Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Page 8
8
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1986.
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
„Sá árangursríkasti“
- segir Reagan. Evrópskir leiðtogar varfæmari í yfiriýsingum
Reagan Bandaríkjaforseti lýsti i
morgun yfir ánægju sinni með ár-
angur leiðtogafundar sjö helstu
iðnríkja heims er lauk í Tókýó í gær.
„Það eru engar ýkjur að halda því
fram að þessi íundur var sá árang-
ursríkasti af sex leiðtogafundum er
ég hef sótt,“ sagði Reagan í morgun.
Hrósaði forsetinn einingu þjóðar-
leiðtoganna í baráttunni gegn
hermdarverkum í heiminum og
bjartari horfum í alþjóðaviðskiptum,
samhliða samkomulagi iðnríkjanna
um stóraukna samvinnu á ýmsum
sviðum alþjóðlegrar heimsverslunar.
Reagan var sérstaklega ánægður
með yfirlýsingu fundarins þar sem
hryðjuverk voru fordæmd, þar sem
nafn Líbýu er sérstaklega tilgreint,
en áður en leiðtogafundurinn hófst
höfðu nokkur þátttökuríkin, meðal
annars Ítalía, lýst yfir andstöðu sinni
við það að nefna Líbýumenn beint á
nafn i texta ályktunarinnar um
hryðjuverk.
Ástæða til ánægju
Reagan og Thatcher, forsætisráð-
herra Breta, hafa annars fyllstu
ástæðu til að lýsa yfir ánægju sinni
með árangur leiðtogafundarins þar
sem svo virðist sem flest áhugamál
þeirra hafí hlotið hljómgrunn og náð
samþykki á fundinum.
„Ekki misheppnaður“
Nakasone, forsætisráðherra Jap-
ans, er margir fréttaskýrendur telja
að beðið hafi nokkum pólitískan
ósigur á leiðtogafundinum fyrir að
hafa ekki tekist að snúa við ört
hækkandi gengi japanska yensins
gagnvart Bandaríkjadollar, vísaði
því í morgun á bug að leiðtogafund-
urinn hefði frá japönskum sjónarhóli
séð verið misheppnaður. Sagði
Nakasone að auðvitað mætti alltaf
deila um árangur slíkra stórfunda,
„en ég held að leiðtogafundurinn
hafi ekki verið misheppnaður," sagði
forsætisráðherrann.
Boðað hefur verið til kosninga í
Japan síðar á þessu ári. Stjómarand-
stæðingar hafa beint mörgum spjót-
um að Nakasone að undanfómu og
telja hann nú ábyrgan fyrir ört
hækkandi gengi yensins og auknum
viðskiptahalla við útlönd.
Efasemdir Stoltenbergs
Stoltenberg, fjármálaráðherra
Vestur-Þýskalands, taldi í morgun
hættu á að þrátt fyrir samþykktir
æðstu ráðamanna iðnríkjanna sjö
um margs konar úrbætur í heims-
verslun, myndu fyrirhugaðar úr-
bætur takmarkast af efnahagsað-
stæðum í hverju landi fyrir sig á
hverjum tíma og vandkvæðum á
sameiginlegum ákvörðunum.
„Málið er að við þurfum síðar að
eiga við eigin löggjafarþing. Seðla-
bankastjórar og fjármálaráðherrar
geta ekki tekið slíkar stórákvarðan-
ir algerlega á eigin vegum,“ sagði
Stoltenberg.
Ummæli Stoltenbergs endurspegla
varfæmi í yfirlýsingum evrópskra
þjóðarleiðtoga um raunvemlegan
árangur leiðtogafúndarins.
Öfgasamtök ábyrg
Samtök öfgasinnaðra japanskra
vinstrimanna hafa lýst yfir ábyrgð
sinni á reyksprengjum og flugeldum
er sprengdir vom í stöðvum neðan-
jarðarlesta víðsvegar um Tókýó í
gær.
Kakurokyo, eða samtök byltingar-
sinnaðra verkamanna, sögðu í yfir-
lýsingu að samtökin bæm ábyrgð á
sprengingunum og vildu með þeim
mótmæla viðvist leiðtogafúndarins í
Tokýó og því samsafni alþjóðlegra
kapítalista er þar hefðu safnast sam-
an.
Chukaku-ha, önnur samtök jap-
anskra vinstrimanna hafa lýst sig
ábyrg fyrir eldflaugaárás í fyrradag
á fundarstað þjóðarleiðtoganna sjö
í miðborg Tókýó. Tjón af völdum
aðgerða japönsku öfgamannanna er
teljandi.
Chukaku-ha, samtök japanskra öfgamanna á vinstri vængnum hafa lýst sig ábyrg fyrir eldflaugaárás á fundarstað
þjóðarleiðtoganna sjö í miðborg Tókýó í fyrradag. Á myndinni sjást eldflaugavörpumar eftir uppgötvun lögreglimnar.
Glundri skvett á
Sonju krónprinsessu
Svíum vísað
úr landi
Gunnlaugur A. Jónsson, fréttaritari
DV í Lundi:
Tékknesk yfírvöld hafa nú bmgð-
ist við þeirra ákvörðun sænsku
ríkisstjómarinnar að vísa fimm
tékkneskum stjómarerindrekum úr
landi í síðustu viku.
Tveimur háttsettum starfsmönn-
um sænska sendiráðsins í Prag var
vísað úr landi í gær. Samkvæmt því
sem talsmaður tékkneska utanríkis-
ráðuneytisins segir höfðu Svíamir
iðkað „starfsemi er ekki samræmist
hlutverki þeirra sem stjómarerind-
rekar“.
Orðalagið er það sama og sænsk
stjómvöld notuðu í síðastliðinni
viku. „Ég hafði vonast til að tékk-
nesk stjómvöld væri skynsamari en
þau hafa nú reynst vera. Þau vita
vel að við höfðum á réttu að standa
er við vísuðum tékkunum fimm úr
landi,“ sagði Sten Anderson, utan-
ríkisráðherra Svia, um ákvörðun
tékkneskra yfirvalda.
Geislavirkt
joðí
skjaidkirtlum
látinna
Gunnlaugur A. Jónsson, fréttaritari
DV í Lundi:
Óvenjumikið af geislavirku joði
hefúr fúndist í skjaldkirtli fólks er
látist hefur í Svíþjóð eftir kjamorku-
slysið í Chemobyl.
í sumum tilfellum er um að ræða
meira en tífalt venjulegt magn.
Mælingamar vom gerðar í sam-
vinnu við geislavirknistofnunina hér
í Lundi og krufhingadeild sjúkra-
hússins.
Svend Erik Strand prófessor, er
stjómaði þessum rannsóknum, segir
að þær sýni nauðsyn þess að skjótar
og réttar upplýsingar um kjamorku-
slys berist. „Við mældum til dæmis
áhrif aukinnar geislavirkni í skjald-
kirtli manns er lést meira en sólar-
hring áður en nokkuð hafði frést um
kjamorkuslysið til Svíþjóðar," segir
Strand.
Chemobyl
geislun í
Bandaríkjunum
Halldór Valdimarsson, fréttaritari
DV í Bandaríkjunum:
Nú hefur verið skýrt frá því hér í
Bandaríkjunum að geislavirkt ský
frá Chemobyl kjamorkuverinu í
Sovétríkjunum væri nú komið til
vesturstrandar Bandaríkjanna.
Vísindamenn skýrðu frá því að
aukin geislavirkni mældist aðeins
hátt yfir landi og að alls engin hætta
stafaði af henni.
Andstæðingar
dauðadóms
útilokaðir
Halldór Valdimarsson, fréttaritari
DV í Bandaríkjunum:
Hæstiréttur Bandaríkjanna kvað
nýverið upp þann úrskurð að dóm-
stólum væri heimilt að útiloka þá
er mótfallnir em dauðadómi frá því
að þjóna sem kviðdómendur í málum
er hugsanlega geta leitt til dauðar-
efsingar.
Miklar deilur hafa staðið um úti-
lokunarreglu þessa í Bandaríkjun-
um undanfarið og ef hæstiréttur
hefði úrskurðað á móti henni hefðu
mál hundraða manna, er nú bíða
fúllnægingar dauðadóms í fangels-
um, verið tekin upp að nýju.
Björg Eva Erlendsdóttir, fréttaritari
DV í Osló:
Evrópusöngvakeppnin í Bergen fór
að flestu leyti vel fram en eitt atvik
varð þó til að skjóta almenningi skelk
í bringu og ekki síst konungsfjölskyl-
dunni.
Gizur Helgason, fréttaritari DV í
Zurich:
Svissneska flugfélagið Swissair hef-
ur nú látið framkvæma geislamæling-
ar á þeim vélum félagsins er verið
hafa á Norðurlöndum og Sovétríkjun-
um undanfama daga. Mælingamar
Halldór Valdimarsson, fréttaritari DV
i Bandarikjunum:
Bandaríkjamenn em ákaflega án-
ægðir með yfirlýsingu þá gegn
hermdarverkum og þeim er veita
hermdarverkum liðsinni sitt er sam-
þykkt var á leiðtogafundinum í Tokýo.
Segja þeir yfirlýsinguna ganga
lengra en þeir höfðu borað að vona
lina í Bergen varð Sonja krónprins-
essa fyrir því að á hana réðst kona
nokkur og skvetti yfir hana illa lykt-
andi vökva úr ölflösku.
Fljótlega kom í ljós að vökvinn var
meinlaus, aðeins blanda af olíu og pip-
ar og árásarkonan ætlaði sér ekki
annað en að láta í ljós vanþóknun sína
á konungsfjölskyldunni.
hafa verið neikvæðar.
Frá og með 1. maí síðastliðinn bauð
Swissair öllum unglingum og eftir-
launaþegum ódýrari fargjöld til
Ameríku. Ef miðað er við venjuleg
farmgjöld er hér um allt að helmings-
lækkun að ræða en ef miðað er við
og þakka það einkum Margréti Thatc-
her og baráttu hennar á fundinum,
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði á fundi með
fréttamönnum að Thatcher væri stór-
kostlegur leiðtogi.
Shultz sagði ennfremur að þetta
væri stórkostleg yfirlýsing og í henni
En atvikið skapaði umræður um
öruggismál og hvað hefði getað gerst
ef tilgangur árásarinnar hefði verið
alvarlegra eðlis.
Sonja krónprinsessa þótti bregðast
hetjulega við árásinni. Hún hélt
ótrauð áfram göngu sinni að Grieg-
höllinni. Aðeins tók nokkrar mínútur
Apex afsláttarfargjöld getur lækkunin
numið allt að fiórðungi.
Eins og er eru vetrarfargjöld í gildi
hjá Swissair, eða frá 15. október til 31.
maí. Ódýrustu fargjöldin á milli New
York og Sviss kosta nú 1373 sviss-
fælust ákveðin skilaboð til Gaddafis
þar sem Líbýa væri sérstaklega nefnd.
Skilaboðin væru: þú ert búinn félagi,
þú ert einangraður.
Þá sagði ráðherrann að hermdar-
verkamenn ættu að skilja yfirlýsing-
una á þann veg að nú ættu þeir engan
griðarstað lengur. Bandaríkjamönn-
að þrífa mestu óhreinindin af fötum
krónprinsessunnar og hún var sest á
sinn stað er keppnin hófst loks eins
og ekkert hefði ískorist.
Konan er skvetti vökvanum var
umsvifalaust handtekin eftir árásina.
Hefur henni nú verið sleppt úr haldi
en gert að sæta geðrannsókn.
neska franka, eða rúmlega 30 þúsund
krónur íslenskar. Eftir fyrrgreindar
breytingar verður hægt að fá sama
farmiða á 1089 svissneska franka eða
um 23 þúsund krónur íslenskar. Fyrir
eftirlaunaþega gildir fargjaldalækk-
unin auk þess til 13 annarra ríkja.
um tókst ekki að fá aðra leiðtoga á
fundinum til þess að samþykkja efha-
hagsaðgerðir gegn Líbýu eða bann við
olíukaupum þaðan.
Einnig var skýrt frá því að þau fimm
bandarísku olíufélög, er nú starfa í
Líbýu, hefðu frest til 30. júlí næstkom-
andi til þess að stöðva starfsemi sína
bar.
Á leiðinni inn í Grieg tónlistarhöl-
Kostatilboð fra Swissair
„Þú ert búínn félagi, þú ert einangraður“