Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1986, Qupperneq 10
54
DV. LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1986.
fl LAUSAR S1ÖÐUR HJÁ
J REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
1. Staða umsjónarfóstru við dagheimili Reykjavíkur-
borgar, framhaldsmenntun áskilin.
Umsóknarfrestur til 1. júní.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri dagvista, í
síma 27277.
2. Stöður forstöðumanna við dagheimilið Bakka-
borg, v/Blöndubakka og skóladagh. Langholt,
Dyngjuvegi 18. Fóstrumenntun áskilin.
Umsóknarfrestur til 1. júní.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjón-
arfóstrur í síma 27277.
3. Stöður þroskaþjálfa við sérdeild Múlaborgar. Upp-
lýsingar veitir forstöðumaður í síma 681554.
4. Fóstrustöður við eftirtalin heimili: Dagheimili:
Laugaborg, v/Leirulæk, Múlaborg, Ármúla 8a,
Suðurborg, Suðurhólum 19, Völvuborg, Völvu-
felli 7.
Dagh./leiksk: Hraunborg, Hraunbergi 10, Rofa-
borg, v/Skólabæ, Ægisborg, Ægissíðu 104, Ösp,
Asparfelli 10. Leikskólar: Fellaborg, Völvufelli 9,
Leikfell, Æsufelli 4, Lækjaborg, v/Leirulæk, Stað-
arborg, v/Mosgerði, Njálsborg, v/Njálsgötu 9.
Skóladagheimilið Skáli, v/Kaplaskjólsveg.
Upplýsingar veita forstöðumenn viðkomandi
heimila.
5. Við sálfræði- og sérkennsludeild.
Staða talmeinaráðgjafa (talkennara). Stöður
fóstra, þroskaþjálfa eða annarra með sambærilega
menntun, til þess að sinna börnum með sérþarfir
á dagvistarheimilum. Upplýsingar veitir Guðrún
Einarsdóttir sálfræðingur í síma 27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5.hæð.
3/ *S/ *3/ 4j/ 43/ 43/ 43/ 43/ •»/ 43/ 43/ 43 / 43 / 43 / 43 / 43 / 43 / 43 / 43/ 43-
/ÍVSVÍVS*/k/S* /S* /S* /S* /S* /f* /S* /£• /t* /S* /fi* /S* /S* /S* /I
F0R0 HÚSINU
VANTAR Á SÖLUSKRÁ:
MMC Pajero dísil/bensín, lengri gerð, stgr. 5-700 þús.
Suzuki Alto
Ford Taunus
Ford Escort
Ford Fiesta
Ford Sierra
Á SÖLUSKRÁ M.A.:
þús.
Ford Sierra 2000 gl '84 .......................480
Ford Escort 1600 4 d. SS '84 ..................400
Ford Taunus 2000 Giha '82......................320
Ford Taunus 2000 Giha SS '82...................340
Ford Cortina 1300 '79..........................120
Ford Fiesta '78................................110
M.Benz250 '79..................................530
M. Benz230 F '83...............................790
M. Benz240 D '77...............................370
Suzuki Swift '84...............................250
SuzukiSwift '84................................180
SuzukiST90 '83.................................180
Suzuki Fox '84.................................340
Suzuki Pickup yfirbyggður '85..................530
Suzuki Alto4d. SS '83..........................210
Suzuki Alto 2 d. SS '83........................200
Ford Bronco Ranger '79 ........................450
Mercury Lynx '81...............................260
Fiat Regata '84.................................370
Fiat Ritmo 65 '82...............................190
Dodge Diplomat '78..............................280
MMCGalantGL'80.................................^160
BÍLAKJALLARINN
Fordhúsinu v/hlifl Hagkaups.
Símar 685366 og 84370.
Framkv«mdas1)6rl: Hnnbogi Ásgairason. *
Sölumenn: Jónas Ásgeirsson, Halidór Úlfarsson, Skúll Gislason, Þórarinn Finnbogason,
Magnús Halldórsson.
Hrekkjalómafélagið í Vestmanna-
eyjum er óneitanlega með sérstæðari
félögum sem til eru hér á landi - og
sjálfsagt þótt víðar væri leitað. Það
eru til íþróttafélög, kvenfélög, pólit-
ísk félög og góðgerðarfélög ýmiss
konar en það er áreiðanlega ekki
mikið um að fullorðnir menn taki sig
til og stofni félag sem hefur það að
markmiði að hrekkja fólk. Þetta er
þó tilgangur Hrekkjalómafélagsins
og þegar DV frétti að fyrir dyrum
stæði að halda árshátíð félagsins
þótti ekki annað fært en að bregða
sér á staðinn og kynna sér hvemig
alræmd hrekkjusvín skemmta sér.
Tótatímatai
Allar virðulegar hátíðir hefjast á
setningarræðum og þannig var það
líka hjá hrekkjalómunum. Setning-
arræðuna flutti blaðurfulltrúi félags-
ins, Ásmundur Friðriksson. „Kæru
vinir,“ hóf hann mál sitt. „Hverjir
em það?“ glumdi strax frá áheyrend-
um, sem vildu ekkert kannast við
vinskap við blaðurfulltrúann. Glósur
af þessu tagi eru mjög algengar með-
al hrekkjalóma og ekki fyrir hvern
sem er að standa upp í þeirra hópi
og segja nokkur orð.
Blaðurfulltrúinn lét hins vegar
þessar truflanir ékkert á sig fá, sagð-
ist þó verða að játa að vinum hans
hefði verulega farið fækkandi síðan
hann gekk í Hrekkjalómafélagið.
Hann bauð síðan gestina hjartanlega
velkomna og kynnti dagskrána.
Fyrst á dagskránni var að hylla
forseta Hrekkjalómafélagsins, Þór-
arin Sigurðsson, með ferföldu
húrrahrópi. Hrekkjalómar em mjög
ánægðir með forseta sinn og stakk
reyndar einn upp á því að ekki yrði
lengur talað um fyrir og eftir gos,
eins og venjan er, heldur fyrir og
eftir Tóta, eins og forsetinn er kall-
aður. Leist lómum almennt vel á slíkt
Tótatímatal.
Drullusokkur handa Bryndísi
Að lokinni forsetahyllingu flutti
blaðurfulltrúinn stutt ágrip af sögu
félagsins.
Hrekkjalómafélagið var sto&að í
febrúar 1984 af nokkrum alræmdum
hrekkjurum í Eyjum. Eftir að hafa
hrekkt hver annan í tíma og ótíma
tóku nokkrir hrekkjarar sig til og
boðuðu til hádegisverðarfundar til
að ræða stofhun félags um púkaskap-
inn. Samþykkt var að stofna slíkt
félag og því valið nafnið Hrekkja-
lómafélag Vestmannaeyja.
Samin var sérstök stofnskrá félags-
ins, en hún hefur hins vegar aldrei
verið samþykkt eða undirrituð né
neitt það framkvæmt sem þar stend-
ur - utan eitt atriði. Eitt af stofn-
skrármarkmiðum félagsins var sem
sagt að gefa öndunum á Tjörninni í
Reykjavík brauð og því var hrint í
framkvæmd þegar nokkrir hrekkja-
lómar komu til Reykjavíkur til þess
að færa Bryndísi Schram drullusokk
og blóm, eins og alþjóð er kunnugt.
Haldnir eru fundir í hádeginu á
laugardögum á um það bil tveggja
mánaða fresti. Engin regla er þó á
fundahaldinu eða öðrum uppákom-
um hrekkjalóma. Menn koma ein-
faldlega saman þegar prakkaraskap-
urinn er að gera útaf við þá og
nauðsynlegt þykir að létta á spenn-
unni.
Gúmmítékkar á Gleðibankann
Öll alvörufélög hafa gjaldkera og
á ársfagnaðinum gerði gjaldkeri
Hrekkjalómafélagsins, Magnús
Kristinsson, grein fyrir fjárreiðum
félagsins. Hann byrjaði á að skýra
frá því að gleymst hefði að loka
reikningsárinu síðast og af þeim sök-
um hefði verið ákveðið að reiknings-
ár félagsins yrði framvegis átján
mánuðir.
Að öðru leyti voru fjárreiður fé-
lagsins í góðu lagi en engar umræður
voru leyfðar um reikningana. Lauk
gjaldkerinn máli sínu á að afhenda
veislustjóranum, Sigurði Guðmunds-
syni, sérstaklega útbúið ávísanahefti
með gúmmítékkum á Gleðibankann.
„Þetta eru teygjanlegar upphæðir að
sjálfsögðu," sagði hann.
En öllu gamni fylgir nokkur alvara
og veislustjórinn bað menn að rísa
úr sætum og minnast látins félaga.
Látinn félagi telst hver sá sem ffyst
burt og er strikaður út úr félaginu.
Einn hrekkjalómurinn hafði nýverið
tekið sig upp og flutt til Svíþjóðar
og drukku menn minni hans.
Ómar Ragnarsson hrekkjalóm-
ur
„Þetta er skemmtilegasti félags-
skapur sem ég hef kynnst," sagði
Ómar Ragnarsson. Hann og Helga
kona hans voru sérstakir heiðurs-
gestir hrekkjalóma þetta kvöld. „Ég
sæki um inngöngu hér með. Ég ætla.
að ganga úr Fram og Lions og svo-
leiðis ruglfélögum. Stemmningin hér
er alveg aðdáunarverð. Verst að geta
ekki verið lengur,“ sagði Ómar, en
hann átti að skemmta í Broadway
seinna um kvöldið og varð því að
yfirgefa samkvæmið snemma.
En áður en Ómar fór varð honum
að ósk sinni. Forsetinn lagði til að
honum yrði veitt innganga í félagið
og samþykktu viðstaddir hrekkja-
lómar það með lófataki. Eina skyld-
an sem Ómari var lögð á herðar var
að koma á fundi þegar hann gæti og
sleppa því þegar hann gæti það ekki
- og taka Árna Johnsen með sér þeg-
ar hann gæti ekki komið.
Ásmundarstaðasvínarí og fýlu-
pokalamb
Á matseðli kvöldsins var fyrst boð-
ið upp á fordrykk handa fullorðnum
og mjólk handa Árna Johnsen. Þá
kom gámasúpa, en hrekkjalómum
þykir við hæfi að tala um gámafisk
og gámasúpu í stað sjávarrétta, enda
Vestmannaeyingar stórtækir í gá-
maútflutningnum.
Síðan gátu menn valið á milli þess
að fá sér „Ásmundarstaðasvínarí a
la Hrekkjó" eða „Fýlupokalamb a la
Suðurey". Ábætisrétturinn var kall-
aður „Icy a la only sixteen" til
heiðurs Gleðibankanum okkar, en
hrekkjalómum þótti að vonum súrt
í broti að okkar menn í Bergen
skyldu þurfa að lúta í lægra haldi
fyrir smástelpu. Talningu diska
stjórnaði Georg Þór Kristjánsson og
fylgdist hann grannt með því hve
margar ferðir hver gestur fór til að
fá sér ábót.
Eftir matinn tóku hrekkjalómar
svo lagið og spilaði Árni Johnsen
undir á gítar af sinni alkunnu snilld.
Hrek
Ómar Ragnarsson skemmti sér konunglega á árshátið hrekkjalóma. Með honum á myndinni eru Ámi Johnsen
alþingsmaður og kona hans Halldóra Filippusdóttir, Helga JóhannsdóHir, eiginkona Ómars, og Sigurgeir Jónas-
son hrekkjaiómur.