Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1986, Blaðsíða 13
DV. LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1986.
57
Vísnaþáttur
Vísnaþáttur
Vísnaþáttur
Vísnaþáttur
Sunnlendinga sigur vís...
Heilir og sælir, lesendur góðir.
Ég byrja þáttinn með tveimur vís-
um eftir Sigurð Jónsson frá Brún í
Svartárdal, vísurnar kallar hann
Sjálfslýsingar.
Sumir hafa bakfísk bæði
og bein í nefí.
En ég er eins og oflangt kvæði
ort í kvefí.
Þungan fíakkar þrautastig
þrýtur blakka reiðar.
Leggur hnakk á sjálfan sig
síðan pjakkar heiðar.
í þingveislu árið 1937 voru kveðnar
eftirfarandi vísur. Gísli Sveinsson,
þingmaður Vestur-Skaftfellinga,
kvað.
Sunnlendinga sigur vís
sig mun ávallt herða.
þeir sem búa yst við ís
undirlægjur verða.
Jón Pálmason á Akri svaraði.
Brekkur sækja aldrei á
þótt yfírlæti kunni.
Sunnlendingar sveima á
sálarfíatneskjunni.
Hermann Jónasson kvað.
Sunnlendinga sé ég hóp
sem til lítils dugar.
Þegar Drottinn þessa skóp
þá var hann annars hugar.
Eiríkur Einarsson frá Hæli svar-
aði.
Norðlingur með kvæða kjassi
kann frá mörgu að segja.
En sunnanmenn á sínum rassi
sitja og kunna að þegja.
Á þinginu 1938, er rætt var frum-
varp um húsmæðraskóla, sagði
Bjarni Bjarnason, annar þingmaður
Sunnlendinga, að kenna þyrfti stúlk-
unum meðferð ungbarna og það ekki
einungis fæddra, heldur líka
ófæddra. Um þetta var kveðið.
Kvennaskólum öllum á
eftir kröfu Bjarna.
Meyjar skulu fræðslu fá
um fyrstu myndun barna.
Gegn
kísilskán og öðrum óhrein-
indum
Fyrir
vaska, baðker, sturtubotna,
flísar, salernisskálar o.fl.
HREINSIR
(nuddi)
íslenskar leiðbein-
ingar
Fæst í flestum verslunum
sem selja ræstivörur í
REYKJAVÍK, KÓPAVOGI,
GARÐABÆ, HAFNAR-
FIRÐI, á AKRANESI,
HELLU, HVOLSVELLI,
SELFOSSI, HÚSAVÍK svo
og á öllum bensínstöðvum
ESSO.
Hreinlætisþjónustan hf.
s. 27490
Skilyrði þó er hér eitt
um þá menntun kvenna.
Ef að fræðslan verður veitt
vill hann sjálfur kenna.
Haustið 1940 mætti Skúli Guð-
mundsson, þingmaður Vestur-Hún-
vetninga, til þings með yfirskegg, en
Skúli gekk ævinlega berhöfðaður.
Þá kvað Bjami Ásgeirsson, þing-
maður Mýramanna.
Skúli yrði alþjóð hjá
í æði háu mati.
Efhann skipti í skyndi á
skeggi og höfuðfati.
Skúli svaraði:
Bjarni af ýmsum öðrum ber
en illa líkar konum.
Þessi galli að það er
ekkert skegg á honum.
Ekki veit ég um höfund að næstu
vísu en hún skýrir sig sjálf og gæti
sjálfsagt átt við í dag alveg jafnt og
þegar hún var kveðin.
Man ég svona brækur best
blásnar í rjáfri hanga.
Nú hafa þær á þingi sést
þóst vera menn og ganga.
Næst koma tvær vísur eftir K.N.
VfSAÐ ÚR VINNU
Góður, betri, bestur,
burtu voru reknir,
illur, verri, verstur,
voru aftur teknir.
MANNLÝSING
Þú ert sveitarsvívirðing,
sótugi eldhúsraftur.
Aftan og framan, allt í kring
ekkert nema kjaftur.
Jónas Jónsson frá Hofdölum kvað.
Kuldahlátur hafa má
hryggð ei látast bera.
Þó að bjáti eitthvað á
eg mun kátur vera.
Og Kolbeinn Högnason úr Kolla-
firði kvað.
Sárast raun þá síst ég met
silfir mitt að þrjóti.
Þegar best mér lífíð lét
lék ég mér að grjóti.
Stephan G. Stephansson kvað.
Hlæjum þrótt í líf og ljóð
lúa þótt vér höfum.
Kemur nóttin næðisgóð
nógu fíjótt í gröfum.
Jón Thoroddsen kvað.
Sá er aldrei elskar vín
óð né fagran svanna.
Hann er alla ævi sín
andstyggð góðra manna.
Ekki telja einstæðar mæður sig fá
neitt alltof mikið úr úr trygginga-
kerfinu en þó hefur einhver kveðið
þessa frómu ósk.
Þó að Anna grett og grá
gamni sér að vonum.
Eiginmann hún ætti að fá
út úr tryggingonum.
Halldóra B. Bjömsson kvað.
Oft eru í glösum íongin fá
freistingin á hvers manns vegi.
Margur drykki meira vín
myndi hann eftir næsta degi.
Og svo er ófeðmð vísa.
Þegar drengi vantar vín
virðist genginn hagur,
Þyrstir engan, þróttur dvín
þrauta lengist dagur.
Ekki veit ég heldur um höfund að
næstu vísum.
Margri fípast folda-Gná
fagran svip þótt kynni.
Hefur gripið öfugt á
auðnu skipstjóm sinni.
Ég tek ekki í nefíð og tygg ekki
skro
og tott’ekki pípuna mjóu.
Enfæmérá pela og fylli mig svo
í félagi við hana Gróu.
Páll Ólafsson skáld kvað.
Égdrekknú svona um dagognótt
með degi hverjum rúman pott.
Og þó það öðrum þyki Ijótt
þykir þér það skratti gott.
Skuldimar mig þungar þjá
en það er bót í máli.
Að kútinn láta allir á
orðalaust frá Páli.
Og að lokum þessi eftir Guðmund
Böðvarsson, skáld á Kirkjubóli.
Og í svipan álög hrynja
ómar strengur hreinn og skær.
Vængjagripin vaxa og dynja
veginn enginn bannað fær.
Verið þið sæl að sinni.
Stefán Jóhannesson
Kleifum
Gilsfirði
Dalasýslu.
IMýtt hefti á
blaðsölustöðum
nuna.
VERÐ KR. 160
Skop .................................. 2
Hversvegnamennberjakonursínar ........ 3
Hvað þýða draumarnir? ............... 9
Góð ráð til tölvunotenda ............. 15
Kossinn <jg saga hans ............... 17
Einntilatlöguviðsjóræningja .......... 22
Rugluð Rúmenia Ceausescus ............ 29
Ótrúlegt en satt:
Skórinnsemkonrúrheiðskírulofti ....... 35
Fórnarlambið ......................... 38
Siglingará þurru landi ............... 41
Hugsuníorðum ......................... 46
Hvað
þýða draumamir?
Bls. 9
Kossiim
og saga hans
Bls. 17
Siglinqar
á þurru landi
Bls. 41
Syndin
er að breytast
Bls. 68
VEGNA
MENN
BERTA
KQNtÍR
SINAR
Bls. 3
Helstu trúarbrögð heims:
Gyðingdómur ........................... 48
Úrvalsljóð ............................ 66
Syndin er að breytast ................. 68
Völúndarhús ........................... 76
Postojna
-Arnarhellarnirundursamlegu ........... 77
Ungafólkiðog umferðin ................. 85
Kolefni:
Efni sem líkaminn hafnarekki .......... 88
Framliðnirviljaendurnýjast ...........