Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1986, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1986, Blaðsíða 40
68*78*58 Hafir þú ábendingu eða vitn- eskju nxn frétt - hzingdn þá í sima 687858. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greiðast 1.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotíð i hverri vikn greiðast 3.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1 986. Sigurjón Pétursson: Óhugnan- legt „Ég teldi það óhugnanlegt ef þetta væru niðurstöður kosninga," sagði Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins, um niðurstöð- ur skoðanakönnunar DV um fylgi flokkanna hér í borginni. „Ég geri mér vonir um að atkvæði þeirra fjölmörgu sem eru óákveðnir í þessari könnun falli ó aðra flokka en Sjálfstæðisflokkinn. Við vinnum þetta upp,“ sagði Sigurjón Péturs- son. -GK Kristján Benedikts- son: Undrandi áþessum tölum „Ég er undrandi á þessum tölum. Þetta eru tölur sem aldrei koma til með að sjást í kosningum," sagði Kristján Benediktsson, borgarfull- trúi Framsóknarflokksins. „Ég hef alltaf haft trú á skoðana- ' könnunum. Ég tel þó að þetta sé langt frá línunni. Sjólfstæðisflokkur- inn hefur alltaf verið mjög sterkur í Reykjavík. Hann hefur þó ekki verð- skuldað þetta. Magdalena Schram: Makalaust fylgimeiri- hlutans „Mér finnst þessi stuðningur við meirihlutann í borgarstjórn maka- laus, alveg eins og mér finnst maka- laust fylgið sem ríkisstjómin fær samkvæmt skoðanakönnun ykkar,“ sagði Magdalena Schram, borgar- futltrúi Kvennalistans. „Það eru mjög margir óákveðnir og svara ekki, sem þýðir að það þarf svo lítið til þess að staða minnihlut- ans innbyrðis raskist," sagði Magda- lena. -KB HEIMSKERFI TIL HEIMANOTA LOKI Það verður rússnesk kosn- ing í borgarstjóm. Herkúlesvélin kallaði til varnarliðs- þyrlunnar: „Þú ert yfir honum núna” Þyrlan fann Cessnuna ekki í myrkrinu „Þú ert yfir honum núna,“ kall- aði Herkúles-eldsneytisflugvélin yfir til Vamarliðsþyrlunnar aðeins þremur mínútum og 20 sekúndum eftir að litla einshreyfils Cessna- vélin nauðlenti bensínlaus á sjón- um um 30 sjómílur vestsuðvestur af Reykjanesi klukkan 18.26 í gærkvöldi. Vamarliðsþyrlunni tókst ekki að finna litlu flugvélina né mennina tvo um borð. 1 morgun voru þeir enn ófundnir. Umfangsmikil leit heldur áfram. Flugvélin, skrásett í Bandaríkj- unum en rekin af frönsku fyrirtæki, lagði af stað frá Labrador klukkan 11.45 í gærdag. Vegna veðurs gat hún ekki lent á Grænlandi en flug- mennimir ákváðu að halda áfram til Islands. Á leiðinni hrepptu þeir mótvind. Klukkan 17.07 tilkynntu þeir flugstjóm í Reykjavík um lítið eldsneyti. Klukkan 17.23 bað flug- stjóm Vamarliðið um þyrlu sem fór í loftið klukkan 18.11,48 mínút- um síðar. Herkúles-vélin fór á loft klukkan 18.07, fann litlu vélina fljótlega og fylgdi henni eftir til hins síðasta. Leiðbeindu Vamarliðsmennimir hinum nauðstöddu flugmönnum um nauðlendingu á sjónum, sem tilkynntu að þeir væm að klæða sig í flotbúning. Um borð höfðu þeirog gúmbát. Vaktstjóri í flugstjórn, sem stjómaði leit, taldi óstæðulaust að KOMIÐ YKKUR ÚT Komið ykkur héðan út. Mér finnst þetta meira en lítið ósvífið, sagði starfsmaður lyfjaeftirlitsins er ljós- myndari og blm. DV ætluðu að vera viðstaddir og mynda er Öm Svavars- son afhenti Lyfjaeftirliti ríkisins ýmiss konar náttúmlækningavörur sem verið hafa til sölu í verslun hans, Heilsuhúsinu á Skólavörðustíg. „Ég fékk bréf þess efnis að mér bæri að koma með allt sem væri ólöglegt í versluninni hjá mér og því Davíð Oddsson: Olíkindalegar tölur „Þetta em næsta ólíkindalegar tölur. Ég verð að viðurkenna að ég á erfitt með að átta mig á þeim og heftilhneigingu til þess að halda að í þeim leynist skekkjur. Ég á þó eiifitt með að rökstyðja það,“ sagði Davíð Oddsson, borgaretjóri og oddviti sjálfetæðismanna í borg- armólum, um niðuretöður skoð- anakönnunar DV í dag. Nú hefúr verið talað um að konur vantaði á ykkar lista, sem liggur raunar ekki fyrir. „Ég var einmitt að hugsa um það meðal annars. Samkvæmt þessu ætti það ekki að draga úr okkar fylgi nema síður sé. En svo mikið fylgi og þessi könnun gefúr til kynna kemur mér alveg á óvart. Ég get ekki annað sagt. Ég hef raunar enga trú á að þetta verði svona i kosningunum," sagði Dav- íó. -HERB kalla út þyrlu Landhelgisgæslunn- ar þar sem Varnarliðsþyrla var að koma á staðinn. Gæsluþyrlan er þó búin hitamyndavél, meðal ann- ars til leitar að mönnum í sjó sem Varnarliðsþyrlan hefur ekki. -KMU Þetta er meira en litiö ósvífið. Þetta er einkamðl, sagði starfsmaður Lyfjaeftirlits rikisins þegar IJósmyndari DV ætiaói að mynda þegar náttúrulækningalyf voru afhent til eyðingar.Og hér má sjá myndina sem ekki mátti taka. DV-mynd KAE. yrði síðan eytt hjá Lyfjaeftirliti ríkis- ins,“ sagði Öm. Hann viðurkenndi að hafa flutt inn ýms náttúrulækn- ingaefni á „vafa- saman hátt“ eins og hann komst sjálfur að orði. -A.Bj. Flugmenn Gæsluþyrlunnar hneykslaðirá stjórn leitarinnar: „FYRIR NEÐAN ALLAR HELLUR” „Það sem er hneykslið við þetta útkall er að við, sem erum með bestu tækin, erum samt látnir vita síðastir og þá eiginlega ekki kallaðir út,“ sagði Páll Halldórs- son, flugstjóri björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar, er hann kom úr leitarfluginu í gærkvöldi. Páll og aðstoðarflugmaður hans, Benóný Ásgrímsson, voru ófeimnir að lýsa hneykslan sinni við blaðamann DV. „Það var bara hringt í mig og ég látinn vita, svona til upplýs- ingar fyrir mig. „Ég er ekkert að trufla þig. Þetta er bara svona til upplýsingar," var sagt. Ég hringdi bara um leið í alla áhöfn- ina til að tékka á hvort það væm ekki allir örugglega viðbúnir. Hálftíma seinna vorum við kall- aðir út, þegar allt var komið í óeftii,“ sagði Benóný. „Þó loksins vomm við ræstir út, klukkan 18.45. Við hefðum getað verið komnir á staðinn fyrir þennan tíma. Mér finnst þetta fyrir neðan allar hellur,“ sagði Páll Halldóreson. -KMU SigurðurE. Guðmunds■ son: Færekkistaðist „Ég verð að segja að þessar tölur geta ekki staðist í raunveruleikan- um. Það er íjarri því að þetta geti verið rétt mat á störfum meirihlut- ans,“ sagði Sigurður E. Guðmunds- son, borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, um niðurstöður skoðanakönnunnar DVídag. „öflugustu fjölmiðlarnir hafa lagt áherslu á að hossa borgarstjóranum og meirihlutanum. Þetta á því eftir að gjörbreytast þegar kynningarstarf minnihlutans hefet að marki," sagði Sigurður E. Guðmundsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.