Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Page 6
6 DV. FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR1986. Viðskipti Viðskipti Viðskipti Viðskipti Peningamarkaðurinn Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn- stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningam- ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum. Þriggja stjömu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífejoissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn- vextir eru 29% og ársávöxtun 29%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 33,5% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36% nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og 42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5% vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 36% nafnvöxtum og 39,2% ársávöxtun eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. 100 óra afmælisreikningur er verðtryggð- ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25% og breytast ekki á meðan reikningurinn verð- ur í gildi. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefúr stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 22%, eftir 2 mánuði 25%, 3 mánuði 27%, 4 mánuði 29%, 5 mánuði 31%, og eftir 6 mánuði 37%. Frá 11.02.1986 verða vextir eftir 12 mánuði 38% og eftir 18 mánuði 39%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6 mánaða verðtryggð- um reikningum gildir hún um hávaxtareikn- inginn. 18 og 24 mánaöa reikningar eru bundnir og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán- aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt- um sé hún betri. Samanburður er gerður mánaðarbga en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir spariQár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heil;» ársfjórðung. Sparisjóðír: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með 8vokölluðum trompvöxtum, 32%, með 34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp- vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn- an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem eru 50 þúsund að nafnverði. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög- urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur, vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14 ára, innleysanleg eftir Qögur ár. Ársávöxtun er 8,16% á verðbættan höftiðstól hv'erju sinni og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert. Við innlausn greiðast verðbætur með höfúð- stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til- tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%. Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í einu lagi við innlausn. Almenn veröbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð- tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er al- mennt 12-18% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvikr um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings, annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl- skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund. Lánstími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins /extir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns- rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextimir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig 22%. Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22% nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6 mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur. Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím- ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%. Dráttarvextir Dráttarvextir em 3,75% á mánuði eða 45% á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því 0,125%. Vísitölur Lánskjaravísitala í febrúar 1986 er 1396 stig en var 1364 stig í janúar. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggmgarvísitala á 1. ársfjórðungi 1986 er 250 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3699. stig á grunni 100 frá 1975. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÖÐA (%) 01.-10.02. 1986 innlAn með sérkjörum sjAsérlista ili! iiiiiiíiliilihi INNLAN úverðtryggð SPARISJ0OSBÆKUR öbundin inmtaða 22,0 22,0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22,0 22.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mén. uppsögn 25.0 26.6 25.0 25.0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0 6 mén. uppsögn 31,0 33.4 30.0 28.0 26.5 30.0 29.0 31.0 28.0 12 mén. uppsöan 32,0 34.6 32,0 31.0 33.3 SPARNAÐUR - LANSRÉTTUR Sparað 3 5 mén. 25,0 23.0 23.0 23.0 23,0 25.0 25,0 innlAnsskIrteini Sp. 6 mén. og m. 29,0 26.0 28.0 29.0 28.0 Til 6 ménaða 28,0 30.0 28.0 28.0 TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0 Hlaupareiknmgar 10.0 10,0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10,0 10.0 INNLANVERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mén. uppsögn 6mén. uppsögn 2.0 3.5 1.5 3.5 1.0 3.5 1.0 3.0 1.0 3.5 1.0 3.5 1.0 3.0 2.0 3.5 1.0 3.0 INNLÁN gengistryggð GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarlkjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7,5 7.5 8,0 Starlingspund »1.5 11.5 12.0 11.0 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 Vastur-þýsk mörk 5.0 4.5 4.0 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5 Danskar krónur 10.0 9.5 1.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10,0 9,0 útlAn úverðtryggð ALMENNIR VlXLAR (forvaxtir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30,0 30.0 30.0 30.0 30,0 VIÐSKIPTAVlXLAR (fenrextir) 34.02) kga 34,0 kOt 32.5 kga kflt kga 34.0 ALMENN SKULDABRÉE 32.03) 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 VIDSKIPTASKULOABRÉF 35.02) kga 35.0 k0« 33,5 kfl* kga kg. 35.0 HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRATTUR 31.5 31.5 31,5 31.5 31.5 31,5 31.5 31.5 31.5 útlAnverðtryggð SKULDABRÉF AA21/2éri 4,0 4.0 4.0 4,0 4,0 4,0 4.0 4.0 4.0 Langrí an 21/2 ér 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 6.0 útiAntilframledslu sjAnedanmAlsi) 1) Lán til innanlandsframleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutningB, í SDR 10%, í BandaríkjadoUurum 9,75%, í sterlingspundum 14,25%, í vestur-þýakum mörkum 6,25%. 2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfúm er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í Hafnarfirði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj. 3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskÚalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nana í Alþýðubankanum og Verslunarbankanum. Aukin samkeppni á leiðinni Reykjavík-Akranes: Ferja Norðurskips veróur sem strætó „Við ætlum okkur að reka ferju milli Reykjavíkur og Akraness á vetuma og Akureyrar og Grímseyjar á sumrin,“ sagði Haukur Snorrason', framkvæmdastjóri Norðurskips h/f, í samtali við DV. Töluverður hiti hefur verið í mönn- um á Akranesi vegna ótta margra við að samkeppnin muni gera út af við Akraborgina sem þegar er rekin með tapi. „Við stefnum að því að auka veru- lega þjónustuna á þessari leið og auka þannig umferðina á milli Reykjavíkur og Akraness. Akra- borgin fer 4 sinnum á dag frá Reykja- vík en við ætlum að fjölga um hvorki meira né minna en 17 ferðir. Ferjan mun eingöngu taka gangandi far- þega þannig að þessi rekstur skiptir i sjálfu sér ekki öllu fyrir Akraborg- ina. Það hefur átt sér stað samdrátt- ur á þessari leið vegna þess að ekki hefur verið hægt að auka þjón- ustuna. Meiningin er að gefa fólki beggja vegna flóans tækifæri á að skjótast í stuttar ferðir, t.d. til að sækja ýmsa þjónustu eða skemmtan- ir. Við teljum að það sé grundvöllur fyrir bæði skipin, ferju Norðurskips sem strætisvagns og Akraborgina sem bílfeiju. Markmiðið hjá okkur er alls ekki að setja Akraborgina á hausinn heldur að stækka markað- inn þó auðvitað verði um einhverja samkeppni að ræða,“ sagði Haukur. Ferja Norðurskips, sem getur tekið 120 farþega, kemur til með að verða mun fljótari í förum en Akraþorgin eða aðeins 20 mínútur milli hafna og ferðir verða á klukkutíma fresti. Þá mun ferjan ganga til 12 á kvöldin virka daga og lengur um helgar en sem kunnugt er hættir Akraborgin að ganga klukkan 19. Norðurskip h/f er í startholunum og hefur mikil vinna verið lögð í undirbúning þessa máls. Grímseyjar- ferðirnar hafa verið kynntar víða erlendis, m.a. á íslandskynningunni í London sl. haust, og hefur verið mikið um fyrirspumir. Ferjan, sem nota á í þessar ferðir, bíður tilbúin í höfn í Póllandi. Sótt var um lán úr Byggðasjóði sl. haust en beiðnin hefur ekki verið tekin fyrir þar enn- þá. Að sögn Hauks hefur það komið sér mjög illa fyrir fyrirtækið að hafa ekki fengið svar frá Byggðasjóði þar sem ekki hefur verið hægt að svara þeim fyrirspurnum sem fram hafa komið frá ferðaskrifstofum heima og erlendis vegna Grímseyjarferðanna. „Það eina sem vantar er grænt ljós frá Byggðasjóði sem vonandi tekur málið fyrir á þriðjudaginn kemur. Ég á ekki von á öðru en jákvæðri niðurstöðu. Við lögðum fram skýrsl- ur og rekstraráætlun sem sýnir að hægt er að reka þetta með hagnaði. Ferjan verður ódýr í rekstri, það verða fáir í áhöfn og skipið eyðir hófiega af olíu, þannig að nýting þarf ekki að verða svo mikil til þess að standa undir þessu. Við munum taka alla áhættu sjálfir, það stendur ekki til að gera út á neina ríkis- styrki. Ef einhverjir fara á hausinn verðum það við en það er mjög áríð- andi að við fáum svar um lánið sem allra fyrst,“ sagði Haukur Snorra- son, framkvæmdastjóri Norðurskips. -VJ. Norðurskipsferjan sem að öllum líkindum mun sigla milli Akraness og Reykjavíkur næsta vetur. Flugleiðir falla f rá forkaupsrétti Hlutabréfin í Arnarflugi: Flugleiðir ætla ekki að reyna að ná meirihluta í Amarflugi. Þvert á móti ætla Flugleiðir ekki að taka neinn þátt í fyrirhugaðri hlutafjár- aukningu Arnarflugs. Stjórn Flugleiða samþykkti í gær að verða við þeirri ósk meirihluta stjórnar Amarflugs að falla frá for- kaupsrétti sínum við hlutaíjáraukn- inguna. Jafnframt samþykkti stjóm- in að leggjast ekki gegn aukning- unni. Stjórn Amarflugs samþykkti fyrir viku að leggja til allt að tvöföldun hlutafjár, um allt að 96,7 milljónir króna. Tillagan verður lögð fyrir fund hluthafa 25. febrúar næstkom- andi. Flugleiðir eiga nú um 44 prósent í Arnarflugi. Með því að nýta sér for- kaupsrétt hefðu Flugleiðir getað náð meirihluta í Arnarflugi þar sem margir aðrir hluthafar myndu ekki taka þátt í hlutaijáraukningunni. Verði hlutafé Arnarflugs tvöfaldað án þátttöku Flugleiða minnkar hlut- ur Flugleiða niður í 22 prósent. KMU Verðbólgan 31,1 prósent Framfærsluvísitalan hefur hækkað um 2,28% frá janúar til febrúar. Þessi hækkun svarar til þess að verðbólga væri 31,1% á ársgrundvelli. Ástæður fyrir hækkun vísitölunn- ar eru m.a. 0,9% hækkun matvara, 0,4% hækkun fatnaðar og 0,1% hækkun á húsnæðislið framfærslu- vísitölunnar. Akureyri: Iðnsýning í haust? Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni DV á Akureyri: Fjórungssamband Norðlendinga kannar nú áhuga fyrirtækja á Norð- urlandi á að halda kaupstefhu eða iðnsýningu á Norðurlandi. Sendir hafa verið spumingalistar til um 200 fyrirtækja og einstaklinga á Norður- landi. Spurt er um hvort áhugi sé á að halda sýningu á framleiðslu og þjón- ustu á Norðurlandi, hvort sýningin eigi jafnframt að vera kaupstefna, hvaða sýningarstaður komi helst til greina og hvort stofna eigi samtök um sýningar. Vonast er til að svör berist fyrir 1. mars næstkomandi. Verði undir- tektimar góðar má búast við iðnsýn- ingu á Norðurlandi í haust. Starfsmenn banka- og tolladeildar Frums hf. Frum hf. í Sundaborg 10 ára: Sjá um tollinn og bókhaldið Um þessar mundir á Frum hf. í sviðinuoghefurjafnframtsöluum- Sundaborg 10 ára afmæli. Fyrir- boð fyrir IBM-tölvur og ýmiss tækið hefur haslað sér völl á sviði konar hugbúnað. Loks annast alls konar þjónustu við önnur fyr- skrifstofudeild allt frá telexsend- irtæki. Það rekur nú banka- og ingum til fullkomins bókhalds fyrir tolladeild, tölvudeild og skrifstofu- stórfyrirtæki. deild og sér almennt um að hemja Upphaflega var Frum stoftíað til pappírsflóðið sem ógnar öllum þess að þjóna innflutningsfyrir- rekstri. Auk þess sér það um að aka tækjum í Sundaborg við Sunda- vömm heim í vörugeymslur við- höfn. Með tímanum hefur þjónust- skiptavinanna. an teygt sig miklu víðar og nær Banka- og tolladeildin sækir nú ekki síður til iðnfyrirtækja og frumgögn til viðskiptavinanna, verslunarfyrirtækja almennt. Að- útbýr aðflutningsskjöl, leysir vör- alstjómendur eru Jón Baldvinsson, umar út og skilar þeim í vöm- Linda Metusalemsdóttir, Helgi geymslur. Tölvudeildin annast Guðmundsson og Guðmundur hvers kyns þjónustu á viðskipta- Skarphéðinsson. HERB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.