Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Síða 15
DV. FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR1986. 15 Vinnan göfgar... eða hvað? Nám er tímafrekt Það er yfirlýst markmið fram- haldsskólans að veita nemendum almenna menntun, þroska þá og búa þá einnig undir íramhaldsnám, t.d. í háskóla og ýmsum sérskólum. Ég tel núverandi framhaldsskóla ekki mjög hæfa til þessa en ætla ekki að fjölyrða um þá skoðun hér. Það þarf vissulega að stórhæta framhaldsskólana. Annað verkefni er þó brýnna. Skyndilega steðjar mikil hætta að þessum stofnunum, a.m.k. ef Menntaskólinn við Sund er dæmigerður fyrir þær. Framhaldsskólanemendum er gert að sækja um 34-36 kennslu- stundir í viku á tveimur þrettán vikna önnum. Til viðbótar kemur svo töluvert heimanám eða sjálfs- nám. Flestir skólar eru þokkalega búnir til lestrar og náms nemenda utan kennslustunda. Má ýkjulaust telja t.d. menntaskólanám vera ígildi 50 vinnustunda ef vel á að vera og nemendur tileinka sér námsefni þannig að þeir eru vel ofan við svonefnd miðjumörk (5,0). Nú kemur í ljós að nærri 2/3 hlutar nemenda stórs menntaskóla vinna með námi, flestir sem nemur 1/4 til 1/2 vinnuviku. í þessu felst hættan. Víðtæk könnun I janúar sl. var gerð víðtæk könn- un í Menntaskólanum við Sund. Hún náði til um 90% nemenda og t Kjallarinn ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON, KENNARI, MENNTASKÓLANUM VIÐ SUND var einkum beint að tvennu: Spurt var um hvort menn ynnu launa- vinnu, hve mikið og hvenær sólar- hrings. Einnig var spurt um svo- nefnda heimavinnu. Miðað var við haustönn 1985. Tilefnið var sá grunur skólastjórnenda og kenn- ara að veruleg vandræði væru til orðin vegna tímaskorts nemenda í námi og báru flestir við mikilli vinnu. Urtakskönnun árið áður hafði leitt í ljós að um helmingur nemenda stundaði vinnu með námi. Ógnvekjandi niðurstöður? Niðurstöður könnunarinnar eru svona: 1. I 1. bekk vinna um 4 af hverjum 10 nemendum, mest á kvöldin og um helgar. Nærri 17% nem- enda vinna 11-20 stundir á viku. Samtímis stundar hverfandi hluti þeirra nám i skólanum utan kennslustunda og 136 af um 280 vinna að námi aðeins 2-6 stundir á viku heima við. 2. í 2. bekk vinnur rúmlega helm- ingur nemenda með náminu, mest um helgar og á kvöldin. Rúmlega 17% þeirra vinna 11-20 st/viku. Svipað er uppi ‘á ten- ingnum varðandi heimanám og í l.bekk. 3. I 3. bekk er atvinnuþátttakan orðin 65% og aðrar niðurstöður svipaðar og í hinum bekkjunum. Dálítið fleiri nemendur stunda þó heimanám 7-12 stundir - á viku i 3. bekk en í 1. og 2. bekk. 4. I 4. bekk stunda 7 af hverjum 10 nemendum vinnu, þar af um 10% 21 til 40 stundir á viku. Sárafáir nemendur vinna utan kennslustunda í skólanum og nærri 2/3 hlutar þeirra vinna 2-12 stundir á viku heima við. Við þetta má bæta að allt að 53% nemenda í einum bekk (28 manna hópi) vinnur i 1. bekk en hæsti hundraðshlutinn í 4. bekk er 88%. Heildarniðurstaðan er þessi: Enn fleiri nemendur stunda launavinnu en i fyrra, alls hátt i 2/3 hlutar nemenda. Þorri nemenda má nán- ast ekki vera að því að vera í skól- anum nema því sem mætingar- skyldu nemur og vinnur lítið heima við að námi. Þegar þess er gætt að margir af þeim nemendum sem ekki tóku þátt í könnuninni eru einmitt mikið fjarverandi vegna vinnu má telja tölur síst ofreiknaðar. Ástæður og ábyrgð Menn geta velt vöngum yfir því hvaða áhrif þetta óhóflega vinnuá- lag og fjarvera úr skólanum hefur á námið, á námsefnið, á þekkingar- öflun nemenda og skólastarfið í heild. Hætta er á að skólinn versni til muna og tíma sé eytt í hálfkarað nám. Það kemur flestum í koll. Menn geta b'ka velt vöngunum yfir ástæðum. i\f minni reynslu tel ég ástæður eins og ijárþörf vegna tískufatnaðar, dýrra skemmtana eða bílareksturs og „græjukaupa" vega minna en augljósasta ástæð- an: Þröngur fjárhagur mikils meirihluta heimila í landinu. Hann leiðir til þess vinnuálags sem fram kemur í því að flestir heimilismenn, sem vettlingi geta valdið, verða að vinna. Framfærsla fjögurra manna fjölskvldu kostar nú um 60 þús. kr. á mánuði. Menn geta líka velt vöngum yfir ábyrgðinni. Hún hvílir samkvæmt ofansögðu þyngst á þeim sem bera ábyrgð á kaupráni upp á þriðjung launa á 5-7 árum: Atvinnurekend- um, stjórnvöldum, verkalýðsfor- ingjum, sem hafa stéttasamvinnu að leiðarljósi, og almennum launa- mönnum sem gera ekki uppreisn heldur bíta á jaxlinn og vinna enn meira en áður. Nú er bara spurningin hvort nemendur, kennarar og foreldrar gera eitthvað í málinu, hvort t.d. menntamálaráðherra vilji hafa skóla menntastofnanir en ekki vinnuhæli o.s.frv. eða hvort menn yppa bara öxlum. Ari Trausti Guðmundsson. „ Af minni reynslu tel ég ástæður eins og fjárþörf vegna tískufatnað- ar, dýrra skemmtana eða bílareksturs og „græjukaupa“ vega minna en augljósasta ástæðan: Þröngur fjárhagur mikils meiri- hluta heimila í landinu.“ a „Tilefnið var sá grunur skólastjórn- ^ enda og kennara að veruleg vandræði væru til orðin vegna tímaskorts nemenda í námi og báru flestir við mikilli vinnu.“ Eru vel menntaðir og hæfir kennarar þjóðfélaginu einhvers virði? Grunnskólinn gegnir mikilvægu hlutverki í þjóðfélagi okkar. Hann er uppeldis- og geymslustofnun þar sem uppeldishlutverk heimila hef- ur færst í síauknum mæli yfir á skólana án þess að þeir væru undir það búnir. Aukin verkefni 65-80% íslenskra húsmæðra inn getur ekki sinnt þörfum þeirra? Það er best að hver svari fy rir sig. í öðru lagi á skólinn að sinna upplýsinga- og fræðsluhlutverki. Hvers konar þjóðfélag bíður nem- enda okkar að loknu námi? Því er vandsvarað. Við höfum öll fylgst með hversu ört þjóðfélag okkar hefur breyst og vitum að þróunin a „Nú er ástandið þannig að aðeins ™ 76,6% þeirra sem starfa að kennslu eru með réttindi. Stór hluti réttindalausra er fólk sem prófar kennslu í 1 ár og hverf- ur síðan á braut.“ STELLA_ GUÐMUNDSDOTTIR KENNARI í REYKJAVÍK vinna utan heimilis hálfan eða heilan vinnudag, oftast af brýnni nauðsyn.-Álag er mikið á mörgum heimilum og oft ætlar fólk sér óþarflega nauman tíma til að sinna börnum sínum. Afleiðingin verður sú að við fáum fjölda nemenda sem hafa mikla þörf fyrir að spjalla við fullorðna. Ótrúlega algengt er að fá forskólanemendur sem enn hafa ekki tileinkað sér einföldustu leik- reglur í mannlegum samskiptum. Öryggisleysi þessara einstaklinga er átakanlegt og þörfin fyrir hlýju og umhyggju mikil. Hvemig fer fyrir þessum einstaklingum ef skól- heldur stöðugt áfram. Þróun sem gerir kröfur um hæfni einstaklings- ins til að aðlagast breyttum þjóð- félagsháttum. Búast má við að starfstími sty ttist almennt hjá þjóðfélagsþegnum og að tími til tómstunda aukist að sama skapi. Hvað á að kenna? Ljóst hlýtur því að vera að ekki nægir að kenna börnum að lesa, skrifa, reikna og að tileinka sér ákveðnar valdar staðreyndir. Hver veit nú hvaða upplýsingar verða mikilvægastart.a.m. árið 2020? Það hlýtur að skipta öllu máli að okkur takist að kenna nemendum sjálf- stæð vinnubrögð, leita sér heim- ilda, skipuleggja tíma sinn, meta eigin vinnu, leggja mat á eigin stöðu og vera með í að skipuleggja skólastarfið, þ.e. axla ábyrgð og vera virkir þátttakendur. Nemendur eru mjög ólíkir bæði hvað áhuga, getu og vilja snertir. Verkefnin sem nemendur kljást við verða því að vera fjölbreytt. Hver og einn miðlungsnemandi verður að fá verkefni við sitt hæfi hvort sem um afbragðsnemanda eða sein- færan nemanda er að ræða. Verk- efni sem hann ræður við en gerir jafnframt kröfur til hans og þokar honum áleiðis á þroskabrautinni. Verkefnin verða auk þess að örva sköpunargleði, frumkvæði og frjóa hugsun nemandans. í umræðum nóbelsverðlaunahafa í sjónvarpi fyrir skemmstu kom fram hversu dýrmætt það væri að hafa haft frjóa og hugmyndaríka kennara sem legðu áherslu á frumkvæði og sköpun nemenda sjálfra. Þeir töldu og afar mikilvægt að nemendur lærðu að keppast við og taka á af innri þröf og löngun en ekki vegna innbyrðis samkepþni. Flótti úr stéttinni Til að uppfylla fyrrgreindar kröf- ur, sem gera verður til grunnskóla, þurfum við vel menntaða kennara með sterka fagvitund. Þeir munu ekki haldast í stéttinni nema kjör þeirra verði stórlega bætt og þeir viðurkenndir sem sérfræðingar. Nú er ástandið þannig að aðeins 76,6% þeirra sem starfa að kennslu eru með réttindi. Stór hluti rétt- indalausra er fólk sem prófar kennslu í 1 ár og hverfur síðan á braut. Hvers eiga nemendur að gjalda? Hefur þjóðfélagið efni á þessu? Er æskan ekki dýrmæt- asta eign þjóðarinnar? Þetta er ekki bara mál kennara heldur mál allra landsmanna. Bætum úr áður en það er of seint. Stella Guðmundsdóttir. „Ótrúlega algengt er að fá forskólanemendur sem enn hafa ekki tileinkað sér einföldustu leikreglur í mannlegum samskiptum."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.