Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1986, Page 8
8
DV. FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986.
ífflönd Lfflönd Útlönd Ifflönd
*
Það stendur lítið eftir af sumarbústaðnum í Walenstadt í Austur-Sviss
er varð fyrir öflugu snjóflóði þar i gær. Enginn lét Iífið eða slasaðist í
snjóflóðinu enda er bústaðurinn aðeins notaður sem sumardvalarstaður.
Nixon
lausaf
sjúkra-
húsinu
Nixon, fyrrum forseti Bandaríkj-
anna, var útskrifaður frá sjúkrahúsi
á Miami í gær eftir að hafa verið
lagður inn til rannsóknar á mánu-
daginn vegna veirusjúkdóms og
vökvataps. Nixon, sem nú er 73 ára
gamall, var til meðferðar á sjúkra-
húsi er sérhæfir sig í meðferð hjarta-
sjúklinga.
Nixon var á heimleið úr vetrarfríi
á Bahamaeyjum er hann kenndi sér
lasleika og var lagður inn.
Sund-
menn
varað-
ir við
Suður-
Afríku
Ástralska sundráðið hótaði því í
morgun að setja keppnisbann í a!lt
að tvö ár á hvern þann ástralskan
sundmann er tekur þátt í móti í
Suður-Afríku.
David Browne, framkvæmdastjóri
ástralska sundsambandsins, sagði að
ákvörðun ráðsins kæmi í kjölfar
óstaðfestra frétta þess efnið að ástr-
alskir sundmenn hefðu tekið þátt í
mótum í Suður-Afríku að undan-
förnu.
Bill Hayden, utanríkisráðherra
Ástralíu, sagði í gærkvöldi að það
væri yfirlýst stefna stjórnarinnar að
reyna að draga sem allra mest úr
öllum samskiptum við Suður-Afríku,
þar með talið á íþróttasviðinu.
Jarðarbúum fjölgaði um 85 miHjónir á síðasta ári.
.
Reuters símamynd
^*****^.
Palestínumaður leitar að persónulegum eigum sínum eftir að ísraelskar herþotur lögðu heimili hans í rúst í loftárás í gær.
Einn maður féll og fjórir særðust alvarlega í loftárárum ísraelsmanna.
Loftárásir á Ubanon
Fyrsta loftárás ísraelsmanna á
skæruliðastöðvar Palestínuaraba í
Líbanon og dráp tveggja ísraelskra
dáta á landamærum Jórdaníu ber
vitni ókyrrðinni á landamærum ísra-
elsmanna þar sem friður hefur ríkt
um nokkra hríð. í loftárásinni var
sagt að flugvélarnar hefðu hæft
byggingar Abu Musa-skæruliða, Abu
Abba og síðast skæruliðahóps sem
lýtur forystu Ahmed Jibril.
!
I Líbanon segja menn að einn
maður hafi látið lífíð og fjórir særst
í loftárásunum sem Israelar segja
vera í hefndarskyni fyrir árásir yfir
landamæri Líbanons inn í Galileu.
Samtímis þeim laumaðist tvítugur
jórdanskur dáti yfir ána Jórdan og
skaut á ísraelskan varðflokk. Felldi
hann tvo og særði aðra tvo áður en
hann var sjálfur drepinn.
Þótt í orði kveðnu ríki stríð milli
Israels og Jórdaníu á meðan Israelar
skila ekki vesturbakka Jórdanár,
hefur allt verið átakalaust á Ianda-
mærunum.
OKKUR
FJÖLGAÐI
UM 85 MILUÓNIR
ARIÐ 1985
Mannkymnu fjolgaði um 85 millj- árið 1970 í 1,7 prósent á síðasta ári
ónir á síðasta ári og er nú 4,9 millj- hafi enn orðið aukning á heildar-
arðar samkvæmt frétt er stofnun í fjölda jarðarbúa.
Bandaríkjunum er rannsakar fólks- Segir stofnunin að búist sé við að
fjölda ogfólksfjölgun gafútí gær. jarðarbúar verði komnir yfir fimm
I fréttatilkynningunni segir enn- milljarða markið á næsta ári og fyrir
fremur að þrátt fyrir að fæð’ingar- aldamót megi búast við að þeir verði
hlutfall hafi lækkað frá 2 prósentnm „-a.,;,. s(,x miHjarðar.
MUSEVENILOFAR
KOSNINGUM
Yoweri Museveni, fyrrum skæru-
liðaleiðtogi i Uganda og nýeiðsvar-
inn forseti landsins, hefur iofað því
að halda almennar þingkosningar
við fyrsta tækifæri.
Engin dagsetning hefur enn verið
nefnd.
Loforðið um kosningarnar gaf
Museveni eftir að hafa verið svarinn
inn sem forseti landsins fyrir framan
yfir eitt hundrað þúsund manns í
miðborg Kampala í gær.
Museveni lofaði ennfremur að við-
halda reglum stjórnarskrárinnar,
koma á lýðræði í landinu, sameina
íbúana og einbeita sér í baráttunni
fyrir framför þjóðarinnar í menntun-
ar- og velferðarmálum.
„Þeir er fylgst hafa með atburða-
rás síðustu vikna skyldu ekki halda
að nú hafi aðeins verið skipt um
stjórnarherra hér. Þeir verða að gera
sér grein fyrir því að hér er um að
ræða grundvallarbreytingu á högum
og stjórn þessa lands,“ sagði Muse-
veni.