Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1986, Page 3
DV. FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR1986.
21
„Klassískt kvöld“
á Amarhóli
Veitingastaðurinn Arnarhóll
ætlar að bjóða upp á svokallað
„klassískt kvöld“ þar sem ungt
tónlistarfólk spilar undir borð-
haldi. Það er Mararkvartettinn
sem spilar létta tónlist á meðan
fólk er að borða. Hefst leikur þeirra
um kl. 20.00 og lýkur um kl. 22.00.
Síðan mun ungur söngvari koma
fram og syngja fyrir fólk á meðan
það slappar af eftir matinn inni í
Koníaksstofunni. Ungum söngvur-
um verður þarna gefið tækifæri til
að koma fram. Það er Guðbjörn
Guðbjarnarson tenórsöngvari sem
ríður á vaðið og syngur á sunnu-
dagskvöldið. Undirleikari hans er
Guðbjörg Sigurjónsdóttir píanó-
leikari.
Þessi tónlistarkvöld verða á
hverju sunnudagskvöldi. Þeir Arn-
arhóismenn brydduðu upp á þess-
ari nýbreytni i fyrravetur og mælt-
ist þetta ákaflega vel fyrir hjá
gestum.
|h>
HHi
Sunnudagsgestum Arnarhóls verður boðið upp á veglega tónlistardagskrá.
Jasssöngkonan Gaile Peters
skemmtir í Lautinni á Akureyri
núumhelgina.
Bandarísk
söngkona
í Laut-
inniá
Akureyri
Bandaríska jasssöngkonan
Gaile Peters skemmtir á veit-
ingastaðnum Lautinni um helg-
ina. Gaile er ekki alls kostar
ókunnug á staðnum, hún
skemmti þarna í byrjun október
sl.
Vert er að vekja athygli á
Gaile, hún er stórgóð söngkona
og hefur sungið á mörgum fræg-
um jassstöðum. M.a. á hinum
fræga Ronnie Scott’s í London,
en þar koma aðeins fram af-
bragðsjassarar.
-JGH.
Á BLAÐSÖLUSTÖÐÍ
Idi vera stór, feit og svön|
v/iötal viö Ragnhildi Gísladóttur^^J
:uiti engum bellibrögptlH
V Dáníelsson rannsóknajrlögreglumaðú
g Detiripk eitthvað sát^ngmtegt?
yr enginn þó það^jjfeHui
ignússoh'^^knimaðurá rástvcSHifr