Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Qupperneq 39

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Qupperneq 39
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1986. 39 Miðvikudagur 7. maí Sjónvaip 18.00 Barcelona - Steaua Buk- • arest. Bein útsending frá úrslit- um í Evrópukeppni meistaraliöa í knattspymu í Sevilla. (Evróvi- sion - Spænska sjónvarpið). 20.10 Fréttaágrip á táknmáli. 20.15 Fréttir og veður. 20.45 Auglýsingar og dagskrá. 20.55 Kvöldstund með lista- manni. Skáld hlutanna - málari minninganna. Kvik- mynd um Louísu Matthíasdótt- ur, myndlistarmann í New York. Kvikmyndagerð: Lárus Ýmir Óskarsson. Framleiðandi: List- munahúsið og ísmynd. 21.50 Hótel. 12. Jólahátið. Bandarískur myndaflokkur í 22 þáttum. Aðalhlutverk: James Brolin, Connie Selleca og Anne Baxter. Gestir og starfsfólk halda hátíð hver á sinn hátt en óvæntir atburðir rjúfa jólahelg- ina. Þýðandi Jóhanna Þrúins- dóttir. 22.40 Vímulaus æska. Bein út- sending. Samsett dagskrá með tónlist um fíknie&iavandamálið. Að dagskránni standa með sjón- varpinu: Áhugahópur foreldra, SÁA og Lionshreyfingin. Um- sjón: Helgi H. Jónsson. 00.10 Fréttir í dagskrárlok. Útvarp rás I 12.00 Dagskrá. 'rilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 í dagsins önn. - Frá vett- vangi skólans. Umsjón: Kristín H. Tryggvadóttir. 14.00 Miðdegissagan: „Hljóm- kviðan eilífa“ eftir Carmen Laforet. Sigurður Sigurmunds- son les þýðingu sína (6). 14.30 Miðdegistónleikar. 15.15 Hyað finnst ykkur? Um- sjón: Öm Ingi. (Frá Akureyri) 15.45 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. a. Pía- nótríó í B-dúr eftir Joseph Haydn. b. Píanótríó nr. 2 í e- moll eftir Dmitri Sjostakovitsj. Beaux Arts tríóið leikur. 17.00 Barnaútvarpið. Meðal efn- is: „Bróðir minn frá Afríku“ eftir Gun Jacobson. Jónína Stein- þórsdóttir þýddi. Valdís Óskars- dóttir les (2). Stjórnandi: Kristín Helgadóttir. 17.40 Úr atvinnulífinu. Sjávar- útvegur og fiskvinnsla. Umsjón: Magnús Guðmundsson. 18.00 Á markaði. Þáttur í umsjá Bjarna Sigtryggssonar. 18.15 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.45 Frá rannsóknuin háskóla- manna. Kristján Ámason dósent talar um áherslu í ís- lensku. 20.00 Hálftíminn. Eh'n Kristins- dóttir kynnir popptónlist. 20.30 fþróttir. Umsjón: Ingólfur 20.50 Tónmál. Umsjón: Soffia Guðmundsdóttir. (Frá Akur- eyri). 21.30 Sveitin mín. Umsjón: Hilda Torfadóttir. (Frá Akureyri). 22.00 Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Bókaþáttur. Umsjón: Njörður P. Njarðvík. 23.00 Á ópcrusviðinu. Leifur Þór- arinsson kynnir óperutónlist. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Útvaip rás n 14.00 Eftir tvö. Stjómandi: Jón Axel Ólafsson. 15.00 Nú er lag. Gunnar Salvars- son kynnir gömul og ný úrvals- lög að hætti hússins. 16.00 Dægurflugur. Leopold Sveinsson kynnir nýjustu dæg- urlögin. 17.00 Þræðir. Stjórnandi: Andrea Jónsdóttir. 18.00 Dagskrárlok. Þriggja mínútna fréttir sagðar klukk- an 11.00, 15.00, 16.00 og 17.00. Svæðisútvarp virka daga vikunnar frá mánudegi til föstudags: 17.03-18.00 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni. - FM 90,1 MHz 17.03-18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni. FM 96,5 MHz. Utvarp Sjónvarp Sjálfsmynd Louisu Matthiasdóttur, en frá henni og list hennar verður sagt í þættinum, Kvöldstund með listamanni. Sjónvarpið kl. 20.55: Kvöldstund með Louísu Matthías- dóttur Skáld hlutanna - málari minning- anna er yfirskriftin á þættinum Kvöldstund með listamanni sem að þessu sinni er listamaðurinn Louísa Matthíasdóttir, myndlistarmaður í New York. Þátturinn er raunar kvik- mynd sem Listmunahúsið og ísmynd sáu um framleiðslu á og um kvik- myndagerð sá Lárus Ýmir Óskarsson. Louísa fæddist árið 1917 í Reykjavík en stundaði myndlistamám í Dan- mörku, París og New Ýork. Hún hefur málað á Islandi, Frakkalandi og lengst af í Bandaríkjunum þar sem hún hefur verið búsett frá árinu 1941. Þar hefur hún einnig haldið fjölda einka- og samsýninga og margar myndir hennar em á söfnum þar vestra, er stór hluti þeirra íslenskar landslagsmyndir. Louísa sýndi síðast hér á landi á Lista- hátíðinni 1984. I myndinni mun Matthías Johann- essen, skáld og ritstjóri, ásamt list- íræðingum segja frá Louísu og list hennar. -BTH Vilborg Dagbjartsdóttir, kennari og rithöfundur, heimsækir Gestagang annað kvöld. Útvarpið, rás 2, ámorgunkl. 21.00: Vilborg Dag- bjartsdóttir í Gestagangi Gestur Ragnheiðar Davíðsdóttur í Gestagangi að þessu sinni verður Vil- borg Dagbjartsdóttir, kennari og skáld. „Ég kynntist Vilborgu í gegnum umferðarfræðslu í bamaskólum og heíúr alltaf þótt gaman að spjalla við hana,“ segir Ragnheiður aðspurð um þáttinn. „Hún talar einstaklega skýra og fallega íslensku og kemur vel íýrir sig orði. Við komum víða við í rabbi okkar, eflaust inn á áhugamál henn- ar, bömin sem hún hefúr mikið unnið með, núna veitir hún t.d. forstöðu bókasafninu í Austurbæjaskólanum þar sem hún kennir. Hver veit nema við heyrum líka eitthvað af ljóðunum hennar. Síðan verður leikin létt tón- list þar sem við á.“ -BTH Frá lestri útvarpsleikritsins Hver er Sylvía? Frá vinstri á myndinni eru leikaram- ir Þorsteinn Gunnarsson, Guðbjörg Thoroddsen og Valgerður Dan. Útvarpið, rás 1, kl. 21.30: Frá Mývatnssveit I kvöld verður útsending á þætti Hildu Torfadóttur frá Akureyri, Sveitin mín. Þar ræðir Hilda við þau Jón Sigur- geirsson frá Helluvaði og Ragnhildi Jónsdóttm- frá Gautlöndum um sveit- ina þeirra, Mývatnssveit. Það verður byrjað á sveitarlýsingu en síðan horfið til gamla tímans. Jón og Ragnhildur segja frá samgöngu- málum m.a. og félagslífi en þar eiga Mývetningar sérstaka skemmtun sem heitir sumarmálaskemmtun og er jafh- an í byrjun sumars. Frá því fáum við meira að heyra í þættinum. Útvarpsleikritið á morgun kl. 20.00: Hver er %lvía? Fimmtudagsleikrit útvarpsins á morgun er eftir breska leikritahöfund- inn Stephen Dunstone og ber heitið Hver er Sylvía? Leikritið þýddi Guð- mundur Andri Thorsson en leikstjóri er Benedikt Ámason. Leikritið gerist að mestu á rann- sóknastofú líffræðinga sem eru að gera tilraunir með kakkalakka. Um leið og hlustendur kynnast persónulegum og vísindalegum vandamálum líffræðing- anna kynnast þeir einnig heimi kakkalakkanna. Þeir vilja trúa því í lengstu lög að verumar stóm sem stjóma lífi þeirra séu að gera það sem þeim sé fyrir bestu. Leikendur em: Róbert Amfinnson, Sigurður Sigurjónsson, Þorsteinn Gunnarsson, Valgerður Dan, Guð- björg Thoroddsen og Aðalsteinn Bergdal. Sigurður Bjömsson syngur einsöng. Undirleikari er Agnes Löve. -BTH E EUOOCARD SMÁ-AUGLÝSING í DV GETUR LEYST VANDANN. Smáauglýsingadeild — sími 27022. _ ———m——■—i 1 dag verður norðaustan strekking- ur víðast hvar á landinu, á austan- verðu landinu verður víða slydda en smáskúrir við suðurströndina. Á Suð- vestur- og Vesturlandi verður skýjað með köflum en þurrt. Hiti nálægt frostmarki á Norður- og Austurlandi en 2-6 hiti á Suður- og Vesturlandi. ísland kl. 6 í morgun: Akureyri skýjað 0 Egilsstaðir slydda 0 Galtarviti hálfskýjað 1 Hjarðarnes úrkoma 3 Keflavíkurflugv. skýjað 2 Kirkjubæjarklaustur skýjað 4 Raufarhöfn alskýjað 0 Reykjavík skýjað 3 Sauðárkrókur skýjað 0 Vestmannaeyjar alskýjað 4 Útlönd kl. 6 í morgun: Bergen skýjað 9 Helsinki skýjað 15 Kaupmannahöfn heiðskírt 13 Osló léttskýjað 10 Stokkhólmur hálfskýjað 14 Þórshöfn þoka 7 Útlönd kl. 18 í gær: Algarve skýjað 16 Amsterdam mistur 15 Aþena skýjað 18 Barcelona léttskýjað 17 (Costa Brava) Berlín léttskýjað 23 Chicago alskýjað 27 Feneyjar skýjað 21 (Rimini/Lignano) Frankfurt þrumuv. 21 Glasgow skýjað 14 LasPalmas hálfskýjað 21 (Kanaríeyjar) London rigning 11 Los Angeles léttskýjað 16 Lúxemborg skúr 15 Madrid léttskýjað 15 Malaga alskýjað 22 (Costa Del Sol) Mallorca þokumóða 17 (Ibiza Montreal þokumóða 10 New York léttskýjað 30 Nuuk skýjað 2 París rigning 13 Róm þokumóða 16 Vin léttskýjað 20 Winnipeg alskýjað 5 Valencía léttskýjað 22 (Benidorm Gengið Gengisskráning nr. 84 - 07. maí 1986 kl. 09.15 Eining kl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi Dollar 40.500 40,620 40,620 Pund 62,228 62,413 62,839 Kan.dollar 29,385 29,472 29.387 Dönsk kr. 4,9683 4,9830 5,0799 Norsk kr. 5,8106 5.8278 5,8976 Sænsk kr. 5,7183 5.7353 5,8066 Fi. mark 8,1179 8,1419 8,2721 Fra.franki 5,7688 5,7859 5.8959 Belg.franki 0,9000 0,9027 0,9203 Sviss.franki 22,0288 22,0941 22,4172 Holl.gyllini 16,3076 16,3559 16,6544 V-þýskt mark 18,3757 18,4301 18,7969 ít.lira 0,02679 0,02687 0,02738 Austurr.sch. 2,6114 2,6192 2,6732 Port.Escudo 0,2765 0,2773 0,2831 Spá.peseti 0,2893 0,2902 0,2947 Japanskt yen 0,24393 0,24465 0.24327 írskt pund 56,052 56,218 57,112 SDR(sérstök dráttar- réttindi) 47,4464 47,5867 47,9727 Simsvari vegna gengisskráningar 22190. AKUREYM sími 96-24838

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.