Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Qupperneq 13
DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986.
13
íslendingar
leita
upprunans
Áhugafólk um keltneska menningu
og írland, og þar með flest það sem
írskt er, ætla í sumar að efna til hóp-
ferðar til írlands. Ferðast verður um
hin svokölluðu „keltnesku" svæði,
Aran-eyjar, Galway og Donegal þar
sem enn er töluð keltneska eða írska
- þjóðlög sungin með „kórréttum“
írskum hætti og fólk á kreiki sem
kann að stafsetja að fomum hætti.
Ferð þessi er skipulögð í samráði
við írska ferðamálaráðið. Þátttak-
endum gefst þannig kostur á að
kynnast fomirskri menningu, kirkju-
og sjálfstæðismálum. Einnig verður
lögð áhersla á það í ferðinni að
hlusta á mikið af írskri tónlist.
íslenskt áhugafólk um írska menn-
ingu býður hverjum sem vill að fara
í þessa för til írlands. Talsmaður fé-
lagsins, Sigmar B. Hauksson, sagði
DV að félagsskapurinn væri reyndar
alfarið menningarlegs eðlis - en snef-
ill af pólitík fylgir með. Þeir sem vilja
rekja uppmna sinn í átt til Kelta
fremur en Skandínava eru stundum
að velta því fyrir sér hvort ekki væri
rétt að stofna til ríkjasambands milli
frlands, Færeyja og Islands. „Og,“
sagði Sigmar „í félaginu er fólk sem
hefur áhuga á fornri þjóðmenningu
íra, kirkjulegum málefnum og líka
þeir sem hafa fyrst og fremst áhuga
á að drekka írskan bjór.“ Þeir sem
áhuga hafa á fyrirhugaðri Irlands-
ferð em velkomnir á kynningarfund
sem haldinn verður í veitingahúsinu
Duus á morgun, sunnudag 8. júni,
kl. 17.00.
-GG
Davy Byrnes, kráin fræga. Þar ætla Sigmar B. og ferðafélagar að fá sér ölglas i sumar.
Rafhlöður - kvikasilfrið úr þeim er
skaðvaldur I náttúmnni.
Rafhlöður
mikill
mengunar-
valdur
Kvikasilfur er þungmálmur sem
viðkvæm náttúra má ekki mengast
af. Málmurinn er talinn það eitur
sem hvað erfiðast er að berjast gegn
- en hann er m.a. ákaflega algengvur
í rafhlöðum sem fólk fleygir frá sér.
í Sviþjóð telja umhverfisverndar-
menn og yfirvöld nú að mikil hætta
sé farin að stafa af kvikasilfri í raf-
hlöðum sem lendir á öskuhaugum
eða í sorpeyðingarstöðvum. Þess
vegna hafa menn í Svíþjóð hafið alls-
herjar herferð til að safna inn
gömlum rafhlöðum.
Ekki er enn ákveðið með hverju
móti staðið verður að herferðinni -
en hitt er ljóst að það verða raf-
hlöðuframleiðendur og rafhlöðusal-
ar sem verða látnir borga kostnaðinn
við herferðina.
70% af því kvikasilfri sem ausið
er út í náttúruna er úr rafhlöðum -
en rafhlöðusmiðir eru ekki á því að
það komi þeim við hvað verður um
kvikasilfrið. f Svíþjóð áætla menn
að úr rafhlöðunum berist árlega 6
tonn af kvikasilfri. Yfirvöld hafa sett
sér það markmið að minnka mengun-
ina þannig að hún verði ekki nema
1,5 tonn.
kkylduhí«
íjolsw
erdabtU
ing«btU
vúavbíu
.^sAnn
Það er bókstaflega hægt að gera allt í E 10
í E 10 eru þrjár sætaraðir. Sætin má leggja mjög haglega niður og er þá
hægt að flytja ógrynnin öll með E 10. Fjórhjóladrifið kemur þér nánast hvert
sem er, hvemig sem viðrar.
Sýnum E 10 laugardag og sunnudag kl. 14-17.
Verð kr.
378.000,-
Aktu ekki út 1 óvissuna - aktu á SUBARU.
iH INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.