Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Blaðsíða 30
30 DV. LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986. Handknattleikur unglinga - Handknattleikur unglinga - Handknattleikur unglinga Reykjavíkurmeistarar Fram í 2. ílokki kvenna, ásamt þjálfurunum Degi Jónassyni og Lárusi Lárussyni. Ama Hansen og Ingunn Gylfadóttir. Hef ur gengið vel f ram að þessu — sögðu þær Arna Hansen og Ingunn Gylfadóttir úr Fram Að lokinni verðlaunaafhendingu fyrir sigur í Reykjavíkurmóti 2. flokks kvenna tókum við tali þær stöllur, Örnu Hansen og Ingunni -■j, Gylfadóttur úr Fram. Þær voru að vonum eldhressar. „Leikurinn við Víking var erfiðast- ur en hann unnum við 14-8. Það er gott að hafa tvo þjálfara. Okkur er sinnt meira og æfingarnar skila sér vel. Vörnin hjá okkur er góð en mórallinn er líka góður. Okkur hefur gengið vel í haust og framan af vetri og erum ósigraðar enn. Við ætlum okkur í úrslit en þau lið sem þar koma til með að berjast eru FH, Stjarnan og Víkingur, ásamt okkur. Við erum ánægðar með að vera í Fram enda sýnir það sig að okkur er sífellt að bætast liðsauki. Við fengum nokkrar stelpur úr ÍR í haust þannig að það hlýtur að vera vel að okkur búið. Við emm 9 úr Fram í unglinga- landsliðshópnum sem nýlega var valinn, þannig að framtíðin er björt i herbúðum Framara," sögðu þær Ama og Ingunn að lokum. Lárus Sigurðsson og Trausti Ágústsson úr Val. Reykjavíkurmeistarar Vals i 4. flokki ásamt þjálfurunum Magnúsi Blöndal og Agli Sigurðssyni. k Þökkum þjálfaranum árangurinn — segja Lárus Sigurðsson og Trausti Ágústsson úr Val „Fram var erfiðasti andstæðingur- inn í Reykjavíkurmótinu. Reyndar var sá leikur i riðlakeppninni og sigmðum við þá nokkuð örugglega. Þeir vom of sigurvissir og við náðum því að yfirspila þá frá upphafi," sögðu þeir Láms og Trausti, leik- menn4. fl. Vals. „Við höfum æft mjög mikið og höfum haldið saman í 4-5 ár. Sam- spilið er því gott og leikkerfin ganga vel upp. Nú, mórallinn er mjög góður og ekki vantar úthaldið. Ekki veitir af því í erfiðum leikjum.“ 1 úrslitaleiknum gegn IR höfðu Valsmenn betur og sigruðu með 13 mörkum gegn 9. ÍR-ingar stóðu sig þó vel og vom vel að 2. sætinu komnir. Þeir Láms og Trausti vildu að lokum þakka þjálfurunum Magnúsi Blöndal og Agli Sigurðssyni fyrir að hafa leitt þá til sigurs í þessu móti en þeir hefðu reynst leikmönnum vel og lagt mikið á sig. , Fram Reykjavíkurmeistari í 4. flokki kvenna Reykjavíkurmeistarar Fram í 4. flokki kvenna með þjálfurunum Þór Björnssyni og Jóhannesi Felix- syni. Hvað skyldi stúlkan siá á gólfinu? 2. UMFERÐ ÍSLANDSMÓTSINS HEFST UM HELGINA Þessa helgi hefst 2. umferð íslands- móts yngri flokkanna. Fyrst hefst keppni 2. flokks karla og kvenna svo 4. flokks kvenna og 6. flokks karla. Næstu helgi hefst síðan keppni í þeim flokkum sem eftir em. Keppni í 2. flokki karla fer fram á 4. stöðum, í Vestmannaeyjum, Hafn- arfirði, Garðabæ og í Seljaskóla í Breiðholti. 2. flokkur kvenna leikur á Sel- tjarnamesi, Digranesi í Kópavogi, Njarðvík og í KR-húsinu. 4. flokkur kvenna leikur í Álfta- mýrarskóla og Sandgerði. Að lokum leikur 6. flokkur karla í KR-húsinu og Kársnesskóla í Kópa- vogi. Það þykir nokkuð undarlegt að 2. flokkur karla leikur í litlu húsi í Ásgarði í Garðabæ á meðan 6. flokk- ur karla leikur í KR-húsinu en þar er vítt til veggja og langt stafna á milli. Ætti mótanefnd að breyta þessu í framtíðinni en þetta kemur lyrir á hverju ári. Að lokum hvetur unglingasíðan alla til að koma og hvetja ungling- ana til dáða og stuðla að drengilegri og skemmtilegri keppni. Þórsarar standa sig — í Noröurlandsriöli yngri flokkanna Þar sem keppt er með hraðmótafyr- irkomulagi í yngri ílokkunum er sérstakur riðill með liðum af Norður- landi. Lið Þórs frá Akureyri sendir lið til keppni í öllum flokkum en KA í öllum nema 3. flokki kvenna. Völs- ungur frá Húsavík sendir lið til keppni í 2. flokkum. 1. umferð fór fram 8. desember og urðu úrslit leikja á þennan veg. 3. flokkurkarla. KA-Þór 12-16 4. flokkur karla Þór-Völsungur 24- 6 Þór-KA 17-14 KA-Völsungur 19- 6 Staðan í 4. flokki karla. Þór 2 44-20 2 0 0 4 KA 2 33-23 1 0 1 2 Völsungur 2 12-43 0 0 2 0 3. flokkur kvenna. Þór-Völsungur 16- 1 5. flokkur kvenna. KA-Þór 8-11 Af þessu sést að Þórsarar standa vel að vígi fyrir næstu umferð. 19 ára landsliðið stóð sigvel, þó marga lykilmenn vantaði Unglingalandsliðið, skipað piltum 19 ára og yngri, hélt í keppnis- og æfingaferð til Noregs skömmu fyrir jól. Að sögn Geirs Hallsteinssonar gekk ferðin vel í alla staði. Leiknir voru tveir landsleikir gegn Norð- mönnum og töpuðust báðir, sá fyrri 22-18, en sá seinni 24-18. Ferðin var hugsuð sem undirbún- ingur fyrir Norðurlandamót sem haldið verður í október á þessu ári. Ferð þessi var farin án fimm leik- manna sem voru í byrjunarliði á Norðurlandamóti 18 ára og yngri á síðasta vori. Voru þeir ýmist meiddir eða gátu ekki farið vegna anna. Vegna þessa fengu minna reyndir leikmenn að sýna getu sína og komu þeir að vonum misjafnlega út. Lykilmenn eins og Jón Kristjáns- son úr KA, Árna Friðleifsson úr Gróttu og Sigurjón Sigurðsson úr Haukum vantaði og munar um minna. Lið Norðmanna er af flestum talið eitt sterkasta unglingalandslið sem Norðmenn hafa eignast og hafa þeir til að mynda sigrað lið Dana og gert jafntefli við Svía. Binda Norðmenn miklar vonir við þetta landslið sitt. Þessi æfingaferð er sú íyrsta sem íslenskt unglingalandslið hefur farið til útlanda og er vonandi að framhald verði á slíku. „Svona ferðir skila sér þegar til lengri tíma er litið,“ sagði Geir að lokum. Fram og Stjarnan efst í stigakeppni f élaganna Eftir 1. umferð í íslandsmóti yngri flokkanna kom DV á keppni milli einstakra félaga. Gefin voru stig eftir frammistöðu einstakra flokka og veitt stig, 5 stig fyrir fyrsta sæti í sínum riðli, 3. stig fyrir annað sæti og 1. fyrir 3. sæti. I þessari keppni voru lið Fram og Stjömunnar úr Garðabæ stigahæst með 22 stig. Næst I röðinni var Grótta með 21 stig en þar á eftir lið FH, Víkings, og KR með 17 stig hvert félag. Lið FH var ásamt Fram og Stjömunni í efsta sæti en vegna kærumáls I 4. flokki kvenna dettur félagið niður um nokkur sæti. Nú verður gaman að sjá hvaða félög það eru sem leggja mesta rækt við yngsta handbolta- fólkið og sýna mestar framfarir milli móta. Iðnaðarbankamótið á Selfossi í desembermánuði síðastliðnum var haldið svokallað Iðnaðarbanka- mót á Selfossi. Mót þetta hefur verið haldið í einstökum flokkum undan- farin ár, en var nokkuð stærra í sniðum þetta árið og vom fleiri lið með. Keppni fór fram í öllum yngstu aldursflokkunum utan 3. flokks kvenna. Selfyssingar bjóða til móts- ins 1-2 liðum af Reykjavíkursvæð- inu. Leikir vom skemmtilegir og var hörð keppni um verðlaun sem veitt em af Iðnaðarbankanum á Selfossi. Sýnu skemmtilegust þótti keppni í 3. flokki karla en þar leiddu saman hesta sína 3 af beim liðum sem hvað best stóðu sig í 2. umferð Islands- mótsins. Lið Selfoss bar sigur úr býtum og vann sigur bæði á liði Stjörnunnar og Gróttu. Lið Stjörnunnar varð í 2. sæti. I öðrum flokkum urðu eftirtalin úrslit. 6. flokkur karla, sigurvegari lið Selfoss. 5. flokkur karla, sigurvegari lið Gróttu. 4. flokkur karla, sigurvegari lið Selfoss. 4. flokkur kvenna, sigurvegari lið Sel- foss. 2. flokkur kvenna, sigurvegari lið FH. Vonandi verður framhald á þessu móti og er kærkomið fyrir Selfyssinga að fá krakka af Reykjavíkursvæðinu til að etja kappi við.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.