Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Page 2
2
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1986.
Fréttir Fréttir Fréttir
Var 29 ára kona myrt í Reykjavík?
Með áverka
á hálsinum
- fjórir menn yfirheyrðir hjá rannsóknariögreglunni
Grunur leikur á að 29 ára kona,
Gunnhildur Gunnarsdóttir, hafi ve-
rið myrt að Ferjubakka 10 í Reykja-
vík í gærmorgun. Áverkar á hálsi
konunnar benda til að hún hafi ve-
rið kyrkt. Það var eiginmaður
konunnar sem kallaði á sjúkrabif-
reið að Feijubakka 10 snemma í
gærmorgun. Fjórir menn voru á fót-
um í íbúðinni og þá var ungur piltur
sofandi í rúmi sínu.
Mennimir fjórir voru færðir til
yfirheyrslu hjá rannsóknarlögreglu
ríkisins síðdegis í gær. Yfirheyrslur
gátu ekki farið fyrr fram þar sem
mennimir voru undir áhrifúm áfeng-
is þegar verknaðurinn var framinn.
Eiginmaður konunnar hringdi i
sjúkraliðið kl. 6.30 i gærmorgun og
bað um að sjúkrabifreið yrði send
að Ferjubakka 10. Ljóst er að maður-
inn hringdi ekki úr íbúð sinni þar
sem enginn simi var þar. Sjúkraliðs-
menn, sem komu fyrstir á staðinn,
höfðu strax samband við lögreglu
þegar þeir sáu hvað ástandið var
alvarlegt. Þeir vom í vafa um hvort
konan væri lífs eða liðin. Þeir ák-
váðu að fara með hana í skyndi á
slysadeild Borgarspítalans. Hún var
látin þegar þangað var komið.
Konan var í svefnherbergi íbúðar-
innar þegar sjúkraliðið kom á
staðinn. í íbúðinni var eiginmaður-
inn ásamt þremur karlmönnum.
Lögreglan tók þá strax í gæslu. Þeir
vom langþreyttir vegna vöku og
drykkju. Höfðu þeir verið ásamt
konunni á ferðinni um borgina á
mánudagskvöldið. Því ferðalagi
lauk að Feijubakka 10 aðfaranótt
þriðjudagsins. Aðeins einn mann-
anna var áberandi drukkinn.
12 ára drengur, sonur mannsins,
var sofandi í íbúðinni þegar hinn
hörmulegi atburður átti sér stað.
Hann varð sem betur fer ekki vitni
að því sem gerðist. -SOS
Hér á myndinni má sjá lögreglubíl fyrir utan Feijubakka 10 þar sem konan lést í gærmorgun. DV-mynd: GVA
!?Ákoma á hálsi kon-
unnar vekur grunsemdir' ‘
- segir Þórir Oddsson vararannsóknarstjóri
„Það standa nú yfir yfirheyrslur
yfir mönnunum fjómm sem vom
staddir í íbúðinni. Við vitum ekki
dónarorsök konunnar ennþá en það
er tvennt sem við leitum eftir. Hvort
um hafi verið „krítískt,, andlát að
ræða, eins og það er oft kallað þegar
ekki er vitað um dánarorsök, eða
hvort hér hafi verið um morð að
ræða, sagði Þórir Oddsson vara-
rannsóknarstjóri sem stjómar
rannsókn málsins sem átti sér stað
að Feijubakka 10.
„Yfirheyrslumar geta þróast upp
í að verða rannsókn á manndrápi.
Þá verður að finna sönnun á dánar-
orsökum og með hvaða hætti
dánarorsök varð. Kanna verður
áverka á líkinu og hvemig þeir hafa
komið. Áverkar geta verið óviðkom-
andi andláti og þeir geta verið
gamlir," sagði Þórir.
Þegar við spurðum Þóri hvort
áverkar hefðu verið á hálsi hinnar
látnu, sagði harrn: „Það var ákoma
á hálsi'konunnar sem vekur ýmsar
grunsemdir. Við erum nú að rann-
saka með hvaða hætti sú ákoma
hefúr komið. Líkið verður krufið til
að leita eftir skýringum." -SOS
„Forsenda þess að slikar aðgerðir heppnist er að sjónhimna sé í lagi,“ segir
Ingimundur um lokaðar aðgerðir inni í auga. Skemmdri sjónhimnu er ekki
hægt að bjarga. DV-mynd GVA.
Ingimundur Gíslason læknir:
„Bygglst
á hátækni-
búnaði“
„Engin nákvæmlega eins aðgerð
hefur verið gerð hér á landi,“ segir
Ingimundur Gíslason læknir um upp-
skurðinn á augum Gísla Helgasonar,
tónlistar- og útvarpsmanns. Sagt var
frá honum á baksíðu DV í gærdag.
„Hins vegar hafa verið gerðar aðrar
með sömu grundvallartækni og slíkar
aðgerðir gátum við framkvæmt strax
fyrir tveimur árum,“ heldur Ingimund-
ur áfram. „Þetta eru svokallaðar
lokaðar aðgerðir inni í auga og við
þær er notaður tækjabúnaður sem
Oddfellowregla gaf okkur í byrjun árs
’85. Tæki þessarar gerðar fóru að ryðja
sér rúms upp úr ’72 og ’73 en þá voru
fyrstu aðgerðimar gerðar í Ameríku.
Þar sem ég lærði - í Svíþjóð - byijaði
þetta svo ’76 og þar var þessi tækni
síðan þróuð áfram."
Fær þykk gleraugu
- Eru aðgerðir sem þessi algengar
hérlendis?
„Oft er það nú þannig að einhver
sjón er á hinu auganu, sem ekki er í
tilvikinu með Gísla. Þar voru fjar-
lægðar leifar af augasteini sem byrgðu
alla innsýn. Hann fær síðan þykk gler-
augu sem vinna í stað augasteinsins.
Þetta eru aðgerðir sem eru síðasta
von, gerðar á augum sem allt annað
hefúr verið reynt við áður.
Við slíkar aðgerðir vinnum við inni
í auganu og þar er haldið uppi þiýst-
ingi svo augað falli ekki saman. Með
sérstakri smásjá getum við fylgst með
því sem við erum að gera - oftast köll-
um við það smásjáraðgerðir inni í
lokuðu auga.“
- Hvemig stöndum við í samanburði
við aðrar þjóðir?
„Við eigum nóg af færum læknum
héma þótt við Hörður Þorleifsson
höfúm verið einir um þessa tegund
skurðaðgerða. En nútímaskurðlækn-
ingar byggjast mikið á hátæknibún-
aði, þróunin er ör og við megum hafa
okkur alla við að fylgjast með í þeim
efiium. Starisemi augndeilda hefur
hingað til byggst á dugnaði yfirmanna
þeirra og velvild líknarfélaga. Með til-
komu nýju sjónstöðvarinnar, sem er
að fara í gang, má búast við bættri
aðstöðu til augnlækninga hérlendis,
þar fara öll tilvik á skrá og því ætti
að vera auðveldara að sinna öllu eftir-
liti.“ . -baj
Eriendur í Heimsmynd:
Ríkissaksóknari lét
undan fjölmiðlum
„Sambandið á marga óvildarmenn í
þessu landi og ákæra af þessu tagi á
eftir að skaða viðskiptahagsmuni þess.
Það er gmnur minn að fjölmiðlaskrif
hafi haft áhrif á ríkissaksóknara í
þessu máli,“ segir Erlpndur Einarsson,
forstjóri SÍS, meðal annars í viðtali
við tímaritið Heimsmynd þar sem
kaffibaunamálið ber á góma. Heims-
mynd kemur út í dag.
Annars staðar í viðtalinu segist Er-
lendur sannfærður um að samtök
manna í höfúðborginni vinni kerfis-
bundið að því i gegnum íjölmiðla að
eyðileggja viðskiptahagsmuni Sam-
bandsins. -EIR