreppi,
þingl. eign Magnúsar Jónssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Lands-
banka íslands og innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri mánudaginn 27.
janúar1986 kl. 15.45.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 36., 39. og 43. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Grænukinn 27, risíbúð, Hafnarfirði, þingl. eign Guðnýjar Alberts-
dóttur og Rafns Sigþórssonar, fer fram eftir kröfu Guðjóns Steingrímsson-
ar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 29. janúar 1986 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Keppnin heldur áfram næsta
þriðjudag.
Bridgedeild
Barðstrendingaféiagsins
Staðan í aðalsveitakeppni félagsins
eftir 4 umferðir:
1. Þórarinn Árnason 84 stig
2. Gunnlaugur Þorsteinsson 76 stig
3. Sigurður ísaksson 72 stig
4. Guðmundur Jóhannsson 70 stig
5. Ágústa Jónsdóttir 68 stig
6. Viðar Guðmundsson 63 stig
7. Arnór Ólafsson 59 stig
8. Jóhann Guðbjartsson 50 stig
Mánudaginn 27. janúar verða spil-
aðar 5. og 6. umferð. Spilað er í
Síðumúla 25 og hefst spilamennskan
stundvíslega kl. 19.30.
Bridgefélag Hafnarfjarðar
Enda þótt mikill fjöldi Gaflara hafi
tekið þátt í sveitastórmóti BR o.fi.,
sem endaði sl. mánudag, kom það
ekki í veg fyrir spilamennsku í BH.
Spilaður var eldfjörugur eins kvölds
tvímenningur með þátttöku 14 para.
Efstir urðu:
1. Ólafur Gíslason-SigurAur AAalsteinsson 207
2. Guöni Þorsteinsson-Kristjón Hauksson 189
3. Murat Serdar-Þorbergur ólafsson 180
4. Sigurður Lárusson-Sævaldur Jónsson 166
Miólungur 156
Næstkomandi mánudag, þ. 27. jan-
úar, verður síðasta umferð sveita-
keppninnar spiluð. Eftir það tekur
við tveggja kvölda einmenningur.
Bridgedeild Breiðfirðinga
Barómeter
1. Guðjón Sigurðsson-Birgir ísleifsson 310
2. Albert Þorsteinsson-Siguröur Emilsson 302
3. Sveinn Þorvaldsson-Hjólmar Páisson 288
4. Halldór Jóhannesson-Ingvi Guöjónsson 269
5. Sveinn Sigurgeirsson-Baldur Árnason 267
6. Jón Stefánsson-Magnús Oddsson 260
7. Guðmundur Aronsson-
Sigurður Ámundason 240
8. Ingibjörg Halldórsdóttir-
Sigvaldi Þorsteinsson 216
9. Jens Karlsson-Björn Karlsson 197
10. Guðlaugur Sveinsson Magnús Sverrisson 1%
Tafl- og bridgeklúbburinn
Síðastliðið fimmtudagskvöld var
spilað á vegum klúbbsins eins kvölds
tvímenningskeppni og urðu úrslit
sem hér segir:
1. Gunnlaugur og Sigurður 253 st.
2. Guðni og Leifur 229 st.
3. Anton og Bragi 228 st.
4. Óskar og Rósmundur 219 st.
5. Bragi og Ríkharður 217 st.
6. Bemódus og Þórður 215 st.
Næstkomandi fimmtudagskvöld hefst
svo aðaltvímenningskeppni TBK og
verður spilað þrjú eða fimm kvöld.
Keppnin verður í Domus Medica eins og
venjulega og hefst kl. 19.30. Þátttöku-
tilkynningar óskast sem fyrst í síma
34611 (Gísli Tryggva) eða í síma 30221
(Bragi Jónsson).
Allt áhugafólk í bridge er velkomið.
Stjómin
VERKAMANNABLISTAÐIR í REYKJAVÍK
SUÐURLANDSBRAUT 30, REYKJAVÍK. SÍMI 81240.
UMSOKNIR
Stjórn verkamannabústaöa í Reykjavík óskar eftir umsóknum um kaup á 108 tveggja
til fjögurra herbergja íbúðum, sem eru í byggingu í Grafarvogi í Reykjavík.
Ennfremur er óskað eftir umsóknum um ca 100 eldri íbúðir sem koma til endursölu
síðari hluta árs 1986 og fyrri hluta árs 1987. Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála
þessara íbúa gilda lög nr. 60/1984.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu V.B., Suðurlandsbraut, frá mánudegin-
um 6. jan. og verða þar einnig veittar allar almennar upplýsingar.
Skrifstofan er opin mánudaga-föstudaga kl. 9-12 og 13-16.
Umsóknum skal skila eigi SÍðar-en 7. feþr. 1 986. Stjómverkamannabústaða i Reykjavik.