Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Side 7
DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986. 7 RÚSSAR að drekka sig 1 hel Rússar hafa alltaf drukkið - drukk- ið mikið og illa. Trúlega er sú staðhæfing sönn. En alkóhólismi í Sovétríkjunum hefur hreiðst svo út síðustu áratugi að jafna má við far- sótt - reyndar farsótt sem engin dæmi eru um áður eða annars staðar. Gerð hefur verið af opinberri hálfu skýrsla um drykkjuskap Sovétborg- ara. Yfirvöld þekkja vel til innihalds þeirrar skýrslu en hún hefur ekki fengist birt opinberlega. Embættis- manni einum, manni á miðjum aldri og lækni að mennt, einum þeirra sem unnu þessa skýrslu, varð svo mikið um þær staðreyndir sem við blöstu þegar niðurstöður lágu fyrir, að hann steinhætti að drekka, bragðar hvorki vodka, vín né bjór. Skýrslan hermir einfaldlega að Sovétmenn séu í þann veginn að drekka sig í hel. Gorbatsjov berst gegn drykkj- unni Gorbatsjov sagði nýlega í opinberri ræðu að framleiðsla á vodka og sterkari vínum hefði „í raun minnk- að um helming". Áætlað er að fjöldi alkóhólista í Sovétríkjunum sé um 20 milljón manns. Og alkóhólisti telst þá ein- vörðungu sá sem að jafnaði neytir áfengis. íbúar Sovétríkjanna eru 280 milljónir talsins, þannig að drykkju- mennirnir eru nærri 7% íbúanna. í meðaltalssamfélagi í Sovétríkjun- um drekka íbúarnir 11 lítra af vinanda á ári. Það er heimsmet. En það heimsmet slá menn þó rækilega i sumum þorpum og bæjum víða um hið víðlenda ríki. í bæ einum þar sem búa 3000 manns eru 30 verslanir. Vodka er selt í þeim öllum. Það er jafnvel selt í vefnaðarvöruverslun- inni. Hvert mannsbarn í bænum drekkur úr 375 flöskum á ári. Það merkir 70 lítra af vínanda á ári - ef við gefum okkur að þessar flöskur séu hálfflöskur. En það eru þær ekki nærri allar. Ekki að undra að Gorbatsjov og fleiri ábyrgir hafí áhyggjur. 500% aukning Vitað er að áfengisneysla jókst gíf- urlega í Sovétríkjunum á árunum milli 1960 og 1980. „Þessi ár jókst áfengisneysla um meira en 500%,“ segir Fjodor Uglov - læknir, prófess- or og félagi í vísindaakademíunni - í viðtali við tímaritið „Litteraturnaja Utjoba" fyrr á þessu ári. Uglov stud- dist áreiðanlega við upplýsingar úr ofannefndri skýrslu, enda mun hann vera einn höfunda hennar. Það sem áður var þjóðfélagslegt vandamál í Sovétríkjunum breyttist á sjöunda og áttunda áratugnum í félagslegt stórslys. Uglov nefnir í viðtalinu atriði sem hljóta að fá hvern mann til að hugsa sig um tvisvar: Árið 1983 þjáðust 3, 5% allra nýfæddra barna af „fávita- hætti (debiliteti) á alvarlegu stigi.“ Árið 1960 létust 7% allra ungbarna sem fæddust í Sovétríkjunum. Nú hefur sú tala hækkað í 10%. Hvergi L* imw alla vikuna í þróuðum löndum, sem svo eru nefnd, er ungbarnadauði eins mikill. Og hvergi í iðnríkjum er meðalaldur karla eins lágur. Uglov reiknaði fast- lega með því að þetta ástand myndi hafa geigvænlegar afleiðingar fyrir þjóðir Sovétríkjanna, andleg áhrif sem líkamleg. Konur auka drykkjuna Meðalaldur alkóhólista í Sovét hefur lækkað um 5-7 ár síðustu 10 árin. Konur drekka æ meira og börn og unglingar drekka æ meira. 90% alkóhólistanna hófu sinn drykkju- feril áður en 15 ára aldri var náð. Og heil 30% byrjuðu að drekka áður en þeir voru orðnir 10 ára. Það eru engar áætlanir uppi um að „þurrka" Sovétríkin. En það hef- ur verið dregið úr framleiðslu á áfengi - og fólki gert erfiðara fyrir með að kaupa vodka, vín og bjór. Og í sumum ríkjum er uppi áróður fyrir því að fólk hætti að þamba vodka, en neyti heldur kampavíns og ann- arra léttra vina. Vínframleiðendur eiga nefnilega hagsmuna að gæta í Sovétríkjunum - eins og annars stað- -GG SUMARTILBOÐ FLUGUEIÐA FLUG, BILL OG WALCHSEE •Cr.17280- Dæmi um verð og möguteika: 2 fullorðnir og 2 börn, 2—11 ára, í 2 vikur. Flug báðar leiðir um Luxemborg, bílaleigubíll í B flokki allan tímann og íbúð á íbúðahótelinu llgerhof, aðeins 17.280 kr. Verð á aukaviku með öllu; 4.579 kr. per mann. Verð miðað við verðtímabilið 3—17 júlí. . . . Og það eru fleiri möguleikar Við bjóðum einnig sumarhús í sumarleyfisparadís Biersdorf og í Zell Am See. Takmarkaður sætafjöldi og brottfarardagar. Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofur. MÖGULEIKARNIR EIGA SÉR ENGIN LANDAMÆRI. FLUGLEIÐIR Upplýsingasími: 25100 NYTT SMMANUMER FMIA S. JUNM 69 55 00 HF Laugavegi 170-172 Simi 695500 ÚSA/SÍA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.