Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Side 16
60
DV. LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986
Sérstæð sakamál
Sérstæð sakamál
Sérstæð sakamál
Kvenna-
hvaxfið
í Marche
Urðu Jeannette May og
Gahriella Guerin úti í hríð
eða voru þær myrtar?
Jeannette May, fyrrum de Rothscliild.
í nóvember 1979 hurfu tvær konur í
Appenínafjöllum á austanverðri
Mið-Italíu. Onnur þeirra var enska
konan Jeannette May en hin var
ítalska konan Gabriella Guerin.
Fannfergi og hríðarveður var er
þær hurfu og lík þeirra fundust ekki
fyrr en rúmu ári síðar. Italska lög-
reglan taldi að konurnar hefðu orðið
úti en athugun breskra blaðamanna
bendir hins vegar til þess að konurn-
ar hafi verið myrtar.
Jeannette May var fyrrum eigin-
kona Evelyns de Rothscbild, enska
bankaeigandans, og getgátur eru um
að henni hafí verið rænt af því hún
hafði ekki fengið nýtt vegabréf, þótt
hún væri gift á ný, og hefði þvi skráð
sig undir Rothschildnafninu.Önnur
skýring er þó talin hugsanleg. Þrátt
fyrir ákafa rannsókn og allháa fjár-
upphæð, sem heitið var þeim sem
upplýst gæti málið, hefur enn ekki
tekist að varpa ljósi á það sem gerð-
ist.
Jeannette May
var gift enskum kaupsýslumanni,
Stephen May, sem var einn yfir-
manna John Lewisverslunarinnar í
London. Hún keypti og seldi listmuni
og fomgripi en rak að auki lítið
fyrirtæki sem sá um innanhússinn-
réttingar. Þetta var annað hjóna-
bandjeannette. Hún hafði skilið við
fyrri mann sinn, bankaeigandann
Evelyn de Rothschild, árið 1971.
Fjórum árum síðar hafði hún svo
gifst May og 1979 höfðu þau keypt
300 ára gamlan bóndabæ í þorpinu
Schito í fjallahéraðinu Marche á
Ítalíu. Þangað höfðu þau farið
nokkrar ferðir því að þau voru að
endurbyggja bóndabæinn.
Gabriella Guerin
var rólynd og heimakær kona sem
var komin af bændafólki í Friuli í
norðausturhéruðum Ítalíu, um miðja
vegu milli Feneyja og Trieste. Hún
og maður hennar höfðu verið þjón-
ustufólk hjá Evelyn de Rothschild í
sextán ár. Jeannette og Gabriella
þekktust því vel. Guerinhjónin flutt-
ust aftur til Ítalíu 1977 en er hér var
komið sögu var Gabriella ekkja með
tvö börn því að maður hennar hafði
látist í bílslysi 1978. Þegar Jeannette
heimsótti Ítalíu var Gabriella alltaf
við hlið hennar.
Ai Pini 25. nóvember
Jeannette kom til bæjarins Sarn-
ano, sem er skammt frá Schito þar
sem bóndabærinn er, 25. nóvember
og settist að í Ai Pinigistihúsinu. Þar
skráði hún sig í gestabókina undir
nafninu de Rothschild, Dorothy
Jeannette Ellen. Var það í samræmi
við það sem stóð í vegabréfi hennar
að öðru leyti en því að þar hafði
nafninu May verið bætt við, en það
rúmaðist ekki í dálkinum í gestabók-
inni. Hún borðaði ein um kvöldið en
daginn eftir ók hún í bíl sínum,
svörtum Peugeot, til járnbrautar-
stöðvarinnar til þess að taka á móti
Gabriellu. Þann dag og þann næsta,
fimmtudag og föstudag, fóru þær til
bóndabæjarins, gerðu innkaup og
heimsóttu vini. Á laugardaginn
hurfu þær svo.
Niðurstaða rannsóknarlöqreql-
unnar
Tvenns konar niðurstöður hafa
fengist við rannsókn málsins. Önnur
er niðurstaða ítölsku lögreglunnar
en hin er niðurstaða enskra blaða-
manna. Fara meginatriði þeirra fyrri
hér á eftir.
Stundarfjórðungi fyrir klukkan tíu
á laugardagsmorgninum hringdi
Nazzareno Venanzi, sem hafði um-
sjón með endurbyggingu sveitabæj-
arins, til Jeannette. Var ákveðið að
hann skyldi hitta konurnar klukkan
hálfellefu á torginu í bænum en
þaðan héldu þau þrjú svo til Murra-
byggingavöruverslunar þar sem Je-
annette ætlaði að kaupa gólfklæðn-
ingarefni. Á hádegi var konunum
boðið upp á drykk hjá Venanzihjón-
unum og höfðu þær á orði að þær
ætluðu í skoðunarferð seinna um
daginn. Rétt rúmlega hálfeitt sáust
þær svo fara inn í bíl Jeannette og
leggja af stað í átt til fjalla.
Lögreglan segir að síðan hafi ekki
sést til þeirra fyrr en um fjögurleytið
er þær hafi komið aftur í bygginga-
vöruverslunina. Þá hefur hún eftir
tannlækni í Sarnano að hann hafi
séð þær við gistihúið um klukku-
stundu síðar, en síðan hafi ekki til
þeirra sést.
Um tíuleytið um kvöldið skall á
hríð og næstu tvær klukkustundirn-
ar kyngdi niður svo miklum snjó að
um miðnætti voru allir vegir á þess-
um slóðum orðnir ófærir. Næsta
morgun var snjórinn sums staðar
orðinn þrír metrar á þykkt.
Venanzi verður órólegur
Er klukkan var orðin ellefu á
sunnudagsmorguninn komst Ven-
anzi að því að konurnar höfðu ekki
komið í gistihúsið kvöldið áður.
Hann tilkynnti þá lögreglunni hvarf
þeirra. Hún taldi þó ekki ástæðu til
að vera með miklar áhyggjur af
' konunum því þær hefðu sennilegast
leitað skjóls í óveðrinu.
Daginn eftir, á mánudag, hófst svo
leitin og þá um kvöldið kom Stephen
May frá London.
Enginn varð þó neins vísari og svo
var fram til 19. desember er lögreglu-
þyrla kom auga á þak Peugeotbílsins
í snjóskafli. Lögregluþjónar fóru
þegar á vettvang og vakti það strax
athygli að enginn snjór var undir
'bílnum og var því ljóst að honum
hafði verið lagt áður snjókoman
byrjaði. Skór, sem Jeannette notaði
við aksturinn, voru í bílnum en
gönguskór, sem hún geymdi ætíð i
honum, voru horfnir. Þá fannst úll-
arhálsklútur Gabriellu í aftursætinu.
í nágrenninu var lítill bústaður,
Casa Golloppa, sem smalar nota
hluta úr ári. Honum hafði verið
lokað fyrir veturinn, 11. október, en
nú kom í ljós að einhverjir höfðu
verið i honum. Um fjórðungi af
smálest af eldiviði hafði verið brennt
í arninum og óhreinir diskar og
önnur merki um dvöl einhverra fund-
ust.
Lögreglan segir málið leyst
Lögreglan taldi nú ekki ástæðu til
að halda áfram leitinni. Augljóst
væri að konurnar tvær hefðu leitað
skjóls í bústaðnum í snjókomunni.
Er þær hefðu verið búnar að þurrka
föt sín þar og talið að enginn væri
væntanlegur á næstunni hefðu þær
ákveðið að ganga til byggða, en ekki
náð. Líkin myndu fmnast er snjóa
leysti.
Þótt málið væri þannig talið upp-
lýst voru ekki allir, sem hlut áttu að
því, á sama máli. Því ákváðu bresk'r
blaðamenn að hefja rannsókn á eigin
spýtur í janúar 1981. Þá yai; þeim
kunnugt um nokkur atríði sem' þeim
fannst réttlæta slíkt.
Það sem vakti grunsemdir
blaðmannanna
Athygli blaðamannanna á því að
önnur skýring kynni að vera á hvarfi
kvennanria en sú sem ítalska lögregl-
an gaf vaknaði meðal annars af því
að einkennilegt þótti að konurnar
skyldu ætla í skoðunarferð undir
myrkur. Þá hafði komið í ljós að
smalarnir höfðu ekki skilið eftir
Bústaður smalanna.
Sérstæð sakamál
Sérstæð sakamál
Sérstæð sakamál