Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Side 21
DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986.
21
Grínisti sem nærist á Reagan
Grínistinn Mark Russell í Wash-
ington D.C. heldur því fram að 535
húmoristar skrifi fyrir sig brandar-
ana sem hafa gert hann að ókrýndum
konungi hinnar pólitísku hæðni.
Þessir skrifarar eða hugmyndagjaf-
ar, segir Russell, eru hinir 435
meðlimir fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings og þeir 100 sem sitja í
Öldungadeildinni.
Og svo eru það auðvitað forsetarn-
ir sem hafa komið og farið í þau 25
ár sem liðið hafa frá því John F.
Kennedy flutti í Hvíta húsið þar til
röðin kom að Ronald Reagan.
„Enginn forsetanna hefur valdið
mér vonbrigðum," segir Mark Russ-
ell, sem er 53 ára og hóf sinn grínista-
feril á sjötta áratugnum. Hann ryður
úr sér fyndnum setningum og smá-
sögum, leikur undir á píanó og hefur
stundað þessa iðju alla tíð. Ferill
hans hófst á litlum píanóbar í næsta
nágrenni við Bandaríkjaþing og hélt
svo áfram í tuttugu ár á Shoreham-
hótelinu. Nú er Russell bókaður út
um öll Bandaríkin og er með hálf-
tíma þátt í sjónvarpi reglulega.
Ku klux klan hefur ekki húmor
Russell segir að áður fyrr hafi
menn tekið því verr en nú þegar grín-
ast var með þá og þeirra hugmyndir.
„Ég man eftir því að ég var ein-
hverju sinni að segja brandara á
kostnað Klu klux klan í Bandaríkj-
unum. Einhver úr því félagi var þá
staddur á bamum og réðst á mig,
reyndi að kyrkja mig. Það hefur eng-
inn stjórnmálamaður reynt ennþá,
enda vilja þeir flestir láta fólk standa
í þeirri trú að þeir hafi kímnigáfu."
Russell segist hafa orðið ákaflega
hryggur þegar Nixcm sagði af sér.
„Þá varð ég aftur að fara að skrifa
mína brandara," sagði hann grafal-
varlegur.
Russell segir að Reagan og öll hans
fjölskylda sjái sér fyrir efni í brand-
ara. „Það hefur verið skemmtilegt
hér í Washington Reagan-tímann,“
segir Russell. „Reagan er frábært
aðhlátursefni. Ég kalla hann alltaf
Ronnie Rambo.“ Russell segist sjálf-
ur vera óháður í pólitík. „Ég er
ruglaður og ósjálfstæður og er til
sölu.“ -Reuter.
KINfATTSPYRIMUSKÓLI VÍKIIMGS
Fyrsta námskeiðið hefst 9. júní. Hvert námskeið mun standa í tvær vikur, tvær
klukkustundir á dag. Markmið skólans er að kenna undirstöðuatriði í knattspymu
og fá þátttakendur til að kynnast hver öðrum. Margt annað en knattspyma verður
þó til skemmtunar. M.a. keppni milli skóla í knattþrautum og kappleikir. Boðið
er upp á skemmtiferð í tívolíið með verulegum afslætti. Þá mimu þekktir knatt-
spymumexm koma í heimsókn á hverju námskeiði. Haldið verður lokahóf eftir
hvert námskeið þar sem veitingar verða á boðstólum og þátttakendur fá viðurkenn-
ingarskjöl. Þeir duglegustu verða einnig verðlaimaðir sérstaklega.
Leiðbeinendur á námskeiðinu verða þeir Einar Ein-
arsson og Ólafur Ólafsson íþróttakennarar. Skráning
í símum 32385 (Einar) og 33894 (Ólafur) á kvöldin.
VfrbmMks'M Innritun föstudag 6. júní kl. 14-17 í Víkingsheimilinu.
Námskeiðsgjald er kr. 1.000,-
Allir eru velkomnir jafnt stúlkur sem drengir á aldrin-
um 5-14 ára.
SUMARHÚS
Af sérstökum ástæðum er þetta óvenjuglæsilega orlofshús til
sölu. Húsið getur verið tilbúið til flutnings á næstu vikum við
verksmiðjudyr. Svefnloft er yfir hálfu húsinu. Húsið er 382
að grunnfleti og er allt klætt að innan með grenipanel. Húsið
er til sýiiis við verksmiðjudyr. Athugið að enn er mögulegt
að skoða 50 m2 sýningarhús okkar á planinu hjá KÁ á Selfossi.
SAMTflKÍR
HUSEININGAR LJ
Gagnheiði 1, 800 Selfossi, sími 99-2333.
VEGAGERÐiN
^ -------w
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í klæðingar á
Suðurlandi. (Magn 136.000 ferm.)
Verki skal lokið 15. september 1986.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Selfossi og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
9. júní nk.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir ki. 14.00
þann 16. júní 1986.
UTBOÐ
Vegamálastjóri.
FRÆÐSLUSTJÓRI
NORÐURLANDSUMDÆMIS VESTRA,
KVENNASKÓLANUM - 540 - BLÖNDUÓSI
SlMI 95-4369.
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar á fræðsluskrif-
stofu.
Skrifstofustjóri. Starfssvið: sjá um daglegan rekstur
og fjárreiður, launa- og rekstrarmál skóla, uppgjörs-
og bókhaldsmál, vinna að uppbyggingu kennslu-
gagnamiðstöðvar fræðsluumdæmisins. Reynsla af
stjórnunarstörfum við skóla eða sambærileg störf
nauðsynleg.
Sérkennslufulltrúi. Starfssvið: Annast stuðnings- og
sérkennslumálefni í umdæminu, umsjón, ráðgjöf og
eftirlit í samvinnu við sálfræðinga og aðra sérfræðinga
sem starfa að kennslumálum.
Ritari/bókhaldari: Um er að ræða hlutastarf eða heilt
starf sem tekur til ritvinnnslu, bókhalds, símavörslu
og skjalavörslu. Góð vélritunarkunnátta og reynsla af
almennum skrifstofustörfum nauðsynleg.
Sérkennara/talkennara: í bígerð er stofnun sérdeildar
á Blönduósi fyrir börn með sértæka námsörðugleika
og vantar þar sérkennara til starfa. Einnig vantar sér-
kennara, bæði við einstaka skóla og sem ráðgefandi
aðila við skóla í umdæminu.
Upplýsingar um ofangreind störf, aðstöðu og hús-
næðismál, veitir fræðslustjóri í síma 95-4369,
95-4209 og eftir skrifstofutíma 95-4249.
Fræðslustjóri Norðurlandsumdæmis vestra,
Guðmundur Ingi Leifsson.
Seljum í dag
Saab 900 GL árg. 1982, 4ra dyra, Saab 99 GLS árg. 1978, 5 dyra,
rauður, ekinn 63 þús. km, bein- rauður, beinskiptur, 4ra gira, ekinn
skiptur, 4ra gira. Verðkr. 315þús. 157 þús. km. Verð kr. 150 þús.
Saab 900 GLI árg. 1982, 4ra dyra,
hvitur, beinskiptur, 5 gíra, ekinn
43 þús. km, mjög fallegur bill.
Verð kr. 360 þús.
grár, beinskiptur, 4ra gira með
yfirgir, ekinn 100 þús. km, mjög
góður og fallegur, á mjög góðu
verði og kjörum, skipti á ódýrari
bil möguleg.
Opið laugardag kl. 12-16. Ath. breyttan opnunartíma.
TÖGGUR HF.
UMBOO FYRIR SAAB OC SEAT
Bíldshöfða 16, símar681530-83104.