Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1986, Side 11
DV. FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986.
11
Viðtalið
Auður Styrkársdóttir, ritstjóri Þjóðlífs.
DV-mynd KAE
Les ekki
sjúkrahúsa-
ástarsögur
—segir Auður Styrkársdóttir,
ritstjóri Þjóðlífs
„Ritgerðin mín fjallaði um hugtak-
ið stéttarvitund í ritum Karls Marx,“
segir Auður Styrkársdóttir, stjórn-
málafræðingur og ritstjóri. Auður er
nýráðin ritstjóri tímaritsins Þjóðlífs.
Það er tilefni þess að hún er tekin
tali.
„Ég lauk BA prófi í stjórnmálafræð-
um frá Háskóla íslands árið 1977 og
MA prófi í sömu grein frá háskólan-
um í Sussex í Bretlandi árið 1980,“
segir hún. Þá skrifaði hún um Karl
Marx. En áður en til þess kom að
hún lyki við ritsmíðina um Marx
eignaðist hún tvíbura. Það var í
september 1979.
„Að eignast tvíburana var það
skemmtilegasta sem ég hafði lent í
en það erfiðasta,“ segir Auður tvi-
buramamma. Halldór og Kári, tví-
burarnir, eru dugnaðarstrákar og
elskulegir að sögn mömmunnar.
Eiginmaður Auðar er Svanur Kristj-
ánsson, dósent við Háskóla íslands.
Blaðamaður í fjögur ár
„Ég annaðist ungana þar til ég fór
að vinna á Þjóðviljanum sem blaða-
maður. Ég hætti þar haustið 1984
og var um tíma heima að sinna rann-
sóknum. í maí á síðasta ári byrjaði
ég að vinna á tímaritinu Mannlífi
sem fulltrúi ritstjóra. Þar hætti ég
íyrr í þessum mánuði," segir ritstjór-
inn nýbakaði.
„Jú, það var talað um að ég hæfi
störf á nýju blaði með Herdísi Þor-
geirsdóttur, fyrrverandi ritstjóra
Mannlífs. En það blað var ekki
komið af stað og mér bauðst rit-
stjórastarfið á Þjóðlífi," svarar Auð-
ur spumingum um nýafstaðnar
stöðubreytingar.
Ekkerttilframbúðar
„Nýja starfið leggst vel í mig, þetta
er heillandi verkefni og samstarfs-
fólkið allt með eindæmum gott. Ég
veit nú ekki hvort þetta verður fram-
tíðarstarfið en ég verð þama eins
lengi og ég og aðrir hafa gaman af.
Ég held nú að í blaðaheimi'num sé
ekkert til frambúðar," svarar hún
áfram. Fyrsta tölublað Þjóðlífs kom
út í desember sl. „Næsta blað kemur
1. mars og það verður dúndurgott.
Efni blaðsins er mjög fjölbreytt."
Nánar vill ritstjórinn ekki fara út í
efni næsta tölublaðs „en forsíðan
kemur á óvart“.
Um félagsmálaáhuga segir Auður:
„Ég hef lítið getað sinnt félagsmál-
um því ég hef verið á kafi í námi og
heimilisstörfum. En helstu áhugamál
mín eru stjórnmál og bókmenntir.
Ég er eiginlega alæta á bækur en ég
les þó ekki sjúkrahúsaástarsögur."
ÞG
Fyrsti útsölubíllinn afhentur
Bjarni Ólafsson sölustjóri afhentir útsölu á Fiat Uno bílum. Áætlað er
fyrsta Uno bílinn af 50 sem seldust að 1500-2000 manns hafi komið á
upp á Fiatútsölunni. staðinn. 50 Uno bifreiðar seldust á
íyrstu fjórum tímunum og seldust
Að sögn Bjama Ólafssonar, sölu- þær þar með upp og er langur biðlisti
stjóra nýja Fiat-umboðsins í Skeif- eftir Uno bílunum. Sömuleiðis seldist
unni 8, var örtröð á nvafstaðinni Fiat Argenta upp.
Eigvuna -
fyrirliggi311^1
allar gerf
&ofulvúsgagxva
Ath. sérstaklega nýju skermaveggina,
hannaðaaf Sturlu Má Jónssyni FHI.
Sérverslun i
skrifstofuhúsgögn
A. GUÐMUNDSSONh/f
Skemmuvegi 4, Kópavogi, sími 73100.
lOgerðir aför-
bylgjuofnum.
Verð við allra
hæfi.
Frá kr.
13.990,-
stgr.
Úrvalið af ofnum er hvergi meira og verðið gerist ekki betra
Kjör sem þú sleppir
ekki:
5-000,“ kr. útborgun á ódýrustu
ofnunum og eftirstöðvar á 6 mán.
Láttu ekki þessi kjör
fara fram hjá þér.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF
BERGSTADASTRATI I0A - SlMI 16995
Toshibaþjónusta sem þér býðst
ekki annars staðar.
* íslenskar leiðbemingéir fylgja
ásamt uppskrift.
* Stór matreiðslubók fylgir.
* Matreiðslukvöldnámskeiðið fyrir
bæði hjónin fylgir án endurgjalds.
* TOSHIBA uppskriftaklubburinn
stendur þér opinn með spennandi
uppskriftum.
* Símaþjónusta hússtjómarkennara
er þér til reiðu.
SETTU TRAUST ÞITT Á T0SHIBA
JANUARKJÖR
TOSHIBA
Örbyl0uofninn sem gefur þér arð. Þú sparar 60-70% af rafmagnsnotkun við
matreiðsluna, notar miklu minna hráefni, maturinn rýmar minna. - Þú sparar
geysilegan tíma við matreiðsluna og TOSHIBA örbylgjuofninn tryggir þér jafnan
og góðan árangur. Það er þetta sem setur TOSHIBA skör framar.