Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Blaðsíða 7
DV. FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR1986. 7 Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Fiskvinnslan fær 400 milljónir útf lytjendum heimilaðar beinar erlendar lántökur Fiskvinnslan fær 70 milljónir frá Seðlabankanum upp í tap sem varð í fyrra vegna misgengis á afurðal- ánum í erlendum myntum. Byggða- stofnun mun lána 150 milljónir til fjárhagslcgrar endurskipulagning- ar fiskvinnslufyrirtækja. Þá mun Fiskveiðasjóður lána 100 milljónir til tæknivæðingar og Byggðastofn- un 80 milljónir í sama tilgangi. Þetta meðal annars fólst í svari ríkisstjórnarinnar til Sambands fiskvinnslustöðvanna, en það lagði sérstakt erindi fyrir 10. desember síðastliðinn. Þetta er samband fisk- vinrislustöðva með aðild að Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna. Ríkis- stjórnin tilkynnir einnig áherslu á stöðugt meðalgengi krónunnar, endurskoðun sjóðakerfisins og virðisaukaskatt í stað söluskatts. Á þessu ári rennur endurgreiðsla á söluskatti til sjávarútvegsins í gegn um Aflatryggingarsjóð og þaðan til útgerðar og sjómanna. Þessu verður ekki breytt, segir ríkisstjórnin. Með breyttu sjóða- kerfi og virðisaukaskatti eiga framleiðendur að njóta jafnræðis í þessu efni. Þá tilkynnir ríkisstjórn- in að settar verði reglur sem heim- ili útflytjendum beinar erlendar lántökur. I svari ríkisstjórnarinnar segist hún munu beina tilmælum til Rannsóknasjóðs um að leggja fram fé til þess að leysa tæknileg vanda- mál í útflutningsatvinnuvegunum. Einnig að hún muni beina því til fulltrúa ríkisins í stjórn Þróunarfé- lags íslands hf. að beita sér fyrir þátttöku í þessum verkefiium. HERB Sjómenn skipa sjálf ir út gámafiskinum: Um 7o tonnum af þorski var í fyrra- dag skipað út hjá Granda h/f í Reykjavík úr togaranum Ottó N. Þorlákssyni. Fiskurinn fór á markað í Englandi. Gámaútflutningur sem þessi er ekkert nýtt fyrirbæri, en það sem er óvenjulegt við þennan út- flutning er að skipverjar á Ottó sáu sjálfir um að koma aflanum í gáma. Þessi breyting er til komin fyrir þrýsting frá sjómönnum sem vildu fá hlut i samræmi við það verð sem fékkstfyrir fiskinn á erlendum mörk- uðum. Áður höfðu sjómenn hjá Granda fengið greitt fyrir aflann eins og hann var metinn upp úr skipinu hér heima. Útgerðin sá hins vegar alfarið um gámaútflutninginn. Sjó- menn voru mjög óánægðir með þetta þar sem oft fékkst verulega hærra verð fyrir fiskinn erlendis. Að sögn Magnúsar Magnússonar, yfirverkstjóra hjá Granda, eru sjó- menn ánægðir með þetta nýja fyrir- komulag þó það þýði aukavinnu fyrir þá, þannig að þessu verður haldið áfram hj á Granda. - V J. Skipverjar á aflaskipinu Ottó N. Þorlákssyni hlaða fisk í gáma Fá greitt miðað við verð erlendis Bflddælingar fálokaséns Stjórn Fiskveiðasjóðs hefur frestað að taka ákvörðun um Sölva Bjarnason. Útgerðarfélagi Bíld- dælinga var gefið lokatækifæri ul að uppfylla skilyrði fyrir kaupum á togaranum. Á venjulegui máli þýðir þetta a>' Bílddælingar fái enn einn séns til að skrapa saman peningum. Fyrir fund stjórnar Fiskveiða- sjóðs næstkomandi föstudag þurfa Bílddælingar að hafa gert ná- kvæma grein fyrir sínum málurn, greiðslutryggingum og rekstrará- ætlunum. Annars má búast við að Fiskveiðasjóður slíti viðræðunum, sem hófust fyrir hálfum mánuði, og kalli inn næstbjóðanda. -KMU Atvinnuleysi 2% í janúar — atvinnuástand var verst á Húsavík „Miðað við mannafla er skráð atvinnuleysi í nýliðnum janúar- mánuði minna en í sama mánuði síðastliðin fjögur ár, eða 2,0 pró- sent,“ segir í yfirliti félagsmála- ráðuneytisins um atvinnuástand í landinu. Tvö prósent atvinnuleysi í janúar jafngildir því að 2.400 manns hafi verið á atvinnuleysisskrá allan mánuðinn. Þetta eru rösklega 51 þúsund atvinnuleysisdagar á landinu öllu. „Þessar tölur benda ótvírætt til þess að atvinnuástandið sé óðum að leita jafnvægis á ný eftir árvissa stöðvun fiskvinnslu víða um land í desember og janúar." segir ráðu- neytið. Átvinnuástand var verst á Norð- urlandi eystra. Þar voru skráðir tæplega 12 þúsund atvinnuleysis- dagar, þar af á fimmta þúsund dagar á Húsavík, sem svarar til þess að 214 Húsvíkingar hafi verið án vinnu allan janúarmánuð. Á Akranesi voru einnig 214 at- vinnulausir í fyrsta mánuði ársins, á Bíldudal 20, á Sauðárkróki 95, á Hofsósi 33, á Ólafsfirði 88, á Dalvík 41, í Árskógshreppi 22, á Raufar- höfn 21, í Borgarfirði eystra 32, á Fáskrúðsfirði 28, í Þorlákshöfn 64, á Eyrarbakka 44, á Stokkseyri 38, í Keflavik 197, í Njarðvík 73 og í Sandgerði 66, svo nefndir séu helstu íverustaðir atvinnuleysisv- ofunnar í janúarmánuði. -KMU 1007. MEIRI LÝSING OSRAM HALOGEN perur lýsa 1 oo/. meira en venjulegar perur og endast tvöfalt lengur. h y OSRAM fæst á bensínstöðvum Hinn velupplýsti maður er með peruna í lagi OSRAM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.