Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Síða 19
DV. FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR1986.
31
róttir
Iþróttir
Iþrottir
Iþrottir
Iþróttir
liðið mun leika tvo Ieiki við íslenska landsliðið um helgina. Sá fyrri fer fram
DV-mynd Bjarnleifur.
ippni landsliðaídag:
land/ riðli
i og ítölum?
| leikurinn verður á ólympíuleikvang-
inum í Munchen 25.júní. Leikið verð-
ur einnig í Hamborg, Hannover,
Gelsenkirchen, Köln, Frankfurt og
Stuttgart.
Ekkert er getið um það í frétta-
skeytum Reuters í gær hvort eitt-
hvað verður farið eftir landafræð-
inni, það er að reynt verði að koma
í veg fyrir mjög löng ferðalög lands-
liðanna. Ef ekki, og lítil ástæða virð-
ist til þess á þotuöld, þá gæti riðill
sá sem ísland lenti í hugsanlega litið
þannig út: Danmörk, Sovétríkin,
Pólland, Ítalía og ísland - fjögur
úrslitalönd á HM í Mexíkó 1986 og
Island!!
hsím
Leikur Karl
með á ný?
íslenska landsliðið leikur tvo landsleiki við
Noreg um helgina. Tekst Noregi að
sigra í fyrsta sinn í fimm ár?
Tekst Noregi að sigra Ísland í fyrsta
skipti í fimm ár? Þetta er spurning
sem brennur á vörum margra en
þjóðirnar leika tvo leiki um helgina.
Sá fyrri fer fram í kvöld í Laugardals-
höllinni og hefst klukkan 20. Sá
seinni verður í Seljaskólanum á
morgun klukkan 18.
Leikirnir við Norðmenn eru síð-
ustu leikir landans fyrir heimsmeist-
arakeppnina er hefst þann 25. þessa
mánaðar. Að undanförnu hefur liðið
æft upp ný leikkerfi og fróðlegt verð-
ur að sjá hvort þau duga í leikjunum
tveimur.
Nokkuð er um meiðsli í íslenska
liðinu og óvíst er hvort hornamenn-
irnir Guðmundur Guðmundsson,
Valdimar Grímsson og Jakob Sig-
urðsson geta leikið. Allir þessir leik-
menn eiga við smávægileg meiðsli
að stríða og óvíst er hvort Bogdan
Kowalzyk landsliðsþjálfari treystir
þeim í slaginn. Sigurður Gunnarsson
leikur líklega ekki með liðinu en
hann meiddist í leik a- og b-liðsins í
Keflavík um síðustu helgi. Þá munu
þeir Þorbergur Aðalsteinsson og
Alfreð Gíslason ekki geta komið í
leikina.
Landsliðsæfing verður í dag og þá
verður liðið valið. Gaman verður að
sjá hvort Karl Þráinsson leikur með
liðinu að nýju eftir langt hlé vegna
meiðsla á öxl.
-fros
UBK og Valur
ef st á leynimótinu
Breiðablik og a-lið Vals hafa nú
forystuna í æfmgamóti HKKR í hand-
knattleik eða leynimótsins eins og
það er gjarnan nefnt.
- Tíu lið taka þátt í mótinu og leikin
er einföld umferð. í verðlaun eru 100
þúsund krónur. Sigurvegari mótsins
fær helming, annað lið 30 þúsund og
það lið er lendir í þriðja sæti fær 20
þúsund. Ekki hefur tekist að fá öll
úrslit úr þessu móti en þau er við
höfum náð að komast yfir fylgja hér
á eftir
Stj arnan~V íkingur........29-30
UBK-Víkingur...............31-28
Valur-a-Afturelding........29-28
Valur-b-ÍR.................27-26
Fram-Grótta................31-26
Víkingur-Valur-a...........34-31
UBK-FH.....................31-37
Afturelding-Fram...........29-23
FH-ÍR......................38-29
i Valur-a-Stjarnan.........35-29
UBK-Grótta.................31-22
Valur-b-Fram............. 21-22
ÍR-Víkingur................23-22
Valur-a-Grótta.............33-28
FH-Valur-a.................28-30
UBK-Stjarnan....:..........24-22
V alur-b-Afturelding......29-26
Stjarnan-Grótta............36-27
FH-V íkingur...............30-25
UBK-ÍR.....................34-26
V alur-b-Víkingur.........20-40
Valur-b-Grótta.............26-34
Fram-Grótta................31-25
Samkvæmt þessum úrslitum eru
Breiðablik og Valur efst á mótinu.
Bæði liðin hafa hlotið átta stig eftir
fimm leiki en markatala Blikanna
er þó nokkuð betri. Þijú lið hafa sex
stig. FH Og Fram úr fjórum leikjum
og Víkingur úr sex leikjum. Lestina
reka Stjarnan, Afturelding, ÍR og
Grótta, öll með tvö stig. -fros
Siggi Held ráðinn
• Sigfried Held.
Strachan
með á morgun
— í leiknum gegn
West Ham íbikarnum
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttaritara DV í Englandi:
Gordon Strachan, litli miðjumað-
urinn hjá Manchester United, hefur
nú náð sér af meiðslum og mun leika
sinn fyrsta léík á árinu gegn West
Ham í bikarnum á morgun. Sjúkra-
liði Man. Utd veitir eflaust ekkert af
snilli Strachan og hann mun koma í
stað Bryan Robson sem er í leik-
banni.
Liverpool mun geta stillt upp sínu
sterkasta liði gegn York að undan-
skildu því að Steve Nicol mun ekki
geta leikið. Þeir Paul Walsh, Gary
'Gillespie og Steve McMahon eru
> allir búnir að ná sér af meiðslum
sínum. -fros
til Itveggj ja ára
— sem landsliðsþjálfari ísiendinga í knattspymu — KSÍ með stórsamning við Adidas
Vestur-Þjóðverjinn Sigfried Held
var í gærkvöldi ráðinn landsliðsþjálf-
ari íslands í knattspyrnu. Ellert B.
Schram, formaður KSÍ, og Gylfi
Þórðarson, stjórnarmaður í KSÍ,
gengu frá samningnum er gildir tií
tveggja ára eða fram yfir undan-
keppni Evrópukeppninnar.
Held er 43 ára og lék á gullaldar-
árum sínum með Borussia Dort-
mund. Hann lék 41 landsleik fyrir
V-Þýskaland. Tók síðan upp þjálfun
og þjálfaði meðal annars lið Schalke
og BV Luttringhausen. Hann hætti
hjá síðarnefnda liðinu fyrir tveimur
árum og hefur verið atvinnulaus
síðan.
„Ég hefði ekki trúað því að ég
þyrfti að vera svona lengi atvinnu-
laus og þegar kom svona áhugavert
tilboð frá Islendingum var ég ekki í
neinum vafa og sló til,“ sagði Held.
KSÍ samdi við Adidas
En stjórnarmenn KSl stóðu í fleiri
stórræðum í gærkvöldi. Þeir Ellert
og Gylfi sömdu við Adidas um fram-
lengingu á auglýsingasamningi sín-
um og íslenska landsliðsins. Samn-
ingur aðilanna mun vera sá stærsti
í sögunni hjá íslensku sérsambandi
innaníSl.
Samið við Þjóðverja
Þá var samið við v-þýska knatt-
spyrnusambandið um tvo landsleiki.
V-þýska kvennalandsliðið mun leika
hér á landi við íslenskar stöllur sínar
næsta sumar og þá er nær öruggt að
landslið þýskra, skipað leikmönnum
undir 21 árs, muni einnig leika hér
ánæstasumri. hsím/-fros
450 keppendur á sundmóti KR
Sunddeild KR gekkst í fyrra fyrir
einu stærsta unglingamóti sem háð
hefur verið hér á landi. Stóð í einn
dag og tókst mjög vel. Sams konar
mót verður um næstu helgi, keppni
stendur þá í tvo daga. Keppt í fleiri
greinum en áður og keppendur verða
um 450 víðs vegar af landinu. Keppt
í flórum aldursflokkum í 42 greinum.
Riðlar verða um 300 og sigurvegara
í hverjum riðli veitt sérstök verð-
laun. Sundfatafyrirtækið Speedo
hefur gefið bikara og verðlaun verða
auk þess fjölbreytileg. Júlíus Haf-
stein, formaður ÍBR, setur mótið kl.
12 á laugardag í Sundhöll Reykjavík-
ur. Keppni stendur til kl. 19 en hefst
aftur kl. níu á sunnudagsmorgun.
Lýkur um tvö leytið.
• Ray Wilkins.
Wilkins enn
óborgaður
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttaritara DV i Englandi:
• Manchester United hefur samþykkt
að geía ítalska liðinu AC Milano frest
til 29. nóvember á að greiða 275 þúsund
króna útborgun í Ray Wilkins en leik-
maðurinn var seldur til Milanolisðins á
1,3 milijónir punda. ítalska liðið er illa
statt fiárhagslega og hefur ekki getað
staðið við greiðslur á leikmanninum.
ítalska liðið skuldar einnig dágóða
summu í Mark Hateley er liðið keypti
fra Portsmouth á eina milljón punda.
Stjórn Portsmouth hefur nú sent mann
til ítalíu til að reyna að fá forráðamenn
Miianoliðsins til að greiða meira af
Hateley. Ef það tekst ekki þa hefur liðið
hugsað sér að lögsækja...
• Samskipti Manchester liðsins og AC
Milano voru heldur vinalegri. Auk jtess
sem enska liðið gaf frest á útborgun
sömdu liðin einnigsín á milli um vináttu-
leik er fram mun fara 29 apríl á ltalíu.
Leikur liðanna mun líkloga verða sá
fyrsti á miili ensks og ítalsks félagsliös
eflir hörmungamar á Del Heysel síðast-
liðið vor.
• Samningur ensku knattspyrnudeild-
arinnar við japanska ljósmyndafyrirtæk-
ið Canon lýkur í vor eflir þriggja ára
samstarf aðilanna. Knattspyrndudeildin
mun því fá sér nýjan styrktaraðila eftir
þetta keppnistímabil. Þrír aðilar eru nú
taldir Hklegastir en það er gosdrykkja-
framleiðandinn Coca-Cola, rakvörufyrir-
tækið Gillette auk ónefnds bílaframleið-
anda frá Japan. Talið er að samningur-
inn muni hljóða upp á fimm milljónir
...........fÉÉÍll
um að fá að leika á gervigrasi. Það eru
Prcston, Lincholn, Blackpool, Torquay
og Brentford. Það er enska knattspyrnu-
sambandið sem þarf að gefa leyfi fvrir
notkun gervigrass. -fros
ir
áhersla á
unglinga-
golfid”
ÁrsþingGSÍ haldiö
um helgina
„Ég á ekki von á þvi að jietta verði
mikið átakaþing. Þó er Ijóst að höf-
uðáherslan verður lögð á uppbygg-
ingu unglingastarsfins,“ sagði Frí-
mann Gunnlaugsson hjá Golfsam-
bandi íslands í samtali við DV.
Ársþing Golfsambands íslands
verður haldið um helgina og hefst '
það klukkan níu í fyrramálið og því
lýkur á sunnudag. Þingið fer fram í
íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
„Við vorum með stórt þing í fyrra
og þar voru mörg stór mál afgreidd.
Þetta þing verður því eflaust frekar
rólegt en vonandi gott engu að síð-
ur,“ sagði Frímann ennfremur.
Eins og Frímann gat um hér að
framan verður höfuðáherslan í fram-
tíðinni lögð á unglingagolfið. í
landinu er mikill fjöldi ungra kylf-
inga sem lítið hefúr verið gert fyrir
á undanförnum árum. Nú hefur verið
ákveðið að snúa þeirri þróun við og
geta þeir unglingar sem stunda golf
vænst þess að þeirra mál verði tekin
■ föstumtökmníframtiðinni. -SK