Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Page 18
18
DV. FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR1986.
íþróttir
• John Barnes, nælir Arsenal i
þennan snjalla leikmann?
Fær Arsenal
John Barnes?
Don Howe, stjóri Arsenal, hefur
mikinn hug ó að fá enska landsliðs-
manninn John Barnes fró Watford,
skiptir ekki máli þó það kosti Arsen-
al eina milljón sterlingspunda. Hvort
hins vegar Elton John vill selja sinn
besta mann er enn ekki komið i ljós
- peningar hafa ekki skipt móli þegar
hann er annars vegar. Hins vegar
hefur Elton John ekki staðið i vegi
leikmanna ef þeir telja að þeirra bíði
meiri frami hjá öðru félagi. Sam-
kvæmt fréttum frá Englandi hefur
Don Howe gaukað því að þjálfara
Watford að hann sé reiðubúinn til
að láta Watford hafa þekkta leik-
menn, einn eða fleiri, í skiptum fyrir
Barnes auk verulegrar peningaupp-
hæðar. Þar eru nefndir Steve Will-
iams, Tony Woodcock, Paul Marin-
er, leikmenn sem leikíð hafa í enska
landsliðinu, svo og Tommy Caton.
Williams hefur mikinn hug á að
komast fró Arsenal þó ekki færi hann
til QPR á dögunum eins og til stóð.
Mariner er nýbyrjaður að leika með
Arsenal á ný eftir langvarandi
meiðsli. Alan Ball hjá Portsmouth
hefur áhuga á að fá Mariner til sín
og John Bond, stjóri Birmingham,
hefur reynt að fá Caton. Þegar Bond
var hjá Man. City lék Caton með
City. Hann hefur hins vegar misst
stöðu sína sem miðvörður hjá Arsen-
al vegna írans unga, Martin Keown.
-hsím
Badminton:
Frederiksen
stigahæstur
Daninn Ib Frederiksen er nú lang-
efstur í stigakeppninni á Grand Prix
mótunum í badminton. Hefur hlotið
455 stig og er þá miðað við stöðuna
um síðustu helgi eða eftir opna,
hollenska meistaramótið. 1 öðru sæti
er Icuk Sugiarto, Indónesíu, með 360
stig og þriðji er Sze Yu, Ástralíu,
með 340 stig. Af þekktum köppum
má nefna að Prakash Padukone,
Indlandi, er í 6. sæti með 250 stig,
Misbun Sidek, Malasíu, í 8. sæti með
210 stig og Liem Swie King, Indónes-
íu, í 15. sæti með 100 stig. Daninn
Morten Frost er ekki meðal 20. bestu.
í kvennaflokki er Helen Troke,
Englandi, stigahæst með 465 stig.
Kirsten Larsen, Danmörku, önnur
með 430 stig. Þær eru í sérflokki.
Þriðja er Li Lingwei, Kína, með 280 j
stig. -hsím
Bautamótið
á Akureyri
Bautamótið í innanhússknatt-
spymu fer fram um helgina á Akur-
eyri og er viðamikið að venju. Alls
taka tuttugu lið þátt i mótinu að
þessu sinni, nítján frá Akureyri og
Grótta frá Seltjamarnesi. Undanúr-
sUt verða á sunnudag en reikna má
með að úrsHtaleikurinn verði klukk-
an hálfþrjú á sunnudaginn. Að þessu
sinni er keppt um nýjan bikar því
Þórsarar unnu bikarinn til eignar í
fyrra. -SK.
Iþrottir
Iþróttir
Iþróttir
Ekki samið
hjá Gísla
og Einari
forráðamenn Hvidovre stóðu ekki við
orð sín við þá félaga
„Það verður ekkert af því að við
Gísli semjum við Hvidovre. Forráða-
menn félagsins hafa sagt síðan við
komum til liðsins að þeir væru að
vinna í málum fyrir okkur en það
voru ekkert nema orðin tóm. Við
höfum ekki mætt á síðustu æfingar
hjá liðinu og við gemm ekki ráð fyrir
því að æfa neitt meira með þeim,“
sagði Einar Ásbjörn Ólafsson en nú
er ljóst að hann og Gísli Eyjólfsson
munu ekki semja við danska liðið
Hvidovre eins og flest benti til.
Þeir Einar og Gísli léku með Víði
á síðasta keppnistímabili en fluttu í
haust til Danmerkur. Þrátt fyrir að
samningamálin við Hvidovre hafi
farið í vaskinn munu þeir dvelja
áfram í Danmörku.
-fros
lúggar unnu
Ungverja
— íþriðja leik þjóðanna i Júgóslavíu
Það gekk mikið á sl. mánudag
þegar Júgóslavar og Ungveijar léku
þriðja landsleik sinn í handknattleik
á jafnmörgum dögum. Fyrir leikinn
hafði hvor þjóð unnið einn leik.
Ungverjar fóru á kostum í fyrri
hálfleik og voru komnir með mjög
vænlega stöðu í leikhléi, 10-17, en
leikið var í Júgóslavíu. Slíkt forskot
ætti að nægja svo sterku liði sem
ungverska liðinu en það var öðru
nær. í síðari hálfleiknum komu
Júgóslavar mjög ákveðnir til leiks
og náðu að sýna handknattleik eins
og hann gerist bestur í heiminum. í
síðari hálfleiknum skoruðu þeir 15
mörk gegn 6 mörkum Ungverja og
sigruðu því í leiknum með 26 mörk-
um gegn 23.
Tveir leikmenn voru í nokkrum
sérflokki í júgóslavneska liðinu. Það
voru þeir Cvetkovic, vinstri handar
skytta, og Mlabenovic sem báðir
skoruðu 8 mörk í leiknum. Vujovic
er meiddur þessa dagana en hann lék
engu að síður með síðustu tuttugu
mínútur leiksins og skoraði 3 mörk.
Rénic skoraði 2 og þeir Vukovic,
Isakovic, Memic og Mrkonja skor-
uðu eitt mark hver. Hjá Ungverjum
var Peter Kovac að venju marka-
hæstur með 8 mörk og skoraði sam-
tals 20 mörk í leikjunum þremur
gegn Júgóslövum. Þeir Sabo og
Jurca skoruðu 5 mörk hvor fyrir
Ungverja.
Nú eiga Júgóslavar eftir að leika
tvo landsleiki fyrir HM í Sviss. Þeir
leikir eru gegn Rúmenum í Rúmeníu.
Þess má geta að Júgóslavar eru í
riðli með Rússum, Austur-Þjóðverj-
um og Kúbumönnum en þrjár efstu
þjóðimar komast áfram í milliriðla.
Það er því ljóst að þungur róður er
framundan hjá Júgóslövum á HM.
-SK.
• Norska landsliðið í handknattleik við komuna á Loftleiðahótelið í gær en
í kvöld í LaugardalshölUnni en sá seinni á morgun í íþróttahúsi Seljaskólans.
Dregið íEvrópuke
Verður Is
með Dönum
„Ég hef trú á að þessi tillaga verði
samþykkt og það jafnvel fyrir úrslita-
keppnina 1992. Hún á hljómgrunn
innan UEFA,“ sagði Hermann Neu-
berger, formaður vestur-þýska
knattspyrnusambandsins, í Frank-
furt í gær eftir að tillaga frá honum
hafði verið felld ú fundi fram-
kvæmdanefndar UEFA.
Neuberger bar fram þá tillögu að
aukaumferð yrði eftir forriðla Evr-
Haukar ættu að vera
öruggir í úrslitin
sigruðu IBK, 90-75, ífyrri leik liðanna íundanúrsHtum bikarkeppninnar
Haukarnir ættu að vera öruggir
úrslitaleikinn i bikarkeppninni í
körfu eftir að þeir sigraðu Keflvík-
inga örugglega í fyrri leik liðanna í
undanúrslitum keppninnar í Hafnar-
fírði í gærkvöldi með 90 stigum gegn
75. Staðan í leikhléi var 42-36 Hauk-
um í vil. Síðari leikur liðanna fer
fram í Keflavík og ætti þessi fimmtán
stiga munur að nægja Haukunum í
úrslitaleikinn.
Leikurinn í gærkvöldi var ekkert
sérlega vel leikinn hjá liðunum en
þó sáust góðir kaflar í síðari hálfleik,
sérstaklega hjá Haukunum. Þeir
höfðu forustuna allan leikinn utan
einu sinni er jafnt var, 28-28. Hauk-
amir hafa oft leikið betur í vetur og
greinilegt var í gærkvöldi að þeir
vanmátu andstæðinginn. Það er
kannski ekki skrítið því síðast unnu
Haukar Keflvíkinga í úrvalsdeild-
inni með rúmlega fjörutíu stiga mun.
ívar Webster var maðurinn
sem
Keflvíkingar réðu ekki við i gær-
kvöldi. Hann var yfirburðamaður í
Haukaliðinu og skoraði margar fal-
legar körfur. Hefði getað skorað mun
meira ef heilladísimar hefðu verið
honum hliðhollar. Pálmar átti rispur
en var mjög daufur í fyrri hálfleik.
Eyþór Ámason er heldur betur að
taka við sér þessa dagana og leikur
orðið við hvem sinn fingur í leikjum
Hauka. Nú skoraði hann 14 stig og
sérstaklega er frammistaða hans góð
þegar það er haft í huga að honum
gekk ekkert í byrjun en gafst ekki
upp og tók sig á og útkoman í heild
var mjög þokkalegur leikur. Hauka-
liðið er mjög sterkt og þeir verða
ekki margir leikimir sem læiðið
tapar þar til keppnistímabílinu lýk-
ur.
Betra en síðast
Það er á mörkunum að hægt sé að
segja að Keflvíkingar hafi leikið illa
í þessum leik en ofsögum sagt að
’00‘6I- ’W J!Ua 608ÞZ
6o Þ69Þ39 etuis i jeruqai OZ ISiuuAjjib e^eineq
‘9861 Jenjqaj £Z~'IZ eueBep ujpieq jnpjaA jenojq
INdd3>IVÐV13d ÐO“VIAItíld
þeir hafi verið góðir. Byrjunin var
afleit hjá liðinu og þá gat enginn
neitt. Fjórar mínútur tók að skora
fyrstu körfuna og það segir sína
sögu. Óheppnir vom Keflvíkingar
og brenndu af í mörgum upplögðum
tækifærum. Meiri aga virðist vanta
hjá sumum leikmönnum liðsins eins
og þeim Guðjóni Skúlasyni og Sig-
urði Ingimundarsyni. Guðjón var
sérstaklega órólegur í gær, mótmælti
hárréttum dómum og lét síðan skapið
bitna á boltagreyinu með því að
sparka honum langar leiðir upp í
áhorfendastæði. Hreinn Þorkelsson
var bestur Keflvíkinga í gær ásamt
Jóni Kr. Gíslasyni en báðir hafa
þessir leikmenn leikið betur.
Nokkrar tölur úr leiknum
4-0, 8-0,10-2,14-6, 20-12, 24-20, 28-28,
36-35, 42—36 í leikhléi. 50-43, 55-51,
61-55,65-56,74-64,81-67 og 90-75.
Stig Hauka: Pálmar Sigurðsson 24,
ívar Webster 20, Eyþór Árnason 14,
Ólafur Rafnsson 14, Kristinn Krist-
insson 10, ívar Ásgrímsson 6 og
Henning Henningsson 2.
Stig IBK: Hreinn Þorkelsson 16,
Jón Kr. Gíslason 14, Sigurður Ingi-
mundarson 12, Guðjón Skúlason 12,
Ólafur Gottskálksson 9, Hrannar
Hólm 5, Magnús Guðfinnsson 4 og
IngólfurHaraldsson3. -SK
ópukeppni landsliða. Þ.e.a.s. tvö
efstu liðin í hverjum riðlanna sjö
lékju innbyrðis um réttinn til að
komast í sjálfa úrslitakeppnina. Til-
lagan var felld og fyrir úrslitakeppn-
ina 1988 ræður gamla fyrirkomulag-
ið. Það er að efsta liðið í hverjum
riðli kemst í úrslitin ásamt gestgjöf-
unum, Vestur-Þjóðverjum.
Dregið verður í riðlana sjö á hádegi
í dag í Frankfurt. Löndunum 32
verður skipað í sjö riðla - fimm lönd
í fjórum riðlum, fjögur í þremur.
Löndunum hefur verið raðað í fimm
styrkleikaflokka og þeir voru birtir
hér í opnunni fyrr í vikunni. ísland
er í fimmta og lakasta flokknum. í
fyrsta flokknum eru England, Dan-
mörk, Spánn, Portúgal, Holland,
Belgía og Frakkland. Fyrst verður
dregið um það í hvaða riðlum þessi
lönd leika, síðan um hvaða lönd
verða í riðlunum með þeim. Það
vakti verulega athygli, þegar raðað
var í styrkleikaflokkana, að heims-
meistarar Ítalíu voru í fjórða flokkn-
um, þeim næstlakasta.
Það verður mikil spenna þegar
dregið verður í riðlana í dag. Þau
lönd, sem sleppa við heimsmeistar-
ana, munu eflaust þakka sínum sæla
þrátt fyrir þá staðreynd að Ítalía
komst ekki í úrslit síðustu Evrópu-
keppni og árangur ítala hefur verið
hörmulegur eftir að þeir unnu heims-
meistaratitilinn á Spáni 1982. Þá eru
Skotar einnig í sama styrkleika-
flokki og Italir, þeim fjórða.
Úrslitakeppni Evrópumótsins 1988
hefst í Dússeldorf lO.júní en úrslita-
Gissur
hittnastur
Gissur Skarphéðinsson sigraði á
opnu móti í skotkeppni sem fram fór
í Baldurshaga í vikunni. Keppt var
með 22 kaUbera rifflum og sýndi
Gissur mestu leiknina. Hlaut 196 stig.
í öðra sæti varð Karl J. Eiríksson
með 194 stig og í þriðja sæti varð
Láras Fjeldsted með 187 stig. -fros