Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Page 13
DV. FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR198, 13 Neytendur Neytendur Neytendur Áætlað er að selja þær 100 tonna umframbirgðir sem safnast hafa upp á liðnum mánuðum og væntanlega verða flestar verslanir búnar að iækka verðið um helgina. Svínakjötsútsala -15% verðlækkun Síðastliðinn mánudag lækkaði svínakjöt um 15% og kemur sú verð- lækkun til með að gilda þar til þær umframbirgðir sem til eru í landinu eru uppseldar. Halldór Kristinsson, formaður Svinaræktarfélags íslands, sagði að nú væru til töluvert meiri birgðir í landinu en á sama tíma í fyrra, en þau 100 tonn sem hér um ræðir eru u.þ.b. mánaðarbirgðir.,, Þetta stafar af því að samkeppnin á kjötmarkað- inum er orðin mjög hörð og útsala á lambakjöti og kjúklingum fyrir jólin hefur einnig haft ahrif í þá átt að eftirspurnin eftir svínakjöti hefur dregist nokkuð saman frá því sem við bjuggumst við.“ Halldór sagði að markaðurinn fyrir svínakjötið hefði samt sem áður aukist jafnt og þétt og nefndi að hjá einum slátur- leyfishafanum hefði salan aukist um 305 frá því í fyrra en slátrun hefði aukist um 42%. Þetta segir þá sögu að jafnvel þótt eftirspurnin hafi aukist hefur framleiðslan aukist umfram hana og orsakar því birgða- söfnun sem framleiðendur kæra sig ekki um að bera frekari kostnað af. Halldór taldi fulla ástæðu til að vara menn við að fara út í frekari framleiðsluaukningu og sérstaklega þá bændur sem nú er þrengt að vegna búmarksins og eru að huga að nýjum framleiðslugreinum í landbúnaði. „Það þarf ekki marga til að yfirfylla markaðinn og þeir sem eru nýbyrjað- ir verða því verst úti í samkeppninni. Það er því engum greiði gerður með því að auka framleiðsluna á svínaaf- urðum frekar," sagði Halldór Krist- insson að lokum. Flestar verslanir verða komnar með nýtt svínakjöt í kjötborðin í dag eða um helgina. í þeim verslunum sem Neytendasíðan hafði samband við nú fyrir helgina var nýja verðið Heillaráð: Tyggjóklístrið Eflaust hafa margir orðið fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að fá tyggjó í fatnað. Algengast er að fólk setjist ofan í slíkan óþverra sem ýmist hefur verið komið fyrir af ein- hverjum óforskömmuðum illgirnis- púka, eða að óvitar hafa „geymt“ tyggjóið sitt á nálægri stólsetu. í stað þess að skemma viðkvæman fatnað með ýmiss konar sterkum efnum, s.s. þynni, terpentínu e.þ.h., er einfaldast að stinga flíkinni ofan í frystikistu eða kæli og hafa hana þar í nokkurn tíma. Þegar tyggjóið ekki endanlega ákveðið nema í Nóatúni þar sem búið var að verð- merkja á nýja verðinu. Læri 275,- kg Bógar 275,- kg Lundir 556,- kg Hryggur 465,- kg Kótelettur 475,- kg Rifjasteik 270,- kg Júlíus Þór Jónsson, verslunarstjóri Nóatúns, sagði að kóteletturnar seldust mest og læri og bógar þar á eftir. Hryggur væri alltaf vinsæll í stórsteikur og hefði svo verið um langt skeið. „Ég býst við mikilli verslun nú fyrir helgina, enda er svínakjöt nú orðið talsvert ódýrara en lamb,“ sagði Júlíus að lokum. í tilefni útsölunnar er góðgæti helgarinnar unnið úr svínakjöti sem ef að líkum lætur verður áberandi á helgarmatseðlum landsmanna. -S.Konn. ífrost frýs er auðvelt að mylja það úr flí- kinni án þess að á henni sjái. Því miður mun þetta annars ágæta heillaráð ekki gagna ef tyggjó klístr- astíhár... -S.Konn. p---------Stór-----------■* ■ skó-útsala [ Margs konar skófatnaður I Stóra skóútsalan, Hverfisgötu 89.1 'llLBOÐ DAGSINS L EEDS HORNSÓFI ÚTBORGUN 10.000 Afgangur á 6 mánuðum. Leeds B 220 x L 285 — Áklæði. Þú getur að sjálfsögðu greitt útborgunina með greiðslukorti eða staðgreitt með því og fengið hæsta staðgreiðsluafslátt. BÚS6ABNABÖLLIN BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK » 681199 og 681410

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.