Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Síða 5
DV. FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR1986. 5 Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Verðlag má ekki hækka umf ram 6% til áramóta, samkvæmt markmiðum ríkisstjórnarinnar: „EF EITT SP1LIÐ FELL- UR ÞÁ HRYNUR ALLF’ „Lykillinn að leyndardómnum er að sjávarútvegurinn í heild standi undir sér og geti bætt starfsfólki sínu þá lífskjaraskerðingu sem orðin er síð- an í haust, án þess að til gengis- breytinga komi. Takist þetta er heimatilbúna verðbólgan sama og dauð,“ sagði einn af áhrifamestu hagfræðingum þjóðarinnar í samtali viðDV. Markmiðið 9% verðbólga Fyrir hann var lögð sú spurning hvort heil brú væri í því markmiði ríkisstjórnarinnar að almennar verð- hækkanir í landinu, svokölluð verð- bólga, verði undir 9% frá upphafi til loka ársins. „Þetta er hægt ef allar aðstæður leyfa. En hér er auðvitað búið að byggja spilaborg sem á örlög sín undir mörgum og margvíslegum áhrifum. Ef eitt spilið fellur hrynur allt.“ Ferns konar forsendur Forsendurnar sem ríkisstjórnin gefur sér eru ferns konar: í fyrsta lagi fast gengi. í öðru lagi launa- hækkanir innan við 9% verðbólgu- markið. í þriðja lagi að erlendar verðbreytingar verði mjög litlar, sem er breyting frá fyrri spám í alþjóða- viðskiptum. 1 fjórða lagi lækkun á gjaldskrám opinberra stofnana og skattalækkanir og sérstök lækkun á bensíni og olíum. Við samþykkt ijárlaga ríkisins og fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir þetta ár var reiknað með 22% verð- bólgu á árinu, eða 22% hækkun á almennu verðlagi á árinu. Síðan hafa aðstæður breyst og með ráðstöfunum í framhaldi af þeim breytingum er sem sagt stefnt niður í eða jafnvel niður fyrir 9% verðbólgu á árinu. Staða sjávarútvegsins Með hækkun fiskverðs á erlendum mörkuðum og lækkun olíuverðs metur Þjóðhagsstofnun að við- skiptakjör okkar batni um að minnsta kosti tvo milljarða króna á árinu, frá fyrri spá. Þar með eiga þau á heildina litið að batna frá síðasta ári í stað þess að versna. Báðar aðalástæðumar fyrir batn- andi viðskiptakjörum koma sjávar- útveginum til góða fyrst af öllum. Þess vegna stendur hann nú í fyrsta sinn í langan tíma sæmilega föstum fótum. Það á sérstaklega við um útgerðina og saltfiskverkunina. Frystingin á örðugra uppdráttar. En hún mun nú fá 70 milljóna króna endurgreiðslur vegna gengismunar og 330 milljóna hagstæð lán til hag- ræðingar. í þessu efni veldur það þó von- brigðum að Bandaríkjadollar hefur tekið að falla í verði aftur í stað þess að styrkjast. Spár sneru að því að með lækkandi olíuverði færi dollar- inn hækkandi. Þær háfa ekki ræst, enn að minnsta kosti. Þetta hefur slæm áhrif einmitt á þær útflutnings- greinar sem standa hallari fæti en aðrar, þar á meðal frystingu í sjávar- útvegi og ullariðnaðinn. Kjarasamningarnir Af þeim forsendum sem ríkisstjóm- in gefur sér fyrir markmiðinu um 9% verðbólgu á árinu em launahækkan- ir innan þeirra marka einn burðar- ásanna. Bæði vinnuveitendur á al- menna vinnumarkaðnum og ríkið hafa boðið 7% hækkun launa til áramóta. Sú hækkun jafngildir ekki nema um 5% hækkun launakostnað- ' ar á árinu og er því augljóslega langt innan markanna. Á hinn bóginn hafa bæði Alþýðusambandið og Bandalag þurfa launin að hækka um 14-17%, eftir því hvenær launahækkanirnar koma fram. Mikiöberá milli Þannig er einsýnt að enda þótt samningsaðilar tali nú um minni launabreytingar en oftast áður á síðustu misserum þá ber mikið á milli. Einnig er öllum ljóst að bæði hefur kaupmáttur rýrnað og að samið verður á viðkvæmum forsend- um. Loks hafa samningamenn laun- þega á sér fyrirvara um efndir á ýmsum 'vilyrðum ríkisstjórnarinnar, einkum á því að búvöruverð hækki ekki úr hófi fram. Af þessum ástæðum er krafa laun- þegasamtakanna um einhvers konar verðmætistryggingu þeirra launa sem samið verður um efst á baugi á þessari stundu. Vinnuveitendur og stjórnarflokkarnir hafa ekki ljáð máls á því að endurverkja vísitölu- kerfið í kjarasamningum. Samninga- nefnd ríkisins hefur þó, í umboði fjármálaráðherra, fallist á uppsögn samninga með skömmum fyrirvara, fari verðlagshækkanir fram úr launahækkunum. Ósamið er þó um hvar á að setja mörkin. Næðir um spilaborgina Það eru því margir lausir endar í kjarasamningunum, enn sem komið er, þótt farið sé að „ræða um tölur'", eins og það er orðað. Á meðan næðir um verðbólguspilaborg ríkisstjórn- arinnar. Þegar er liðinn hálfur annar mánuður af þessu ári. I janúar hækk- aði almennt verðlag um 2,28% og hækkunin frá áramótum er án efa komin yfir 3%. Svigrúmið er því innan við 6% hækkun almenns verð- lags til áramóta. Naumara getur það varla verið. HERB RYMINGARSALA húsgögnum 10-30% afsláttur Athugið, breytt aðkeyrsla I__II—i * ♦ SNýja . . . ^ólsturgcrðin GARÐSHORN ™ Suðurhlíð, Fossvogi, símar 40500 & 16541 Þannig var það við upphaf samninga ríkisins og BSRB, torræður svipur á mönnum. Þetta eru kunn andlit, Þorsteinn, Steingrímur og Kristján, formaður BSRB. Þeir tveir fyrrnefndu eru nú staddir inni í spilaborginni sem stendur eða fellur meðal annars með kjarasamningunum. DV-mynd: GVA. starfsmanna ríkis og bæja krafist hækkana umfram verðbólgu, eða kaupmáttaraukningar. BSRB hefur ekki lagt fram kröfur um aukningu kaupmáttar í hörðum tölum en ASÍ krefst 8% kaupmáttar- Fréttaljós HERBERT GUÐMUNDSSON aukningar. ASl metur dæmið svo að til þess að kaup haldi í við þá 9% verðbólgu sem ríkisstjórnin setur markið við þurfi launin að hækka um 12-14% til áramóta. Er þá sýnt að ef auka á kaupmáttinn um 8%

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.