Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Blaðsíða 17
DV. LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986 61 érstæð sakamál - Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál Bóndabœrinn sem Mayhjónin ætluðu að endurbyggja. menn sem höfðu séð tvær konur í íylgd með manni sem svaraði til lýs- ingarinnar á manninum sem þær höfðu áður sést með á hæð skammt frá Sarnano síðdegis á laugardegin- Stephen May hefst handa Stephen May þótti nóg komið er ítalska lögreglan fékkst ekki til að taka upp málið þrátt fyrir þær upp- lýsingar sem nú höfðu fengist. Réð hann tvo einkaleynilögreglumenn í sína þjónustu. Fengu þeir að rann- saka bústaðinn sem talið var að Jeannette og Gabriella hefðu verið í og þar fundu þeir meðal annars hár sem reyndist vera af höfði Gabriellu. Rannsókn þeirra stóð þó ekki lengi því að þeir komust brátt á þá skoðun, að skýring ítölsku lögreglunnar væri rétt. May líkaði ekki þessi niður- staða mannanna, sem höfðu báðir starfað fyrir Scotland Yard fyrr á árum, og bauð nú 112.000 pund þeim sem fundið gæti konurnar lifandi en þeim sem komið gætu með upplýs- stöðvast átta mínútur fyrir sex, en annað tólfta desember og hitt þann nítjánda. Úr Jeannette var sjálf- trekkjandi en úr Gabriellu með raf- hlöðum. Italska lögreglan var kvödd á vett- vang en hún kvaðst ekki hafa fúndið nein merki um að konurnar hefðu verið ráðnar af dögum. Mótsagnirnar Ýmsir hafa ekki getað fellt sig við þá skýringu að konurnar hafi orðið neinn mat í bústaðnum. Hvemig gátu konurnar hafa borðað mat sem var ekki til þar? Þá þótti ljóst að tekið hefði um viku að brenna þann við sem augljóslega hafði verið lagð- ur á arineldinn. Þá hafði umgangur allur í bústaðnum verið þannig að afar ólíklegt þótti að konurnar hefðu gengið þannig um. Nýjar vísbendingar Frumrannsókn blaðamannanna leiddi í ljós að sjö óhreinir diskar voru í bústaðnum en ekki tveir eins og ítalska lögreglan hafði talið. Þá fundust níu glös og smám saman komust blaðmennirnir á þá skoðun að þarna hefði um tíma verið hópur fólks. Allt benti því til þess að um mannrán hefði verið að ræða. Það verður að segjast að þessi niðurstaða var greinilega ekki úr lausu lofti gripin. Margt í bústaðnum minnti á umgengni glæpamanna frá Sardiníu, sem þekktir eru fyrir mannrán, og blaðmönnunum var enn í fersku minni Schildmannránið á Sardiníu 1979. Ekki tókst þeim þó að upplýsa málið en áhugi þeirra á því var enn mikill. Nýtt vitni I maí 1981, um hálfu ári eftir hvarf- ið, kom skyndilega nýtt vitni, Ortelio Valori, eigandi Sibillagistihússins í grannþorpinu Sassotetto, til sögunn- ar. Hann lýsti yfir þvi að konumar hefðu komið í gistihúsið laugardags- morguninn sem þær hurfu og fékkst það staðfest af gestum sem þar höfðu þá verið. Síðan höfðu konurnar sést aftur um tvöleytið síðdegis, þá í fylgd með hávöxnum og vel klæddum manni sem hefði verið um 35 ára gamall. Bresku blaðamennirnir fóru nú aftur til Ítalíu og ekki leið á löngu þar til þeim tókst að finna tvo veiði- Úr kvennánna. Vísarnir á því neðra eru ógreinilegir. ingar „sem leitt gætu til lausnar gátunnar" 45.000 pundum. Líkin finnast Tólf dögum síðar, eða 27. janúar 1982, fann Domenico Panunti, veiði- maður einn, líkamsleifar kvennanna tveggja í um átta kílómetra fjarlægð frá staðnum þar sem Peugeotbíllinn hafði fundist. Lítið var eftir af líkunum annað en bein en taska Jeannette fannst og í henni ferðaávísanir að upphæð 400 pund og jafnvirði um 90 punda í lírum. Fundarstaðurinn var í brattri skógarbrekku. Þá fannst einnig handtaska Gabriellu og meðal þess sem fannst í henni var gaffall sem reyndist kominn úr bústað smal- anna. Úr beggja kvennanna höfðu úti, eins og fyrr segir. Má þar nefna að ályktanir ítölsku lögreglunnar voru á þann veg að konurnar hefðu fest bílinn í snjó en ljóst er að honum var lagt, áður en snjókoman byrjaði. Þá taldi lögreglan að konurnarhefðu verið um tvo daga í bústað smalanna en viðurinn, sem þar var brenndur, bendir til um vikudvalar. Þá hefur engin skýring fengist á því hvaðan maturinn, sem konurnar eiga að hafa neytt í bústaðnum, kom því að vitað er að smalamir höfðu engan mat skilið eftir. Þá var það talið furðulegt að Gabriella, sem verið hafði á há- hæluðum skóm, hefði getað gengið að þeim stað þar sem líkin fundust án þess að nokkuð sæi á hælunum því að þarna er grýtt og svo erfitt yfirferðar að nokkrir vanir fjall- göngumenn úr 34 manna hópi slö- suðust er þeir reyndu að fara þarna um í góðu veðri. Þá er engin skýring til á því hvers vegna úr kvennanna stönsuðu á sömu mínútunni, en með viku millibili. Telja sumir að einhver hafi ætlað að láta líta svo út að konumar hafi fallið og þá hafi úrin stöðvast en viðkomandi hafi sést yfir að dagatöl voru á þeim. Hver getur þá skýringin verið? Hafi konurnar ekki orðið úti virð- ast aðeins tvær skýringar koma til greina. Önnur er sú að um mannrán hafi verið að ræða, eins og fyrr er vikið að. Mikið var um mannrán á þessum tíma á Ítalíu. Þau teljast sérgrein glæpamanna frá Sardiníu og vitað er að allmargir Sardiníu- menn koma til Marche á hveiju ári. Stoðum undir þessa kenningu rennir það að Jeannette skyldi skrá sig undir Rothscildnafninu, en ættin er ein sú auðugasta í heimi. Þykir ýmsum það afar gáleysislegt af henni að hafa gert það á þessum slóðum. Hin skýringin er sú að Jeannette hafi staðið í leynilegum viðskiptum; kunni jafnvel að hafa ætlað að kaupa skartgripi sem stolið var í Róm um þetta leyti. í ljós kom við rannsókn málsins að hún hafði fengið skeyti frá Róm á meðan hún dvaldist í A1 Pinigistihúsinu í Sarnano. í því stóð: „Bíð eftir þér á fimmtudag í húsinu númer 130 við Tito Livio, íbúð 3. Roland." 30. nóvember, daginn eftir að kon- urnar hurfu, var brotist inn í útibú breska uppboðsfyrirtækisins Christi- es í Róm. Var stolið þaðan skart- gripum fyrir um 500.000 pund. Lög- reglan komst að því að tengsl voru á milli hússins 130 Tito Livio og ránsins. Talið er koma til greina að Jeannette hafi verið boðið að kaupa skartgripi, farið til fundar við þá er selja vildu, verið hjá þeim um hríð en áttað sig svo á því er skartgripirn- ir voru lagðir fram að þeir væru stolnir og ekki getað leynt grun- semdum sínum. Það þykir renna nokkrum stoðum undir þessa kenningu að hluti skart- gripanna, sem stolið var, hafði verið í eigu Giustiniani Bandini Gravina, greifynju sem búið hafði í Marche, og var brotist inn í hús hennar þar um svipað leyti. Þótt ítalska lögreglan hafi verið sökuð um að hafa ekki rannsakað málið sem skyldi, ef til vill vegna þess að hún átti um þessar mundir í miklum erfiðleikum vegna tíðra mannrána, þá má vera að einn leyni- lögreglumannanna, sem rannsakaði innbrotið hjá Christies í Róm, hafi ekki verið fjarri sannleikanum er hann sagði um hugsanleg tengsl þess og kvennahvarfsins: „Getur það verið tilviljun að málin skuli tengjast svona.?“ Þýð: ÁSG LOPI - LOPI Þriggja þráða plötulopi, 10 sauðarlitir, að auki rauð- ir, bláir og grænir litir. Opið frá 8-5 mánudaga— föstudaga, laugardaga 10-12. Sendum í póstkröfu um landið. ULLARVINNSLAN SF. Súðarvogi 4,104 Reykjavík. Sími 30581. INNANHÚSS- ARKITEKTÚR í frítíma yðar með bréfaskriftum. Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota. Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti, lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll, blóm, skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir, vegg- klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús- gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o. fl. Eg óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ. Nafn........................... Heimilisfang...................................... Akademisk Brevskole Jyllandsvej 15 • Postboks 234 2000Frederiksberg • Kobenhavn • Danmark DV 08/02 1 986. Á ÍÞRÓTTAFRÉTTiR HE 'NNAR VARAHLUTAVERSLUNIN |pifc 'mg HP w AMC varahlutir í miklu úrvali í Eagle, Jeep, Wagoneer og Cherokee. SIÐUMULA3 Sendum um allt land. DANSKA SMURBRAUÐIÐ Auðbrekku 32, Löngubrekku megin. Hjá okkur fáið þið ekta danskt smurbrauð, einnig kaffisnittur og kokkteilsnittur. Uppl. og pantanir i síma 45633. Opið frá kl. 10-20 alla daga. ATH. Sendum heim ef óskað er.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.