Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Page 20
20
DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986.
Athygli símnotenda er vakin á því að við útgáfu nýrrar
símaskrár 1986 verða gerðar númerabreytingar hjá
nokkur hundruð símnotendum sem tengdir eru við sím-
stöðvarnar á Seltjarnarnesi, í Árbæjarhverfi og í
Garðabæ.
Númerabreytingarnar sem tengjast símstöðvunum á
Seltjarnarnesi og í Árbæjarhverfi verða framkvæmdar
föstudaginn 6. og iaugardaginn 7. júní 1986.
Númerabreytingar, sem tengjast símstöðinni í Garðabæ,
verða framkvæmdar laugardaginn 14. júní 1986
Enn eru ótengd símanúmer hjá um 100 handvirkum sím-
notendum í Skagafirði og um 120 handvirkum símnotend-
um í Öxarfirði, þær breytingar verða framkvæmdar síðar.
Þá verður símaskráin 1986 að fullu komin í gildi. Eru
símnotendur hvattir til að nota skrána vegna fjölmargra
breytinga frá fyrri skrá.
Sérstök athygli er vakin á því að símanúmer Borgarspít-
alans er nú 681200.
Á blaðsíðu 3 í nýju símaskránni á að vera nýtt símanúm-
er fyrir neyðarvakt lækna í Reykjavík, Kópavogi og
Seltjarnarnesi, 681200. Fólk er beðið um að breyta þessu
í símaskránni strax.
Póst- og símamálastjórnin.
óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýn-
is þriðjudaginn 10. júní 1986 kl. 13-16 í porti bak
við skrifstofu vora að Borgartúni 7, Reykjavík, og víðar.
Tegund Arg. Merking
1 stk. Mazda 929 station bensín 1982
1 stk. Mazda 929 fólksbifr. bensín 1981
2 stk. Subaru station 4x4 bensín 1980
1 stk. Subaru pickup4x4 bensín 1979
1 stk. Subaru station bensín 1978
1 stk. Toyota Hilux 4x4 bensin 1981
1 stk. Nissan King Cab4x4 dísil 1984
2 stk. Volvo Lapplander 4x4 bensín 1981-82
2 stk. Ford Bronco 4x4 bensín 1974
1 stk, Lada Sport 4x4 bensín 1982
1 stk. UAZ 452 4x4 bensín 1980
3stk. Ford Econolinesendifbif. bensín 1977-82
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins í porti Vélad. Sætúni 6:
1 stk. Lada Sport 4x4, ógangfær bensín 1981 1V
1 stk. Mitsub. Pajero 4x4, ógangfær bensín 1983 2 V
1 stk. Volksw. double Cab, ógangfær dísil 1982 3V
Til sýnis hjá birgðastöð Vegageröar rikisins í Grafarvogi:
1 stk. Volvo FB 86-49 vörubif. 6x2 1973 1G
1 stk. Volvo FB 86-49 vörubif. 6x2 1970 2G
1 stk. Caterpillar 12E veghefill 6x4 1964 3G
1 stk. A Barford Super MGM m/framdrifi 6x6 1971 4G
1 stk. Bomag BW-160 AD 6tn vegþjappa 1982 5G
Til sýnis hjá Vegagerö rikisins á Sauðárkróki: 1 stk. dísilrafstöð, 30 kw 1967 1S
1 stk. dísilrafstöð, 20 kw 1980 2S
1 stk. Caterpillar 12E veghefill 6x4 1964 3S
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Akureyri: 1 stk. Volvo N-12 dráttarbifr. 6x4 1978 1A
1 stk. BröytX-2 vélskófla 1966 2A
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Borgarnesi: 1 stk. dísilrafstöð, 20 kw 1980 1 B
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Reyðarfirði: 2stk. dísilrafstöðvar, 20 kw 1979-80 1 R
1 stk. dísilrafstöð, 30 kw, á vagni m/hjólum 1974 2R
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Höfn i Hornafirði:
1 stk. Caterpillar 12E veghefill 6x4 1965 1 H
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, ísafirði:
1 stk. veghefillABarfordSuper500m/framdr. 1970 11
Til sýnis hjá Flugmálastjórn, Reykjavíkurflugvelli:
1 stk. Zetor4718dráttarv. m/ámoksttækjumog 1976 1F
ýtubl.
Tilboðin verða opnuð sama dag í skrifstofu vorri,
Borgartúni 7 kl. 16.00 e.h. að viðstöddum bjóðend-
um. Réttur er áskilinn til að hafna boðum sem ekki
teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 POSTHÓLF 1441 TELEX 2006
„Vona að ég fái lax“
- segir Davíð Oddsson borgarstjóri sem opnar Elliöaárnar
Spennan er hafin og veiðimenn
famir að fá hann, hvort sem það er
lax eða stórurriði.
Tíminn, sem veiðimennimir hafa
beðið eftir, er kominn, þegar allt
snýst um veiði.
Elliðaámar verða opnaðar á
þriðjudaginn með pomp og pragt.
Davíð Oddsson borgarstjóri rennir
fyrstur manna í fossinn. „Jú, ég er
búinn að labba og kikja, sá nokkra
sporða í fossinum." Það á að veiða
laxa fyrsta daginn?
„Ég vona að ég fái hann, en það
er spennan að vita ekki neitt, hvort
maður fær hann eða ekki,“ sagði
Davíð Oddsson.
Veiðimaðurinn sem kíkti í Elliða-
ámar sagðist ekki hafa séð til botns
í fossinum fyrir laxi. Kannski verður
þetta metsumar. Fær Davíð Oddsson
borgarstjóri stórlax fyrsta daginn?
Við bíðum og sjáum til. Klukkan sjö
á þriðjudaginn rennir Davíð og um
leið hefst veiði í Laxá í Kjós og svo
í hverri ánni af annarri.
G. Bender
Veiðieyrað.....Veiðieyrað
Veiðin í Kleifarvatni hefur verið
þokkaleg það sem af er og margir
fengið góða veiði. Eftir nokkurra
tíma veiði hafe veiðimenn verið með
þetta 15, 20 og 25 bleikjur, sæmileg-
ar. Marga veiðimenn langar þó í
þessa „stóru“ urriða sem kannski
eru orðnir 14, 16, 18 og 20 punda.
Veiðimenn, sem vom að veiða við
vatnið nýlega, sáu einn þvílíkan og
þetta var eins og kafbátur fyrst. „Við
vorum að veiða þama í einni vikinni
og höfðum fengið 20 bleikjur. Þá
allt í einu sáum við eitthvað í vatns-
borðinu og viti menn, þetta var stór
urriði og þvílíkt flikki. Við sáum
hann vel, en hann tók ekki neitt,
sama hvað við buðum honum, og svo
Veiðivon
Gunnar Bender
lét hann sig hverfa út í djúpið. Þetta
var því sýnd veiði en ekki gefin.
Veiði er hafin í Litluá í Keldu-
hverfi og er víst ekki hlaupið að að
komast þar í veiði. Veiðileyfi em
eftirsótt, enda getur veiðin verið
„ótrúlega" góð suma dagana. Veiði-
menn, sem mættu til veiða í ánni í
vikunni, lentu í snjó og héldu víst
að þeir væra að fara til rjúpna frek-
ar en til stangaveiða. Veðurfarið
spyr ekki alltaf um áætlun manna.
Lax hefur sést víða það sem af er
og veiðimenn hafa líka kíkt víða.
Lax er kominn í Elliðaámar, Korpu,
Laxá í Kjós, Vatnsdalsá, Laxá í
Aðaldal, Ölfusá og jafnvel víðar, við
skulum vona það.
Margir hafe velt fyrir sér hvort
mikið eigi eftir að veiðast af stórum
laxi og sumir sagt að þetta verði lík-
lega eitt mesta stórlaxasumar
sögunnar. Töluvert af stórum laxi
hefur þegar endað aldur sinn í netum
Hvítárbænda og er það ekki fyrsta
vísbending? Maður skyldi halda það.
G. Bender
Helgi Sigurösson er einn af þeím veiðimönnum sem hafa rennt í byrjun veiöitímans, en þaö gerði hann í Þverá
í Borgarfirði. DV-mynd G. Bender.