Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Page 22
22
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. MAI 1986.
íþróttir__________________íþróttir___________________íþróttir__________________íþróttir
„Hitinn -
erfiðasti
mótherjinn“
- segir Bryan Robson um HM í Mexíkó
„Ég veit ekki hvaða árangri við get-
um reiknað með í heimsmeistara-
keppninni i Mexíkó. Það fer eftir ýmsu
en ég held að hitinn verði erfiðasti
mótheijinn fyrir leikmenn nær allra
liðanna. Það verður erfitt á völlunum
þegar hitinn fer yfir 40 gráður,“ sagði
fyrirliði enska landsliðsins, Bryan
Robson, nýlega í viðtali. Hann hefur
náð sér af meiðslum, sem eyðilagt
hafa að mestu íyrir honum Ieiktíma-
bilið. Missti hann úr fjölmarga Ieiki
Man. Utd og enska landsliðsins í vetur
en er nú tilbúinn í slaginn í Mexíkó.
Robson var einnig fyrirliði HM-liðs
Englands á Spáni 1982, þegar England
tapaði ekki leik en komst þó ekki í
undanúrslit - lék í 4. riðli og hlaut 6
stig af 6 mögulegum. Vann Frakkland,
3-1, Tékkóslóvakiu, 2-0, og Kuwait,
1-0. í fyrsta leiknum - við Frakkland
- skoraði Robson eftir aðeins 27 sek-
úndur. Það er met í úrslitakeppni HM.
í milliriðli lék England við Vestur-
Þýskaland og Spán. Jafntefli i báðum
leikjunum, 0-0. Hins vegar sigraði
Vestur-Þýskaland Spán, 2-1, og komst
í undanúrslit í riðlinum. Enskir gátu
því haldið heim. Heldur napurt eftir
að hafa aðeins fengið á sig eitt mark
í fimm leikjum.
Bryan Robson er 29 ára, fæddur 11.
febrúar í smáþorpi, Chester Le Street.
Hann hefúr leikið 55 landsleiki fyrir
England, skorað í þeim 18 mörk. Það
þykir gott hjá framverði. Fimmtán ára
gerði hann samning við WBA og lék
með því liði í átta ár við góðan orðst-
ír. Síðan lá leiðin til Manchester og
United greiddi fyrir hann eina milljón
og 650 þúsund sterlingspund. Metsala
milli enskra liða. Það var í október
1981. Vikulaun hans þar nema um 175
þúsund krónum. Itölsk félög vildu
kaupa hann en United vildi fá þrjár
milljónir sterlingspunda. Það fannst
ítölum of mikið. Robson gerði í staðinn
samning til sjö ára við Man. Utd og
á eftir sex ár af honum. Hann er
kvæntur og á tvær litlar dætur.
Það fer ekki milli mála að ef Robson
sleppur við meiðsli í Mexíkó getur
hann orðið þar einn af lykilmönnum
enska liðsins. Verður hann þar eflaust
sóknarframvörður því hann skorar oft
Bryan Robson í meðferð hjá McGregor, sjúkraþjálfara Man. Utd, á Old Trafford, þegar blaðamenn ræddu við bann
nýlega. Enskir blaðamenn fylgjast með hverri hreyfingu hans nú enda mikið í húfi.
glæsileg mörk - skoraði tvö af sex Fyrsti leikur Englands í Mexíkó verð- inn í riðlinum verður milli Póllands
mörkum Englands á HM á Spáni. ur við Portúgal 3. júní. Fyrsti leikur- og Marokkó deginum áður. hsím
Spánveijinn Severiano Ballesteros er besti kylfingur heimsins um þessar mund-
ir og hefur því góða ástæðu til að fagna eins og hann gerir á þessari mynd.
S. Ballesteros
í efsta sætinu
- bestur kylfínga í dag. Greg Norman tekjuhæstur
Á lista yfir bestu kylfinga heims, sem
birtur var þriðja sinni í gær á þessu
keppnistímabili atvinnumanna, er
Spánveijinn Severiano Ballesteros
kominn með 17 stiga forskot á Vestur-
Þjóðveijann Bemhard Langer en síð-
ast þegar þessi listi var birtur voru
kapparnir hnííjafnir.
Hástökkvari vikunnar, eins og þeir
segja á rás tvö, er Ástralíumaðurinn
Greg Norman, sem sigraði á mánudag-
inn á stórmóti í Las Vegas í Bandaríkj-
unum. Hann er nú kominn í þriðja
sætið og ógnar nú veldi Evrópubú-
anna í efstu sætunum ef svo heldur
fram sem horfir. Greg Norman hefur
spilað glimrandi golf á síðustu mótum
og er til alls líklegur. Tíu efetu menn
á listanum, eins og hann lítur út í
dag, eru þessir:
1. Seve Ballesteros, Spáni.1000 stig
2. Bemhard Langer, V-Þýskal...983-
3. Greg Norman, Ástral.......833 -
4. Sandy Lyle, Bretl..........716-
5. Tom Watson, USA...........693 -
6. Mark O’Meara, USA..........685-
7. Tommy Nakajima, Japan......643-
8. Calvin Peete, USA.........633 -
9. Curtis Strange, USA........626-
10. Corey Pavin, USA.........589 -
Norman með þykkasta veskið
Greg Norman er tekjuhæsti at-
vinnumaðurinn það sem af er í golfinu
á þessu ári. Hann hefúr unnið sér inn
rúmlega 343 þúsund dollara sem gerir
um 14 milljónir króna. Annar er svert-
inginn Calvin Peete frá Bandaríkjun-
um með um 12 milljónir króna og
þriðji er annar Bandaríkjamaður,
John Mahaffey, með um 11 milljónir.
Bandaríkjamenn eru í næstu fimm
sætum en í 9. sæti er Vestur-Þjóðveij-
inn Bemhard Langer með um sjö og
hálfa milljón króna. Það skal tekið
fram að allir ofangreindir kylfingar á
stiga- og peningalistanum spila í
Bandaríkjunum en Spánverjinn Se-
veriano Ballesteros spilar í Evrópu og
er því eðlilega ekki á listanum yfir
tekjuhæstu kylfinga í Bandaríkjunum.
-SK.
Joe Johnson
heimsmeistari
Joe Johnson frá Bretlandi tryggði
sér heimsmeistaratitil atvinnumanna
í billiard, snóker, nýverið með því að
sigra landa sinn Steve Davis í úrslitum
18-12. Staðan á timabili var 11-11 en
síðan tók Johnson mikinn kipp og
tryggði sér titilinn með öruggri spila-
mennsku.Þetta mun vera í fyrsta
skipti sem Johnson nælir í heims-
meistaratitilinn en Steye Davis varð
heimsmeistari i fyrra og hafði því titil
að veija.
Joe Johnson hefur um langt árabil
verið í fremstu röð í heiminum í bill-
iard og sigur hans nú kemur ekki á
óvart. Johnson er íslenskum billiard-
mönnum að góðu kunnur. Hann
dvaldi hér á landi um tíma og leið-
beindi íslenskum leikmönnum.
-SK.
Joe Johnson