Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Side 27
DV. FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR1986.
39
Menning Menning Menning Menning
Þá þurfti ég á hvatningu að halda
-segir Einar Jóhannesson sem hlaut Menningarverðlaun DV fyrir tónlist á síðasta ári
STÓR
HAPPDRÆTTI
FLUGBJÖRGUNARSVEITANNA
3,i V.W'°
SKATTFRJALSIR
VINNINGAR
10 stk.
m, .... *
5 stk.
NORDMENDE
Myndbandsupptökutæki.
. 5 stk.
XCiPPlG
Einkatölvur.
Macintosh
Einkatölvur.
NORDMENDE
Myndbandstæki.
1 Skíðaferð fyrir tvo
+ skíðaútbúnaður.
2 Utanlandsferðir.
100 Soda-Stream tæki.
rra
50 stk.b^i
GoldStar
Ferðahljómflutningstæki.
STYRKIÐ
BJÖRGUNARSTARFIÐ
í LANDINU!
17. FEBRUAR
1986
SI'ADISIOUUI)
DI'AKI.WIKlll)
OUNÁUDKNMS
FLUGBJÖRGUNARSVEITIRNAR
í Norræna kvartettinum. Þeir eru
Roger Carlsson slagverksmaður,
Joseph Fung, gítarleikari og tór>
skáld, og Áskel) Másson, tónskáld
og slagverksmaður. Síðan er það
klarínettuleikurinn með Sinfóníu-
hljómsveitinni sem er aðalatvinnan.
„Verkefnin bjóða því upp á ágæta
blöndu af fastri vinnu og flögri um
heiminn," segir Einar.
Hefur batnað
Skömmu eftir að Einar hlaut
Menningarverðlaun DV í fyrra lýsti
hann óánægju sinni með rekstur
Sinfóníuhljómsveitarinnar í viðtali
við blaðið. „Því er ekki að neita að
síðan hafa orðið nokkrar framfarir í
starfi hljómsveitarinnar. Þetta er
stór hópur sérhæfðs fólks sem þarf á
mjög fagmannlegri verkkunnáttu
þeirra sem.sjá um daglegan rekstur
og framtíðarpólitík hljómsveitarinn-
ar að halda,“ segir Einar þegar hann
rifjar upp vegferð hljómsveitarinnar
á árinu. „En okkur sem störfum hjá
hljómsveitinni ber að segja til þess
ef eitthvað fer í taugarnar á okkur
og Hamra á því þar til úrbætur fást.
Það er besta aðhaldið."
-GK
„Verðlaunin komu á mjög góðum
tíma fyrir mig. Ég þurfti þá á hvatn-
ingu að halda. Eftir á að hyggja
finnst mér að þau hafi hvatt mig
meira en ég gerði mér grein fyrir í
fyrstu,“ sagði Einar Jóhannesson
klarínettuleikari. Hann hlaut í fyrra
Menningarverðlaun DV fyrir tónlist.
„Ég hugsa til verðlaunanna með
talvert mikilli virðingu og ánægju."
Dramatískur
undirtónn
Einar hefur nýverið lokið við að
leika inn á hljómplötu sem Sinfóníu-
hljómsveitin gefur væntanlega út
áður en langt um líður. Þar gefst
almenningi kostur á að hlýða á klarí-
nettukonsert Mozarts - þann sama
og Einar lék við góðar undirtekir i
Frakklandsferð Sinfóníuhljómsveit-
arinnar síðasta sumar.
Platan var tekin upp í Langholts-
kirkju á einum degi við aðstæður
sem ekki geta talist ákjósanlegar í
hljóðverum. Guðshúsið er ekki
hljóðeinangrað. Því ber það við að
óþægilega mikið gnauðar í rjáfri og
á góðum flugdögum verður að hætta
upptökum.
„En þetta var eitt af síðustu verk-
um Mozarts þannig að svolítill dra-
matískur undirtónn kemur ekki að
sök,“ sagði Einar.
Gottár
Einar sagðist telja að árið hefði
verið fremur gott hjá sér og þar hefðu
verðlaunin góðu síst orðið til að
spilla fyrir. „Ég er að hugsa mitt mál
og safna kröftum. Það hefur ekki
verið mjög annasamt til þessa en það
er mikið framundan. Ég er því bjart-
sýnn,“ sagði Einar.
Næsta stóra verkefnið hjá Einári
eru tónleikar á Englandi. Þangað fer
hann nú á útmánuðum. I sumar er
síðan ætlunin að taka upp plötu í
Lundúnum með Philip Jenkins
píanóleikara.
Þá er Einar að undirbúa ferð til
Suðaustur-Asíu með félögum sínum
99% líkur á að við fáum húsið
-segir Inga Bjarnason hjá Alþýðuleikhúsinu
Einar Jóhannesson - annasamt ár
að baki.
„Það er erfitt að drepa okkur. Við
höfum síðasta árið sett upp fjórar
sýningar við ómennskar aðstæður,“
sagði Inga Bjarnason, leikstjóri hjá
Alþýðuleikhúsinu, í samtali við DV.
Alþýðuleikhúsið hlaut á síðasta ári
Menningarverðlaun DV fyrir leik-
list. Á því ári sem liðið er hefur
Alþýðuleikhúsið haldið áfram að
vera í fararbroddi íslenskra leikhúsa
þrátt fyrir að gatan hafi verið helsti
samastaður þess.
Á götunni
„Listrænt stöndum við vel en hús-
næði höfum við ekkert enn og þeim
virðist fækka stöðunum sem við
eigum innkomu í. Verkefni okkar
hafa fengið góða dóma og aðsókn
hefur verið góð en það er varla hægt
að bjóða fólki upp á aðstöðuna öllu
lengur," sagði Inga um stöðu leik-
félagsins.
Nú er þó sennilega komið að þeirri
stund að úr rætist í húsnæðismálun-
um. Alþýðuleikhúsið hefur, sem og
fleiri leikhópar, haft augastað á
Fleiri taka mark
á okkur
Alþýðuleikhúsið er nú komið á
ellefta aldursár. Ævin hefur verið
stormasöm til þessa. Opinber stuðn-
ingur hefur verið lítill en viðurkenn-
ingarnar fleiri. Menningarverðlaun
DV eru þar á meðal. „Menningar-
verðlaunin hafa hjálpað okkur,“
segir Inga Bjarnason. „Það er tekið
gamla Sigtúni við Austurvöll. Það
hefur staðið lítið notað undanfarin
ár.
„Ég held að það séu 95-99% líkur
á að við fáum húsið. Sverrir Her-
mannsson hefur sýnt málinu mikinn
áhuga og það hafa aðrir ráðherrar
og þingmenn einnig gert. Þetta er
yndislegur staður. Ég trúi að við
getum boðið upp á góðar sýningar
þarna. Starfið hjá okkur ætti ekki
að þurfa að rekast á við reksturinn
sem fyrir er í húsinu. Við eru vön
að hliðra til í okkar rekstri.“
meira mark á okkur á eftir. Við
höfum ekkert á bak við okkur nema
viljann. Því er mikilvægt að fá svona
hvatningu."
-GK
.,Klassapiur“ Alþvðuleikhússins vöktu mikla athygli á síðasta ári.