Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1986, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1986, Blaðsíða 4
48 DV. LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1986. Auðbjörg lætur fara vel um sig - eða þannig! Sigrún - farin að dotta í sætinu, enda langt á milli Danmerkur og Júgóslavíu. íj ólubláun Reisan er hafin! Draumurinn er orðinn að veruleika. Ólíkt flestum öðrum stór- um draumum var þessum virkilega hrint í framkvæmd. 7. apríl sáum við, hetjurnar, Holland fyrir stafni og ákváðum að ganga þar á land. Hálfgrænar útlits vögguðum við niður landganginn með yfirfulla og alltof þunga bakpoka sem gerðu það að verkum að enn erfiðara var að halda jafnvæginu en ella; svo ekki sé nú minnst á sjórið- una sem hrjáði okkur. - Við bitum á jaxlinn og reyndum að halda virðingu okkar eins og sönnum víkingum bar!! Holland tók ekki á móti okkur í sinni fegurstu mynd. Við höfðum dottið niður á það kaldasta vor sem komið hefur í Evrópu í mörg ár. Lopapeysan og úlpan, sem mömmurnar kröfðust að yrðu með í ferðinni, urðu óaðskiljanlegur partur af okkur. Þvílík flatneskja! Hvar er Esjan? Hvar er Skarðsheiðin?.. .í íjólu- bláum draumum heima á íslandi. Krítísk augu ferðamannsins litu Rotterdam ekki hýru auga í þessu grámyglulega veðri. Túlípanarnir frægu og gróðrarparadís Hollands létu lítið á sér kræla í nepj- unni. - Rotterdam lumaði þó á ýmsu athyglisverðu. Hún hefur að geyma margvíslegan framúrstefiiuarkitektúr, t.d. hin sérkennilegu teningslaga hús í einu af úthverfum Rotterdam, Blaac. Þessi hús eru eins og teningar í laginu og eru á 3 hæðum, hver íbúð 1 teningur. í þeim er enginn réttur veggur, glugg- arnir rísa annaðhvort skáhallt upp í loft eða niður í gólf, svo maður á það á hættu að detta niður á götu opni maður óvænt. Þessi hús eru því ekki hentug fyrir fyöl- skyldufólk, enda býr þarna einungis ungt fólk og listamenn. Lektufólkið er annar athyglisverður hlutur í Rotterdam... og reyndar á fleiri stöðum Hollands. Lekturnar eru langir, flatir bátar sem sjá um flutning ýmiss varnings milli staða í Hollandi. Jafn- framt því að vera flutningstæki eru lektumar heimili fólksins. Það býr í lekt- unum allt sitt líf og börnin taka við af foreldrunum. Þetta er í rauninni alveg sérþjóðflokkur, svipað og t.d. sígaunar, fólkið giftist nær alltaf innbyrðis því þeir sem eru ekki aldir upp við þetta líf eiga erfitt með að venjast því. Þar sem lekturnar eru einnig heimili eru þær hannaðar eftir þörfum fólksins. Sérpallur er fyrir fjölskyldubílinn, sem er allt frá litlum Fiat upp í Mercedes Benz. Þvottur blaktir á snúrum uppi á þaki og smábörn eru að leik á afgirtum leikvöllum í einu horninu og blóm og blúndugardínur og jafnvel köttur eru á dekkinu. Rekstur lektanna er skipulagður, konan er stýri- maðurinn, karlinn í vélinni og stálpaðri börnin gegna hlutverki hásetanna. - Þetta fólk gegnir mikilvægu hlutverki í flutningum í Hollandi, svo mikilvægu reyndar að Hitler sá sér hag í því á sínum tíma að láta það með öllu afskiptalaust!! Við fengum okkur fullsaddar af þok- unni og flatneskjunni í Hollandi, höfðum frétt að næsti hóll væri Himmelbjerget í Danmörku.... En eftir 12 tíma lestarferð var áhuginn fyrir himinháa fjallinu far- inn veg allar veraldar, enda ekki ein þúfa sjáanleg. Einhvem tímann á átt- undu stund lestarferðarinnar kom inn í klefann til okkar dönsk nunna og settist í einu horninu. Tveim stundum síðar vorum við stöllurnar farnar að syngja íslenska ættjarðarsöngva og kveðast á til að stytta okkur stundir. Við vorum orðnar vantrúaðar á speki eins og „hug- urinn ber mann hálfa leið“. Nunnan lét sér hvergi bregða, enda ekki að spyrja að áralangri þjálfun hugans. í Frede- ricia, þar sem skipt skyldi um lest, fannst okkur tími til kominn að láta reyna á 8 ára dönskunám okkar og áræddum að ávarpa nunnuna með stuttu og laggóðu; „Farvel“. Við fengum meira að segja svar... Jæja, við getum allavega gert okkur skiljanlegar á dönsku! Leiðin lá til Odense. Við brutumst gegnum 7 vagna með bakpokana... En enginn laus klefi. Loks fundum við einn vagn, allan út- límdan í skærgulum miðum sem á stóð „Stillekupé"... hvað sem það nú þýddi... og við snöruðumst inn í einn klefann. Neeeeiii, viti menn, hún hér! Nunnan, fyrrum klefafélagi vor, var þá þarna komin. En eitthvað hefur umburðarlynd- ið verið farið að gefa sig, því er við komum þama blaðskellandi inn benti hún óþolinmóð á gulu límmiðana og sagði okkur að „ti stille“!! Hún hefur sjálfsagt óttast frekari rímnakveð- skap... Baunarnir hafa aldrei kunnað gott að meta! Eftir 3 daga dvöl í Óðinsvéum og enga sól ákváðum við að halda til Kaup- mannahafnar. Þar var kalt! Við ákváð- um nú samt að gefa Koben sjens að bæta ráð sitt og færa okkur sól og fengum okkur næturgistingu. En lengi getur vont versnað. Daginn eftir var komið hlandveður með skítkasti (rok og slydda). Getur þetta verið? Hreint óþol- andi ástand! Við höfðum ekki séð til sólar frá komu okkar til meginlandsins. Úr þessu skyldi bætt og það ekki seinna en strax! - Við ákváðum að leggja út í óveðrið til að kaupa miða með næstu lest sem færi suður á bóginn. Sökum stór- kostlegs galla á strætókerfi Kaupmanna- hafnarbúa biðum við hátt á annan tíma eftir vagninum, í grenjandi roki og rign- ingu, illa haldnar af nefrennsli, með kaldar tær og lopna putta. Ferðahugur- inn mikli var að drukknun kominn. Hvar er mamma? En strætó kom... og það stytti upp. Og með lestrarmiðann í hönd- unum, örugga tryggingu út úr landinu, var stefnan tekin niður Strikið. Þar lent- um við beint inni í miðju uppþoti, okkur til skelfingar. Grímuklæddir menn höfðu kastað reyksprengju og grjóti að Americ- an Express skrifstofunni á Strikinu. Til allrar hamingju slasaðist enginn og skemmdir urðu minniháttar á skrifstof- unni. Þetta uppþot fylgdi í kjölfar aðgerða Bandaríkjamanna í Líbýu. Við boluðum okkirr út úr mannþrönginni, endafýsti okkur ekki að flækjast í illdeil- um líðandi stundar. Við erum nú einu sinni í fríi!! En Adam var ekki lengi í Paradís. Varla höfðum við gengið fyrir horn er okkur alsaklausum var sópað inn í mótmælagöngu sem fór þar hjá í þessu. Göngunni var stefnt til bandaríska sendiráðsins. Ja hérna, ekki nóg með það að við séum að drukknun komnar vegna slagveðurs, heldur er hér einnig óverandi fyrir ólátum! Við komumst við illan leik niður á brautarstöð og haldið var í suð- urátt. „Tveir dagar í lest“, hugsuðum við ör- væntingarfullar. En fátt er svo með öllu illt að ei boði gott, sagði skáldið. 1 Munchen barst okkur nýr og áhugaverð- ur félagsskapur. Stór, skeggjaður, júgóslavneskur rumur. Hann tróðst inn í klefann klyfjaður töskum, pokum og pinklum af öllum stærðum og gerðum. Við nánari kynni kom í ljós að hann var „bisnessmaður" hinn mesti, svartamark- Heimsreisukonur lagöar upp Auðbjörg Haraldsdóttir og Sigrún Jakobsdóttir eru lagðar upp í heimsreisu. Þær urðu stúdentar úr MS í fyrra. Þá ákváðu þær að láta frekara nám bíða um sinn - eða réttar sagt: þær ákváðu að reyna að komast eftir því hvort eitthvað væri hægt að læra af heiminum; og til að svo megi verða þarf mað- ur vitanlega að skoða hann. Þær bjuggu sig undir heimsreisuna með því að vinna hörðum höndum: í veiðikofa, við ræstingar, í fiski, á veitingahúsi og reyndar víöar. Farcureyririnn var samviskusamlega lagður inn á bankareikning, kringum 200 þúsund krón- ur auk farseðils - og svo var lagt í hann. Þær ætla sér að búa og ferðast eins ódýrt og unnt er; og sitja stundum á kaffihúsum í borgum, fara í gegnum dagbækur sínar og hugsa til lesenda DV sem eiga að fá að fylgjast með för þeirra. Og við bíðum eftir frekari skrifum frá Auðbjörgu og Sigiúnu. Góða ferð, stelpur!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.