Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Page 14
14 DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNl 1986. Nýtt leik- hús fyrir ,,svaninn“ Opnað hefur verið nýtt leikhús í fæðingarbæ Williams Shakespeare, Stratford við ána Avon. í þessu nýja leikhúsi er ætlunin að sýna sviðsverk frá Elísabetartímanum með sams konar sviðsbúnaði og á þeirri tíð tíðkaðist. Fyrir er í Stratford sér- stakt Shakespeareleikhús þar sem allri tækni nútímans er beitt við sýn- ingar á verkum hins fræga meistara. I nýja leikhúsinu er ekki ætlunin að sýna einvörðungu verk eftir Sha- kespeare heldur fremur ýms minna þekkt verk þessa tímabils eftir höf- unda sem staðið hafa í skugga hans. Tilgangurinn með rekstri þessa leik- húss er m.a. sá að auka skilning nútímamanna á hugsunarhætti Sha- kespeares og hans samtíðar. Það var ónefridur, bandarískur auðmaður sem gaf fé í styrktarsjóð sem mun standa á bak við reksturinn á leik- húsinu. Nýja húsið hannaði arkitekt frá Stratford, Michael Reardon. Hann sótti fyrirmyndir m.a. til Globeleik- hússins í London þar sem verk Shakespeares voru fyrst færð á svið. Og nafnið fær leikhúsið frá Ben Jonsson, þeim sem kallaði Shakespe- are „svaninn sæta af Avon-á“. Sviðið mun ná langt fram í áhorf- endarýmið - en áhorfendur sitja á þrjá vegu að sviðinu. Innréttingin er úr brenndri furu og rauðaviði. Shakespeareleikhúsið í Stratford hefur löngum mátt sæta gagnrýni fyrir útlit og innréttingu. En hinum nýja „svani“ hefur verið sérlega vel tekið og hrósað fyrir smekklegar innréttingar. Times í London sagði að Svanurinn væri „einstætt verk- færi til að töfra fram hina elísabet- önsku kómedíu.“ Guardian sagði: „Svanurinn er eitt fárra, jákvæðra tilfella í annars hnignandi leik- húsmenningu okkar.“ Byggt á rústum gamals leik- húss Svanurinn var byggður á grunni eldra leikhúss sem byggt var til að minnast 300 ára ártíðar Shakespear- es. Það afmæli var 1864, en leikhúsið var þó ekki fullbúið fyrr en 1888. Það brann svo til grunna í miklum elds- voða árið 1926. Sex árum seinna var tekið í notkun nýtt leikhús þar á árbakkanum - byggt í venjulegum bíóhúsastíl. Það hús hefur gegnum < árin verið heiftarlega gagnrýnt fyrir að vera hannað af smekkleysi og I skorti á ímyndunarafli - og því alls | ekki við hæfi að sýna þar verk sjálfs meistarans. Menn létu sig lengi dreyma um að byggja raunverulegt minningarleik- hús um Shakespeare á rústum þess sem brann. Þeir draumar urðu svo að veruleika þegar auðugur Kani kom í venjulega túristaferð til Strat- ford. Sá góði maður fór á síðdegis- sýningu í Shakespeareleikhúsinu frá 1932. Á leiðinni úr leikhúsinu lenti hann í hellidembu og leitaði skjóls í nærliggjandi Shakespearesafni. Þar inni rak hann augun í líkan af því leikhúsi sem menn langaði til að byggja - og ákvað að fjármagna þá byggingu. „Loksins getum við gert það sem við höfum þráð árum saman að fá að gera,“ sagði Trevor Nunn, stjórn- andi RSC (Royal Shakespeare Company). Hin óþekktu verk samtíma- mannanna „Við getum kannað það sem verk Shakespeares hafa að geyma með því z . að sýna verk samtímamanna hans - sum hver sjaldan eða aldrei sett á svið. Þau leikrit höfðu áhrif á hann - og reyndar stundum sagt að hann hefði skrifað sum þeirra að hluta,“ C sagði Nunn - og bætti við: „Ég trúi því staðfastlega að til séu 150 leikrit frá tíma Shakespeares sem hafi ekki séð dagsins ljós mjög lengi.“ Svanurinn mun hefja sína starf- semi með sýningum á The Two Noble Kinsmen sem talið er að Shakespeare hafi skrifað í samvinnu 'við John Fletcher, Every Man In His Humour eftir Ben JonSon, The Rover eftir Aphra Behn og The Fair Maid Of The West eftir Thomas Heywood. -GG Fylgist með hvenær bifreiðin kemur í byggðalagið BRunBBároaiiGisutniK UMBOÐSMENN UM LAND ALLT • • SLOKKVIBIFREID ED FULLKOMNUM BUNADI A FERD UM LANDID Brunavarnaátak ‘86 byggist á samstarfi Brunabótafélagsins, Store- brand í Noregi, Landssambands slökkviliðsmanna og Brunamálastofn- unar ríkisins. Þetta átak felst m.a. í því að slökkvibifreið með fullkomnum búnaði verður ekið til flestra slökkviliða í landinu á tímabilinu 4. júní til 17. júlí. Efint verður til æfinga, sýninga og ffæðslufunda víða um land. , STADREYNDIR SÝNA AD BRUNAVARNIR BORGA SIG Gildir það jafnt um einstaklinga sem samfélagið. Þess vegna hvetjum við hvern og einn til að vera á verði gagnvart eldsupptökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.