Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1986, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1986, Blaðsíða 16
60 Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál DV. LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1986. Sérstæð sakamál Tilræðismenn írska fríríkinu Andiitsmynd af OHiggins var komið fyrir á þinghúsinu til minningar um hann. Hann sagði eitt sinn í einkaviðtali: „Eng- inn sem hefur unnið þau störf sem ég hef unnið getur búist við að verða langlífur. Sunnudaginn 10. júlí 1927, er friður hafði aðeins ríkt í írska fríríkinu í tæp flögur ár, var varaforsetinn, Kevin ÖHiggins, skotinn til bana er hann var á leið til kirkju. Banamenn forsetans fundust ekki og opinberlega hefur aldrei tekist að upplýsa málið, sem er enn til um- ræðu. Tilgátur hafa þó verið settar fram og hér á eftir verður sagt frá atburðinum og þeim sem ýmsum þyk- ir líklegast að hafi komið við sögu. Miskunnarlaus atlaga Ofliggins var á leið til kirkju í Dublin að morgni sunnudagsins 10. júlí en þegar hann kom gangandi að homi Crossbreiðgötu og Boot- erstownbreiðgötu stökk skyndilega maður út úr gráum bíl, sem stóð þar hjá. Maðurinn skaut á varaforsetann úr skammbyssu. Ofliggins reyndi að komast í skjól hjá stóru húsi þarna hjá en byssu- maðurinn elti hann og hélt áfram skothríðinni. Varaforsetinn féll en þá stukku tveir menn til viðbótar út úr bílnum. Þeir hlupu að varaforset- anum og tóku að skjóta á hann en nokkmm augnablikum síðar hlupu þremenningamir inn í bílinn og óku á brott á miklum hraða. Átta kúlur Varaforsetinn lést ekki strax en hann var illa særður eftir að hafa orðið fyrir átta kúlum. Farið var með hann í sjúkrahús en þar lést hann síðar þennan dag. Ofiiggins var talinn einn hæfasti og áhrifamesti stjómmálamaður í landinu á þessum tíma og meðal þeirra sem höfðu það álit á honum var David Lloyd George. Ofliggins var ekki aðeins varaforseti heldur gegndi hann einnig tveimur ráð- herraembættum; var dómsmálaráð- herra og utanríkisráðherra. Forseti landsins, William T. Cos- grave, og ríkisstjómin gerðu þegar í stað ráðstafanir til að reyna að hafa uppi á morðingjunum og innan skamms fóm hópar vopnaðra her- manna um götur Dublin. Fjöldi fólks varð að gera grein fyrir ferðum sín- um og lögregluþjónar og leynilög- reglumenn tóku að fylgjast með ferðum fólks á járnbrautarstöðvum og í höfnum landsins. IRA-menn handteknir Brátt var farið að handtaka ýmsa menn sem vitað var að gegndu leið- togastörfum í IRA, írska lýðveldis- hernum. Níu þeirra voru yfirheyrðir en allir héldu þeir því fram að IRA stæði ekki að baki morðinu á Ofligg- ins. Ekki tókst yfirvöldunum heldur að færa neinar sönnur á að svo hefði verið. Lýðveldishreyfingin var sundmð á þessum tíma enda hafði hún ekki náð sér eftir átökin miklu í borgarastyrjöldinni 1922-1923. Þá hafði Eamon de Valera og þúsundir íylgismanna hans sagt skilið við stjómmálaarm hennar, Sinn Fein, og stofnað nýjan lýðveldisflokk, Fianna Feil. Handtökumar leiddu til þess að nokkrum klukkustundum eftir morðið gaf IRA út yfirlýsingu þar sem því var haldið fram að samtökin bæru enga ábyrgð á dauða varafor- setans. De Valera gaf einnig út yfirlýsingu þar sem hann sagðist viss um að engin samtök lýðveldissinna hefðu staðið að verknaðinum. Óljós lýsing Lögreglan reyndi að fá lýsingu á byssumönnunum þremur. Margir höfðu verið á leið til kirkju á þeirri stundu er skotið var á Ofliggins en þó hafði aðeins einn maður, Eoin McNeill prófessor, séð atburðinn nógu vel til að geta talist raunveru- legt vitni. Hann hljóp varaforsetan- um til hjálpar þar sém hann lá særður á götunni og um leið hlupu mennirnir þrír fram hjá honum. Hann hafði þó verið í svo miklu uppnámi eftir það sem hann hafði séð að hann gat ekki gefið góða lýsingu á þremenningunum. Kona ein hafði hins vegar séð mennina þrjá er þeir fóru út úr bílnum, sem hafði verið fjögurra manna Morris Crowley, grár að lit. Kvað hún tvo þeirra hafa verið í rykfrökkum og með hatt en sagði þriðja manninn hafa verið í bláum fötum og með hatt. Bíllinn finnst Aðeins liðu nokkrar klukkustundir þar til bíllinn fannst. Var þá komið í ljós að þremur bílum af þessari gerð hefði verið stolið í Dublin um nótt- ina. Einn þeirra hafði verið í eigu kafteins nokkurs og reyndist hann vera sá sem notaður hafði verið en hann var með fölsku númeri er hann fannst í útborginni Milltown um þrjá kílómetra frá þeim stað þar sem ráð- ist hafði verið á varaforsetann. Ný lagasetning Ríkisstjómin beitti sér nú fyrir nýrri löggjöf um öryggismál, og fékkst hún samþykkt á þingi. Jafn- framt var hafin áköf leit að morðingj- um Ofliggins. Allt kom þó fyrir ekki. Þeir sem lýst höfðu þeirri trú sinni að málið yrði senn upplýst reyndust ekki sannspáir og allt fram til ársins 1932 stóð rannsókn þess yfir en það ár tapaði Cosgrave í kosningum og de Valera tók við. Brást lífvörður? Kevin Ofliggins hafði lengi gert sér grein fyrir því að reynt kynni að verða að ráða hann af dögum því að hann fékkst við ýmis af erfiðustu málum ríkisstjórnarinnar. Þess vegna hafði hann haft sérstakan líf- vörð, leynilögreglumann að nafni Brian OGrady, en þennan sunnudag hafði Ofliggins þó verið einn síns liðs er hann gekk til kirkju. Ýmsum þótti þetta grunsamlegt og fannst það vart geta verið einleikið að OGrady skyldi ekki hafa verið með varaforsetanum á þeirri stundu er þrír menn biðu þess að ráða hann af dögum. OGrady neitaði hins vegar að hafa nokkuð um málið vitað og fram hafa komið tvær skýringar á fjarveru hans. Önnur er sú að Ofiiggins hafi sent hann heim eftir bænabók sem hann hafði gleymt en hin er sú að varaforsetinn hafi sent OGrady til að reka fyrir sig erindi hálftíma áður en hann hafi haldið að heiman þennan morgun. Kenning Liams O Flaherty Ýmsar kenningar hafa komið fram á liðnum áratugum, og ári eftir morð- ið gaf rithöfundurinn Liam Of’la- herty út bókina The Assassin (Tilræðismaðurinn). Bókin er spennusaga með stjórnmálaívafi og er augljóst að hún er byggð á at- burðunum árið áður. Bókin kom aftur út á sjötta áratugnum og þá var Oflaherty spurður að því hvort hann vissi hver morðingi varaforset- ans væri. „Já, það veit ég,“ sagði hann. „Einn mannanna, sem skaut hann, var um tíma lífvörður minn.“ Of’laherty var um tíma mjög vinstri- sinnaður og barðist þá fyrir kommúnískri byltingu; það var árið 1922, og að lokinni borgarastyrjöld- inni flúði hann til London. Um tíma óttaðist hann um líf sitt en sneri sér svo að ritstörfum og varð síðan heimsþekktur fyrir skrif sín í The Informer. Var upplausn markmiðið? í bókinni segir OFlaherty frá þrem- ur mönnum, sem hafa sett sér það markmið að koma á upplausn í Frí- ríkinu. Einn þeirra er maður sem hefur verið rekinn úr IRA fyrir að vilja koma á miklu vandræðaástandi í Bretlandi með því að myrða stjóm- málamenn og verkalýðsleiðtoga, en það hafði hann viljað láta gera í alls- herjarverkfallinu 1926. Hugmynd hans er sú að þessari aðferð mætti beita með miklum árangri á írlandi. Telur hann best að ráða fyrst af dög- um valdamesta mann Fríríkisins en drepa síðan frammámann í röðum lýðveldissinna. Þannig yrði talið að á móti morði hefði komið hefnd. „Þá er fjandinn laus,“ er hann látinn segja. Ýmsir telja að Of’laherty hafi í rauninni skýrt málið með þessari bók sinni og þótt aðrar skýringar hafi komið fram er þessi ef til vill sú sennilegasta. Kenning Tims Pats Coogan William T. Cosgrave forseti og samráðherrar Ofliggins eru aldrei sagðir hafa viðurkennt að yfirlýsing IRA um að samtökin bæru ekki William T. Cosgrave, forseti Fríríkisins, kemur af fundi í bústað breska forsætisráð- herrans, Downingstræti 10. f«r. WPHUT. JTI Y (I tmtt. XI II, h II V IX O'HIfKi LXS Ml UUVAIVÁ). SJIOT IIV TffRKK ASSASSJXS ON WAY TOj M ASS AT IÍOoTKHSTOM X. **i m\u; i \ i; tijkmt wjtl maoj; w jiu.i: i,yjx<. mouiau.y w<m xoi.o <íx i ui iu>Ai>sim-;. I KBVÍH OHKKAHS, íW O tW [\> j f • Xí tr.u* M.r-. vfMr-? ím Jwts-s. # *«4 Mm>*t**' f«r AMmr*> tw ítm y #■*?*. h*4 tw ttnAm* *x*é Ur h-** m ki* hmtxm .*# H* w*# *■yx.ytij*'* hf* ■**#? pa M*m *t dmé *-í «. 4 S í*#t *mt**m$, m COBC8A VJtS MESSA C£~ JC*r**** ttfa&á ífaf* *m. fat* U? M***. Xfam. VtW mœxmé <xt tfa*. fah* W«n» évmm faf tW aé \m tfaj* faýytf:•# M <%#t fiw* mté »*$*#**»! mwéiaá «41 W #tm**ít*L*í h.** **<>trwfa pmwffa wifa í f*a imfat,#*. | .....| O'H'4$fn*. m h** &#*mi\*** fa** í.! X JTfc-lLV í jx Vit ITIÍ f,X í/* tV .O “S. í tW p»tfa hl*.*.*"4 faf Ciðiáfíifa C vtöfm artíö fámMÍfa. Am&fam \ — í'fav fa#* ■'■■ *W **«.«* *■.. fft fa faiiH.'faíMM Th* Uwfa ptsypU m»f <**i tfaM tW ********* * 'fanMtt. wkU mot | ■*»> ** «**.*••,:•««» -/ í-»» «*.«*.•«* 'hUHÍ&T'faM.. #< ■'. ■<’*'"& m ■ ■■ ■ f f f }■■ ■■* ys/ci& t ry *<■■* w4í W. *** ** • f "y'’; "'U**"' " * f r'fa* f'ófav <?**,mpfa ■.•.f tW íwf V-.*r P<#*ié*mi, ♦W faf trw.wTm?».**C*U .# ví*#i ov <*■***tmttxfa. &#*****,, mu* ht* fÁmt. W mfaknkmt* m.$fa fa ft&ttfam «4 \ ******** tfa* fw faií*?•# *('/.& cú ifa* fomivím f * *. tm, Utft tMtft. iuví* *m t , M WO AM 'Wf-KiAl ACCOVNT OF TH£ MUKDEK K yfw'Am fa/ * M«I'fam.ttaM w«* *fafa#v, m tfa* C,*t% < * mfafai.. 1 Vr/r -m» wimmmtt&to ** W wWr* ifam m/Mm •• '**'**■ '*'#■%&. fa* t'faM ■'■: • fS4 $famifa: M*i"f mwnw* tfa** */,yim '■ *,/ w* % é*w*'A i *',/m ^ fatim kew:k H/,mé fat *t*Uwn H wm ■ ■■ wfapwé Uf ifacm w*n. ífa* < *x w** p*t k*4 W Hfa:w*w*lx*wn Arw#***.,, *&*&*■■*. '' ’?*, w&fa CVv** Arfattm, f w* m*?f w*?m m ftW Twn pf m#*> wciwél' > i}m <d ?fa*m wf&éMtd fax ifa* 'ífax-m wfam* W **w Mx.X* Hfgpw* wrnnm <fa*wn Crm* Á*»n<a* U* wm Mm* *.t hmAmffamwK r famm fat wfamfc M.M *,m, 1'W ifarm mm <m Mr. **• * iwm/4 ífa* wmwt* mto farmme.. '■-* Ht'. mwm tfa* rtmá mA ifa* ímmét i' (#, /■/<&*.*■&#. \fa* f*i*# <fi w’Wiwr $mmi* i* IW íWr-r m*n ifa.tn Mt fafm, W. ■*** <í**d, wtd mmfa *** ***■ ÍI M>#**»♦ *»**#<£ m* <‘Á fai* hmtuiU Wyfatíf ** W l»f <m tfa*.... ■twmi Tfa* ifazm m*n, '% mmmfa'éiáfat rmn bmk 'm faim *má *mfaÍ mé ww tfat’Á *t, M< CW* fadfati ptmAnMá ém. M tkmm*fa f * * " , wAÁfaw bmm jmíwná ifa*. W4* W* t.W famwt ífa* tfawé \ ■ " mmm at rmms nttmtm ttt .* Forsíða The Irish Times 11. júlí 1927.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.