Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Síða 28
40 DV. FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR1986. ~9 Sfc * Andlát Afmæli Þorleifur Thorlacius lést 3. febrú- ar sl. Hann fæddist á Akureyri hinn 18. apríl 1923, sonur hjónanna Þor- steins Thorlacius og Þorbjargar Þorleifsdóttur. Þorleifur lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1943. Hann gekk ungur til starfa í utanríkisþjónustunni og vann henni að heita mátti óslitið til dauðadags, þar af yfir 20 ár í sendi- ráðum íslands erlendis. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjögur böm. Útfor hans verður gerð frá Dóm- kirkjunni í dag kl. 13.30. Áki Gíslason bókasafnsfræðingur lést fimmtudaginn 13. febrúar. Óskar S. Jónsson, Njálsgötu 49, lést í Borgarspítalanum fimmtudaginn 13. febrúar. Jón Jósteinn Guðmundsson frá Kleifum, sem lést 8. febrúar, verður jarðsunginn frá Hvalsneskirkju laugardaginn 15. febrúar kl. 14. Jón Einarsson frá Húsatóftum, Grindavík, verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 15. febrúar kl. 14. Verkfalls- lok hjá kennurum Verkföll grunnskólakennara eru að öllum likindum úr sögunni i bili. Stjórn Kennarasambands Islands samþykkti samhljóða í gær ákvörð- un fjármálaráðherra um að kennarar þess sambands fái sömu laun og kennarar i Hinu íslenska kennarafé- lagi frá 1. febrúar. Aðgerðanefnd KÍ stendur ekki að frekari verkföllum. I dag átti að fella niður grunn- skólakennslu á Suðurlandi og Norð- urlandi vestra. Áður var búið að gera dagsverkfall á öðrum kennslusvæð- um. -HERB Eva Hrönn Hreinsdóttir lést í Borg- arspítalanum 5. febrúar sl. Hún fæddist 27. janúar 1965. Hún var einkadóttir hjónanna Þrúðar Ing- varsdóttur og Hreins Eyjólfssonar. Lengst af starfaði Eva í Arnarholti en nú síðustu mánuðina vann hún hjá Sjálfsbjörg. Eftirlifandi eigin- maður hennar er Árelíus Þórðarson. Útför Evu var gerð frá Dómkirkjunni í morgun. 70 ára er í dag, 14. febrúar, Sigríöur R. Michelsen, Krummuhólum 6, Reykjavík. Maður hennar er Paul Michelsen, fyrrv. garðyrkjumaður í Hveragerði. Þau hjónin verða að heiman í dag. Jóhannes Kristjánsson fulltrúi, er lést að heimili sínu, Skeiðarvogi 127, þann 6. febrúar sl., verður jarðsung- inn frá Eyrarbakkakirkju laugar- daginn 15. febrúar kl. 14. Matthias Helgason, Skólavegi 14, Keflavík, sem lést 9. febrúar sl., verð- ur jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 15. febrúarkl. 14. Kristin Sigurðardóttir lést 6. febrúar sl. Hún fæddist í Hafnarfirði þann 10. október 1921. Hún var dóttir hjónanna Sigríðar Böðvarsdóttur og Sigurðar Valdimarssonar. Eftirlif- andi eiginmaður hennar er Ólafur Frímannsson. Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið. Útför Kristín- ar verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag kl. 13.30. Fundir Kvenfélag Neskirkju heldur fund nk. mánudagskvöld kl. 20.30 í safnaðarheimili kirkjunnar. Leynigestur kemur á fundinn. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 111116. og 121. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Bergstaða- stræti 8, þingl. eign Sigurðar B. Sigurðssonar, fer fram eftir kröfu Gjald- heimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri mánudaginn 17. febrúar 1986 kl. 14.45. Borgarfógetaembaettið i Reykjavik. Uppboð Lausafjáruppboð verður haldið í tollvörugeymslunni í Keflavík í dag, föstudag, kl. 16.00. Uppboðshaldarinn í Keflavík, Njarðvík f og Gullbringusýslu. 1 Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Aðalstræti 105, Patreksfirði, þingl. eign Ólafs Gunnarssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sæmundssonar hdl. og Bruna- bótafélags íslands hf. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 20. febrúar 1986 kl. 10.00. Sýslumaður Barðastrandarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 35., 40. og 45. tölublaði Lögbirtingablaðs 1985 á eigninni Móatúni 1, Tálknafirði, þingl. eign Einars J. Jóhannssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka islands, Stefáns Pálssonar hrl., Sigurðar Guðjónsson- ar hdl, Gunnars Sæmundssonar hdl. og innheimtu rikissjóðs á eigninni sjálfri fimmtudaginn 20. febrúar 1986 kl. 14.00. Sýslumaður Barðastrandarsýslu. Utvarp Sjónvarp Ólafur Emilsson prentari: Neikvæðum fréttum fækkar í sjónvarpi Þar sem ég vinn er opið fyrir rás 2 mestan hluta dagsins. Þetta fer svona jafiióðum út um hitt eins og sagt er. Útvarpið er nefnilega yfir- leitt stillt á þann hátt að tónlist heyrist og það er oftast þannig að talaða málið á milli laga heyrist ekki nógu vel. Einhver hleypur þá til og hækkar þegar fréttir eru lesnar og ef eitthvert annað talað mál vekur athygli. Svo þarf að hlaupa aftur og lækka í tónlistinni svo hún ætli ekki allt að æra. Mér finnst það ekki hafa minnkað hlaupin til og frá útvarpstækinu að svokallaðir tæknimenn útvarps séu nefndir. Það er óþarfi að nefna þá frekar en aðra starfsmenn út- varpsins. Ég er ánægður með dagskrá bæði útvarps og sjónvarps. Auðvitað reikna ég ekki með að allt sé við mitt hæfi því þá væri maður alltaf að missa af einhverju og manni yrði lítið úr verki. Hins vegar finnst mér eins og efnið frá Akur- eyri hafi minnkað og sakna ég þess þó að ég sé Sunnlendingur. Ég fagna því að í sjónvarpinu hefur dregið úr útsendingum á neikvæð- um fréttum, s.s. af stríði, hermdar- verkum og öðnun hörmungum sem áður virtust vera eitt helsta upp- fyllingarefnið í fréttatíma sjón- varpsins. Það er eins og fréttir séu meira úr nágrenni okkar og mann- legri. Það neikvæða er niðurdrep- andi eins og allir vita og eykur hugarvíl. Kannski geta fjölmiðl- arnir með jákvæðum fréttum aflétt þeim drunga sem virðist einkenna þjóðina. í kvöldfréttum útvarpsins í gær- kvöldi kom fram að horfur séu á lækkandi olíuverði og að búið sé að ákveða fiskverð. Þetta tvennt ætti með öðru að liðka til með því að kjarasamningar næðust. En eitt finnst mér alveg furðulegt varð- andi viðræðumar um þessa nýju samninga. Þegar flestir eru sam- mála um það að laun séu almennt of lág og meira að segja alþingis- menn kvarta með sín 60-70 þús. á mánuði sem eru þó allt að þreföld laun verkafólks. Af hverju er þá verið að ræða það að setja eitthvað af mögulegri kjarabót eitthvað annað en í launaumslagið? Er það virkilegt að í núverandi ástandi eigi eitthvað af kjarabótinni að fara í lífeyrissjóðsgreiðslur sem svo ríkið ætlar að ná tangarhaldi á og setja í byggingarsjóð. Hvers konar kjarabót er þetta fyrir hinn al- menna launamann sem þarf ekki á byggingarsjóði að halda. Það á ekki að taka af mögulegri lagfær- ingu á kaupmætti í lífeyrissjóði, heldur verður að leita annarra ráða til að hjálpa lífeyrisþegum sem svo sannarlega eru vel að því komnir að fá meiri kjarabót en um semst milli atvinnurekenda og launa- fólks. Fulltrúi kaupenda um fiskverðið: „Óskynsamleg niðurstaða” „Ég hefði kosið aðra niðurstöðu. 2 og 1/2 prósent hækkun fiskverð í stað 3 og 1/2 prósent hækkunar fiskverðsins hefði verið eðlilegt að mínu mati. Það hefði verið eðlilegt að gera ráð fyrir einhverjum hagn- aði til handa fiskvinnslunnni, hún stendur nú í kjarasamningum við verkafólk og stendur nú á núlli samkvæmt útreikningum Þjóð- hagsstofnunar. Þeir útreikningar fara ekki alveg saman við okkar, það munar 1 til 2 prósentum. Okkar reikningar sýna verri stöðu fisk- vinnslunnar. Auk þess hefur átt sér stað gengissig núna og ekki bætir það stöðu okkar,“ sagði Gunnar Tómasson, fulltrúi kaupenda í yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút- vegsins um fiskverðshækkunina sem ákveðin var í gær. „Mín hugmynd var sú að olíu- verðslækkunin kæmi eingöngu sjómönnum til góða en ekki út- gerðinni og þá hefði verið hægt að halda 2 og 1/2 prósent hækkun án þess að skerða hlut sjómanna. Með 3 og 1/2 prósent hækkun er gert ráð fyrir að útgerðin og sjómenn skipti hagnaðinum á milli sín en fisk- vinnslan fái ekkert. Fiskvinnslan hefur greitt sérstakan kostnað vegna olíuverðsins og fór ekki fram á lækkun þó olíuverðið hafi lækk- að. Við gerðum ráð fyrir að sjó- menn nytu góðs af því en ekki útgerðin. Þetta var óskynsamleg niðurstaða,“ sagði Gunnar. f frétt frá Verðlagsráði sjávarút- vegsins segir að fiskverðsákvörð- unin sé byggð á því að sá hluti kostnaðarhluta útgerðar, sem kemur til skipta samkvæmt lögum, verði aukinn um 2 og 1/2 prósent þegar landað er innanlands en 1 prósent þegar veiðiskip selur afla sinn erlendis. Forsenda þessarar breytingar sé m.a. sú að gasolíu- verð lækki hér á landi sem næst 7 prósentum frá 1. mars næstkom- andi og um 3 prósent frá 15. mars. Ennfremur segir að fari almenn launahækkun á verðtímabilinu, sem er 1. febrúar til 31. maí, sam- kvæmt kjarasamningum fram úr 5 prósentum, sé heimilt að segja upp fiskverðinu er slík launahækkun tekur gildi. Verðinu verður þó ekki sagt lausu fyrr en frá 15. mars 1986. -KB Ekkert þokast á yfirborðinu í samningum BSRB og ríkisins: Visitölubinding launa er veggurinn Samninganefnd Bandalags starfs- manna ríkis og bæja forðast það enn að nefna nokkrar tölur í viðræðun- um við samninganefnd ríkisins. Rík- isnefndin lagði sem kunnugt er fram tilboð um 7% launahækkun í þrem áföngum á þessu ári. Bandalags- nefndin vill að áfangamir verði fjór- ir. Fram að þessu hefur veggurinn í samningaviðræðunum verið krafa BSRB um verðtryggingu umsaminna launa. Ríkið hefur fallist á skamman uppsagnarfrest fari verðlag fram úr áætlun á tilteknum dögum. BSRB vill sem fyrr sjálfvirkar verðbætur á launin að vissu marki en síðan að samningar verði sjálfkrafa lausir fari verðlag úr böndunum. í gær var skipaður vinnuhópur aðila í þetta mál og launatölurnar. Annar hópur var skipaður i samn- ingsréttarmál og ýmislegt annað sem ber á góma. Hóparnir störfuðu sam- an í gær en í morgun þingaði hvor aðili fyrir sig. Samninganefndimar mæta síðan hjá ríkissáttasemjara klukkan 15 í dag. HERB Lann kennara leiðrétt — frumvarp um lögverndun kennarastarfsins lagt fram á næstunni Fjármálaráðherra hefur ákveðið að kennarar innan Kennarasam- bands íslands fái greidd sömu laun og kennarar innan Hins íslenska kennarafélags frá og með 1. febrúar. Þessi ákvörðun er tekin með tilliti til þess að kennarar þessara samtaka hafa ákveðið að semja innan sama félags, Bandalags kennarafélaga. Fjármálaráðherra skýrði frá þessu á Alþingi í gær og ritaði KÍ bréf um i_-c~: ------- þessu vegna fyrirspurnar Hjörleifs Guttormssonar, Álþýðubandalagi, um kjaramál kennara og lögverndun starfs þeirra. Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra skýrði einnig frá því að tilbúin væru frumvarps- drög um lögvemdun kennarastarfs- ins. Þau yrðu bráðlega lögð fyrir stjórnarflokkana og síðan yrði stefnt að því að leggja fram frumvarp á Alþingi hið fyrsta. í þessum drögum '•<"4- A Atwtt* 1 nrr»rinn n starfi kennara í grunnskólum og framhaldsskólum, einnig ákvæði um endurskoðun á embættisgengi kenn- ara. Ljóst er að nokkur óánægja er hjá kennurum með að þessi leiðrétting gildir aðeins frá 1. febrúar. Hinn umtalaði 5% launamunur nær allt aftur til 1. nóvember og krafa kenn- ara hljóðaði upp á að þessi munur yrði leiðréttur frá þeim tíma. A DU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.