Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1986, Síða 34
34
DV. FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986.
Dægradvöl Dægradvöl Dægradvöl Dægradvöl
Heilsað upp
a dyrin
í Sædýrasafninu
Reksturinr
„Rekstur safnsins hefur alltaf verið
erfiður og verður það alltaf því þjóð-
in er ekki stór. Hins vegar verður
ekki kvartað undan áhuga fólks;
hann hefur alltaf verið mikill. Það
dugar bara ekki til,“ sagði Jón Kr.
Gunnarsson, forstöðumaður Sæ-
dýrasafnsins i Hafnarfírði, þegar DV
ræddi við hann um reksturinn ó
þessum eina vísi að dýragarði sem
til erhérálandi.
Sædýrasafnið er opið alla daga
vikunnar frá kl. 10 til 19. Umsvifin
eru þó lítil vetrarmánuðina meðan
kaldast er í veðri. Aðalvertíðin er
um hásumarið og einnig er mikið um
að hópar frá skólum og barnaheimil-
um komi haust og vor. Rekstursafns-
ins verður þó að hafa sinn gang alla
tíma ársins því dýrin þurfa sína
umhirðu. Við safnið starfa nú tveir
menn, forstöðumaðurinn Jón Kr.
Gunnarsson og fóðurmeistarinn
Þorleifur Geirsson.
Síöan 1969
Sædýrasafnið var opnað í maí árið
1969 og hefurverið opið síðan ef frá
er talið rúmt ár sem starfið lá niðri
vegna rekstrarerfiðleika.
Jón vildi fátt segja um ástæður
þess að hann opnaði Sædýrasafnið.-
„Þetta er eins og slæm inflúensa sem
erfitt er að losna við,“ sagði hann
og lét þá skýringu nægja.
Upphaflega var fiskasafn stofninn
í Sædýrasafninu. Það var á meðan
það var eiginlegt sædýrasafn. En
búnaðurinn við fiskabúrin gekk úr
sér og eftir 11 ár reyndist óhjákvæmi-
legt að hætta að sýna fiskana. „Það
var ýmislegt frumbýlingslega gert
Fóðurmeistarinn Þorleifur Geirsson og forstöðumaðurinn Jón Kr. Gunnarsson í húsi háhyrninganna sem eru meðal gersema safnsins. DV-myndir PK
Ein af geitum safnsins stillti sér upp fyrir ljósmyndarann fyrir utan fjár-
húsið þar sem hún og aðrar geitur eru í sambýli við nokkrar sauðkindur.
Þær neituðu þó aðláta sjá sig.
Meðal dýranna í Sædýrasafninu er ein kvikmyndastjarna. Þessi hrafn fékk góða dóma fyrir leik sinn í hlutverki
nafna síns i Hrafninn flýgur.
Þessi risaskel hefur fengið inni í safninu. Stærð hennar liggur ljós fyrir en
þyngdin er á huldu. Þeir sem giska rétt á þyngd skeljarinnar fá að verðlaun
fyrir ef heppnin er með. Þann 1. apríl verður skelin viktuð og jafnframt
dregið úr réttum lausnum sem safnað er í kjörkassa Hafnfirðinga.
hjá okkur í upphafi og er enn,“ sagði
Jón Kr. „Við höfðum ekki bolmagn
til að endurnýja fiskabúrin svo vel
væri en það er enn draumurinn að
vera með gott safn sædýra. Það ætti
óvíða að vera auðveldara en hér á
landi.“
Rólegtað vetri til
Gestir safnsins koma aðallega frá
Hafnarfirði og Reykjavík. Einnig er
nokkuð um að hópar víðsvegar að
af Suðvesturlandi leggi þangað leið
sína. Þótt snjór væri yfir öllu og
veður kuldalegt var samt von á
krökkum af þremur barnaheimilum
næstu daga og hópur ofan af Skaga
boðaði komu sína á meðan við rædd-
um við Jón.
Fyrir utan sölu á aðgangi að safn-
inu hefur það haft verulegar en
nokkuð ótryggar tekjur af sölu há-
hyrninga til erlendra safna og rann-
sóknarstöðva. Nú hefur tekið fyrir
Selirnir létu eins og þeir væru heima hjá sér í útitjörninni. Frændur þeirra
synda lika um i sjónum spölkorn frá þeim.