Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Side 4
4
DV. FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR1986.
Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál
FJÖLSKYLDAN ÞARF
1.2 MIUJÓNIR í ÁR
—f ramfærslukostnaður milljón, skattar 200 þúsund
Það sem vísitölufjölskyldan þarf til
þess að lifa sœmilegu lífi á þessu
ári eru svona ein milljón og tvö
hundruð þúsund krónur. í þessari
fjölskyldu eru hjón eða sambýlis-
fólk og tvö börn. Annað verður að
vera af minni gerðinni, því samtals
telur fjölsky ldan 3,66 persónur.
Þessi niðurstaða um fjárþörf vísi-
tölufjölskyldunnar byggist á bú-
reikningshaldi allmargra fjöl-
skyldna á höfuðborgarsvæðinu og
í nokkrum kaupstöðum annars
staðar á árunum 1979 og 1980.
Þetta er grundvöllur núgildandi
framfærsluvísitölu. Meðalútgjöld
fjölskyldnanna eru framreiknuð lið
fyrirlið.
í síðasta mánuði var svo komið
að vísitölufjölskyldan þurfti tæp-
lega 966 þúsund krónur á ári fyrir
venjulegum útgjöldum. Það var
fyrir utan skatta. Hér er áætlað að
þeir nemi um 200 þúsund krónum
sem er innan við 20% af þeim
brúttótekjum sem þarf til þess að
lifa þetta af á eigin aflafé.
En, sem sagt, fyrir utan beina
skatta er framfærslukostnaður
vísitölufjölskyldunnar á árinu
þessi, reiknaður á janúarverðlagi:
Matvörur .......................................................... 223.007,54
Drykkir og tóbak ................................................. 48.027,56
Föt og skór ...................................................... 81.335,98
Húsnæöi, rafmagn, hiti............................................. 146.957,82
Húsgögn og hcimilisbúnaður ......................................... 81.932,83
Heilsuvemd ..................................................... 20.040,06
Rekstur bifreiður ............................................... 143.111,68
FerÖir og flutningur ............................................. 25.607,18
Tómstundaiökun og menntun ...................................... 102.250,35
Aðrar vörur og þjónusta ............................................ 86.158,41
önnur útgjöld ............................................... 7.273,51
Samtals ..................................................... 965.702,94
HERBJ
Byrjað er að grafa fyrir gríðarlegu holræsi sem fer meðal annars i gegnum tún Kópavogshælis. Með því á allur
úrgangur úr Kópavogsdalnum og hlíðunum upp af honum að berast út fyrir alla byggð. DV-mynd.
Opinberar f ramkvæmdir í Kópavogi fyrir 212 milljónir:
Níutíu milljónir í
götur og ræsi
Framkvæmdir á vegum Kópavogs-
bæjar eru áætlaðar fyrir 211,9 millj-
ónir króna á þessu ári, að meðtöldu
ríkisframlagi sem er 63,5 milljónir.
Mestu fé verður varið til gatna og
holræsa, 92,5 milljónum. Þar af fara
30 milljónir í tvö stór ræsi, Kópa-
vogsræsi og Sæbólsræsi.
Til framkvæmda í fræðslumálum á
að verja 39,6 milljónum, aðallega til
áframhaldandi framkvæmda við
Snælandsskóla, Digranesskóla og
Hjallaskóla. 1 félagsmál á að verja
33,3 milljónum. Það fé fer í ljúka við
dagheimili við Marbakkabraut og að
opna skóladagheimili við Ástún. Þá
á að verja vérulegu fé í byggingar
íbúða fyrir aldraða' og til verka-
mannabústaða.
Áætlað er að verja 27 milljónum
króna til framkvæmda í æskulýðs-
málum, íþróttamálum, skrúðgörðum
og útivistarmálum. Þar á meðal 7
milljónum til að hefja framkvæmdir
við nýja 50 metra langa sundlaug á
Rútstúni. í gatnagerð eru uppi áform
um að leggja bundið slitlag á götur
í Sæbólshverfi og á Marbakkabraut.
Einnig á að gera átak í frágangi
Nýbýlavegar, Norðurvarar, Vestur-
varar, Laufbrekku og Dalbrekku.
Einnig á að hefja gatnagerð í nýju
hverfi í Suðurhlíð.
Til svokallaðra fjármagnshreyf-
inga á að verja 46,7 milljónum, aðal-
lega til greiðslu á lánum umfram
lántökur. Rekstrargjöld bæjarsjóðs
Kópavogs eru áætluð 606,3 milljónir
króna, en að frádregnum sértekjum
380.6 milljónir. Nærri þriðjungurinn
á að fara til félagsmála, 120,4 milljón-
ir króna. f fræðslumál ó að verja
79.6 milljónun króna.
Heildartekjur bæjarsjóðs eiga að
verða 575,8 milljónir króna á árinu
og sértekjur ýmissa stofnana, svo
sem strætisvagna og dagheimila,
225,7 milljónir króna. HERB
„Ekki of margar
utanlandsferðir”
— segir Páll Pétursson,
forseti Norðurlandaráðs
Upplýsingar um utanlandsferðir
ráðherra og embættismanna voru
lagðar fram á Alþíngi í gær. Þetta
er reyndar ekki í fyrsta skipti sem
óskað er eftir upplýsingum um utan-
landsferðir.
Matthías Bjarnason óskaði eftir
sömu upplýsingum 1982. Ekkert svar
barst hins vegar við fyrirspurn Matt-
híasar sem þá var í hópi stjómarand-
stæðinga.
Geir Gunnarsson, Alþýðubanda-
lagi, óskaði einnig eftir upplýsingum
um utanlandsferðir á kostnað ríkis-
sjóðs og ríkisstofnana 1978. í þetta
skipti varfyrirspuminni svarað.
„Menn rak í rogastans þegar þess-
ar upplýsingar birtust. Það kom
meðal annars í ljós að sumir embætt-
ismenn voru allt að þrjá mánuði
erlendis á ári,“ sagði Geir. Þá var
gripið til þess að setja á laggirnar
sérstaka nefnd sem átti að hafa yfir-
umsjón með þessum ferðum. Nefndin
varð fljótlega óstarfhæf vegna þess
að vilji hennar var hafður að engu í
mörgum tilfellum.
Geir telur að stjórn þessara ferða
ætti að vera undir fjármálaróðuneyt-
inu og jafnvel að sérstakur fjárveit-
ingaliður ætti að vera á fjárlögum
um þessar ferðir. Einnig að þröngur
kvóti yrði settur á ráðuneytin fyrir
þessar ferðir. Það sem þyrfti umfram
þennan kvóta yrði háð samþykki
fjármálaráðherra.
Sá sem fór í flestar utanlandsferðir
var Jón Júlíusson í viðskiptaráðu-
neytinu. Ferðir hans voru flestar
tengdar norrænu samstarfi.
„Það hefur verið mikið gagn að því
starfi sem Jón Júlíusson hefur gegnt.
Hann hefur sinnt þessu með mikilli
alvöru. Aðstaða okkar í norrænu
samstarfi hefur verið mun betri fyrir
bragðið,“ segir Páll Pétursson, for-
seti Norðurlandaráðs.
Páll telur að ekki sé farið í of
margar ferðir vegna samstarfsins við
Norðurlöndin. Það sé farið þegar
talin sé þörf ó því og ef íslendingar
ætlist til þess að málefni tengd þeim
nái fram að ganga séu þessar ferðir
nauðsynlegar. -APH
Barist í Iðiu
í dag og á morgun standa yfir kosn-
ingar um nýja stjórn og trúnaðar-
mannaróð verkalýðsfélagsins Iðju.
Þær fara fram á skrifstofu félagsins
að Skólavörðustíg 16.
Tveir listar eru í framboði. Annars
vegar listi sem núverandi formaður,
Bjami Jakobsson, teflir fram og svo
listi þar sem núverandi varaformað-
ur Iðju, Guðmundur Þ. Jónsson, er
formannsefni. -APH
Guðmundur Þ. Bjarni Jakobs-1
Jónsson. son.
Flóamarkaður
verður haldinn í Lionsheimilinu, Sigtúni 9, laugardaginn 15. febrúar, frá kl. 2-5,
til styrktar Hjálparstöð RKI fyrir böm og unglinga, Tjarnarg. 35.
Lionessuklúbbur Reykjavíkur.