Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Page 2
i
DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986.
Fréttir
Fréttir
Fréttir
Fréttir
íslenska flugumferðarþjónustan:
Aga-, þjálfunar- og
stjómunarvandamál
Niöurstaða bandan'sks sérfrœöings um ísiensku flugumf ertarb jónustuna:
Helstu niðurstöður úttektar Davids
L. Anderson, séríræðings bandarísku
flugmálastjómarinnar, á íslensku
flugumferðarþjónustunni vom birtar í
DV fyrir ári. Fyrirsögn aðalfréttar DV
laugardaginn 11. maí 1985 var: Skortur
á aga er vandamálið.
David L. Anderson dvaldi á íslandi
í vikutíma. Var hann fyrst fræddur
um fluguniferðarþjónustuna af yfir-
mönnum flugmálastjómar en fékk
siðan að kynna sér þjónustuna af eig-
in raun.
Áður en hann hélt af landi brott
kynnti hann Pétri Einarssyni flug-
málastjóra helstu niðurstöður sínar.
Sökum alvarlegra veikinda tókst hon-
um ekki að ljúka endanlegri skýrslu.
Tveir starfsmenn flugmálastjómar
Bandaríkjanna gerðu skýrsluna og
byggðu hana á minnisblöðum Ander-
sons og endursögn, að því er fram
kemur formála íslenskrar þýðingar á
skýrslunni.
Auk skorts á viðhlítandi aga nefriir
skýrslan stjómunar- og þjálfunar-
vandamál. Fjölgun kerfismistaka
undanfarin ár megi rekja til aga- og
þjálfunarvandamála. Hluta af vand-
fyrír ,rssáwíiáí«sti íio*-
i «■
• skwtur viítwtbrt osr
MrfrxHsgt þsstíisíMs Qin-
«<JittofJ<íf»srM)!jar( I,
ArócíSco, Á'JryáS, kys
í »MvjtrínírJ*ría>l.
Aidtntai tfSlH írfcjRjr «.«-
síofwöyrþíWassrwr i Jgxmífr
: «Sa;<i?«>U3J. fHtmníka (llsgimif
Nj.'íS fr*tu »Sst»e fee&s# ............... ...................
Cwrt ear ttó fyrtr »« D#v‘4
Ar4*«o» »k£U>4t sijnriu slcnl >
jwáStr. tójjö jýjJíanufiKÓt Ffo«-
u41»<JVKír «■ ítfnítu (htfrto
cir> y<gt« »u>iuf»lí AftScrwœ.
Aður «v AaiJuffOft Nrí a<
istott Syr.r jí»X<*3*í» fewm ;
' • ' ■"
vlríú: fljgwf-ie-rti>r{>j!wf>i<Un á
Wfífi SKiífcfíNW ií»ö>f«
■ ■ .■--....■■.
>jJaiajíuff!«r »«rt ADetóíagta t(
sktetot l *f5» 4 •J>xkuu6 ««
AnðwA-r. «.ydr fyfir
At4««f> W »6 *t}ift>f>r»U'
þítfúríW >f« $fórt*j(í> txrtfcjr <«
í;Gí$í >r& wr«fó«í í þetfS }•««
8c«aa>}ert«rJ(f4?»ií>itifwc, Kvxtti
'■
jftírrðenrtfónú' JT>« rA&»T 3í
•»liít þctrr* ríyk*r, ai&r f
V-imfíttkfóííþirt Mur
t*rtþ fstxt iífí: ‘
Kttiarwíw
f ji ■ "
OVi&!}>6>WSlfiW»'<
Aðalfrétt DV fyrir ári þegar fyrst var sagt frá úttekt Andersons.
anum megi rekja til tilviljanakennds
eðlis borgaraflugs og herflugs.
Ekki sé. til að dreifa stöðluðum
starfsreglum handa varðstjórum til að
framfylgja né aðferðum hrint í fram-
kvæmd af þeim. Flugumferðarstjórar
búi sér þess vegna til sínar eigin regl-
ur og telji hver um sig að sín aðferð
sé hin rétta við að stjóma flugumferð,
að því er segir í skýrslunni. -KMU
Flugmálastjóri telur vandann fólginn í félagi fíugumferðarstjóra;
Ráðast gegn öllum betrumbótum
Tillögur um skipulagsbreytingar,
sem em í skýrslu, byggðri á úttekt
Davids L. Anderson, þjálfunar- og
hæfnisstjóra bandarísku flugmála-
stjómarinnar, em, að sögn Péturs
Einarssonar flugmálastjóra, nánast
nákvæmlega þær sömu og þær skipu-
lagsbreytingar sem íslenska flugmála-
stjórnin framkvæmdi um síðustu
áramót.
„Vandamálin em enn fyrir hendi í
dag. En það er til kerfi til að mæta
þeim, til að minnka þau og í rauninni
útiloka þau með tímanum," sagði Pét>
ur Einarsson.
„Það em sífelldar betrumbætur. En
til þess þarf auðvitað vilja hjá stéttar-
félagi flugumferðarstjóra. Það hefur
hins vegar kosið þá stöðu að vera
mjög hart og óbilgjamt stéttarfélag,
sagt bara nei við hverju sem er, og í
því hafa erfiðleikamir verið fólgnir.
Skipulagsbreytingamar um síðustu
áramót vom einmitt til að koma í veg
fyrir óvissu í stjómun, til þess að negla
niður stjómunina, nákvæmnisvinnu-
brögð og öguð vinnubrögð. En félag
flugumferðarstjóra, þá eins og áður,
réðst af miklu afli gegn öllum betrum-
bótum á flugumferðarþjónustunni.
Þetta er búið að vera 30 ára styrj-
öld. Fiugumferðaratvikin hafa alltaf
verið að gerast.
Þetta atvik nú er ekki afleiðing af
skipulagsbreytingum. Þessar skipu-
lagsbreytingar em að ganga í gegn
núna. Vinnubrögð í flugumferðar-
þjónustunni hafa stórbatnað. Það er
allt annað andrúmsloft og vinnumór-
all. Menn mæta fyrr og vinna nokkum
veginn út sinn tíma og framfylgja
nokkurn veginn því sem fyrir þá er
lagt. Og það er nokkuð annað en var
fyrir áramót.
Við erum að tengjast Stokksnesrad-
amum, væntanlega eftir ár. Ennfrem-
ur emm við með í áætlun sjálfvirkt
tölvukerfi sem aðvarar um missi að-
skilnaðar. Við höfum lagt inn beiðni
til Alþjóðaflugmálastofiiunarinnar um
að fá að koma því upp á næstu fjórum
árum. Við bíðum eftir samþykki henn-
ar fyrir þeirri fjárfestingu," sagði
Pétur Einarsson flugmálastjóri.
-KMU
Breyttur opnunartími í Reykjavík
Sú breyting verður á afgreiðslutíma
verslana í Reykjavík að frá og með
deginum í dag og fram til 1. september
verður lokað á laugardögum. Þessar
breytingar á opnunartíma em í sam-
ræmi við reglugerð frá 1983 þar sem
kveðið er á um takmarkanir á af-
greiðslutíma.
Kaupmannasamtök íslands og
Verslunarfélag Reykjavíkur hafa þó
gert með sér samkomulag þess efhis
að á fimmtudögum og föstudögum
verður heimilt að hafa opið fram yfir
venjulegan opnunartíma, eða til kl.
20.00 á fimmtudögum og til kl. 21.00 á
föstudögum. Margar hverfaverslanir
og smærri verslanir munu þó áfram
verða opnar á laugardögum.
-S.Konn.
DV-fnynd PK
Undrið mikla?
Það skeði i fyrrakvöld í Rozxý. Vunderfoolz komu fram og framreiddu fyrír gesti sannkallaða undratónlist sem á næstunni
verður kynnt víðar.Hljómsveitin er skipuð Magnúsi Jónssyni, hljómborð, Mick Pollock, söngur og gítar, Úlfar Úlfarsson, tromm-
ur, Eyjólfur Jóhannsson, gítar, Hlynur Höskuldsson, bassi og Hanna Stína Hjálmtýsdóttir, söngur. Mick Pollock heldur senn
til Bandaríkjanna með upptökur. Þegar er ákveðið að eitt laga sveitarinnar komi þar út á safnplötu. Hvort áheyrendur urðu vitni
að undrinu mikla í Roxzý skal ekki fullyrt en þeir áheyrendur sem sátu risu úr sætum af fögnuði. Hinir stóðu sem fastast.
Ekki gagnrýni
heldur skrtkast
- segir Ólafur Laufdal
„Eyjólfur Melsted ætti að skammast
sín fyrir lygar um Broadway og sví-
virðingar um reyndustu hljóðmenn
landsins," sagði Olafúr Laufdal veit-
ingamaður er hann var inntur álits á
óvenju harðorðri gagnrýni tónlistar-
gagnrýnanda DV um tónleika banda-
ríska djasspíanistans Herbies
Hancock á Listahátíð.
„Skammastu þín, Listahátíð," var
fyrirsögn gagmýni Eyjólfs Melsted.
Eyjólfur lýkur lofsorði á leik Herbies
Hancock en finnur aðstæðum flest til
foráttu. Lýkur hann gagnrýni sinni á
svofelldan hátt: „Þama seldi Listahá-
tíð sig Ólafi Laufdal. En allir vita
hvað þær stúlkur, sem selja sig, eru
kallaðar... Skammastu þín, Listahátíð,
fyrir að koma svona fram við unnend-
ur góðs jassleiks."
Ólafur Laufdal veitingamaður segir
að þessi gagmýni sé vart svaraverð
en bendir á að Listahátíð hafi fengið
afiiot af Broadway fyrir þrenna tón-
leika að kostnaðarlausu. „Herbie
Hancock lagði ríka áherslu á að engar
veitingar yrðu bomar fram á meðan
harrn léki og því fannst okkur sjálf-
sagt að tilkynna gestum það.
Hancock kom ekki í húsið fyrr en
kortér í 10 þannig að það er fáránlegt
að kenna Broadway um að tónleikam-
ir hafi hafist seint. Hvað varðar
gagnrýni Eyjólfs á hljómburðinn vil
ég taka fram að hljóðmennimir vom
einhverjir reyndustu fagmenn á ís-
landi, þeirra á meðal Sigurður Bjóla.
Það lýsir gagnrýnandanum að hann
skuli kalla þá „aulabárða" og „fávit-
andi um helstu reglur hljóðmögnun-
ar“. Gagnrýni Eyjólfs á hávaða í
húsinu, úr uppþvottavél og fleim, vísa
ég alfarið á bug. Hún hreinlega stenst
ekki. Hver einasti gestur fékk gott
sæti, þeir sem ekki fengu borð fengu
bólstraða færanlega stóla. Gagnrýn-
andinn minnist varla á tónleikana, svo
mikið er honum niðri fyrir að níða
niður Broadway. Ég held að hann
ætti að snúa sér að einhveiju öðm.
Þetta er ekki gagnrýni heldur skítkast
sem enginn getur tekið mark á,“ sagði
Ólafúr Laufdal.
-ás.