Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Qupperneq 36
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1986.
ERLENDUR ÁKÆRÐUR
í KAFFIBAUNAMÁLINU
hann og fJórir aðrir sakaðir um að ná 200 milljónum króna undir SÍS „með ref siverðum hætti”
Erlendur Einarsson, forstjóri
Sarabands íslenskra samvinnufé-
laga, er meðal fimm yfirmanna hjá
Sambandinu sem ákærðir yoru í
gær í kaffibaunamálinu.
í frétt frá ríkissaksóknara segir
að hinum ákærðu sé gefið að sök
að hafa á árunum 1980 og 1981 náð
undir Samband íslenskra sam-
vinnufélaga með refsiverðum hætti
samtals 4,8 milljónum dollara, eða
um 200 milljónum króna, af inn-
flutningsverði kaffibauna.
Þeim er ennfremur gefið að sök
skjalafals og brot á lögum um skip-
an gjaldeyris- og viðskiptamála.
Kaffibrennsla Akureyrar hf.,
dótturfyrirtæki SÍS og KEA, flutti
kaffibaunimar inn á fyrrgreindum
árum með milligöngu Sambands
íslenskra samvinnufélaga.
Ásamt Erlendi Einarssyni eru
ákærðir Hjalti Pálsson, fram-
kvæmdastjóri verslunardeildar,
Amór Valgeirsson, deildarstjóri
fóðurvömdeildar, Sigurður Á. Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Sam-
bandsskrifstofunnar í Lundúnum,
og Gísli Theodórsson, fyrrverandi
— sjá einnigbls. 2 og3
framkvæmdastjóri Lundúnaskrif-
stofunnar.
Kaffibrennsla Akureyrar var lát-
in greiða 16 milljónir dollara fyrir
kaffibaunir sem Sambandið greiddi
10,5 milljónir dollara fyrir. Um
innkaupin sáu Lundúnaskrifstofan
og innflutningsdeild.
Hjalti Pálsson var þá fram-
kvæmdastjóri innflutningsdeildar,
Sigurður Á. Sigurðsson, deildar-
stjóri fóðurvömdeildar, sem þá var
hluti innflutningsdeildar, Arnór
Valgeirsson, starfsmaður sömu
deildar, og Gísli Theodórsson,
framkvæmdastjóri í Lundúnum.
Valur Amþórsson, stjómarfor-
maður bæði Sambandsins og Kaffi-
brennslu Akureyrar, er ekki
ákærður né framkvæmdastjóri
Kaffibrennslunnar.
KMU/KÞ/JGH.
Lyklarnir
afhentir
með sveiflu
„Hrtu ekki með lyklaveski, Matt-
hías minn?“ Eða hvaö sagði
Geir annars þegar hann athentl
lyklana aö utanríkisráðuneyt-
inu?
Ettir rfkisráöstund I gærmorgun
héldu þeir Gelr Hallgrfmsson og
Matthías Á. Mathiesen í ráðu-
neytið og þar athenti sá tyrr-
netndi þeim siðarnefnda völdin
með þessarí sveiflu. Hurðalyklar
hafa mlkla þýðingu i metorða-
stiga fsienskra stjórnmála. Þó
nægir ekki ennþá að komast yfir
lyklana...
Geir kvaddi samstarfsfólk sitt f
utanríkisráðuneytinu í gær með
samkvæmi og i dag kvaddi hann
sem sagt ráðuneytið.
DV-mynd KAE. -HERB
HEIMSKERFI TIL
HEIMANOTA
LOKl
Nú er ailt í baun!
HÖSKULDUR
EKKI
DÆMDUR
HL
REFSINGAR
Höskuldur Skarphéðinsson
skipherra var í Sakadómi
Reykjavíkur í gær sakfelldur
fyrir að hafa notað röng gögn til
grundvallar stefnukröfum sínum
um greiðslu risnu vegna starfs
síns hjá Landhelgisgæslunni.
Dómarinn, Pétur Guðgeirsson,
ákvað að refsing skyldi falla
niður vegna ríkra málsbóta.
Mál afgreiðslumannsins í vín-
búðinni við Snorrabraut, sem
ákærður var fyrir að útbúa
áfengisnótur fyrir Höskuld, fór á
sama veg.
„Ég er eftir atvikum ánægður.i
Nú er að vita hvað forstjóri
Landhelgisgæslunnar og dóms-
málaráðherra gera,“ sagði
Höskuldur í gær. Vegna máls
þessa hefur hann ekki fengið að
stýra varðskipi frá því í fyrravor.
-KMU
Þróunarfélagid:
Stjómin
sprungin
Davíð Scheving Thorsteinsson, bamalega hugsjón mín sé brostin
formaður Þróunarfélagsins, og og að ég hafi ekkert að gera lengur
Hörður Sigurgeirsson sögðu af sér í Þróunarfélaginu" sagði Davíð
í stjóm félagsins í gær. Þetta gerð- Scheving Thorsteinsson í viðtali
ist á stjómarfundi þegar íjalla átti viðDV.
um ráðningu framkvæmdastjóra Meirihluti stjómarinnar var sam-
félagsins. þykkur ráðningu Gunnlaugs. Það
„Eg sagði af mér vegna þess að vom þeir Þorsteinn Ólafsson,
ég hef haft þá trú að Þróunarfélag- framkvæmdastjóri SÍS, Guðmund-
ið eigi að vera algjörlega laust við ur G. Þórarinsson verkfræðingur
afekipti stjómmálamanna. Fyrir lá og Jón Ingvarsson hjá SH. Vara-
að Steingrímur Hermannsson for- menn Davíðs og Harðar taka nú
sætferáðherra hefði beitt sér fyrir sæti þeirra. Það em þeir Bjöm
því að Gunnlaugur Sigmundsson Þórhallsson, varaforseti ASl, og
yrði ráðinn framkvæmdastjóri fé- Gunnar Ragnars, forstjóri Slimv
lagsins. Þess vegna tel ég að þessi stöðvarinnar á Akureyri. -APH
„Þetta
erþví
miöur
réft"
— segirErlendur
Einarsson
„Þetta er því miður rétt,“ sagði
Erlendur Einarsson, forstjóri Sam-
bandsins, í samtali við DV síðdegis
í gær.
Erlendur hafði þá örskömmu
áður haft fregnir af ákæru ríkis-
saksóknara og það var greinilegt á
rödd hans að honum var bmgðið.
„Þetta er ekki gott,“ sagði hann.
-Kom þetta þér á óvart?
„Ég verð að vísa til yfirlýsingar
sem ég er að semja og skal senda
þér.“
-Verða einhverjar breytingar á
þínum högiun i kjölfar þessa?
„Ég á ekki von á því. Minni
starfsævi er að ljúka hér hjá
Sambandinu og ég geri ráð fyrir
að sinna starfi mínu í þá mánuði
sem eftir em eins og gert var ráð
fyrir."
-Fyrir hvað ertu ákærður?
„Þetta er nú svo nýskeð að ég
vísa til yfirlýsingarinnar aftur,"
sagði Erlendur Einarsson.
Sjá yfirlýsingu forstjórans á blað-
síðu 2. - KÞ
FLUGUMFERÐAR-
STJÓRARSLITU
SÁTTAVIÐRÆÐUM
Flugmálastjóri og flugumferðar-
stjórar em aftur komnir í hár saman
eftir að slitnaði upp úr sáttaviðræð-
um síðdegis í gær. Flugumferðar-
stjórar gengu út þegar ekki var fall-
ist á kröfu þeirra um afturköllun
ellefu áminningarbréfa flugmála-
stjóra til flugumferðarstjóra.
Ekkert lá fyrir í gærkvöldi hvort
flugumferðarstjórar myndu nú láta
verða af hótun sinni um „vamarað-
gerðir".