Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Page 19
DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986.
19
Rokkspildan
Hálft í hvoru - á leið i langferð.
Hálft í hvoru leggur upp í langferð
á mánudaginn. Tilgangurinn er að
kynna Götumynd sveitarinnar jafn-
framt því að lýsa í tónum þeirri
tónlist sem á götunni er að fmna.
Ferð þessi er einnig farin í tilefni af
fimm ára afmæli sveitarinnar.
Tónleikarnir í ferðinni verða alls
13 og verður farið vítt og breitt um
landið. Landsbyggðarfólki til
glöggvunar skal nú birtur listi yfir
tónleikastaði ásamt dagsetningum.
9. júní Hótel Stykkishólmur
10. júní Dalabúð
11. júní Félagsheimilið Hvamm-
stanga
12. júní Fellsborg, Skagaströnd
13. júní HótelBlöndós
14. júní Hótel Mælifell, Sauðárkróki
15. júni Félagsheimilið Húsavík
lG.júní Mikligarður, Vopnafirði
17. júní Herðubreið, Seyðisfirði
18. júní Valaskjálf, Egilsstöðum
19. júní Félagslundur Reyðarfirði
20. júní FélagsheimiliðStöðvarfirði
21. júní Hótel Höfn, Hornafirði
Eins og sést er hér um mikla yfir-
ferð að ræða. En mikið skal til mikils
vinna og allt lagt í sölurnar til að
Götumyndin komi sem best út. Von-
andi að alræmdir vegir Vegagerðar-
innar verði sveitinni enginn þrándur
götu.
Safaríkt og meyrt
• • •
A
ð gritta úti á góðri stund
er orðinn ómissandi hluti af
íslenskri sumarsælu.
Kjöt afíslensku fjallalambi
er jafn ómissandi hluti afgritt-
máltíð enda hœfir það bæði
umhverfinu og matseldinni
- meyrt, safaríkt og svo þetta
sérstaka bragð sem aðeins
íslensktfjattalamb hefur eftir
að hafa nærst á ómenguðum
vittigróðri liðlangt sumarið.
Það er lítið mál að matreiða vel heppnaða grillmáltíð
þegar kjötið af íslenska fjallalambinu er annars vegar.
Raunar er það bráðskemmtilegt!
Best er að þíða kjötið í ísskápnum 3-4 dögum
fyrir notkun til að tryggja að það bráðni í munni
veislugesta. Griilmeistarinn þarf líka
að stilla sig um að stinga í kjötið á grillinu, þó vissulega
sé það freistandi, því þá er hætt við
að safinn renni úr því. Það er líka óhætt fyrir kappann
að spara sterka kryddið. Hér er það háfjallabragðið
sem gildir. Margir nota bara salt og pipar
en hvítlaukur, blóðberg (timian), rosmarin, milt
sinnep, mynta eða steinselja henta einnig vel
í mörgum tilvikum. Meistarinn sér svo um að
smjörpensla kjötið, (það er svo gott) og þegar hann
veifar kokkahúfunni er eins gott að vera snöggur
með diskinn. íslenska lambakjötið er nefiúlega
fljótt að hverfa jafnvel af stærstu grilhim.
Þá er bara að grilia meira!
K
jöt affjattalambi er
auðvelt að geymafrosið (ódýr-
ast keypt í heilum og hálfum
skrokkum) og hægt að nýta
nánast attan skrokkinn í gritt-
mat-læri, lundir, hrygg, hvers
konar sneiðar nú eða skrokkinn
í heilu lagi, t.d. þegar um hópa
eraðræða.
| Meðlæti með grittuðu kjöti af
i íslensku fjattalambi ætti að vera
einfalt og látlaust. Glóðaðar
kartöflureru vinsælar, einnig
kartöflusalat, glóðaðir tómatar,
ananas, epli, bananar, grœn-
meti og kryddsmjör.
-ÞJV