Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Qupperneq 18
DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986.
18
Rokkspildan Rokkspildan Rokkspildan Rokkspildan
Súper-
stjömur
ísumar-
búðum
„Lítil tippi lengjast mest.
Lítil tippi endast best“ syng-
ur Eggert Þorleifsson og
skekur sig fram í tóman sal.
Þetta er ekki titillag kvik-
myndar um Pan-hópinn né
heldur kynning á leðjuslag.
Eggert er einfaldlega að
uppörva limstuttan karl-
mann sem meira að segja
verður að þola háðsglósur
frá móður sinni.
Þessi söngur er liður í Far-
aldri sem senn gengur yfir
landið. Hér er ekki verið að
kynda undir kynóra eða
kynna hjálpartæki ástarlífs-
ins. Öðru nær. Eggert er
ásamt öðrum að æfa leik og
söng í sal félagsheimilsins
að Borg í Grímsnesi. Þetta
eru súpersfjörnur í sumar-
búðum.
Sumarbúðir eða vinnubúðir?
Eiríkur Hauksson, Pálmi
Gunnarsson, Arnar Jónsson,
Eggert Þorleifs, Helga Möll-
er, Pétur Hjaltested og svo
mætti áfram telja. Allt eru
þetta sljörnur á Islandi. Þau
eru kjarninn í Faraldri.
„Við komum hingað til að
geta æft í friði og ró,“ út-
skýrir Pálmi. „Samheldnin
eykst og mórallinn í hópnum
verður mun betri. Við erum
eiginlega að stilla okkur
saman.“
Sumarbúðir eru ef til vill
rangnefni. Vinnubúðir væri
nærri lagi enda æft nánast
linnulaust allan daginn.
Fyrir hvað?
„Við ætlum okkur að fara
um landið í sumar og spila
fyrir landsmenn,“ segir Ei-
ríkur Hauksson. „Þessar
æfingar hér miðast að því
að við verðum í sem bestu
formi þegar slagurinn byij-
ar. Við höfum notað vikuna
vel og það verður forvitni-
legt að sjá hver viðbrögðin
verða á ballinu í kvöld.“
Mikið rétt. Fyrsti dansleik-
urinn verður í kvöld og ekki
verður einungis um ball að
ræða. Með menn eins og
Eggert Þorleifsson er
ómögulegt annað en að slá
á létta strengi. Ekki er held-
ur nóg með að hann and-
skotist á sviðum félgasheim-
ila. Hann fer einnig með
stórt hlutverk á væntanlegri
plötu Faraldurshópsins.
„Platan kemur út um miðj-
an mánuðinn,“ heldur
Eiríkur áfram. „Þetta er
fjögura laga plata með tveim
lögum eftir Magnús Eiríks.
og einu eftir Eggert. Lagið
hans er nefnilega í tveimur
útgáfum. Annars vegar er
um að ræða hreint einstakan
frumflutning hans á laginu
um þann stutta. Hins vegar
er það sama lag svo flutt í
endanlegri útgáfu með
hlj ómsveitinni."
Sumarhús Silia
Á milli æfinga hafa svo
menn slappað af í gömlum
sumarbústað Silla mínus
Valda í Grímsnesinu. Frá-
bær staður og þar hefur
mannskapurinn safnað næg-
um kröftum til að takast á
við verkefnin sem framund-
an eru. Menn eru ólmir í að
leggja upp.
„Það er alltaf jafngamanr
að þessu,“ segir Pálmi og
brosir. „Við erum með nýtt
og gamalt efni og reynum
eftir fremsta megni að gera
þetta eftirminnilegt. Það á
vonandi eftir að takast.“
-ÞJV
Meö lifiö i lúkunum. Jens Hansson kannar handstyrk Eggerts Þorleifssonar.
Þrír Faraldrar í léttri sveiflu.
' ,
DV-myndir G.Bender.