Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Blaðsíða 11
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. MAl 1986.
11
Stjórnmál
Stjórnmál
Stjórnmál
Stjórnmál
Spurt á Reyðarfirði:
Hverju spáir þú um úrslit kosning-
anna á Reyðarfirði?
Stefán Kristinsson verkamaður: -
Þetta verður sjálfsajjt svipað og i
síðustu kosningum. Eg á ekki von á
að þetta breytist mikið.
-v
Siggerður Pétursdóttir, starfar við
niðurlagningu síldar: - Það er mjög
erfitt að spá. Ég hef trú á því að það
verði myndaður nýr meirihluti.
Þórir Gislason verkamaður: - Það
hafa orðið miklar breytingar á list-
unum og þeim hefur fækkað. Það
bendir flest til þess að myndaður
verði svipaður meirihluti og síðast,
sem var hræðslubandalag gegn Al-
þýðubandalaginu.
Jóhann Þorsteinsson verkstjóri: Ég
spái því að Sjálfstæðisflokkurinn fái
einn, Alþýðubandalagið þrjá, Óháðir
tvo og Frjáls framboð einn. Mér þyk-
ir líklegt að Alþýðubandalagið og
Frjálst framboð myndi meirihluta.
Anna Björnsdóttir verkakona: - Ég
hef ekkert spáð í þetta. Ætli þetta
verði ekki eins og venjulega.
Guðjón Sigmundsson verkstjóri: - Á
von á því að það verði ekki miklar
breytingar. Ef þær verða þá verða
þær í rétta átt.
Reyðarfjórður:
Bíða enn eftir Kísil-
málmverksmiðjunni
Reyðfirðingar bíða enn eftir að kísil-
málmverksmiðja verði reist í nágrenni
við bæinn. Það gerðu þeir reyndar líka
þegar sveitarstjómarkosningar fóm
fram síðast. Þessi þrotlausa og von-
litla bið heíur farið mjög í taugamar
á bæjarbúum. Nú hafa þeim enn einu
sinni verið gefhar vonir. Viðræður em
í gangi og allt virðist vera að smella
saman. Ef allt gengur að óskum heíj-
ast framkvæmdir við byggingu verk-'
smiðjunnar næsta vor.
Ef þessi verksmiðja verður að vem-
leika er óhætt að fullyrða að hún eigi
eftir að setja mark sitt á lífið á Reyðar-
firði. I fyrstu má búast við miklum
fjölda starfsmanna sem munu vinna
við framkvæmdimar. Þessir menn
munu að líkindum fæstir setjast að á
Reyðarfirði. Síðar, þegar verksmiðjan
tekur til starfa, munu fastir starfs-
menn setjast að á Reyðarfirði eða
Eskifirði. Margir spá því að þessi verk-
smiðja eigi eftir að taka vinnuafl frá
þeim atvinnugreinum sem þegar em á
þessum stöðum. Það er mál sem sveit-
arstjómimar verða að láta til sín taka
og undirbúa komu verksmiðjunnar.
-APH
Alþýðubandalagið:
Búið að draga
okkur á asnaeyrunum
„Ég er ekkert bjartsýnni nú en áður
á að þessi verksmiðja verði að vem-
leika. Það er búið að draga okkur svo
lengi á asnaeyrunum og vegna þessa
máls höfum við verið sniðgengnir í
fjárveitingu. Þess vegna hefur þessi
bið komið okkur afar illa,“ sagði Þor-
valdur Jónsson, efsti maður á lista
Alþýðubandalagsins.
Alþýðubandalagið situr nú í minni-
hluta og hefur þrjá menn í hrepps-
nefnd. í síðustu kosningum bætti það
við sig einum manni.
„Við stefrium að því að komast í
meirihluta," segir Þorvaldur en vill
engu spá um það, með hverjum það
gæti orðið. Hann segir að eitt af for-
gangsverkefnunum sé að byggja íbúðir
fyrir aldraða, bæta gatnakerfið og
sinna betur æskulýðsmálum. -APH
Frjálst framboð:
Undirbúum komu
verksmiðjunnar
Þorvaldur Aðalsteinsson
Frjálst framboð er að finna á Reyð-
arfirði eins og i Hafharfirði. Framboð-
ið er til komið vegna ágreinings innan
Sjálfstæðisflokksins á staðnum. Þor-
valdur Aðalsteinsson, efsti maður á
listanum, vildi að efht yrði til próf-
kjörs. Það hlaut ekki hljómgrunn
innan Sjálfstæðisfélagsins og óháða
listans sem ákvað að bjóða fram með
Sjálfstæðimönnum. Einnig settu þeir
óháðu það skilyrði að Þorvaldur yrði
ekki í efsta sæti D-listans.
„Það er ekki rétt að vera með stór-
yrtar yfirlýsingar rétt fyrir kosningar.
Við munum leggja áherslu á undir-
búning kísilmálmverksmiðjunnar.
Einnig eru fjölmörg verkefni sem þarf
að ráðast í og ljúka. Við stefnum með-
al annars að því að ljúka við byggingu
heilsugæslustöðvar," segir Þorvaldur,
sem snaraði fram lista Frjáls framboðs
á síðustu stundu. -APH
Óháðir borgarar:
Listinn nýtur mikillar hylli
Nýr listi býður fram á Reyðarfirði,
listi Óháðra borgara. Listinn samanst-
endur af framsóknarmönnum og
öðrum óháða listanum sem bauð fram
í síðustu kosningum. Þessir tveir listar
fengu einn mann hvor í hreppsnefnd-
ina síðast.
„Út úr þessu komu mörg dauð at-
kvæði svo við ákváðum að bjóða fram
sameiginlegan lista. Þessi listi nýtur
mikillar hylli og það ríkir friður um
hann,“ segir Jón Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri og annar maður á lista
Óháðra borgara.
„Við leggjum mikla áherslu á að
Kísilmálmverksmiðjan rísi hér og telj-
um það vera aðalkosningamálið. Það
hefur verið langvarandi stöðnun í
fólksfjölgun hér og að okkar mati er
verksmiðjan eini valkosturinn sem
getur breytt þvi og aukið atvinnu hér.“
-APH
Jón Guðmundsson
Sjálfstæðismenn:
Má ekki gleyma þeim öldruðu
„Við munum vera vel vakandi yfir
því sem fylgir kísilmálmverksmiðjunni
og beita okkur af krafti í sambandi
við alla viðbótaruppbyggingu vegna
hennar,“ segir efsti maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins, Hilmar Sigurjónsson.
„En allt uppistandið vegna verk-
smiðjunnar má ekki verða til þess að
við gleymum gamla fólkinu. Það bíða
okkar mörg verkefhi til að bæta stöðu
aldraðra. Einnig viljum við breytta
stefhu gagnvart unga fólkinu. Það
hefur ekki verið unnið nógu mikið að
málefhum þeirra ungu og öldnu hér.“
-APH
Hitmar Siguijónsson
Úrsiit 1982
Fimm listar voru i tramboöi á Reyðarfiröi 1982.
Úrsllt uröu þessi:
Atkvæöi
Framsóknarflokkur(B)
Siálfstæðisflokkur(D)
Alþýðubandalag(G)
Óháöir kjósendur(K)
Framfarasinnar(M)
60
71
123
67
65
Fulltrúar
1
1
3
1
1
Alþýöubandalag situr i mlnnihluta og hinir listarnir mynduðu meirihluta þetta
kjörtimabil. i hreppsnefnd voru kjörnir:
Elnar Baldursson(Ð), Þorvaldur Aóatsteinsson (D), Ámi Ragnarsson (G),
Þorvaldur Jónsson (G), Jósefína Ólafsdóttir (G), Sigfús Guölaugsson (K) og
Hallfriður Bjarnadóttir (M).
Framboðslistar
D-listi - SjáHstæðisflokkur
1. Hilmar Sigurjónsson
2. Sigurbjörg Hjaltadóttir
3. Ásmundur Asmundsson
4. Þorgrímur Jörgensson
5. Jóhanna Hallgrímsdóttir
6. Bryndís Ingvarsdóttir
7. Þorsteinn Þórhallsson
8. Jórunn Sigurbjönisdóttir
9. Gústaf ómarsson
10. Helga Hauksdóttir
11. Páll Elísson
12. Hreinn Sigmarsson
13. Bóas Jónasson
14. Jónas Jónsson
F-Iisti - Óháðir borgarar
1. Sigfus Þ. Guðlaugsson
2. Jón Guðmundsson
3. Einar Baldursson
4. Ásthildur Jóhannsdóttir
5. Bjöm Egilsson
6. Guðný Kjartansdóttir
7. Sigurbjöm Marinósson
8. Guðmundur F. Þorsteinsson
9. Rúnar Halldórsson
10. Bjami Garðarsson
11. Ríkharður Einarsson
12. Sæmundur Valtýsson
13. Anna. A. Frímannsdóttir
14. Guðjón Þórarinsson
Framboð til sýslunefhdar:
aðalm.
Jón Guðmundsson,
varam.
Jón Vigfusson.
G-listi - Alþýðubandalagið
1. Þorvaldur Jónsson
2. Helga Aðalsteinsdóttir
3. Ámi Ragnarsson
4. Sveinn Jónsson
5. Ómar Ingvarsson
6. Unnur Ölversdóttir
7. Stefán Eiríksson
8. Þórhildur Björnsdóttir
9. Sigmar Metúsalemsson
10. Helga Björk Helgadóttir
11. Rúnar Olsen
12. Skúh Birgisson
13. Anna Jóna Ármannsdóttir
14. Jósefína Ólafedóttir
H-listi - Frjálst framboð
1. Þorvaldur Aðalsteinsson
2. Bryndís Steinþórsdóttir
3. Kristín Guðjónsdóttir
4. Amar Valdimarsson
5. Benedikt Brunsted
6. Ema Amþórsdóttir
7. Jóhann P. Halldórsson
8. Stefán Ámi Guðmundsson
9. Sverrir Benediktsson
10. Kristinn Briem
Kosningar ‘86
Arnar Páll Hauksson
á Reyöarfiröi