Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Síða 24
24 DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986. Sælkerinn Sælkerinn Sælkerinn Sælkerinn Betri ítölsk vín Ekki er mikið úrval af ítölskum vínum í verslunum ÁTVR en ítalir eru mestu vínframleiðendur í heim- inum og framleiða því mikið úrval af vínum, mörg þeirra fyrsta flokks gæðavín. Ítalía er svipað stórt land og Noregur og vínviðurinn vex um allt landið. Eins og áður sagði eru Italir mestu vínframleiðendur í heiminum, framleiða að meðaltali 6-7 milljón lítra af víni á ári hverju, að jafnaði. ítalir eru einnig miklir vínneytendur, neyta um 109 lítra á mann pr. ár. Þá hafa ítalir mikla reynslu í framleiðslu vína eða 2.750 ár, hvorki meira né minna. Sagt er að bestu ítölsku vínin séu fram- leidd af minni fyrirtækjum eða smábændum. Það væri því tilvalið fyrir ÁTVR að kaupa framleiðsl- una af einhverju slíku fyrirtæki. Þau ítölsku vín, sem hér eru á boðstólum, eru venjuleg borðvín, við söknum sem sagt ítalskra úrv- alsvína. Ef Sælkerasíðan mætti koma með tillögu þá væri t.d. hægt að nefna vín frá Piemonts, sem er á Norður-Ítalíu. Barolo er aldeilis frábært vín, bragðmikið og dimm- UMSJÓN: SIGMAR B. HAUKSSON rautt. Þetta vín er nokkuð sterkara en ítölsk rauðvín eru almennt. Barolo-vínin þurfa eins og frönsku gæðavínin að geymast í nokkur ár og þroskast. Barolo-vínið er að mestu pressað úr Nepiolo-berinu og þegar Barolo hefur náð fullum þroska er af því sérstakur en ljúfur ilmur. Af öðrum Piemont-vínum mætti einnig nefna Barbera sem að vísu er ekki í sama gæðaflokki og Barolo en þó ágætt. ATVR gæti án efa fengið aðstoð frá starfs- mönnum áfengiseinkasölu sænska ríkisins við val á heppilegu fyrir- tæki og víntegund. En í verslunum sænsku áfengiseinkasölunnar er á boðstólum ágætt úrval af ítölskum vínum. í verslunum ATVR eru á boðstólum nokkrar tegundir at ítölskum borðvin um. Hvernig væri nú að fá eina til tvær tegundir af ítölskum gæðavínum? Tómatchutney Chutney, sem er eins konar pikk- les eða grænmetissulta, mun upprunalega komið frá Indlandi. Englendingar tóku ástfóstri við þetta ágæta meðlæti og nú er hægt að kaupa margs konar chutney í verslunum. Vinsælast er sennilega Mango Chutney sem er sérlega gott með pate eða kæfu og karrí- réttum. Þá er tómatchutney mjög gott með flestöllum kjötréttum. Nú eru einmitt komnir á markað- inn ódýrir en sérlega góðir íslensk- ir tómatar. íslensku tómatamir eru mun betri en þeir innfluttu, þeir eru bragðmeiri og mun fallegri á litinn. Hvernig væri nú að búa til nokkrar krukkur af tómatchutney úr íslenskum tómötum, sem eru á hagstæðu verði einmitt núna. Hér kemur uppskrift að sérlega góðu tómatchutney, að vísu er þessi upp- skrift nokkuð margbrotin en það er auðvelt að matreiða eftir henni og þetta tómatchutney er sérlega gott, því er hægt að lofa. Hér kem- ur svo uppskriftin: 1 paprika 250 g chalottulaukur 100 g rúsínur 200 g þurrkaðar apríkósur 2 hvítlauksrif 3/4 1 vínedik 1/2 kg vel þroskaðir tómatar 1 msk. salt 1 tsk. engifer (duft) 1/4 tsk. paprikuduft 300 g sykur Paprikan er þvegin og laukamir afhýddir, einnig hvítlaukurinn. Þetta er grófhakkað með hníf ásamt rúsínum og apríkósum. Þetta hakk er svo soðið í vínedik- inu við vægan hita í klukkutíma. Þá eru tómatamir grófhakkaðir með hníf og þeim blandað saman við það sem í pottinum er ásamt sykrinum og kryddinu. Chutneyið er nú soðið þar til að það er orðið svipað þykkt og graut- ur. Ef chutneyið er ekki nógu bragðmikið eða sætt má bæta í það cayennepipar eða sykri. Chutneyið er svo sett í kmkkur sem áður hafa verið þvegnar upp úr rotvarn- arefni. Þó að uppskriftin sé nokkuð margbrotin er auðvelt að útbúa þetta chutney, en eins og áður sagði þá er þetta tómatchutney sér- lega gott. öm vert á milli matreiðslumeistara Torfunnar. Veitingahúsið Torfan var eitt af þessum veitingahúsum sem voru opnuð í kjölfar veitingahúsabylt- ingarinnar sem varð hér í Reykja- vík upp úr 1979. Nokkrum þessara veitingahúsa hefur verið lokað. Helsta vandamál íslensks veitinga- rekstrar em hinar miklu sveiflur. Veitingahús, sem er með góðan mat einn daginn, er orðið ómögulegt þann næsta. í þessum efnum hefur Torfan algjöra sérstöðu, gæðin hafa frá upphafí verið mjög jöfn og góð. Meginástæðan fyrir því að Torfan hefur þetta jafnvægi er fyrst og fremst vegna þess að mat- reiðslumenn Torfunnar eru af- bragðs fagmenn. Að auki virðist allt innra eftirlit með rekstrinum vera með ágætum enda eigandinn matreiðslumaður. Nú hefur verið gerð andlitslyft- ing á Torfunni. Á efri hæð er búið að taka í notkun 16 manna her- bergi, sem tilvalið er fyrir lítil einkasamkvæmi. Þetta nýja her- bergi er í vesturenda hússins. Þá er kominn lt'till bar á efri hæðina. Örn veitingamaður er búinn að fjárfesta í nýjum borðbúnaði og einkar smekklegum vínglösum. En líklegast eru helstu fréttirnar þær að kominn er nýr matseðill. Við fyrstu sýn virðist hann ekki ýkja frumlegur en ef betur er að gáð kemur annað í Ijós. Vissulega eru á seðlinum þessir venjulegu réttir eins og t.d. graflax með sinneps- sósu, gratineruð frönsk lauksúpa, glóðasteiktir humarhalar og steiktur silungur með kryddsmjöri. sínu En svo er á boðstólum ýmislegt spennandi eins og t.d. kjúklingalif- ur með villisveppum, reyktur hrár nautavöðvi, sem er sérlega góður. Þá er hægt að mæla með trjónu- krabbasúpunni, sem er krydduð með saffran. Af fiskréttunum er minnisstæður steiktur steinbítur með rósapipar og púrtvíni og pönn- usteikt smálúðuflök með jarðhnet- um og kókósrjóma. Kjötréttirnir eru fimm og eru þeir allir frekar athyglisverðir. Hvað segir þið um léttsteikta önd með engifer og ses- am, lambahryggvöðva með kiwi- sósu, grísahryggsneiðar með drambui-sósu, nautalundir með grænum pipar og reyktum hvítlauk eða þá léttsteikta svartfuglsbringu með rifsberjum? Öndin er sérlega athyglisverð, bragðið einstaklega ljúft og á engi- ferið sérlega vel við andarkjötið. Þá var lambahryggvöðvi með kiw- isósu einkar góður réttur. Matseðill Torfunnar er einkan- lega haganlega saman settur. Sjálfur seðillinn er mjög fallegur, er hann gerður úr sútuðu stein- bítsroði og má því leggja sér hann til munns ef svo ber undir. Á sumrin er boðið upp á fiski- hlaðborð á Torfunni. Á fiskihlað- borðinu í ár eru 45 spennandi fiskréttir. Veitingahúsið Torfan er án efa með athyglisverðustu veitingahús- um á landinu í dag. Aðaleinkenni Torfunnar eru jöfn gæði og vel saman settur matseðill.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.