Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1986, Page 6
28
DV. FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR1986.
Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús
Leikfélag Akureyrar
Um helgina sýnir Leikfélag
Akureyrar Silfurúnglið eftir Lax-
ness, á föstudags- og laugardags-
kvöld kl. 20.30 og Jólaævintýri
verður sýnt á sunnudag kl. 16. Um
helgina byrja leikhúsferðir Flug-
leiða til Akureyrar, ódýrar ferðir
með flugi, gistingu, leikhúsferðum
og möguleika á skíðaferðum í Hlíð-
arfjall.
Síðasta sýningarhelgi á
Fúsa froskagleypi
Um þessa helgi verða síðustu
sýningar á bamaleikritinu Fúsi
froskagleypir eftir danska rithöf-
undinn Ole Lund Kirkegaard.
Leikfélag Hafnarfjarðar hefur
undanfama mánuði sýnt þetta
leikrit í Bæjarbíói í Hafharfirði við
góða aðsókn. Vegna mjög mikilla
anna leikara og aðstandenda sýn-
ingarinnar verður ekki unnt að
sýna leikritið oftar en sem hér
segir: föstudaginn 31. jan. kl. 17.30,
laugardaginn 1. febr. kl. 14.00,
sunnudaginn 2. febr. kl. 14.00 og
síðasta sýning verður þriðjudaginn
4. febr. kl. 17.30.
Sex í sama rúmi
Land mínsföður
Sexið
I kvöld (föstudagskvöld) er breski
gamanleikurinn Sex í sama rúmi
sýndur hjá Leikfélaginu og er það
jafnframt síðasta sýning verksins i
Iðnó. Vegna mikillar aðsóknar
verður leikritið nú flutt í Austur-
bæjarbíó og sýnt þar á miðnætur-
sýningum um helgar.
Land mínsföður
Á laugardags- og sunnudags-
kvöld er hinn vinsæli stríðsára-
söngleikur Kjartans Ragnarsson-
ar, Land míns föður, á fjölunum.
Sýningar eru nú orðnar 72 og hefur
verið uppselt á þær allar og þegar
er uppselt á svo til allar helgarsýn-
ingar í febrúar. Rétt er að benda
fólki á forsölu aðgöngumiða, en
hún er í síma 13191 alla virka daga
á skrifstofutíma en sýnt er öll kvöld
nema mánudagskvöld.
Kjallaraleikhúsið
Reykjavíkursögur Ástu í leikgerð
Helgu Bachmann verða sýndar
áfram um helgina. 62. sýning er á
Alþýðuleikhúsið firum-
sýnir „Tom og Viv“
Alþýðuleikhúsið heldur upp á 10
ára afmæli sitt með sýningu leik-
ritsins „Tom og Viv“ eftir Michael
Hastings í þýðingu Sverris Hólm-
arssonar. Leikstjóri er Inga
Bjamason en aðalhlutverk eru í
höndum Sigurjónu Sverrisdóttur
og Viðars Eggertssonar. Aðrir leik-
arar eru: Amór Benónýsson,
Margrét Ákadóttir, María Sigurð-
ardóttir og Sverrir Hólmarsson.
Leikmynd og býninga gerði Guð-
rún Erla Geirsdóttir, lýsingu ann-
aðist Ámi Baldvinsson og tónlist
við verkið samdi Leifur Þórarins-
son. Tónlistin er flutt af Kolbeini
Bjarnasyni flautuleikara.
Leikritið er byggt á sannsöguleg-
um atburðum og fjallar um storma-
samt hjónaband ljóðskáldsins T.S.
Elliot og konu hans Vivian Haigh-
wood.
Sýningar eru í austursal Kjar-
valsstaða og er 2. sýning laugar-
daginn 1. febrúar kl. 16.00,3. sýning
sunnudaginn 2. febrúar kl. 16.00 en
4. sýning mánudaginn 4. febrúar
kl. 20.30.
Miðapantanir eru í síma 26131 frá
kl. 15-19 daglega.
föstudagskvöld, 63. sýning er á
laugardag kl. 17.00 og 64. sýning
er á sunnudag kl. 17.00. Aðgöngu-
miðasala fer fram að Vesturgötu
3, sími 19560.
Sýningar Þjóðleikhússins
um helgina:
Upphitun, eftir Birgi Engilberts.
Frumsýning.
Þjóðleikhúsið frumsýnir nýtt ís-
lenskt leikrit í kvöld (föstudags-
kvöld). Verkið heitir Upphitun og
er eftir Birgi Engilberts. Leikstjóri
er Þórhallur Sigurðsson.
Með vífið í lúkunum. Tvær
sýningar á laugardagsk völd
Leikritið Með vífið í lúkunum eftir
Ray Cooney verður sýnt tvisvar
sinnum á laugardagskvökd, fyrri
sýningin kl. 20.00 og sú síðari kl.
23.00.
Kardimommubærinn í 65. sinn.
Kardimommubærinn eftir Thor-
björn Egner verður sýndur kl. 14.00
á sunnudag og er það 65. sýningin
á þessu sívinsæla bamaleikriti.
Villihunang. Örfáar sýningar eftir.
Nú fer hver að verða síðastur að
sjá uppfærslu Þjóðleikhússins á
Villihunangi, eftir Anton Tsjékhov
og Michael Frayn. Næsta sýning
verður á sunnudagskvöld og eru
einungis örfáar sýningar eftir á
þessum gamanleik um ástir og
ótryggð.
Háskólabíó
ByltLng
Kvikmyndahús- Kvikmyndahús
Bíóhöllin
Þá er komin myndin sem sjálfsagt
margir hafa beðið eftir, nýjasta
mynd dollaraprinsins Sylvester
Stallone, Rocky IV. í þessari fjórðu
kvikmynd um boxarann Rocky
berst hann við rússneska boxvél,
ef svo má kalla ofurmenni sem
Rússar hafa framleitt eingöngu til
að sigrast á besta hnefaleikamanni
heims. Þeir sem hafa séð fyrri
Rockymyndirnar vita vel við
hverju má búast og verða sjálfsagt
ekki fyrir vonbrigðum.
Sylvester Stallone leikur að sjálf-
sögðu Rocky og er einnig leikstjóri.
Sá sem leikur andstæðing hans
heitir Dolph Lundgren.
Stjörnubíó
Þær em ekki allar merkilegar
kvikmyndirnar sem gerðar em um
unglinga handa unglingum. Ein
betri mynda af þeirri gerð er mynd
sem Stjörnubíó hefur hafið sýning-
ar á, nefnist hún Eldur St. Elmo’s
(St. Elmo’s Fire). Fjallar hún um
nokkra skólafélaga sem halda út í
lífið. Þeir sem sáu hina vinsælu
mynd Breakfast Club ættu að
kannast við nokkur andlit.
Tónabió
í Tónabíói er endursýnd kvik-
mynd eftir suður-afríska leikstjór-
ann Jamie Uys, Undraheimur eyði-
merkurinnar. Myndin fjallar um
dýr og menn á gamansaman hátt.
Austurbæjarbíó
Nýsjálensk hasarmynd er aðal-
mynd Austurbæjarbíós þessa dag-
ana. Nefnist hún Æsileg eftirför
(Sharker Run) og byggist myndin
upp á æsileguym bílaleik. Aðal-
hlutverkið leikur hin góðkunni
bandaríski leikari Cliff Robertson.
Spennumynd fyrir alla.
Nýja bíó
Löggulíf, nýjasta myndin um þá
skemmtilegu félaga Þór og Danna,
er hin besta skemmtun og besta
myndin um félagana til þessa. 1
þetta skiptið ganga þeir í lögregl-
una með afdrifaríkum afleiðingum
fyrir lögregluna og nokkra íbúa
Reykjavíkur. í Löggulífi geta fs-
lenskir áhorfendur fengið að sjá
fyrsta íslenska bílaeltingarleikinn
sem tekinn er á götum Reykjavík-
ur. Það ætti engum að leiðast yfir
uppátækjum þeirra félaga.
Bylting (Revolution) er alveg
splunkuný stórmynd sem frumsýnd
er hérlendis um leið og úti í hinum
stóra heimi. Myndin fjallar um
sjálfstæðisbaráttu Bandaríkjanna
og segir frá manni sem þvælist fyrst
óbeint inn í baráttuna en smitast
af sjálfstæðisbaráttunni sem aðrir.
Bylting er stórmynd í orðsins
fyllstu merkingu, fjallar um örlaga-
ríka atburði i heimssögunni.
Nokkrir stórleikarar eru í mynd-
inni, má nefna A1 Pacino, sem leik-
ur aðalhlutverkið, Donald Sunder-
land leikur andstæðing hans og
aðalkvenhlutverkið leikur Nastas-
sja Kinski. Leikstjóri er Hugh
Hudson, sem á að baki tvær merki-
legar myndir, Chariot of Fire og
Tarsanmyndina, Greystoke -Lord
of Apes. Ekki er hægt að segja að
Bylting hafi hlotið náð hjá öllum
gagnrýnendum erlendis. Sýnist sitt
hverjum um gæði hennar, svo mun
einnig sjálfsagt vera hér á landi.
HK.
Kvikmyndahús
Laugarásbió
Vísindatruflun (Weird Science)
nefnist kvikmynd sem gerð er af
John Huges sem hefur sérhæft sig
i að gera myndir fyrir táninga.
Innihaldslitlar myndir sem þó
höfða til ungu kynslóðarinnar
enda eru þessar myndir hraðar og
fullar af uppákomum sem má hafa
gaman af. Öllu merkilegri eru tvær
aðrar myndir sem Laugarásbíó
sýnir. Aftur til framtíðar (Back to
Future) 'er gamanmynd í hæsta
gæðaflokki og Gríma (Mask) er
úrvalsmynd með dramatískum
söguþræði.
Regnboginn
Það er af mörgu að taka í Regn-
boganum þessa dagana þótt oft
áður hafi úrvalið verið betra. Má
nefna skoska mynd, Stigamenn
(Restless Natives), gamanmynd um
tvo náunga sem gerast ræningjar á
þjóðvegiun Skotlands. Af öðrum
myndum er helst að nefna frönsku
myndina Bolero sem gerð er af
Claude Lelouch sem frægastur er
fyrir að hafa gert verðlaunamynd-
ina Maður og kona. í stærsta saln-
um er hryllingsmyndin Ættargraf-
reiturinn (Mausoleum).
Hvað er á seyði um helgina — Hvað er á seyði um helgina — Hvað er á seyði um helgina — Hvað er á seyði um helgina —
Sýningar
Norræna húsið
við/Hringbraut
Þar stendur yfir sýningin „Tónlist á
íslandi", þar sem rakin er saga tón-
listar á Islandi. Þar getur að líta
ýmislegt, sem tengist þeirri sögu, svo
sem nótur, myndir, bækur handrit
og margt fleira, auk ýmissa elstu
hljóðfæra landsins. Á sýningunni
hefur einnig verið komið fyrir hljóm-
flutningstækjum, þar sem heyra má
tóndæmi af mörgu tagi.
Galleri íslensk list
Vesturgötu 17
Þar stendur yfir sýning á málverkum
og grafíkmyndum eftir Braga Ás-
geirsson. Þetta er sölusýning og eru
sýndar yfir 60 myndir sem Bragi
hefur gert á ýmsum tímum. Sýningin
er opin virka daga kl. 9-17 en lokuð
um helgr -.
Kjarvalsstaðir við Miklatún
Þar stendur yfir sýning á listaverk-
um ungs fólks. Eru þar sýnd málverk,
teikningar, skúlptúr, lágmyndir,
vefnaður og ljósmyndir. Myndbönd
gerð af ungu fólki eru sýnd á gangin-
um framan við Vestursalinn. Sýning-
in er opin frá kl. 14-22.
Mokka kaffi
Skólavörðustig
Helgi Örn Helgason sýnir teiknmgar
og myndir.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
Safnið er opið á þriðjudögum,
fimmtudögum og sunnudögum frá kl.
13.30-16.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
Þar stendur yfir sýning á vatnslita-
myndum Kristínar Þorkelsdóttur.
Sýningin er opin virka daga kl. 10-18
og um helgar kl. 14-18. Sýningin
stendur til 12. febrúar.
Ásmundarsafn
við Sigtún
Opnunartími safnsins er é þriðjudög-
um, fimmtudögum, laugardögum og
sunnudögum frá kl. 14—17.
Ásmundarsalur
við Freyjugötu
Næsta sýning í Ásmundarsal hefst í
febrúar.
Árbæjarsafn
Opið samkvæmt samkomulagi. Upp-
lýsingar í síma 84412 kl. 8-9 mánu-
daga til föstudaga.
Listasafn Einars Jónssonar
við/Njarðargötu
er opið alla laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 13.30-16.
Höggmyndagarðurinn er opinn alla
dagafrákl. 10-17.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning opin á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum frá
kl. 14-16.
Gallerí Grjót
Skólavörðustíg
Þessa dagana stendur yfir samsýning
félagsmanna: Galleríið er opið virka
daga frá kl. 12-18.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er
opið daglega kl. 13.30-17. Þar eru til
sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega
eftir yngri listamenn þjóðarinnar.
Aðgangur að sýningunni er ókeypis.
Listasafn íslands
Þar stendur yfir sýning á öllum
myndum Jóhannesar S. Kjarvals í
eigu safnsins, 130 að tölu. Eru það
olíumálverk, teikningar og vatns-
litamyndir sem spanna allan listferil
málarans. í tengslum við sýninguna
hefur verið gefið út rit með ljósmynd-
um af öllum listaverkunum, 116
svarthvítar og 12 í lit. Sýningin er
opin á þriðjudögum og fimmtudögum
kl. 13.30-16.00 og á laugardögum og
sunnudögum kl. 13.30-22.00.
Nýlistasafnið
við Vatnsstíg
I kvöld kl. 20 opnar Grétar Reynisson
sýningu á tæplega 200 myndum af
ýmsum stærðum og gerðum: allt frá
litlum myndum unnum með akrýl á
pappír upp í stór olíumálverk á
striga. Sýningin er opin frá kl. 14-20
úm helgar en kl. 16-20 virka daga.
Hún stendur til 9. febrúar.
Þjóðminjasafnið
Með silfurbjarta nál nefnist sýning
er stendur yfir í Bogasal Þjóðminja-
safnsins. Þetta eru handverk ís-
lenskra hannyrðakvenna og eru
verkin frá miðöldum fram til síðustu
aldamóta. Sýningin er opin frá kl
13.30-16.
Menningarmiðstöðin við
Gerðuberg
Sýning á verkum í eigu Reykjavíkur-
borgar eftir konur. Til sýnis eru verk
eftir núlifandi listakonur t.d. mál-
verk, vefnaður, grafík og fleira.