Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Side 33
DV. FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR1986. 45 Sviðsljós Sviðsljós En það hefur henni samt sem óður tekist, vinnur til skiptis í New York og París. Fyrrnefnda borgin er aðalvinnustaðurinn en París uppáhaldsaðsetrið. Eiginmaðurinn er kvikmyndaframleiðandi, Rafael Lopez-Sanchez og þau búa í íbúð á Manhattan þar sem alla mögulega öryggisvörslu er að finna. Sjón- varpskerfi er tengt viðvörunar- bjöllum og bókstaflega allir hlutir eru læstir inni. Enda varla vanþörf á með heimilið troðfullt af ómetan- legum og ekta píkassóum. Skartgripir Palomu eru hágæðavara og er mál manna að hún hafi erft listhæfileika beggja foreldranna þótt ekki séu þeir nýttir ó sama sviði. Dóttir föður síns Skartgripahönnuður Tiffanys i New York heitir hvorki meira né minna en Picasso að eftirnafni og er einmitt afkomandi listamanns- ins heimsfræga. Þetta er dóttirin Paloma sem er lærður gullsmiður og nýtir listhæfileikana í sínu fagi. Móðir hennar var bæði málari og rithöfundur, föðurinn Pablo Picasso þekkja allir sem einn mesta málara sem fæðst hefur og Paloma er eina bamið sem lagt hefur í það að hasla sér völl í listinni líka. Vinir Palomu eru flestir annað- hvort listamenn eða fólk því tengt og árum saman var hún þekkt sem meðlimur í jetsettinu svonefnda. Lífið fór í alls kyns sýndarmennsku þar til stokkað var upp og mið tekið af vinnunni eingöngu. „Það er ekki auðvelt að bera svona frægt nafn,“ segir Paloma hugsi. „Enginn vill tala um annað en pabba þinn og það er erfitt að komast á blað sem listamaður fyrir eigin verðleika." sýningar tiskukóngsins Yves Saint Laurent. Þar situr hún fyrir miðju salarins ásamt Catherine Deneuve en þær tvær hafa klæðst fatnaði meist- arans í áraraðir. Sá heimsfrægi Picasso með börnin tvö, Palomu og Claude. Full- djarft, eöa... Órangútanapynjan Twiggy er orð- in leið á lífinu og vill brjóta lífs- mynstrið hressilega upp. I næsta búri í dýragarðinum í Twycross Zoo er líka með afbrigðum myndar- legur api, svo hvað skal til bragðs taka? Twiggy er á því að dansinn með rósina milli tannanna kunni að vera fulldjörf hugmynd til þess að vekja á sér athygli og meðfædd feimni yrði líka íjötur um fót í framkvæmdinni. En smáblóm í munninn og rétta augnaráðið er bara apalegt og allt í lagi að reyna, eða hvað? - Af myndinni að dæma hefur hún skapgerðina sem þarf til að sigra hvaða apa sem er í viðureign af þessu tagi. m-------------------—>- „Það er fulldjarft þetta með rósina milli tannnanna, en eitthvað aðeins minna gæti dugað.“ Twiggy þungt hugsi. DANSKA SMURBRAUÐIÐ Auðbrekku 32, Löngubrekku megin. Hjá okkurfáið þið ekta danskt smurbrauð, einnig kaffisnittur og kokkteilsnittur. Uppl. og pantanir i sima 45633. Opiðfrá kl. 10-20 alladaga. ATH. Sendum heim ef óskað er. Laus staða Staða brunamálastjóra til að veita Brunamálastofnun ríkisins forstöðu er laus til umsóknar. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi sérþekkingu á brunamálum og sé arkitekt, verkfræðingur eða tæknifræðingur. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist félagsmálaráðuneytinu fyrir 20. mars nk. 12. febrúar 1986. Félagsmálaráðuneytið. TIL SÖLU Árg. Ekinn Verð Opel Kadett 1982 60.000 280.000 Alfa Romeo 1500 1982 52.000 340.000 Oldsmobile Delta 88, dísil 1978 139.000 370.000 Volvo 144, nýsprautaður. 1973 160.000 150.000 Scout II nýsprautaður. 1976 138.000 350.000 upphækkaður Plymouth Volaré, 6 cyl., ss, 1979 85.000 320.000 Dodge Aspen, 8 cyl., ss, 1978 78.000 280.000 Lada 1500 station 1983 32.000 180.000 Range Rover, bill í sérfl. 1980 70.000 890.000 Mikro Plus bátur, 18 feta. mjög lítið notaður, með innréttingu og flutningsvagni. 45 hesta mótor 290.000 Bens 309 rúta, innréttuð, sann- kallað sumarhús á hjólum, ís skápur, vaskur, eldavél, gasofn- ar, sturta, heitt vatn, svefn- pláss fyrir 6 til 8 manns, disilvél 1970 570.000 Þessir bílar fást á góðum kjörum eða í bílaskiptum, 2ja til 3ja ára skuldabréf. Haraldur gefur upplýsingar í síma 28830 milli kl. 13 og 19. Lausar stöður Lausar eru til umsóknar tvær stöður við íslenska málstöð, sbr. 4. gr. laga nr. 80/1984. Staða sérfræðings í íslenskri málfræði. Verkefni eink- um á sviði hagnýtrar málfræði, málfarsleg ráðgjöf og fræðsla og ritstjórnarstörf. 1 Til sérfræðings verða gerðar sams konar kröfur um menntun og til lektors í íslenskri málfræði. Staða fulltrúa sem hafi. m.a. umsjón með skrifstofu, reikningshaldi og skjalavörslu, auk aðstoðar við fræði- leg störf og útgáfu. Fulltrúi hafi lokið háskólaprófi í íslensku (málfræði), eigi lægra en BA-prófi, og æskilegt er að hann hafi nokkra reynslu af málræktarstörfum. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf, rannsóknir og ritsmíðar, svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu fyrir 20. mars 1986. 11. febrúar 1986. Menntamálaráðuneytið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.