Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Side 18
62
DV. LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986
Grínþátturinn Staupasteinn, sem
sýndur er í íslenska sjónvarpinu á
laugardagskvöldum, byggir vinsæld-
ir sínar á hnyttnum tilsvörum og
kátlegum viðbrögðum persónanna
og slíkur þáttur nær ekki almennri
hylli strax á fyrsta kvöldi heldur
hægt og bítandi eftir því sem áhorf-
endur kynnast persónunum betur.
Margurinn kann að ætla að það sé
hreint ekki svo eríítt að reikna út
formúluna fyrir vinsælum sjónvarps-
þætti en í Ameríku hefur öðrum en
framleiðendum Dynasty og Dallas
gengið það brösuglega.
Bræðumir Glen og Les Charles og
leikstjórinn Jim Burrows urðu afar
kátir við þegar NBC sjónvarpsstöðin
ákvað að hleypa Staupasteini af
stokkunum árið 1981, eftir að for-
ráðamenn þar höfðu lesið fyrsta
handrit bræðranna að þættinum.
Burrows og Charlesbræður voru þó
ekkert ákaílega hissa á að ná samn-
ingum við einhverja af sjónvarps-
stöðvunum þrem sem þeir buðu
Staupastein því allir voru þeir vel
þekktir í sjónvarpsþáttabransanum
og Burrows tvöfaldur Emmyverð-
launahafi fyrir leikstjórn.
Erfitt að finna
rétta leikara
Erfiðasta vandamálið, sem blasti
við Staupasteinsmönnum í upphafi,
var að finna leikara sem hæfðu per-
sónunum á bamum góða. Önnur
aðalpersónan er Sam, kvenhollur
bareigandi og fyrrum atvinnumaður
í hafnarbolta. Hin er Diane, greind,
vel menntuð og falleg framreiðslu-
stúlka. Þau þurftu að vera eins og
sköpuð fyrir hvort annað en lenda
þó í stöðugum deilum. Árekstramir
milli þeirra em sú hryggjarsúla sem
þarf til að bera uppi þáttinn.
Um það bil 300 leikarar vom reynd-
ir í þessi hlutverk og á endanum stóð
Burrows uppi með þrjú pör sem til
greina komu: William Devane og
Lisa Eichhom, Fred Dryer og Julia
Duffy og Ted Danson og Shelley
Long. Devane og Eichhom vom
bæði vel þekkt og vinsæl úr öðrum
sjónvarpsþáttum en Danson hafði á
hinn bóginn fengið einn af stjórnend-
um NBC upp á móti sér. Danson
hafði leikið í sjónvarpsþáttum sem
misheppnuðust gersamlega og verið
kennt um ófarimar.
Engin bananahýði
né rjómatertur
Á endanum varð það samt úr að
Danson var tekinn fram yfir Devane
því sá fyrrnefndi væri geðþekkari og
elskulegri persónuleiki. Þumalfing-
ursregla í sjónvarps- og kvikmynda-
iðnaðinum vestra segir nefnilega að
áhorfendur vilji hugsa sér að faðma
og klappa sjónvarpsstjörnum en sofa
hjá kvikmyndastjömum.
Þegar fyrsti þátturinn af Staupa-
steini var svo tilbúinn til útsending-
ar þótti sýnt að vinsældirnar myndu
láta á sér standa. Ted Danson og
Shelly Long vom svo til óþekkt og
í þáttunum dettur enginn á banana-
hýði né fær rjómatertu framan í sig.
Eða eins og bandarískur gagnrýn-
andi sagði: „Það em álíka miklar
líkur á að Staupasteinn verði vinsæll
og að Khomeini æðstiklerkur verði
kjörinn ríkisstjóri í Iowa.“
Gífurlegur kostnaður við gerð
bandarískra sjónvarpsmynda er þess
valdandi að vanalega er þáttur sem
stígur hægt á vinsældalistanum
dauðans matur., Vorið 1983 var
Staupasteinn í 74. sæti á lista yfir
vinsældir 124 sjónvarpsþátta. NBC
ákvað þó að reyna að halda áfram
annan vetur og sendi leikarana i
Staupasteini vítt og breitt um
Bandaríkin svo þeir gætu komið
fram í viðtalsþáttum hjá svæðissjón-
varpsstöðvum. Til samanburðar má
geta þess að leikaramir í Hill Street
Blues borguðu sjálfir undir sig farið
þegar þeir unnu að því að bjarga
þáttaröðinni sinni frá glötun með því
að taka þátt í gestaþáttum sem kol-
legár Bryndísar Schram stjóma í
amerískum útkjálkasjóbvarpsstöðv-
um.
Emmyverðlaunin í höfn
Og viti menn. Ted Danson og
Shelly Long vom fengin til að lesa
upp útnefningar til Emmyverðlauna
sumarið 1984 og hlutu bæði útnefn-
ingu sem bestu leikarar. .1 september
Gamanþátturinn
Staupasteinn
fórhægtaf stað
ávinsældalistum
sjónvarpsstöðva
íBandaríkjunum
þegar honum var
hleyptaf
stokkunum 1982
en síðan hefur
hann hlotið
margháttaðar
viðurkenningar
sama ár vann Shelley svo verðlaunin
en Ted varð að lúta í lægra haldi
fyrir aðalleikaranum í Taxi, sjón-
varpsþáttum sem teknir höfðu verið
af dagskrá. Sama ár fengu Charles-
bræður líka Emmyverðlaun fyrir
besta handrit að gamanþáttaröð og
Staupasteinn var valinn besta gam-
anþáttaröðin.
Staupasteinn nýtur ekki bara vel-
þóknunar hjá æðstu mönnum sjón-
varpsiðnaðarins heldur eru langar
biðraðir fyrir utan stúdíóið þar sem
þátturinn er tekinn upp því að áhorf-
endur fá að vera viðstaddir sjálfa
upptökuna og telja ekki eftir sér að
bíða klukkustundum saman eftir að
vera hleypt inn í salinn. Þættirnir
eru vanalega æfðir og hver taka
útspekúleruð fyrirfram en upptakan
á hverjum 22 mínútna þætti tekur
þó um tvo klukkutíma. Áhorfendur
eru þá látnir fara en nokkur atriði
tekin enn einu sinni til að leikstjór-
inn sé öruggur um að hafa náð öllu
eins og hann vildi.
Persónur sem vinna á
Persónumar í Staupasteini eru
ofurvenjulegt fólk. Carla er heldur.
ófríð framreiðslustúlka en með
munninn fyrir neðan nefið og ekki
alltof hrifin af stöllu sinni, Diane.
Þjálfi er einfaldur og iðulega úti á
þekju og fastagestimir tveir mestu
grallarar. Hvössustu orðaskiptin eru
svo ævinlega milli Diane, sem veit
sínu viti, og Sam sem ekki getur
viðurkennt að hann fylgi henni ekki
alltaf á fluginu. Og þó Diane þykist
líta niður á vinnueitandann bráðnar
hún fyrir kvennagullinu rétt eins og
allar hinar. Skrýtinn hópur en vinn-
ur á hér eins og í Bandaríkjunum.
-SKJ
Ted Danson í hlutverki barþjónsins Sam Malone og Shelly Long sem þjónustan Diane Chambers elda grátt
silfur saman á Staupasteini. Neðst: John Ratzenberger, George Wandt og Nicholas Colasanto í aftari röð.
Shelley Long, Ted Danson og Rhea Perlman fyrir framan, allt úrvalsleikarar sem gert hafa Staupastein
vinsælan.
Skál fyrir
Staupasteini