Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Blaðsíða 25
I
DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986.
Skákskóli Botvinniks og Kasparovs:
Ábyigðartilfinning
gagnvart hveni skák
Eftir sjö ára hlé hafa verið teknar
upp að nýju kennslustundir í hinum
fræga skákskóla Botvinniks. Ásamt
hinum 75 ára skáksnillingi tók Garrí
Kasparov, 13. heimsmeistarinn í
skák og fyrrverandi nemandi hans,
þátt í því að koma skólanum á fót
að nýju.
Árið .1938 fæddist sú hugmynd hjá
Botvinnik að koma á skóla fyrir
unga skákáhugamenn, þegar hann
tók eftir Mark Taimanov, flinkum
skákmanni, á fyrirlestrum og
kennslustundum í Úngherjahöllinni
í Leníngrad. Botvinnik segir að aðal-
hugmyndin hafi verið fólgin í þvi að
láta ungum og efinilegum skákmönn-
um í té einkakennslu, en einnig áttu
að vera þarna nokkur efhileg böm
og þjálfarar þeirra. Um skeið var
Mark Dvoretski aðstoðarmaður
Botvinniks, en hann er nú þjálfari
Artúrs Júsupovs. „Verkefhi skóla-
stjóra við svona skóla er ekki að
kenna bömunum að tefla,“ segir
Botvinnik, „það geta þjálfaramir
gert. Það á að venja unga skákmenn
á ábyrgðartilfinningu gagnvart
hverri skák, sálfræðilega festu í
íþróttinni."
Heimsmeistarinn fyrrverandi gat
hmndið hugmynd sinni í fram-
kvæmd um miðjan sjötta áratuginn,
þegar hann dró sig í hlé og hætti
að taka þátt í mótum. Tvisvar á ári,
í skólafríum, safnaði hann saman
15-20 efnilegum krökkum frá ýmsum
landshlutum, sem vakið höfðu eftir-
tekt á mótum. Venjulega var skólinn
í Moskvu, stundum í Orljonok-
sumarbúðunum við strönd Svarta-
hafs. Þar á milli fengu þau verkefni,
hvert eftir getu. Öll útgjöld í þessu
sambandi voru greidd af Alþýðusam-
bandinu. Það hafa ekki allir
nemendur Botvinniks orðið góðir
skákmenn, þó að þangað hafi alltaf
verið safriað efhilegustu krökkun-
um. Meðal frægra nemenda hans
má nefha Karpov, Júsupov og Balas-
hov.
Það kom fyrir að meistarinn batt
vonir við einhvem af hinum ungu
nemendum sínum en þær brugðust.
Þegar meistarinn var búinn að hitta
Garrí Kasparov, sem þá var 13 ára,
veitti hann honum þegar meiri at-
hygli en hinum. Alexander Nikitin,
þjálfari Kasparovs, sem á sínum tíma
var aðstoðarmaður Botvinniks,
minnist þess hversu blíður stór-
meistarinn var á svipinn þegar
Kasparov taldi í einum hvelli upp
leikbrigðin í einni skák. Venjulega
var meistarinn þurr á manninn.
„Ekki svona hratt, Garrí, ég er ekki
eins snöggur og þú.“
Á fyrsta blaðamannafundinum,
sem heimsmeistarinn hélt áður en
hann var sæmdur lárviðarsveignum,
lýsti hann yfir að eitt meginverkefni
hans væri að opna skákskóla Bot-
vinniks að nýju. „Það er skylda mín
gagnvart sovéskum skákskóla, sem
ól mig upp.“ Botvinnik bætti við:
„Aðeins Garrí getur tekið þátt í að
koma skólanum á fót á ný. Hann
verður arfur hans.“
í apríl fór fram fyrsta kennslu-
stundin í skákskóla Botvinniks og
Kasparovs. Það var á hvíldarheimili
fyrir utan Moskvu, sem ber nafhið
Pestovo. Fréttamaðm- APN ræddi
við heimsmeistarann af þessu tilefiii.
- Er verðandi heimsmeistari á
meðal nemenda skólans?
„Ég þori engu að spá eftir fyrsta
fund okkar. Ég verð ef til vill djarf-
ari í næsta skipti, en við hittumst
aftur í nóvember. Við Botvinnik er-
um ánægðir með þann undirbúning
sem hömin hafa. Ég ætla að nefria
tvö nöfii bama sem stóðu sig vel.
Það er Ainur Sofieva, Sovétmeistari
í skák meðal stúlkna, en hún er frá
borginni Kakhi í Azerbajdzhan, og
Konstantín Sakejev, 12 ára, frá Len-
íngrad.“
- Hversu mörg böm komu í skól-
ann? Hvaðan vom þau?
„Það vom níu drengir og fjórar
stúlkur. Þau mega ekki vera komin
yfir 16 ára aldur. Það vom niður-
stöður móta innanlands undanfarin
tvö ár, þar á meðal af unglingameist-
aramótunum. Ég held að mjög
efnilegt fólk hafi verið saman komið
í Pestovo. Börnih vom frá Bakú,
Vilnjus, Moskvu, Tbílísí, Omsk, Vor-
onezh, Kharkov, Tiraspol - fiá öllum
landshomum."
- Hafa átt sér stað einhveijar
breytingar á kennsluaðferðum sam-
anborið við þann tíma þegar þér
vomð nemandi þar?
„Engar. Allt er eins og áður, en
nú em það tveir sem kenna í einu í
stað eins manns áður. Bömin sýndu
sínar skákir, sem vom skýrðar í
sameiningu. Síðan tefldu þau hvert
við annað og einnig var farið yfir
þær skákir. Svo tefldi ég tvisvar fjöl-
tefli við þau. Við fórum yfir þær
skákir og við Botvinnik höfinn þegar
glögga hugmynd um þau mistök sem
hver og einn gerir. í samræmi við
það lét ég hvem og einn fá heima-
verkefni.“
- Vinna þau nú sjálfstætt í hálft ár?
„Þau vinna með þjálfurum sínum,
en ég hef eftirlit með þeim. Á tveggja
mánaða fresti eiga nemendur skól-
ans að senda mér nákvæma skýrslu
yfir það sem þeir hafa gert.“
- Hvað stóð skólinn lengi og
hvemig var dagskráin í Pestovo?
„Skólinn var í tíu daga. Á morgn-
ana urðu allir að fara í leikfimi undir
bem lofti, síðan vom kennslustundir
i 3-4 klukkustundir og aftur á kvöld-
in i tvær klst. Skóli Botvinniks er
óhugsandi án íþróttaiðkana. Bömin
fóm á degi hverjum í fótholta og ég
tók nokkrum sinnum þátt í því. Vax-
andi kynslóð skákmanna er hraustir
krakkar, sem em oft mjög sterklega
byggðir.“
Vitali Melik-Karamov, APN
25
Garðeigendur, athugið:
Stórkostleg
verðlækkun
Pinus mugo mughus
DVERGFURA - BERGFURA
Verð frá kr. 280-480,-
Magnafsláttur
Trjáplöntusalan Núpum, Ölfusi, sími 994388.
ÚRVALS NOTAÐIR
Árg. Km Kr.
Opel Ascona GLS fastback 1985 5.000 480.000,-
Toyota F 8 manna d. 1984 136.000 590.000,-
Honda Civic sjálfsk. 1981 87.000 190.000,-
Mazda 329 5 gira 1982 76.000 340.000,-
Ch. pickup yfirb. 1979 600.000,-
Opel Rekord4d. 1978 125.000 160.000,-
Lada1600 1980 82.000 85.000,-
Opel Corsa luxus 1984 16.000 265.000,-
Ch. Citation m/vökvast. 1980 60.000 240.000,-
Mazda 626 2000 1982 52.000 255.000,-
Ford Fairmont Dekar 1978 59.000 190.000,-
Ch. Chevette 1979 33.000 m 135.000,-
IsuzuTrooperbensin 1981 86.000 450.000,-
Daihatsu Charade runab. 1980 45.000 140.000,-
IsuzuTrooperturfa., disil 1984 74.000 690.000,-
VWGolf 1978 95.000 115.000,-
Austin Allegro, st. 1979 75.000 95.000,-
Opel Kadett Berl. 1981 43.000 200.000,-
Opel Corsa GL, 3ja d. 1985 6.000 295.000,-
Volvo 244 DL 1978 110.000 190.000
Opel Kadett 1300 1985 6.000 360.000,-
Opel Ascona, 4. d. 1977 99.000 130.000,-
Ford Bronco, 6 cyl. 1981 66.000 650.000,-
Mazda 323 1981 55.000 175.000,-
Dodge Omni, sjálfsk. 1980 70.000 230.000,-
Isuzu Trooper LS, bensín 1984 23.000 795.000,-
Fiat Ritmo 65 1981 64.000 150.000,-
Opið laugardaga kl. 13-17.
Sími 39810 (bein lína).
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
EIGUM ALLT SEM PRÝTT GETUR GARÐINN
Úrvals garðplöntur
| Sumarblóm Tré og runnar Garðyrkjuáhöld Grasfræ V—]
Fjölær blóm Rósir Blómaker Áburður
LOÐVÍÐIR
er tilvalinn í steinhæðir.
Við mælum með BLÁTOPP í limgerði
Úrval LIMGERÐISPLANTA.
Opið öll kvöld til kl. 21.
Gróórarstöóin S j
GARÐSHORN S5
Suðurítííð 35 • Fossvoqi • Sími 40500