Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Blaðsíða 2
46
DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986.
Fegurðar-
samkeppni
ekkna
í Lop Buri í Thaílandi (nafn lands-
ins þýðir eins og allir vita Teland)
héldu menn um daginn fegurðarsam-
keppni fyrir ekkjur. Breiðsíðunefnd-
in valdi eina ekkjuna sér til handa
og mun sú væntanleg á fund nefndar-
innar bráðum.
Fegurðarsamkeppni er annars
ákaflega vinsæl íþrótt í Telandi, en
þessi fegurðarkeppni meðal ekkna
var hin fyrsta sinnar tegundar.
Sigurvegari var 23 ára gömul ekkja
eftir orrustuflugmann. Sú heitir
Vittaya Thanupan og þykjumst við
vita að maður hennar heitinn fagni
í gröf sinni.
- Ég held að ég ætli ekki að gifta
mig oftar, sagði Vittaya að fengnum
sigri. - Það er mun þægilegra í öllu
tilliti að búa einn.
Jafnframt því að menn kusu feg-
urstu ekkjuna völdu menn smartasta
skallann í héraðinu. Þrettán sköll-
óttir menn tóku þátt í þeirri keppni.
Sigurvegari var hinn fertugi lögre-
gluforingi Somkid Meepradab. Sá
góði herra skýrði frá því að hann
hefði verið bersköllóttur frá því árið
1971 og kynni því bara vel.
Bjór og bolti
Vinni Danmörk ekki gullverðlaun-
in í heimsmeistarakeppninni í
knattspymu sem nú fer fram í Mex-
íkó þá geta Danir huggað sig með
„VM-guld“ eða HM-gulli á íslensku.
VM-guld er nafnið á sterkum bjór
með tequilabragði sem bmgghúsið á
Láland-Falstri hefur bruggað í tilefni
keppninnar i Mexíkó.
Danir taka auðvitað virkan þátt í
HM-keppninni. Fæstir komust þeir
til Mexíkó en fylgjast af þeim mun
meiri áhuga með sendingum sjón-
varpsins. Og eins og fyrri daginn
koma þeir sér í stemmningu með því
að sötra ókjör af öli. Hingað til hafa
menn getað gengið inn á krár í Dan-
mörku og fengið sér einn „grænan“.
Grænn er sá bjór sem hvað lengst
hefir verið merktur grænum miða og
kemur frá Carlsberg. í tilefni HM-
keppninnar hefur Carlsberg nú lagt
þennan græna miða á hilluna en tek-
ið upp á því að merkja flöskur sínar
með litum danska landsliðsins, þ.e.
rauðu og hvítu.
87 ára
valkyrja
Vera Tucker, 87 ára gömul, var úti
meiraen
Shakespeare
ogiosen
Viðtal við Örn Árnason
leikara ogspaugara
Landnemaráhjólum
Greinumgamlabíla
Hjónaböndsemendast
að ganga á austanverðri Manhatt-
an-eyju í New York þegar maður
nokkur á reiðhjóli geystist þar hjá
og reyndi að rífa af henni axlartösk-
una.
Reyndar tókst manninum sinn ljóti
verknaður en Vera Tucker barði
hann á móti með regnhlífinni sinni
þannig að hann flaug af hjólinu. Svo
kom þarna að maður sem gat haldið
þrjótnum föstum þangað til löggan
kom.
- Ég hefði ekki viljað vera í sporum
þessa þjófs, sagði maðurinn þegar
New York Times spurði hvemig
hann hefði brugðist við. Regnhlífm
var í klessu eftir barsmíðina. Vera
Tucker var reyndar túristi í N.Y.
þennan dag. Hún býr í London og
er komin heim til sín til að slappa af.
Sögufrægur
demantur
Sagt er að khedívinn af Egypta-
landi (Breiðsíðunefndin er að láta
kanna það hvað khedívi er), Ismail
Pascha hafi gefið keisarafrú Evgeníu
í Frakklandi stóran, gulan demant
þegar Suesskurðurinn var opnaður
formlega árið 1869.
Khev-demanturinn hefur nú verið
seldur. Christie’s í Genf annaðist
söluna. Einhver ónefndur einkasafn-
ari keypti demantinn fyrir um tólf
milljónir króna.
Hefði ekki einhver bjálfi látið slípa
steininn á alla kanta hefði hann ver-
ið miklu meira virði. En þá hefði
víst ekki kjaftur haft ráð á að kaupa
hann.
Konurnar
komust ekki
á pólinn
Frönsku og kanadísku konurnar,
sem lögðu upp í leiðangur á Norður-
pólinn, urðu að gefast upp eftir 49
daga ferð. Konumar ætluðu að verða
fyrstar kynsystra sinna til að standa
á Pólskepnunni og lögðu upp á skíð-
um. Reyndar gerðu þær tvær tilraun-
ir til að komast á Pólinn, en ísrek
kom í bæði skiptin í veg fyrir að þær
kæmust alla leið. Þær hafa nú hætt
við frekari tilraunir til að komast á
Pólinn en telja eigi að síður að starf
þeirra hafi ekki verið fyrir gýg unnið.
Vandræða-
börn með
erfðagalla
Vísindamenn þykjast hafa komist
að því núna að svonefnd vandræða-
böm hafi í mörgum tilfellum fæðst
með „galla“ í genum sínum. Fræð-
ingamir, sem að þessu hafa stárfað,
em frá Fíladelfíu og þar hafa þeir
látið boð út ganga um „Sex chromo-
some abnormality" kallað SCA.
Fræðingarnir störfuðu í „The nat-
ional jewish centre for immunology
and respiratoru medicine" í Denver
í Colorado. Þeir segja að eitt barn
af hverjum fjögur hundmð fæðist
með galla sem valdi hegðunarvanda-
málum og tornæmi.
Vísindamennirnir sögðu á lækna-
ráðstefnu að börn með þennan galla
litu almennt eins út og venjuleg
börn.
Þessi Denver-rannsókn náði til 40.
000 bama sem fæddust á árunum
1964 til 1974. SCA fannst í 47 bömum
og svipaði öllum nokkuð saman.
Gallinn er í krómósómum sem
ákvarða kynferði barnanna. Stúlkur
hafa yfirleitt engin „X“ krómosóm,
en drengir hafa bæði „X“ og „Y“.
Böm með SCA em yfirleitt með of
mörg krómósóm eða of fá.
Vísindamennimir fullyrtu að upp-
götvun þeirra gæti orðið aðstand-
endum barna með SCA til hjálpar
við að búa sig undir að mæta erfið-
leikum samfara því að ala upp slíkt
bam.
Prestur
sem hoppar
Mikael Bennsten heitir prestur
einn í bænum Klöfsjö í Svíþjóð sem
brátt fær nafn sitt prentað í Metabók